Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Page 23
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
31
Fréttir
systir Guðjóns, Herdís Þórðardóttir,
sagt sig úr nefndum fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn á Akranesi og einnig úr
flokknum. Gunnar Sigurðsson, for-
maður knattspymufélags Akraness,
er áhrifamesti maðurinn í Sjálf-
stæðisflokknum á Akranesi. Hann
Frá næstu áramótum verður 10% skattur af vaxtatekjum
og arði innheimtur í staðgreiðslu.
Vaxtatekjur
DV-mynd Sigrún
Akranes:
Umbrot vegna brott
reksturs Guðjóns
DV, Akranesi:
Uppsögn Guðjóns Þórðarsonar,
sigursælasta þjálfara á íslandi síð-
asta áratuginn, hjá íslands- og bik-
armeisturum Akumesinga, virðist
ætla að draga dilk á eftir sér í hæj-
armálapólitíkinni á Akranesi.
Samkvæmt heimildum DV hefur
var einn þeirra sem tók ákvörðun
um að segja Guðjóni upp og tengist
það óróanum í flokknum.
Mikil óánægja mun vera meðal
fjölskyldu Guðjóns með hvemig var
staðið að uppsögninni. Samkvæmt
heimildum mun Guðjón ekki hafa
fengið uppsagnarbréfið fyrr en dag-
inn eftir aö tekin var ákvörðun um
uppsögnina. Þá var fréttin komin í
fjölmiðla. Einnig er óánægja hjá
fjölskyldu Guðjóns með að ekki var
tekið tillit til þess að Guðjón vildi
bæta ráö sitt eftir atburði úti í
Newcastle sem leiddu til uppsagnar-
innar. Strax eftir þá leitaði Guðjón
sér lækninga á sjúkrastofnun í
Reykjavík og dvelur þar enn. DVÓ
Frost í hámarki
í Strandasýslu
DV, Hólmavlk:
Þó vetur hafi lagst að heldur
með fyrra móti að þessu sinni og
fyrr en oftast undanfarin ár hefur
enn engin illvíg vetrarveður gert
en frosthörkur voru mun meiri í
nóvember en venja er til. Snjór er
með minna móti og hefur lítið
sem ekkert þurft að snerta snjó-
ruðningstæki enn sem komið er.
Helst hefúr það verið á Stein-
grímsfjarðarheiði.
Vegurinn norður í Árneshrepp
hefur verið fær tveggja drifa bíl-
um allmarga daga þessa vetrar.
Leiðin norður er opnuð einn dag i
viku hverri og verður svo á með-
an snjóalög verða viðráðanleg, að
sögn starfsmanna vegagerðarinn-
ar á Hólmavík. Helst hefur verið
fyrirstaða á Veiðileysuhálsi og
Kjörvogshlíð.
-GF
Ferðaskrif-
stofa í
Hveragerði
DV, Hveragerði:
Nýtt fyrirtæki hefur tekið til
starfa í Hveragerði - Ferðaþjónusta
Suðurland ehf. Það er Yngvi Karl
Jónsson sem rekur ferðaskrifstof-
una sem er með alhliða þjónustu í
ferðamálum hvort heldur er innan
lands eða utan. Þá býður hann einn-
ig upp á ferðaráðgjöf og sérstakar
ferðir bæði fyrir einstaklinga og
hópa. -SLS
Staðgreiðslu vegna skatts á vaxtatekjur ber
að halda eftir við greiðslu vaxta. Þeir sem
eiga að halda eftir skattinum og skila til inn-
heimtumanns ríkissjóðs eru:
* Bankar og sparisjóðir
* Verðbréfajyrirtceki og verðbréfamiðlarar
* Eignarleigufyrirtœki og aðrar
fjármálastofnanir
* Lögmenn, löggiltir endurskoðendur
og aðrir umsýslumenn fjármuna
* Tryggingafélög
« Sérhverjir aðrir sem hafa atvinnu af
fjárvörslu, milligöngu eða innheimtu
í verðbréfaviðskiptum eða annast
innheimtu fyrir aðra
Öll félög sem greiða arð til hlutahafa eiga
að halda eftir staðgreiðsluskatti af honum
og skila til innheimtumanns ríkissjóðs.
Skrá yfir þá sem eiga að skila
staðgreiðslu af arði
Hlutafélög og önnur félög með takmarkaða
ábyrgð félagsaðila fara sjálfkrafa inn á
skrá og fá sendar skilagreinar vegna
staðgreiðslu af arði í lok hvers árs, í fyrsta
sinn í árslok 1997.
Skilagrein ásamt greiðslu er skilað til
innheimtumanns ríkissjóðs. Þau félög sem
ekki greiða arð skila núll-skýrslu.
Skrá yfirþá sem eiga að skila
staðgreiðslu af vaxtatekjum
Ríkisskattstjóri hefur útbúið skrá yfir skila-
skylda aðila og var miðað við atvinnugreina-
merkingar Hagstofu (slands við gerð hennar.
Þeir sem færðir hafa verið á skrána hafa nú
fengið tilkynningar þar um og geta gert
athugasemdir ef við á. Þeim sem ekki hafa
fengið slíka tilkynningu en telja sig eiga að
vera á skránni, ber að tilkynna ríkisskattstjóra
um starfsemi sína fyrir áramót.
Á skránni verða ekki aðrir en þeir sem skila
eiga staðgreiðsluskatti af vaxtatekjum.
Orðsendijigar
Allir launagreiðendur hafa fengið sendar
orðsendingar með upplýsingum varðandi
innheimtu skattsins í stdðgreiðslu.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI