Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Síða 36
44
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
Enska og
* íslenska
„Það er ekkert sem bendir til
að góð enskukunnátta ógni ís-
lensku. Þvert á móti hníga ýmis
rök að því að þeim mun fleiri
tungumál sem menn kúnna þeim
mun færari verði þeir í eigin
tungu.“
Ármann Jakobsson íslensku-
fræðingur, í DV.
Ástæðan fyrir tapi
„Það er greinilegt að stjórnin
er búin að finna ástæðu þess að
við unnum ekki alla leikina.“
Hrannar Hólm, burtrekinn
þjálfari Njarðvíkur, í Morgun-
blaðinu.
Latur rithöfundur
„Ég er latasti rithöfundur sem
ég þekki. En ég nota WöWei- að-
ferðina, hún hæfir lötum mönn-
um. í grundvallaratriðum er hún
um að koma sem mestu í verk
með því að gera sem minnst.“
Gunnar Dal rithöfundur, í Al-
þýðublaðinu.
Ummæli
Peningar og fótbolti
„Þetta er einfaldlega gangur
mála í boltanum í dag. Ætli
menn að ná árangri verða þeir
að kaupa til sín leikmenn."
Rúnar Guðlaugsson, þjálfari
yngri flokka á Ólafsfirði, í DV.
Aldrei verið jafnfeginn
„Ég hef aldrei á ævinni verið
eins feginn og þegar ég var laus
úr skólanum.“
Aðalsteinn Jónsson (Alli ríki), í
Degi-Tímanum.
Skyrgámur fær sér skyrslettu.
Skyrgámur
kominn til
byggða
Á hverjum degi kemur einn
jólasveinn til byggða og allir
koma þeir við i Þjóðminjasafn-
inu. í dag er komið að jólasveini
númer átta, Skyrgámi. Hann
kemur í Þjóðminjasafnið kl. 14
og verður boðinn velkominn þar
af hópi gesta. Þá kemur hann
Blessuð veröldin
einnig við í Húsdýragarðinum.
Á morgun er svo Bjúgnakrækir
væntanlegur. í kvæði Jóhannes-
ar úr Kötlum um jólasveinana
segir um Skyrgám, sem þar heit-
ir Skyrjarmur:
Skyrjarmur, sá áttundi
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o’n af sánum
með hnefanum braut.
Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.
Um 1100 km suðvestur af Reykja-
nesi er 960 mb lægð sem þokast suð-
austur. Yfir Norðaustur-Grænlandi
er 1032 mb hæð.
Veðrið í dag
I dag verður austangola eða kaldi
um sunnanvert landið en hæg
breytileg eða suðaustlæg átt í öðr-
um landshlutum. Frost 0 til 14 stig,
hlýjast við suðurströndina.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
austangola og léttskýjað. Hiti ná-
lægt frostmarki í dag en frost 2 til 6
stig í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 15.30
Sólarupprás á morgun: 11.21
Síðdegisflóð í Reykjavík: 14.01
Árdegisflóð á morgun: 02.40
Veöriö kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjað -9
Akurnes alskýjaó 0
Bergstaðir léttskýjað -2
Bolungarvík heiðskírt -4
Egilsstaðir skýjað -4
Keflavíkurflugv. léttskýjað -2
Kirkjubkl. skýjað 1
Raufarhöfn léttskýjað -3
Reykjavík léttskýjaö -1
Stórhöföi skýjað 3
Helsinki heiöskirt ■ -16
Kaupmannah. léttskýjað -2
Ósló léttskýjað ■ -14
Stokkhólmur léttskýjað - -10
Þórshöfn alskýjað 3
Amsterdam rigning og súld 7
Barcelona rigning 13
Chicago léttskýjað -14
Frankfurt þokuruðningur 5
Glasgow rigning 3
Hamborg skýjað 1
London súld 9
Los Angeles Madrid alskýjað 9
Malaga þokumóða 13
Mallorca rigning 15
París súld 10
Róm þokumóöa 4
Valencia alskýjað 11
New York skýjað 8
Orlando skýjaó 18
Nuuk léttskýjaó -4
Vín þokumóóa 1
Washington Winnipeg heiðskirt - -27
Kristín Rós Hákonardóttir sundkona:
Langar á næstu Ólympíuleika
„Það að verða kosinn íþrótta-
maður ársins hjá fötluðum í ár
kemur mér ekki eins mikið á
óvart og það gerði í fyrra þegar ég
var valin í fyrsta sinn, en það var
ákaflega gaman og mikil viður-
kenning fyrir mig að verða valin,“
segir Kristín Rós Hákonardóttir,
sundkonan frækna sem hefur vak-
ið mikla athygli undanfarin miss-
eri fyrir frábæran árangur og þá
ekki síst fyrir frammistöðu sína á
Ólympíuleikum fatlaðra í sumar.
Maður dagsins
Kristinu Rós eru Ólympíuleik-
amir eftirminnilegastir frá árinu
sem er að líða en þeir voru haldn-
ir í Atlanta: „Það var frábær til-
finning að standa á pallinum, taka
við verðlaunum og heyra þjóð-
sönginn spilaðan. Keppnin gekk
vonum framar hjá mér, ég var í
góðri æfingu og vissi að ég ætti að
geta unnið til verðlauna og þegar
allt gengur eftir þá er virkilega
gaman.“
Kristín sagði aðspurð að hún
Kristín Rós Hákonardóttir.
hefði farið að æfa sund árið 1982:
„Þetta er orðinn æðilangur tími og
stundum koma tímabil þegar mér
langar mest til að hætta en það
stendur stutt yfir. Þá er bara að
hvíla sig aðeins og byrja svo á
fullu aftur. Venjulega æfi ég svona
fimm til sex sinnum í viku í sund-
lauginni í Kópavogi."
En af hverju skyldi Kristín hafa
valið sund? „Þegar fötlun mín var
höfð í huga þá var sundið langhen-
tugast til að styrkja líkamann og á
þessum árum hefur líkami minn
styrkst mikið frá því sem áður
var.“
Kristín Rós hefur tekið það ró-
lega í sundinu að undanförnu
enda á leiðinni til útlanda: „Ég hef
alltaf haft gaman af myndlist og
útskrifaðist af myndlistarbraut fi-á
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
vorið 1995. Eftir áramót er ég að
fara til Danmerkur og ætla á
myndlistamámskeið sem stendur
fram á vor.“
Kristín Rós sagði að þótt hún
færi út á myndlistarnámskeið
mundi hún stunda keppni á með-
an: Það eru sterk mót í febrúar og
í mars er síðan Norðurlandamót
þannig að ég get litið slegið slöku
við æfingar. Ég veit nú ekki hvað
ég held þetta út lengi í sundinu en
stefnan er tekin á næstu Ólympíu-
leika.“ -HK
Myndgátan
Andmælir Myndgátan hér aö ofan lýsir orðasambandi.
I>V
Lúðrasveitin Svanur hefur fj'öl-
breytni að leiðarljósi.
Lúðrahljómar
og dans
Lúðrasveitin Svanur verður
með tónleika í Tjamarbíói í
kvöld kl. 20.30. Þessir tónleikar
era meö nýju sniði og er efnis-
skráin öðravísi en lúðrasveitir
hafa verið með á tónleikum sín-
um. Tilgangurinn er að höfða til
tónlistarsmekks sem flestra. Á
efnisskránni eru þekkt dægur-
lög, danslög, söngleikja- og kvik-
myndatónlist svo og jólalög.
Tónleikar
Meðcd þess sem flutt verður á
tónleikunum eru lög úr söng-
leiknum My Fair Lady, úr kvik-
myndunum Grikkinn Zorba og
The Jewel of the Nile, Maístjam-
an eftir Jón Ásgeirsson, samban
Holliday in Rio og kanadísk jóla-
svíta. Öm Ingi Björgvinsson og
Svanhvít Guðmundsdóttir frá
Dansskóla Jóns Karls og Péturs
munu dansa undir leik lúðra-
sveitarinnar. Stjórnandi Lúðra-
sveitarinnar Svans er Haraldur
Ámi Haraldsson.
Bridge
Sumar flóknustu stöðurnar í
vörninni fela í sér að taka slagina í
réttri röð þegar andstæðingarnir
hafa hindrað kröftuglega. Því er
mikilvægt að ræða vel grundvallar-
reglurnar í vörninni. Venjulegar
vamarreglur ganga út frá því að
spila ofan af háspilum og félagi í
vörninni gefur kall eða frávísun í
litnum. En gegn samningum á
háum stigum eða eftir hindranir er
oft betra að gefa frekar talningu í
litnum. Skoðum hér eitt spil sem
dæmi sem kom fyrir á HM yngri
spilara. Algengast var að sagnir
gengju þannig, suður gjafari og AV
á hættu:
* 7543
9743
* Á6
* ÁK9
* KD962
* KG10
* D
* G1083
* 10
V D2
♦ KG10987543
* 2
Suður Vestur Norður Austur
5 -f p/h
Fjölmargir varnarspilaranna í
AV misstigu sig og gáfu samning-
inn. Spaðakóngur var algengt útspil
og síðan skiptu margir vesturspilar-
anna yfir í hjartagosa. Austur drap
á hjartaás og sagnhafi henti hjarta-
drottningunni í þann slag. í þeirri
stöðu þurfti austur að velja um
hvorum hálitnum hann ætti að
spila og margir reyndu spaðaásinn.
Bresku bræðurnir Jason og Justin
Hackett vora vel samræddir í þess-
ari stöðu í vörninni og bættu þar á
ofan heilbrigðri skynsemi. Jason sat
í vestur og spilaði út spaðakóng í
upphafi. Hann sá fyrir að austur
gæti lent í vandræðum í þriðja slag
og lagði þess vegna niður hjarta-
kónginn! Það eina sem Justin þurfti
að gera var að gefa talningu um
jafna tölu spila i litnum og þá var
einfalt að halda áfram í hjartalitn-
um (þrátt fyrir að suður hafi hent
drottningunni í fyrsta slag).
ísak Örn Sigurðsson