Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
19
Fréttir
Laugardalshreppur kaupir
hluta Laugarvatnsjarðarinnar
DV, Suðurlandi:
Svo ótrúlegt sem það nú er þá hef-
ur Laugardalshreppur aldrei átt það
land þar sem þéttbýlið er við Laug-
arvatn. Á héraðsnefndarfundi í
byrjun desember var samþykkt að
selja hreppnum landið sem nefndin
átti á móti ríkinu. Það land sem um
ræðir er undir þéttbýlinu og svo
landspildur vestan og austan við
byggðakjarnann.
Ríkið á 3/4 af Laugarvatnsjörð-
inni, landið undir skólunum, skóg-
ræktina og töluvert annað land.
Böðvar Magnússon, bóndi á Laugar-
vatni, seldi 1927 3/4 jarðarinnar til
íslenska ríkisins og 1/4 til Sýslu-
nefndar Árnessýslu.
„Ég man eftir því, þá ungur mað-
ur, að ríkið var að leita eftir landi
undir héraðsskóla á Suðurlandi.
Menn fóru vítt og breitt um fjórð-
unginn, í Odda á Rangárvöllum að
Ólafsvöllum á Skeiðum og svo upp í
hreppa. Niðurstaðan varð á endan-
um Laugarvatn og hefur lega stað-
arins og heita vatnið ráðið þar
mestu um. Jónas Jónsson frá Hriflu,
þá ráðherra, tók af skarið og fékk
sýslunefndina í lið með sér og
keypti landið. Böðvar bóndi að
Laugarvatni féllst á að selja jörðina
undir skólana. Hann bjó þó þar til
dauðadags," sagði Þórir Þorgeirs-
son, oddviti hreppsnefndar á Laug-
arvatni.
Gamla sýslunefndin og svo Hér-
aðsnefnd Ámesinga hefur í mörg ár
verið að veltast með svokallað Laug-
arvatnsmál. Hreppsneöidin hefur
lítið getað gert í málefnum sem
tengjast landinu nema að standa í
löngum samningafúndum við fjölda
aðila. Nú á hreppurinn 25% af land-
inu og þarf aðeins að semja við rík-
Strandasýsla:
Nýr rekstr-
arstjóri
Vegageröar-
innar
DV, Hólmavík:
Jón Hörður Elíasson, 46 ára
Drangnesingur, hefur verið ráð-
inn rekstrarstjóri hjá Vegagerð
Strandasýslu með aðsetri á
Hólmavík.
Jón Hörður hefúr mörg undan-
farin ár verið verkstjóri hjá Vega-
gerðinni þar sem hann hefur
starfað allt frá árinu 1970 að rúm-
lega þremur árum frátöldum þeg-
ar hann sinnti öðrum störfum.
Jón Hörður var í hópi 12 um-
sækjenda um starfið og tekur við
því 1. janúar næstkomandi af
Magnúsi Guðmundssyni sem þá
lætur af störfum fyrir aldurs sák-
ir. Magnús kom til starfa hjá
vegagerðinni 1965. Hann varð
verkstjóri 1970 og síðar rekstrar-
stjóri, jafnan við góðan orðstír.
-GF
Leiörétting á kjallaragrein:
Laugardals-
völlur
- ekki höllin
í kjallaragrein í DV á þriðjudag,
eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur, stóð að samningur hefði verið
gerður við KSÍ um rekstur Laugar-
dalshallar. Þarna átti að standa
Laugardalsvallar. Þetta leiðréttist
hér og nú.
Þórir Þorgeirsson þakkar Karli Björnssyni, t.v., bæjarstjóra á Selfossi, fyrir
aö nú skuli hafa náðst aö Ijúka Laugarvatnsmáiinu. DV-mynd Kristján
ið ef upp koma mál sem tengjast
landareigninni á Laugarvatni.
„Við höfúm samþykkt kaupin i
hreppsnefndinni. Umsamið kaup-
verð er fimm millj. króna sem greið-
ast á fimm árum. Ég er ákaflega
ánægður með þessa niðurstöðu og
held að ég mæli fyrir munn allra
hér í hreppnum,“ sagði Þórir. Hann
hefúr verið íþróttakennari á Laug-
arvatni til margra ára og oddviti
hreppsnefndar sl. 26 ár. K.E.
14kt. gullhálsmen, hringur
og eyrnalokkar meö
blóðsteinum eða perlum.
Verö 20.500 allt settiö
Gullsmiöja Helgu
LAUGAVEGI 40
SlMI OG FAX 561-6660
Senduni í póstkrðfu
Sambands
J/c//?j/'Á/ö//c)
ora