Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 Fréttir Rafeindavirkjun: Allt að 90 prósent nemenda hafa fallið á sveinsprófi - ástandið er að skána, segir skólastjóri Rafiðnaðarskólans „Það er rétt að fallprósentan á sveinsprófi hjá rafeindavirkjum hefur farið upp í um 80 prósent en það er ekkert endilega bundið við rafiðnnema. Það er ákveðið sam- bandsleysi á milli skóla og atvinnu- lífs sem þarf að laga. Ég vil kenna þessu sambandsleysi um hátt hlut- fall þeirra iðnnema sem falla,“ seg- ir Ólafur Grétar Kristjánsson hjá menntamálaráðuneytinu, aðspurð- ur hvort rétt sé að 70-90% rafeinda- virkja falli á sveinspróíi. Ólafur Grétar segir að ástandið sé nú eitthvað að skána, enda sé nú staðið mun betur að menntamálum í greininni en fram til þessa með nýrri námskrá rafiðnnema. Þegar allt komi til alls sé ástandið aö skána. Allir geta bætt sig „Við getum velt því fyrir okkur hvort eitthvað sé að í skólanum, hjá nemandanum, í starfsþjálfuninni eða í sveinsprófinu sjálfu. Ég held að allir geti bætt eitthvað hjá sér. Hins vegar vonast ég til þess að við sjáum allt annan árangur með þeim nemendum sem nú vinna eftir nýrri námskrá en samkvæmt henni eru meðal annars tekin svokölluð milli- bekkjapróf eftir tvö ár. í ljós hefur komið að 30% nemendanna eru ekki hæf til þess að halda áfram eft- ir það. Auðvitað á að sía úr í byrjun en ekki í lok náms,“ segir Jón Ámi Rúnarsson, skólastjóri Rafiðnaðar- skólans. Hann staðfesti við DV að hlutfall fallista á sveinsprófi hefði fariö allt upp í 90 prósent. Jón Ámi segir að fyrstu nemend- umir útskrifist ekki fýrr en 1988 eft- ir nýja kerfinu. Þá reiknar hann með að ástandið verði oröið allt annað og betra og að fallprósentan í rafeindavirkjun hafi lækkað. Menn verði bara að vera þolinmóðir þar til að því kemur. „Menn hefur vantað vilja til þess að laga vandann og mitt ráð er að hætt verði að banka í mælinn en skoðað þess í stað ferilinn inn á hann. Allt liggur þetta hjá nemend- unum sjálfum. Strákarnir hafa ekki borið nægilega mikla virðingu fyrir þessu prófi og margir ætla sér að taka það án þess að undirbúa sig. Það gengur auðvitað ekki og ég hef sagt að það skipti engu hversu lang- ar ræður menntamálaráðherra eða aðrir haldi um að auka þurfi vægi iðnnáms, ef iðnnemarnir bera ekki virðingu fyrir sjálfum sér og því sem þeir eru að gera geri það enginn. -sv Bækurnar um Indiana Jones henta öllum aldurs- hópum - þeim sem eru að læra að lesa jafnt sem þeim sem I vilja lesa fræðandi og Shppgöi skemmtilegt efhi fyrir ffÆgmii barnabörnin. Indiano ■vWI Jones söguhetjan sem allir þekkja, ungir sem aldnir, af kvikmyndum og sjónvarpsmyndum. Bæk- urnar eru engu lakari myndunum og eru ótrú- lega ódýrar - aðeins 595 krónur bókin eða samtals kr. 2380 allar bækurnar fjórar saman. Veljib eina, tvær, þrjár eða fjórar - ódýr jólagjöf, fræðandi og skemmtileg í senn. Pöntunarsími 562 6010 Slökkviliðið í Reykjavík fór í óvenjulegt útkall á föstudag. Álft á Reykjavíkurtjörn haföi fest hausinn í rimlunum þar sem fráfalliö er í gamla lækinn og þar sat hún föst. Tveir vaskir slökkviliðsmenn smelitu sér út í meö tæki sín og spenntu rimlana frá. Álftin var orðin nokkuö þrekuö en var frelsinu fegin. Fjölskylda hennar fagnaöi ákaft. Þetta er í annaö sinn sem slökkviliöið frelsar álft úr þessari sömu prísund og þykir mönnum sýnt aö gera þurfi eitthvað viö þessa rimla. DV-mynd S Þingsályktunartillaga um umboðsmann sjúklinga: Fjöldi kvartana vegna sjúkrastofnana - sýnir þörfina, segja flutningsmenn Ásta B. Þorsteinsdóttir og fjórir aðrir þingmenn Alþýðuflokksins hafa lagt fram á Alþingi þingsálykt- unartillögu þess efnis að stofnaö verði embætti umboðsmanns sjúkl- inga. Þau benda á að þörfin sé brýn og nefna í því sambandi að á árinu 1994 hafi borist 275 kvartanir til landlæknis vegna samskipta við sjúkrastofnanir. Þann 15. september árið 1995 voru kvartanir orðnar 196 vegna þess sama. Flutningsmenn segja að nauðsyn- legt sé að tryggja sjúklingum upp- lýsingar um réttindi sín og auð- velda þeim að leita réttar síns eða koma kvörtunum sínum á framfæri telji þeir brotiö á sér. Kvartanir vegna þjónustu sjúkrahúsa má oft rekja til lélegra boðskipta og skorts á upplýsingum. Þar er þeim sem minna mega sín, svo sem bömum, öldruðum og fötluðum, sérstök hætta búin. Úr slíkum vanda geti umboðsmaður sjúklinga meðal ann- ars leyst. Flutningsmenn segja að eðlilegt sé að umboðsmenn starfi við öll stærri sjúkrahúsin í landinu. Þeir telja þó að í upphafi sé rétt að slíku embætti verði komið á fót hjá Ríkis- spítölunum til reynslu. -S.dór V* anso FALLEGUR VELÚRFATNAÐUR Góð jólagjöf Sloppar kr. 10.900 Velúrgallar kr. 10.500 Finnskur náttfatnaöur Frábær gæöi Náttföt kr. 6.300 Náttkjólar kr. 5.950 Bómullarfóðraður satínnátt- fatnaður í mörgum litum, fyrir dömur og herra. Herranáttföt kr. 5.500 Dömunáttföt Einlit kr. 4.400 Munstruö kr. 4.900 Sloppar kr. 4.900 Laugavegi 4 - sími 551-4473

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.