Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1996, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1996
Fréttir
Þrjár líkamsárásir unglinga tilkynntar til lögreglu á þremur sólarhringum:
Ofbeldishneigð unglinga að
aukast og verða hrottalegri
Prjár líkamsárásir á rúmum þremur sólarhringum voru tilkynntar til lögreglu á höfuöborgarsvæöinu þar sem árásar-
menn voru unglingar á aldrinum 14-15 ára. í tveimur árásunum voru fórnarlömbin 14 ára gamlir piltar. Petta eru slá-
andi dæmi um að ofbeldi unglinga sé aö færast í aukana og veröa hrottalegra. Á myndinni sjást lögreglumenn hand-
taka ungan afbrotamann. DV-mynd S
Á rúmlega þremur sólarhringum
voru þrjú likamsárásarmál tilkynnt
til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu. í
öllum tilfellum voru árásarmenn á
aldrinum 14-15 ára. Þetta eru áber-
andi og sláandi dæmi sem gefa til
kynna að ofbeldishneigð unglinga
sé að aukast og verða hrottlegri.
Sl. mánudagskvöld réðust þrír 14
ára piltar á jafnaldra sinn í Bú-
staðahverfi. Fómarlambið var
stungið í hálsinn með hnífl en
komst á ótrúlegan hátt undan og gat
leitað hjálpar. Pilturinn missti
þriðjung blóðs af völdum
stungusárs og var mjög heppinn að
komast lifs af.
Einn árásarpiltanna hafði
skömmu áður framið tvær líkams-
árásir. Piltarnir þrír höfðu auk þess
farið um Bústaðahverfl með ólátum
og hótunum í garð annarra ung-
linga.
Piltamir sem árásina frömdu em
ósakhæfir þar sem þeir era yngri en
15 ára og því ná engin hegningarlög
yfir þá. Mál þeirra fara því ekki í
gegnum dómskerflð. Það er verk-
svið bamavemdaryfirvalda að
finna úrræði fyrir unglinga á þess-
um aldri.
Tveimur sólarhringum áður
höfðu flmm piltar, einnig 14 ára
gamlir, misþyrmt jafnaldra sínum
og skólafélaga i Mosfellsbæ um há-
bjartan dag. Fórnarlambið var flutt
á slysadeild með töluvert mikla
áverka. Nokkrum klukkustundum
síðar réðst hópur unglinga, 14 og 15
ára, á nokkra foreldra sem voru á
svokallaðri foreldravakt að nætur-
lagi i Kópavogi. Foreldramir hlutu
áverka en sem betur fer reyndust
þeir ekki alvarlegir.
Hættulegir umhverfi sínu
Eitt er víst að samfélagið sættir
sig ekki við þetta hrottalega og til-
gangslausa ofbeldi, jafnvel þó að 14
ára gamlir unglingar eigi í hlut. Það
er eitthvað mjög mikið að þegar 14
ára gamlir piltar stinga jafnaldra
sinn í hálsinn með hnífi. Slíkir pilt-
ar eru hættulegir umhverfl sínu þó
að þeir séu ósakhæfir vegna aldurs.
Spurningin er hvað sé til ráða til
að stemma stigu við þessu aukna of-
beldi unglinga. Þarf jafnvel að
lækka sakhæfisaldur til að geta
beitt refsingum gegn unglingum,
yngri en 15 ára?
Afbrot og afleiðingar
„Það er erfitt að tala um refsing-
ar hjá unglingum á þessum aldri
því þeir era ósakhæfir samkvæmt
okkar lögum. Það virkar auðvitað
alltaf illa að þurfa að hleypa ein-
Fréttaljós
Róbert Róbertsson
hverjum út á götuna sem framið
hefur hrottalega árás. í tilvikum
ungra afbrotamanna sem era að
byrja sinn afbrotaferil, og eins í
málum síbrotamanna, þarf að yera
mjög góð virkni á milli afbrota og
afleiðinga. Ungir afbrotamenn þurfa
sérstaklega að kynnast afleiðingum
gerða sinna í framhaldi af brotum
og refsingin á þá að vera fólgin í að
leiðbeina þeim aftiu- inn á rétta
braut. Þannig dregur það úr líkun-
um á að þeir haldi áfram afbrota-
ferli sínum,“ segir Ómar Smári Ár-
mannsson, yfirmaður forvarnar-
deildar lögreglunnar í Reykjavík.
Algerlega óásættanlegt
„Það er ljóst að það þarf að ræða
opinskárra við börn og unglinga,
bæði á heimilum og í skólum, um
mannleg samskipti. Það er algerlega
óásættanlegt að börn og unglingar
geti ekki vera á ferli af ótta við að á
þau sé ráðist af jafnöldrum og skóla-
félögum. Það getur ekki verið rétt-
mætt að þeim börnum sem fremja
slíka ofbeldisglæpi sé gert að fara
aftur út í samfélagið án einhverrar
aðstoðar. Það er að mínu mati bæði
rangt og óskynsamlegt því það er
eitthvað mikið að hjá bömum sem
era komin út á svona hættulegar
brautir. Ég tel að það þurfi að taka
miklu harðar á líkamsárásarmálum
hér á landi. I dag er hægt að berja
mann, játa og sleppa síðan út til að
berja næsta mann. Löggjöfin í þessu
landi þarf að sýna þarna fordæmi
og taka harðar á þessum málum,“
segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
skólastjóri í Gagnfræðaskólanum í
Mosfellsbæ.
Ragnheiður hélt fund í gær með
nemendum skólans, foreldrum og
skólamálayfirvöldum í Mosfellsbæ
eftir líkamsárásina við skólann sl.
föstudag.
Hrottalegra ofbeldi
„Það er augljóst að ofbeldi meðal
barna og unglinga er sýnilegra og
hrottalegra nú en áður og það er
mjög alvarlegt. Við reynum að að-
stoða og hjálpa viðkomandi bömiun
í vandamálum sínum því þau þurfa
mikla og góða aðstoð og aðhlynn-
ingu. Mér finnst að hegningarlög
eigi ekki að ná til svo ungra barna
heldur þarf aðrar leiðir,“ segir
Ragnheiður Sigurjónsdóttir, for-
stöðukona unglingadeildar sem er á
vegum félagsmálastofnunar Reykja-
víkurborgar.
„Vistun á unglingaheimili er
meðal þeirra meðferðarúrræða sem
við höfum. Ég tel okkur vera í stakk
búin að takast á við þessi vandamál
að hluta til og við höfum náð góðum
árangri með mörg böm sem lent
hafa á villigötum. Það er samt sem
áður ljóst að forvamarvinna í þess-
um málaflokki verður að vera
markvissari til að spoma við þessu
vaxandi ofbeldi," segir Ragnheiður.
Dagfari
Vísbending um vonda stöðu
Það fór heldur betur um íbúa
Sauðárkróks í liðinni viku. Þá
vitnuðu fjölmiðlar í úttekt tíma-
ritsins Vísbendingar á rekstri 30
kaupstaða landsins. Sú úttekt
sýndi að Selfoss var draumasveit-
arfélagið og undu menn þar glaðir
við sitt. Hitt kom meira á óvart að
verst þótti að búa á Sauðárkróki.
Krókurinn, það mæta bæjarfélag,
lenti neðst á listanum og fékk slaka
einkunn.
Fram að þessu var Sauðárkrók-
ur talinn fyrirmyndarsveitarfélag
og ibúar að vonum montnir af sín-
um bæ. Brottfluttir bæjarbúar
héldu nafni bæjarins mjög á lofti
og töluðu um hann með stolti í
röddinni. Þeir sömu menn vora
slegnir þann dag sem fréttimar
bárast. Það var hvergi verra að
vera en á Sauðárkróki, ef marka
mátti úttekt Vísbendingar. Af 30
kaupstöðum á landinu var Sauðár-
krókur í 30. sæti. Kaupstaðurinn
fékk aöeins 3,3 í einkunn af 10
mögulegum. Það er falleinkunn,
hvemig sem á hana er litið.
Vísbending taldi það upp sem
þurfti aö prýða góð sveitarfélög.
Skattheimta átti að vera lág, fjár-
festingar nægilegar, þjónusta hag-
kvæm og skuldir sem minnstar.
Fjölgun íbúa átti að vera hófleg.
Ekkert kom fram um að þetta væri
sérstaklega djöfullegt á Sauðár-
króki. Þar vora talin upp skuldug-
ustu sveitarfélögin, Ólafsfjörður,
Kópavogur, Bolungarvík og Hafn-
arfjörður. Sauðárkrókur var ekki
nefndur á nafn en samt dæmdi Vís-
bending hann úr leik. Allt virtist
vera í pati í hinum stolta kaupstað
Skagfirðinga.
Sauðkrækingar bára harm sinn í
hljóði, gengu um fölir og vissu raun-
ar ekki hvaðan á þá stóð veðrið. Það
lá við að undirbúningur undir sælu-
viku Skagfirðinga félli niður.
Þetta stóð svo þar til viku eftir
að upplýsingar Vísbendingar
komust i hámæli. Þá kom í ljós að
það var ekki allt í pati á Króknum.
Það var bara allt í plati hjá Vís-
bendingu. Tímaritið hafði reiknað
vitlaust. Sauðárkrókur var með
bestu bæjarfélögum og eftirsótt að
búa þar. Bærinn átti að vera í tí-
unda sæti en ekki því þrítugasta.
„Sorrý", sögðu þeir á Vísbendingu.
Þeir á Króknum vita því ekki
hvort þeir eiga að hlæja eða gráta.
Þeir fengu harðan dóm en hafa ver-
ið endurreistir. Spumingin er bara
sú hvort upprisan kemst til skila.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki segir
að málið hafi þegar stórskaðað
bæjarfélagið. Vísbendingin um að
verst sé að búa á Sauðárkróki og
þar sé minnst um að vera var í
ranga átt.
Við þessar hörmungar Sauðár-
króksbúa bætist svo, að sögn bæj-
arstjórans, að svæðisútvarpið ham-
ast á því að fólksflótti sé frá Sauð-
árkróki. Sá flótti á að hafa átt sér
stað áður en Vísbending komst að
því að ómögulegt væri að þrauka á
Króknum.
Málið er bara það, segir bæjar-
stjórinn, að fólksflóttinn er enginn.
Vitað er um þrjá unglinga sem
brugðu sér á vertíð í Vestmanna-
eyjum. Sú ævintýraþrá geti ómögu-
lega talist fólksflótti.
Sauðárkróksbúa bíður því mikiö
uppbyggingarstarf. Bæjarbúar
þurfa greinilega vísbendingu um
hvert skuli stefna. Það hefur hins
vegar ekkert heyrst frá íbúunum í
Snæfellsbæ. Þeir sluppu svo vel að
lenda í 29. sæti hjá þeim á Vísbend-
ingu en eftir leiðrétta útreikninga
þeirra er ekki annað að sjá en þeir
vermi neðsta sætið. Kannski er
líka vitlaust reiknað hjá þeim?
Hugsanlega hafa þeir fundið á sér
að útreikningar gætu farið á hvað
veg sem er enda brugðu þeir á það
ráð nýlega aö ráða fyrram fram-
kvæmdastjóra Almannavama sem
bæjarstjóra. Áfallahjálpin er því til
staðar.
Það eina sem er klárt er að Sel-
fyssingar fara ekki fram á endur-
talningu. Vísbending segir að það
sé alger draumur að búa á bökkum
Ölfusár.
Við skulum vona að eitthvað sé
að marka það.
Dagfari