Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1996, Qupperneq 26
34
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1996
Fólk í fréttum______________________
Ásta Bryndís Þorsteinsdóttir
Ásta Bryndís Þorsteinsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri við
Landspítalann, Hofgörðum 26, Sel-
tjamarnesi, var kjörinn varafor-
maður Alþýðuflokksins á nýaf-
stöðnu flokksþingi hans.
Starfsferill
Ásta fæddist í Reykjavík 1.12.
1945 og ólst þar upp. Hún lauk gagn-
fræðaprófl frá Gagnfræðaskóla
+ Vesturbæjar 1962, prófi frá Norfoik
High School í Nebraska í Bandaríkj-
unum 1963, varð hjúkrunarfræðing-
ur frá Hjúkrunarskóla Islands 1968,
stundaði nám í skurðhjúkrun á ís-
landi og í Danmörku og framhalds-
nám í hjúkrunarstjómun viö Nýja
hjúkrunarskólann 1987-88.
Ásta var skurðhjúkrunarfræðing-
ur á Borgarspítalanum 1968-69,
hjúkrunarfræðingur á geðdeild í Ár-
ósum í Danmörku 1971, skurðhjúkr-
unarfræðingur við Árhus
Kommunehospital 1972-80, hjúkrun-
arfræðingur við göngudeild Landsp-
ítalans 1980-81, skurðhjúkruna-
rfræöingur við skurðdeild kvenna-
deildar Landspítalans 1982-88 og
hefur verið hjúkrunarframkvæmda-
stjóri Landspítalans frá 1988.
Ásta sat í stjóm Landssamtak-
anna Þroskahjálpar 1985-95, þar af
formaður 1987-95, er vara-
formaður NFPU, Nor-
rænna hagsmunasamtaka
um málefni þroskaheftra,
situr í stjóm Norrænu
ráðherranefndarinnar um
málefhi fatlaðra, er fúll-
trúi Þroskahjálpar í stjórn
Þroskaþjálfaskóla íslands
og í stjóm Mannréttinda-
skrifstofu íslands, er
fyrsti varaþingmaður í
Reykjavik fyrir Alþýðu-
flokkinn, er varamaður í
Tryggingaráði og hefur
gegnt opinbemm neftidar-
störfum um málefni fatlaðra, endur-
skoðun tryggingalaga og forgangs-
röðun í heilbrigðisþjónustu.
Fjölskylda
Ásta giftist 10.9. 1966 Ástráði
Benedikt Hreiðarssyni, f. 14.12.1942,
lækni við Landspítalann og dósent
við HÍ. Hann er sonur Hreiðars Stef-
ánssonar, kennara og rithöfúndar,
sem lést í fyrra, og k.h., Jennu Jens-
dóttur, kennara og rithöfúndar.
Böm Ástu og Ástráðs: Amar, f.
17.2. 1967, læknir, en kona hans er
Steinunn Kristjánsdóttir fomleifa-
fræðingur og em böm hennar Sig-
urhjörtur og Helga Valgerður; Ásdís
Jenna, f. 10.1. 1970, há-
skólanemi, maður henn-
ar er Heimir Karlsson
kennaranemi; Þorsteinn
Hreiðar, f. 19.9. 1975,
læknanemi.
Systkini Ástu em
Víglundur, f. 19.9. 1943,
lögfræðingur og fram-
kvæmdastjóri BM
Vallár; Hafís Björg, f.
25.4. 1955, sálfl-æðingur í
Danmörku.
Foreldrar Ástu: Þor-
steinn Þorsteinsson, f.
8.7. 1918, d. 20.2. 1975, fisksali Og sjó-
maður í Reykjavík, og k.h., Ásdís
Eyjólfsdóttir, f. 14.12. 1921, fyrrv.
skattafulltrúi.
Ætt
Þorsteinn var sonur Þorsteins,
sjómanns í Reykjavík, Guðlaugsson-
ar, verkamanns í Reykjavík, bróöur
Markúsar, afa Harðar Ágústssonar
listmálara og langafa Markúsar
Amar Antonssonar. Guðlaugur var
sonur Þorsteins, b. í Gröf, Jónsson-
ar, bróður Þóröar, afa Þorsteins
Einarssonar, fyrrv. íþróttafulltrúa
ríkisins. Móðir Þorsteins í Gröf var
Guðrún Jónsdóttir, systir Ingibjarg-
ar, langömmu Eðvarðs Sigurðsson-
ar, alþm. og formanns Dagsbrúnar.
Móðir Þorsteins Þorsteinssonar
var Ástriður, systir Guðmundar í
Alþýðubrauðgerðinni. Systir Ástríð-
ar var Sigríður, amma Péturs Guð-
mundssonar flugvallarstjóra.
Ástríður var dóttir Odds, formanns
í Brautarholti í Reykjavík, Jónsson-
ar, af Klingenbergsætt, og Guðrúnar
Ámadóttur, af Bergsætt, systur Þor-
kels, langafa Páls Jenssonar prófess-
ors.
Ásdís er dóttir Eyjólfs frá Mið-
húsum Brynjólfssonar, b. í Miðhús-
um, Eyjólfssonar frá Laugarvatni.
Móðir Ásdisar var Kristín, systir
Finnboga, foður Kristins fram-
kvæmdastjóra. Kristín var dóttir
Áma, b. í Miðdalskoti í Laugardal,
Guðbrandssonar, b. í Miðdal, af
Reynifellsbætt, bróður Jóns, afa
Margrétar Guðnadóttur prófessors
og Guðnýjar, móöur Guðlaugs
Tryggva Karlssonar hagfræðings.
Móðir Guðbrands var Margrét Jóns-
dóttir frá Ægissíðu, af Víkingslækj-
arætt. Móðir Áma var Sigríður,
systir Ófeigs, afa Tryggva Ófeigs-
sonar útgerðarmanns. Sigríður var
dóttir Ófeigs, b. í Fjalli á Skeiðum,
Vigfússonar og Ingunnar Eiríksdótt-
ur, ættföður Reykjaættarinnar Vig-
fússonar. Móðir Kristínar var Guð-
rún Jónsdóttir frá Ranakoti, af
Bergsætt.
Ásta Bryndís
Þorsteinsdóttir.
Afmæli
Valgarður Lyngdal Jónsson
Valgarður Lyngdal Jónsson,
fyrrv. bóndi á Eystra-Miðfelli á
Hvalfjarðarströnd, nú til heimilis að
Höfðagrund 14, Akranesi, er áttræð-
ur í dag.
Starfsferill
Valgarður fæddist á Þrándarstöð-
um í Brynjudal í Kjósarsýslu og átti
þar heima fyrstu tvö árin en flutti
þá til Reykjavík með fjölskyldu
sinni þar sem þau bjuggu í fjögur ár
en þá hóf faðir hans búskap í Kata-
nesi þar sem Valgarður átti heima
næstu fimmtán árin. Hann fekk sitt
barnaskólanám í farskóla, tók mót-
orvélstjórapróf hjá Fiskifélagi ís-
lands 1939, formannspróf 1943 og hið
meira bifreiðapróf 1944.
Valgarður stundaði bústörf og
vegavinnu í Katanesi en flutti á
Akranes rúmlega tvítugur. Þar
stundaði hann sjómennsku og tók
þá þátt í hinum ýmsu fiskveiðum -
var á línuvertíðum, þorskanetum,
snurvoð, reknetum, trolli, á togara
úr Hafnarfirði, á síldveiðum fyrir
Norðurlandi og á Hvalfjarðarsíld-
veiðum. Hann var í flutningum fyr-
ir herinn í síðustu heims-
styrjöld og t.d. bæði í
fólks- og vöruflutningum
á Fagranesinu. Þá ók
hann vörubíl í nokkur ár,
síðast eigin bíl á Vöru-
bílastöð Akraness.
Valgarður keypti jörð-
ina Eystra- Miðfell 1953
þar sem hann kom upp
stóru búi, byggði upp
staðinn, ræktaöi mikið,
girti og vélvæddi. Þar
stunduðu þau hjónin bú-
skap í tuttugu og sex ár en fluttu þá
sjálf aftur á Akranes og seldu son-
um sínum jörðina 1981. Á Akranesi
störfuðu Valgarður og eiginkona
hans hjá Akraprjóni, hann við skrif-
stofustörf í tæp sex ár en hún þrem-
ur árum lengur við saumaskap.
Valgarður hefur að undanfómu
fengist við ættfræðigrúsk og ýmsar
skriftir. M.a. hefur hann tekið sam-
an niðjatal Rögnvalds Jónssonar.
Hann hefur einnig unnið að málefn-
um aldraðra á Akranesi, sat í stjóm
Höfða, er stofnandi Félags aldraðra
á Akranesi og i fyrstu stjóm þess,
var formaður húseigendafélags
Höfðagrundar og átti
sæti í stjórn Vörubíla-
stjórafélags Akraness.
Fjölskylda
Valgarður kvæntist 4.8.
1944 Guðnýju Ingibjörgu
Þorvaldsdóttur, f. 15.2.
1922, húsmóður. Foreldr-
ar Guðnýjar voru Þor-
valdur Kristmundsson,
b. á Hálsi og Útibleiks-
stöðum í Vestur-Húna-
vatnssýslu, og k.h., Elín Bjömsdótt-
ir húsfreyja.
Böm Valgarðs og Guðnýjar: Þor-
valdur, f. 24.7.1945, bóndi á Eystra—
Miðfelli, var kvæntur Dröfh Sumar-
liðadóttur sem lést 1979 og eignuð-
ust þau einn son; Jón, f. 26.9. 1946,
bóndi á Eystra-Miðfelli, kvæntur
Heiðrúnu Sveinbjömsdóttir og eiga
þau þrjú böm; Jónína Erla, f. 9.5.
1948, hárgreiðslukona, var gift Guð-
mundi Snævar og eiga þau tvær
dætur; Elín, f. 3.11.1953, gift Runólfi
Sigurðssyni smið og eiga þau þrjú
böm; Valdís Inga, f. 20.3. 1958,
starfsstúlka á læknastofu, gift Sæ-
mundi Víglundssyni pípulagningar-
manni og eiga þau einn son; Jó-
hanna Guðrún, f. 18.7. 1962, nemi,
gift Snæbimi Friðbjömssyni sjó-
manni og eiga þau tvær dætur;
Kristmundur, f. 4.3.1965, búsettur á
Akranesi. Fóstursonur Valgarðs og
bróðir Guðnýjar er Böðvar Þor-
valdsson, f. 2.1. 1940, stýrimaður,
kvæntur Þórunhi Ámadóttur og
eiga þau tvö böm.
Systkini Valgarðs: Guðrún, f. 12.2.
1918, d. 22.2.1988; Aðalbjöm, f. 25.11.
1919, fyrrv. starfsm. á Keflavíkur-
flugvelli.
Hálfsystkini Valgarðs, samfeðra:
Ólafur, f. 10.6.1922; Jónína Bryndís,
f. 29.5. 1923. Móðir Ólafs og Jónínu
var Ólöf Jónsdóttir.
Foreldrar Valgarðs vom Jón
Ólafsson, f. 12.5. 1896, d. 22.12. 1971,
bóndi í Katanesi og kaupmaöur í
Reykjavík, og Jónína Jónsdóttir, f.
14.4. 1894, d. 17.12. 1920, húsmóðir á
Þrándarstöðum og í Reykjavík. Jón
bjó í Katanesi 1922-59 en flutti þá
aftur til Reykjavikur.
Erlingur Jens Leifsson
Erlingur Jens Leifsson bygginga-
verkfræðingur, Stapakoti I, Innri-
Njarðvík, er fertugur í dag.
Grímsbœ
v/Bústaðaveg
Skreytingar við öll
tœkifœri. Frí heimsending
Jyrir sendingar yfir 2.000 kr.
Sími 588-1230
Starfsferill
Erlingur fæddist á Selfossi og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá ML 1976, prófi í byggingarverk-
fræði frá HÍ 1980 og M.Sc.-prófi í
byggingarverkfræði frá University
of Illinois í Urbana í Bandaríkjun-
um 1982.
Erlingur var verkfræðingur hjá
Harza Engineering Co í Chicago í
Bandaríkjunum 1982, verkfræðing-
ur hjá byggingardeild Landsvirkj-
unar við Hrauneyjafossvirkjun,
Kvíslaveitum, Sultartangastíflu og
Blönduvirkjun 1980-85 og er verk-
fræðingur hjá verkfræðideild sjó-
hers Bandaríkjanna á Keflavíkur-
flugvelli frá 1985.
Erlingur
sat í stjóm
Stéttarfélags
verkfræð-
inga 1986-89
og var form-
aður þess
1987-88.
Fjöl-
skylda
Erlingur
kvæntist
19.11. 1994
Kristjönu E. Guðlaugsdóttur, f.
19.11. 1964, ritara. Hún er dóttir
Guðlaugs Guðjónssonar og Elínrós-
ar Guðmundsdóttur.
Böm Erlings frá fyrra hjónabandi
em Kolbeinn Páll, f. 1.9.1976, og Ás-
dís Erla, f. 4.10.1982.
Sonur Erlings og Kristjönu er
Alexander Haukur, f. 4.9. 1996.
Böm Kristjönu era Elínrós Krist-
ín, f. 24.7.1981; Hulda Sigrún, f. 9.12.
1981; Tinna Björk, f. 8.7. 1986.
Systkini Erlings eru Hallbera
Stella, f. 12.8. 1952, búsett á Akra-
nesi; Linda Guðbjörg, f. 11.12. 1953,
búsett í Kópvogi; Leifur Eyjólfur, f.
13.2. 1954, búsettur á Selfossi; Guð-
rún Erla, f. 10.10. 1961, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Erlings em Leifur Ey-
jólfsson, f. 6.3. 1922, fyrrv. skóla-
stjóri á Selfossi, og Ásdís Pálína
Guðnadóttir, f. 23.2. 1931, ritari.
Erlingur Jens
Leifsson.
Til hamingju með afmælið 14.nóvember
95 ára
Matthildur S. Magnúsdótt- ir, Hverfisgötu 46, Hafharfirði. Guðrlður Einarsdóttir, Hraftiistu í Hafnarfirði.
90 ára
Valdimar Þorbergsson, frá Miðvík í Aðalvík, Sundstræti 26, ísafirði. Eiginkona hans er Ingibjörg Bjamadóttir. Þau hjónin taka á móti gest- um á sal frímúrara á ísafirði í kvöld frá kl. 20.00. Ingiriður Vilhjálmsdóttir, Selbrekku 21, Kópavogi. Hún tekur á móti gestum í sal SVR á Kirkjusandi i dag frá kl. 17.00. Bjöm Ólafsson, Brautarholti, Borgarfjarðar- hreppi.
85 ára
Rósa Sigurðardóttir, Faxabraut 13, Keflavík. Kristln Björasdóttir, Gnoðarvogi 38, Reykjavík.
80 ára
Jón Sverrir Níelsson, Helgafelli, Mosfellbæ.
75 ára
Oktavia Hulda Bjarna- dóttir, Aðalgötu 10, Blönduósi. Hún er að heiman. Guðjón S. Bjamason, Dverghömrum 11, Reykjavík.
70 ára
Guðný Sæbjörg Jónsdóttir, Skerðingsstöðum II, Reyk- hólahreppi. Herdís Sigurðardóttir, Háaleitisbraut 101, Reykjavík.
60 ára
Vilborg Jónsdóttir, Norðurbraut 13, Hvamms- tanga. Björa Karlsson, Smáraflöt 7, Garðabæ. Guðmundur Magnússon, Lækjarfit 14, Garðabæ.
50 ára
Hannes Gunnarsson, Hjallabrekku 7, Kópavogi. Inga Þórarinsdóttir, Höfðavegi 39, Vestmanna- eyjum. Sigmar Svavarsson, Túngötu 10, Seyðisfirði. Nanna Sigurðardóttir, Hegranesi 22, Garðabæ. Eva Elvira Klonowski, Meistaravöllum 15, Reykjavík. Valiu Þorgeirsson, Vatnsholti 18, Keflavík. Margrét Vilbergsdóttir, Vesturholti 9, Hafharfirði.
40 ára
Ágústa Karlsdóttir, Heiðarhjalla 19, Kópavogi. Kristín Hrönn Ámadóttir, Sunnuvegi 6, Skagaströnd. Valgerður Stefánsdóttir, Skarðshlíð 9E, Akureyri. Magnús Rúnar Hansson, Skagabraut 26, Akranesi. Bjöm Guðmundur Torfason, Melum I, Ámeshreppi. Sigrún Stefánsdóttir, Ægisgötu 30, Ólafsfirði. Þorvaldm* Hreinsson, Ólafsvegi 42, Ólafsfirði. Friðrik Rúnar Friðriksson, Lambeyri, Lýtingsstaðahreppi.