Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Page 34
42
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBI
Afmæli
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir hús-
móðir, Ánalandi 4, Reykjavík, er
sjötug í dag.
Starfsferill
Ingibjörg fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk fullnaðarprófi
1940, stundaði nám við Kvöldskóla
KFUM 1940-42 og við Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur 1943-44.
Áður en Ingibjörg gifti sig stund-
aði hún verslunarstörf á vetrum og
sveitastörf í Borgarfirði á sumrin. Þá
var hún framkvæmdastjóri í fyrir-
tæki þeirra hjóna 1973-95.
Ingibjörg gekk í góðtemplararegl-
una 1940 og starfaði þar á unglings-
árunum. Hún var m.a. kapelán, tók
þátt í leiksýningum stúkunnar Verð-
andi og lék með Leikfélagi templara
frá stofnun og til 1946.
Ingibjörg gekk í Samtök um jafn-
rétti milli landshluta 1986 og síðan í
Þjóðarflokkinn 1987 og sat í stjóm
hans fyrstu árin. Hún hefur skrifað
nokkrar blaðagreinar um þjóðmál.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 2.11.
1946, fyrri manni sínum,
Hauki Sveinssyni, f. 13.10.
1923, póstfulltrúa. For-
eldrar hans voru Sveinn
Halldórsson skólastjóri og
k.h., Guðrún Pálmadóttir
húsmóðir. Ingibjörg og
Haukur skildu 1955.
Ingibjörg giftist 1.9.
1956, seinni manni sínum,
Guðfinni Sigfússyni, f.
14.4. 1918, bakarameist-
ara. Hann er sonur Sigfúsar Guð-
flnnssonar, skipstjóra á Djúpbátnum
og síðar kaupmanns í Reykjavík, og
k.h., Maríu Kristjánsdóttur húsmóð-
ur. Sigfús var bróðir Einars Guð-
finnssonar í Bolungarvík.
Börn Ingibjargar eru Sveinn Rún-
ar Hauksson, f. 10.5. 1947, læknir í
Reykjavík, kvæntur Björk Vilhelms-
dóttur og á hann fimm börn; Óttar
Felix Hauksson, f. 19.1.1950, forstjóri
hjá Kjamavörum í Reykjavík,
kvæntur Guðnýju Aðalsteinsdóttur
og eiga þau tvö böm; Sigríður G.
Ingibjörg Guð-
mundsdóttir.
Hauksdóttir, f. 1.11. 1951,
landfræðingur og kerfls-
fræðingur í Reykjavík,
gift Ewald Sæmundsen og
eiga þau tvo syni; Sigfús
Guðfinnsson, f. 28.11. 1957,
bakarameistari í Reykja-
vík, kvæntur Andreu
Henk og eiga þau þrjú
börn; Guðmundur Guð-
finnsson, f. 26.1. 1959, bak-
ari og framkvæmdastjóri í
Reykjavík, kvæntur Lenu
Gústafsdóttur og eiga þau
þrjár dætur; María Þ. Guðfinnsdótt-
ir, f. 17.5. 1960, kennari og kerfis-
fræðingur í Reykjavík, gift Herði
Haukssyni og eiga þau þrjá syni.
Bróðir Ingibjargar er Jón Guð-
mundsson, f. 27.5. 1925, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík.
Hálfsystkini Ingibjargar, sam-
mæðra: Hörður Felixson, f. 17.11.
1933, d. 15.7. 1985, loftskeytamaður i
Reykjavík; Soffia Felixdóttir, f. 15.11.
1935, starfsmaður hjá Eimskip, búsett
í Reykjavík.
Foreldrar Ingibjargar voru Guð-
mundur Jóhannsson, f. 6.6. 1893, d.
1.9.1931, kaupmaður og bæjarfulltrúi
í Reykjavik, og k.h., Sigríður Jóns-
dóttir, f. 8.6. 1906, d. 30.9. 1982, hús-
móðir.
Ætt
Guðmundur var formaður lands-
málafélagsins Varðar frá 1928 og þar
til hann lést í bílslysi 1931. Við stofn-
un Sjálfstæðisflokksins 1929 lagði
hann grunninn að því innra skipu-
lagi flokksins sem hefur mótað starf
hans og er enn við lýði. Guðmundur
var sonur Jóhanns Eyjólfssonar,
alþm. í Sveinatungu, og k.h., Ingi-
bjargar Sigurðardóttur.
Sigríður var dóttir Jóns Sigurðs-
sonar, hreppstjóra i Kalastaðakoti á
Hvalfiarðarströnd, og k.h., Soffiu
Pétursdóttur. Eini núlifandi ætting-
inn af kynslóð Sigríðar, er bróðir
hennar, Stefán Jónsson, forstjóri
Vélsmiðju Hafnarfiarðar og bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fyrrv.
forseti bæjarsfiórnar.
Andlát
Steinunn H. Traustadóttir
Steinunn H. Traustadóttir, hús-
móðir og handavinnukennari, Berg-
landi 2, Hofsósi, lést 27.10. sl., en
hún hefði orðið sjötug i dag.
Skagfirðinga og Garð-
yrkjufélagi íslands.
Starfsferill
Steinunn fæddist í Grenivík í
tÉGrímsey og ólst þar upp. Hún lauk
unglingaprófi í Grímsey 1938, stund-
aði námskeið við Kennaraskóla is-
lands 1973-74 og sótti fiölda annara
námskeiða, einkum í hannyrðum.
Steinunn flutti til Hofsóss 1951 og
átti þar heima til dauðadags. Hún
var kennari við Grunnskóla Hofsóss
1968-86.
Steinunn starfaði ötullega í kven-
félaginu á Hofsósi og sat þar oft í
stjóm, var félagi í Skógræktarfélagi
Fjölskylda
Steinunn giftist 16.11.
1946 Fjólmundi Karlssyni,
f. 16.7. 1922, d. 10.12. 1989,
framkvæmdastjóra
Stuðlabergs hf. á Hofsósi.
Hann var sonur Karls
Guðvarðarsonar og Sól-
veigar Rögnvaldsdóttur, .
búenda að Garði í Ólafs- einunn
firði.
Böm Steinunnar og Ejólmundar
era Trausti Bergland Fjólmundsson,
f. 28.9. 1945, bóndi á Ljótsstöðum,
kvæntur Ásdísi Sveinbjörnsdóttur
og eiga þau þrjú börn og eitt bama-
barn en Trausti á að auki
fiögur böm og átta barna-
börn; Fjólmundur Berg-
land Fjólmundsson, f.
4.10. 1947, sjómaður að
Berglandi á Hofsósi,
kvæntur Sigrúnu Krist-
jánsdóttur og eiga þau
þijár dætur og þrjú
barnaböm; Kristin Ruth
Bergland Fjólmundsdótt-
ir, f. 17.6. 1950, kaupmað-
ur í Mosfellsbæ, gift Sig-
urði Kristjánssyni og eiga
þau fimrn böm og eitt barnabarn;
Valbjörg Bergland Fjólmundsdóttir,
f. 1.9.1955, framkvæmdastjóri á Hofs-
ósi, en sambýlismaður hennar er
Gunnlaugur Steingrímsson og eiga
þau tvö böm auk þess sem hún á tvö
H. Trausta-
börn frá því áður með Hreini Gunn-
laugssyni á Svalbarðseyri.
Systkini Steinunnar: Valdemar
Traustason, f. 27.8. 1922; Sæmundur
Traustason, f. 7.12. 1924, d. 31.3. 1986;
Daníel Willard Fiske Traustason, f.
18.6. 1928, d. 27.9. 1981; Þórann Mar-
grét Traustadóttir, f. 13.3. 1931; Hall-
dóra Anna Traustadóttir, f. 3.4. 1932,
og auk þess tvö elstu systkinin,
Steinunn og Valdemar, sem bæði
dóu á fyrsta ári.
Foreldrar Steinunnar voru
Trausti Pálsson, f. 10.9. 1899, d. 27.2.
1933, útvegsb. og smiður í Grenivík í
Grimsey, og k.h., Kristín Valdemars-
dóttir, f. 5.6. 1901, d. 16.3. 1982, hús-
freyja.
ísleifur A. Pálsson
*, Isleifur A. Pálsson verslunarmað-
ur, Suðurhólum 22, Reykjavík, lést á
Landspítalanum 14.12. sl. Útför hans
er gerð í dag frá Dómkirkjunni í
Reykjavík kl, 13.30.
Fjölskylda
Starfsferill
ísleifur fæddist í Miðgarði í Vest-
mannaeyjum 27.2. 1922 og ólst þar
upp. Hann lauk prófi frá VÍ 1942 og
stundaði síðar nám í verslunarfræð-
um við Rider College í New Jersey í
Bandaríkjunum. ísleifur var skrif-
stofustjóri Samlags skreiðarframleið-
enda á fyrstu starfsárum þess á sjötta
áratugnum og fram á hinn sjöunda.
Hann var síðar fulltrúi í sendiráði
Bandarikjanna og stundaði ýmis
Ónnur skrifstofu- og verslunarstörf.
Ennfremur stundaði hann ýmis al-
menn störf til sjós og lands.
Tilkynning
um afmælis-
greinar yfir
hátíðirnar
Upplýsingar vegna afmælis-
greina sem birtast eiga á ætt-
fræðisíðu DV dagana 23. desem-
ber til 1. janúar nk. þurfa að
berast ritstjóm eigi síðar en í
dag, 19. desember.
ísleifur kvæntist 22.11.
1946 Ágústu Jóhannsdótt-
ur, f. 10.12. 1922, húsmóð-
ur. Þau skildu 1962. For-
eldrar Ágústu voru Jó-
hann Þ. Jósefsson, alþm.
og ráðherra, og k.h.
Magnea Dagmar Þórðar-
dóttir húsmóðir.
Böm ísleifs og Ágústu:
Jóhann, f. 12.3. 1947, fram- ísleifur A,
kvæmdasfióri í Reykjavík;
Ólafur, f. 10.2. 1955, hagfræðingur,
framkvæmdastj. alþjóðasviðs Seðla-
banka íslands, kvæntur Dögg Páls-
dóttur hrl. og eiga þau soninn Pál
Ágúst f. 26.2. 1983; Örn, f. 7.8. 1956,
flugmaður í Rvík, maki Guðrún Þóra
Magnúsdóttir skólaritari, þau eiga
tvo syni, Ólaf Öm, f. 13.7. 1976 og
Magnús Gísla, f. 10.12.1980.
Systkini ísleifs: Richard, f. 27.9.
1920, d. 4.3.1994, bókhaldari; Oddgeir,
f. 22.12. 1923, fasteignasali í Banda-
rikjunum; Anna Regína, f. 16.5. 1928,
ekkja í Reykjavík eftir Hermann Þor-
bjarnarson, loftskeytamann, þau
eignuðust fimm böm; Bergljót, f. 19.1.
1933, skrifstofumaður á Akureyri,
gift Tryggva Georgssyni múrara-
meistara, þau eiga þijú böm. Hálf-
bróðir þeirra er Rúdólf Pálsson, f.
1931, viðskiptafræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Isleifs: Páll Oddgeirsson,
f. 5.6. 1888, d. 24.6. 1971, kaupmaður
og útgerðarmaður í Vestmannaeyj-
um, og kona hans, Matthildur ísleifs-
dóttir, f. 7.5. 1900, d. 29.8. 1945.
Pálsson
Ætt
Páll var sonur Oddgeirs, prests á
Ofanleiti í Vestmannaeyj-
um, bróður Margrétar
Andreu, móður Árna
Pálssonar prófessors.
Oddgeir var sonur Þórð-
ar, sýslumanns og alþm.
á Litla-Hrauni Guð-
mundssonar. Móðir Þórð-
ar var Sigríður Helga-
dóttir, systir Árna, bisk-
ups i Görðum. Móðir Sig-
ríðar var Guðrún Áma-
dóttir, prests í Gufudal,
Ólafssonar, lögsagnara á
Eyri og ættfóður Eyrarættarinnar,
Jónssonar. Móðir Oddgeirs var Jó-
hanna Andrea Knudsen, dóttir
Lauritz kaupmanns, ættfóður
Knudsensættarinnar.
Móðir Páls var Anna Guðmunds-
dóttir, prófasts í Amarbæli, bróður
Ólafs Johnsen, afa Alexanders Jó-
hannessonar háskólarektors og lang-
afa Ólafs Ó. Johnson forstjóra. Guð-
mundur var sonur Einars, borgara í
Reykjavík, bróður Sigurðar, fóður
Jóns forseta og Jens rektors, langafa
Jóhannesar Nordals. Móðir Önnu
var Guðrún Pétursdóttir Hjaltested,
b. á Helgavatni í Vatnsdal, hálfbróð-
ur Magnúsar, föður Björns M. Olsens
háskólarektors. Móðir Guðrúnar var
Guðríður Magnúsdóttir, prests í
Steinnesi, Ámasonar, biskups á Hól-
um, Þórarinssonar. Móðir Guðríðar
var Anna, systir Kristjáns, langafa
Þórarins á Tjöm, fóður Kristjáns Eld-
jáms forseta. Anna var einnig systir
Baldvins á Upsum, langafa Jóhanns
Sigurjónssonar skálds, og systir Hall-
gríms, fóður Jónasar skálds. Anna
var dóttir Þorsteins, prests á Stærra-
Árskógi, Hallgrímssonar, og Jórunn-
ar Lárasdóttur Scheving, klaustur-
haldara, Hannessonar sýslumanns.
Móðir Lárasar var Jórunn Steins-
dóttir, biskups á Hólum, Jónssonar.
Matthildur var dóttir ísleifs, b. á
Kirkjubæ í Vestmannaeyjum, Guðna-
sonar, b. í Hallgeirseyjarhjáleigu,
Guðnasonar, b. á Arnarhóli, Ög-
mundssonar. Móðir Guðna á Amar-
hóli var Guðrún Þorsteinsdóttir,
systir Þorvaldar, afa Guðnýjar,
ömmu Halldórs Laxness. Móðir Matt-
hildar var Sigurlaug, dóttir Guð-
mundar, b. á Fossi á Síðu, Guð-
mundssonar, og Guðnýjar, systur
Páls, langafa Péturs Sigurgeirssonar
biskups. Systir Guðnýjar var Ragn-
heiður, langamma Lúðvíks Kristjáns-
sonar rithöfundar. Guðný var dóttir
Páls, prófasts í Hörgsdal, Pálssonar.
Tll haming með afmæl 19. desemb
85 ára
Andrés Finnbogason, Sólheimum 23, Reykjavíl
80 ára
Hannes R. Þórarinsson Sóleyjargötu 27, Reykjav Kristín Guðmundsdóttj Leifsgötu 7, Reykjavík. Andrés Guðbrandsson, Laugalæk 34, Reykjavík.
75 ára
Guðfinna Einarsdóttir, Stóradal, Svínavatnshrep Helga Pálmadóttir, Hlíðarvegi 1, Siglufirði.
70 ára
Jón V. Jónsson, Blönduhlíð 21, Reykjavík Guðlaug S. Jónsdóttir, Sléttuvegi 13, Reykjavík. Eva Magnúsdóttir, Heiðargerði 48, Reykjavíl Ásta Engilbertsdóttir, Tjaldanesi 11, Garðabæ. Ingimundur Ólafsson, Frostafold 49, Reykjavik. Guðmundur Þengilsson Bláhömrum 4, Reykjavík Hann er að heiman.
60 ára
Árni Erlendsson, Skíðbakka 3, Austur- Landeyjahreppi. Narfi Hjörleifsson, Grænahjalla 7, Kópavogi Sigrún Þórisdóttir, Hjallalandi 3, Reykjavík. Sigurður Eiðsson, Kjartansgötu 19, Borgam
50 ára
Sigurlaug Rafiisdóttir, Hólmagrund 2, Sauðárkn Guðbjörg S. Friðriksdó Amarbakka 6, Bíldudal. Guðlaug Ingvarsdóttir, Mosabarði 16, Hafharfirð Rakel Sigurðardóttir, Möðrufelli 5, Reykjavík. Gísli Ágústsson, Akraseli 16, Reykjavík. Þórir H. Hermannsson, Stuðlaseli 26, Reykjavík. Brandur Hermannsson, Álfatúni 14, Kópavogi. Hulda Þorsteinsdóttir, Eilífsdal, Kjósarhreppi. Anna Þórðardóttir, Glitvangi 21, Hafnarfirði.
40 ára
Ingibjörg Ósk Þorvaldsd Látraströnd 34, Seltjarnai Konráð Stefán Konráðs Bólstaðarhlíð 7, Reykjaví Ragnheiður G. Óskarsdt Núpabakka 23, Reykjavík Guðlaug Björk Bjam- þórsdóttir, Kambahrauni 37, Hverag
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
VALGEIR M. EINARSSON
NÖKKVAVOGI 29, REYKJAVÍK,
sem lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur
13. desember sl., verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn
20. desember nk. kl. 15.
Helga Sigurðardóttir
Einar Björn Valgeirsson
Sigurður Valgeirsson Birna Leifsdóttir
Valgeir Valgeirsson Auður Ingólfsdóttir
Hörður Valgeirsson Kristín Ásta Þórsdóttir
og barnabörn