Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1996, Blaðsíða 28
3$
36
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1996
nn
Eru iþróttamenn framleiösla sem
stórtap verður á?
Líkkistunaglinn
fyrir keppnis-
íþróttir
„Ef málin þróast á þann veg
aö við framleiðum íþróttamenn
fyrir erlend félög þá er það síð-
asti naglinn í líkkistuna fyrir
keppnisíþróttir á íslandi."
Brynjar Harðarson, formaður
handknattleiksdeildar Vals, í
DV.
Bóndinn Jón Baldvin
„Það var greinilegt að hey-
skapur formanns Alþýðuflokks-
ins hafði tekist vel því hvergi
var komið að tómri hlöðu, hvað
þá að tugga sæti föst.“
Hermann Níelsson, form. Fé-
lags jafnaðarmanna á Fljóts-
dalshéraði, í Alþýðublaðinu.
Smáaurar Kananna
„Þetta eru smáaurar sem spar-
ast - jafngilda nokkrum skrúfum
í herþotu.“
Þórunn Jónsdóttir, hjá Menn-
ingarstofnun Bandaríkjanna,
um kostnaðinn við stofnunina,
í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Óþarft sundrungartal
„Oft þykir mér þetta sundr-
ungartal hjá eldra fólkinu virka
eins og einhver goðsögn.“
Gestur G. Gestsson, form.
SUJ, í DV.
Öll þessi föll
„Ég er að tala um hlutfallið og
fimmta fallið og öll þessi föll sem
þoka okkur áleiðis í lífínu, þess
vegna lykkjuföllin."
Megas um plötu sína, Til ham-
ingju með Fallið, í Alþýðublað-
inu.
Eftirminnileg
svör listamanna
við gagmýni
Það er mismunandi hvernig
listamenn taka gagnrýni og stund-
um hafa svör þeirra orðið eftir-
minnilegri en gagnrýnin sjálf.
Píanóleikarinn Liberace hélt
mikinn konsert í Madison Square
Garden árið 1954 og var troðfullt
og aðdáendur hans skemmtu sér
vel. Daginn eftir voru gagn-
rýnendur allir á sama máli um að
konsertinn hefði verið ein hörm-
ung. Liberace svaraði þessu eftir-
minnilega: „Það sem þeir sögðu
særði mig mjög mikið, ég grét aila
leiðina í bankann."
Blessuð veröldin
George Bemard Shaw var við-
staddur frumsýningu á leikriti
sínu, Arms and the Man, árið
1898. Mikil fagnaðarlæti brutust
út að lokinni sýningu og Shaw
steig á svið til að ávarpa áhorfend-
ur. Þegar hljótt var orðið heyrist
baul frá gagnrýnandanum Regin-
ald Golding Bright. Shaw sneri
sér að gagnrýnandanum og sagði:
„Kæri vinur, ég er alveg sammála
þér, en hvað getum við tveir gert
gegn öllum hinum?“
Þegar ítalski málarinn Rafael
var að vinna að Vatíkansfreskum
sínum komu tveir kardínálar að
honum þar sem hann var að mála.
Þeir fóm að gagnrýna verkin og
annar sagði: „Andlitið á Páli post-
ula er of rautt." Raphael svaraði
að bragði: „Það er vegna þess að
hann hefúr roðnað af skömm þeg-
ar hann frétti í hverra hendur
kirkjan hefúr fallið."
Stormur með skúrum og éljum
Skammt suður af Jan Mayen er
970 mb. lægð sem hreyfist norðaust-
ur en 960 mb. lægð á Grænlands-
sundi hreyfist lítið.
Veðrið í dag
Vestanlands verður suðvestan
stormur eða rok og jafnvel ofsaveð-
ur norðvestan til með skúrum eða
éljum. Um landið austanvert verður
suðvestanhvassviðri eða stormur og
bjart veður. Lægir í kvöld og nótt.
Á höfuðborgarsvæðinu er suð-
vestan stormur eða rok og éljagang-
ur en lægir í kvöld og nótt. Hægt
kólnandi niður undir frostmark.
Sólarlag í Reykjavík: 16.30
Sólarupprás á morgun: 09.57
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.29
Árdegisflóð á morgun: 08.54
Veðriö kl. 6 í morgun:
Akureyri snjóél 5
Akurnes léttskýjað 5
Bergstaðir úrkoma í grennd 4
Bolungarvík haglél 4
Egilsstaðir léttskýjað 5
Keflavíkurflugv. slydduél 3
Kirkjubkl. alskýjað 5
Raufarhöfn léttskýjaö 4
Reykjavík slydduél 4
Stórhöfði úrkoma i grennd 5
Helsinki snjók. á síð. kls. 0
Kaupmannah. léttskýjaö 0
Ósló léttskýjað -8
Stokkhólmur léttskýjað -5
Þórshöfn súld 9
Amsterdam léttskýjaó 2
Barcelona skýjað 11
Chicago heiðskírt -8
Frankfurt hálfskýjað 3
Glasgow skýjaö 10
Hamborg skýjaö -.2
London þokumóöa 0
Los Angeles þoka 13
Madrid súld 7
Malaga skruggur 11
Mallorca rigning 15
París heiðskírt 2
Róm þokumóða 15
Valencia þokumóöa 11
New York alskýjað 2
Nuuk snjóél -4
Vín rigning 9
Washington alskýjaö 4
Winnipeg þokumóða -20
Guðmundur Ólafsson leikari:
Framhaldsþættir um lífið í fornbókaverslun
„Þessir þættir gerast í fornbóka-
búð og heitir þáttaröðin reyndar
Fombókabúðin og eru aðalpersón-
umar tvær, félagar sem eiga búð-
ina saman, og leik ég annan þeirra
og Ingvar J. Sigurðsson hinn. Inn
til þeirra rekast vinir og vanda-
menn og fleira fólk. Þetta er allt á
léttu nótunum. Við erum þegar
búnir að taka upp fjóra þætti og i
byrjun janúar munum við bytja á
öðmm fjórum sem við Jóhann Sig-
urðarson emm byijaðir að skrifa,"
segir Guðmundur Ólafsson leikari
en hann og Jóhann Sigurðarson
hafa verið að vinna þessa fram-
haldsmyndaröð sem Saga Film
framleiðir og verða fyrstu þættirn-
ir teknir til sýningar á Stöð 2 í
byrjun næsta árs. Guðmundur og
Jóhann vinna saman handritið en
Jóhann leikstýrir.
Maður dagsins
Guðmundur segir aö hann og
Jóhann hafi lengi gengið með
þessa hugmynd: „Það er orðið
nokkuð langt síöan íslenskur
framhaldsmyndaflokkur hefur
verið gerður fyrir sjónvarp og það
er spennandi að vinna við slíkt,
hraðinn er mikill og voru fjórir
fyrstu þættimir teknir á einni
Guðmundur Ólafsson.
viku. Það em um það bil þrjú ár
síðan við skrifuðum fyrsta handri-
tið en það var ekki fyrr en Jón Þór
Hannesson í Saga Film hafði séð
það að hlutimir fóru að gerast."
Guðmundur hefur mikið veriö í
sviðsljósinu að undanfömu, hann
leikur eitt stærsta hlutverkið í
Djöflaeyjunni og leikur ásamt
Sögu Jónsdóttur í BarPari en bæði
þessi verk njóta mikilla vinsælda
um þessar mundir: „Vinsældir
Djöflaeyjunnar koma mér ekkert á
óvart. Myndin hefur allt með sér,
góðar bækur sem þjóðin er búin
að lesa, og þá er ég viss um að hin
mikla leikmynd sem fólk kom í
þúsundatali að skoða hefur haft
áhrif á aðsóknina. BarPar hefur
gengið einstaklega vel í haust. Það
var komin aðeins lægð í aðsókn-
ina í vor og við vorum ekki viss
um hvort við ættum að halda
áfram en það hefur svo sannarlega
borgað sig því búið er að vera nán-
ast fullt á allar sýningar í haust.“
Guðmundur var spurður hvort
allar skiptingamar í BarPari
gengju alltaf snurðulaust fyrir sig:
„Ég er nú alltaf að bíða eftir því að
ég fari inn í vitlausum fötum en
það hefur sem betur fer ekki skeð
enn þá en einu sinni munaði engu
að ég færi inn með spraybrúsa í
hendinni í stað bjórflösku. Það
heföi getað orðið skemmtileg upp-
ákoma því ég á að tala um hvað
þetta sé nú góður bjór.“
Þegar Guðmundur var spurður
um áhugamál fyrir utan leiklist-
ina sagði hann þau mörg en tók þó
íþróttir fram: „Ég hef mjög gaman
af að fara á skíði og ég spila fót-
bolta með vinum og kunningjum,
þá hleyp ég um götm- bæjarins til
að halda mér i formi.“ -HK
Myndgátan
Hlaupkenndur
Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingaroröi.
_____________DV
Fimm leik-
ir í úrvals-
deildinni
í gærkvöld var það handbolti
sem boðið var upp á en í kvöld
er það körfuboltinn sem allt
snýst um, en fimm leikir verða
leiknir í úrvalsdeildinni, sjötti
leikurinn sem lýkur umferðinni
verður síðan á morgun. í Borgar-
nesi leika Skallagrímur og KR, á
Iþróttir
Akureyri Þór og Haukar. í Kefla-
vík leika heimamenn við Breiða-
blik, á Sauðárkróki leika Tinda-
stóll og ÍA og í Reykjavík leika
ÍR og Grindavík. Allir leikimir
hefjast kl. 20. Á morgun fara síð-
an íslandsmeistarar Njarðvíkur
til ísafjarðar og leika þar gegn
KFÍ.
Mosfellsbær:
Opið hús í
Bæjarleik-
húsinu
í tilefni af 20 ára afmæli Leik-
félags Mosfellssveitar er opið
hús I þrjá daga frá kl. 20-22 og er
boðið upp á fjölbreytta dagskrá.
Fyrsti dagurinn var í gær, en í
dag er kl. 20.30 sagt frá stofnun
félagsins. Tíu mínútum síðar
verður flutt frumsamin dagskrá
eftir Birgi Sigurðsson sem fjallar
um leiklist i Mosfellsbæ frá upp-
hafi. Á morgun verður síðan ld.
20.30 kynning á Bandalagi ís-
lenskra leikfélaga og eftir það
fluttir einþáttungurinn Hvísl-
Leikhús
ararnir eftir Dino Buzzatti. Allir
eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis. Á hverju kvöldi eftir
hverja dagskrá er boðið upp á
veitingar og sýndar myndbands-
upptökur úr verkefnum leikfé-
lagsins.
Bridge
Italinn Andrea Buratti, sem var
gestur á síðustu Bridgehátíð, var í
landsliði ítala á Ólympíumótinu á
Rhodos. Það vakti sérstaka athygli á
mótinu þegar hann sýndi mikið
drenglyndi í sögnum í þessu spili í
leik gegn Búlgörum í sjöundu um-
ferð undankeppninnar. Búlgaramir
notuðu sterkt laufakerfi og norður
lenti í því að passa niður laufopnun
félaga. Buratti, sem næstur var i
sagnröðinni (i austur), bauð hins
vegar norðri að taka sögnina aftur
eg segja það sem hann vildi á spilin.
Suður gjafari og NS á hættu:
* D10653
•* KDG4
♦ 6
* 1053
4 G72
* Á1085
* D93
* DG4
* ÁK84
* 72
* Á87
* ÁK82
Suður Vestur Norður Austur
1 * pass pass?
Búlgarinn þáði boð Burattis og
stuttu siðar voru NS komnir í prýði-
legan samning, 6 spaða á aðeins 26
punkta samlegu. Sagnhafi var sá
sem sagt hafði pass í upphafi og
hann virðist eitthvað hafa farið úr
sambandi við þetta atvik. Spilið
vinnst alltaf með því að spila
tvisvar sinnum hjarta frá blindum
að mannspilunum og er þá hægt að
losna við tvö lauf í blindum. En
Búlgarinn fór ekki þessa leið í úr-
spilinu og fékk ekki nema ellefú
slagi. Andrea Buratti græddi því
nokkra impa á hinu göfúga tilboði
sínu. ísak Öm Sigurðsson