Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1996, Qupperneq 40
I Vtnnmgstölur miðviktiéagtnn 18.12.’96 22 ; 29 47 8 9 34 Vlnningar Fjöldi vinninga Vinningsupphxð 1 44.110.000 2. scfi íj'ow o 1.071.781 3. s Vfí 4 63.710 4.4of6 250 1.620 5. 3 af 6' /o'3961 180 Helldarvinninpupfthxó A Islandi 46.0 ................. Vinningstölur 18.12/96 Í8)(27)(30) KIN FRETTASKOTID SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 Akureyri: Mikil fátækt DV, Akureyri: „Það er mikil fátækt á Akureyri _*)g fer vaxandi," segir Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrks- nefndar á Akureyri, en um 100 fjöl- skyldur hafa þegar leitað til nefnd- arinnar eftir aðstoð fyrir jólin. Jóna Berta segir marga hafa leit- að til nefndarinnar eftir aðstoð fyr- ir tveimur árum, fleiri i fyrra eða um 120 fjölskyldur og þær verði án efa fleiri núna. „Þetta er fólk á öll- um aldri en yngra fólk þó áberandi og það er alls ekki um óreglufólk að ræða og fjölskyldufólk er fjölmenn- ara en einstæðar mæður t.d. Ástandið er sorglegt, að fólk skuli ekki geta bjargað sér án aðstoðar. Við útbúum matarpakka fyrir fólk sem leitar til okkar og setjum ipeninga með í sumum tilfellum því •^fólk hefur ekki peninga til að kaupa jólagjafír fyrir börnin sín. Ég get nefnt sem dæmi um fátæktina að hingað leitaði kona en bam hennar hafði brotið gleraugun sín og hún gat ekki keypt ný nema fá til þess aðstoð. Svona er nú ástandið mjög víða, því miður,“ segir Jóna. -gk Tjaldur með metafla Tjaldur SH 270 kom til hafnar í gær með metafla af grálúðu. Heild- arverðmæti aflans nemur 44 millj- ónum króna. Skipverjar á Tjaldi voru að vonum ánægðir með árang- urinn þegar DV heyrði í þeim í morgun og hlakka þeir til þess að halda gleðileg jól heima þetta árið. Tjaldurinn fer ekki út aftur fyrr en eftir áramót. -sv Björn Friðfinnsson: Hefði ekki hætt hjá > EFTA Bjöm Friðfinnsson segir í samtali við DV nú í morgun að hann hefði ekki sagt upp stöðunni sem hann hefúr gegnt undanfarin ár hjá Eftir- litsstofnun EFTA í Brússel hefði hann vitað í tíma að ekki stæði til hjá Finni Ingólfssyni að hann tæki á ný við stöðu ráðuneytisstjóra í iðn- aðarráðuneytinu, sem hann hefur verið í leyfi frá. Bjöm segir að engar viðræður hafi átt sér stað milli sín og ráð- herra um málið. Ráðherrann hafi aðeins sent sér bréf og mælst til þess að Bjöm tæki við stöðu í Lög- Æildingarstofunni. „Það vora engar viðræður." segir Björn -SÁ HEFUR BJORN GRETAR EKKI GAMAN AF SKRÍPÓI? Samkomulag í nótt á Alþingi um málalista: Nokkur stórmál verða skilin eftir óafgreidd „Ríkisstjómin setti pressu á þingið í fyrradag um að Ijúka fjöl- mörgum málum fyrir jólaleyfl þingmanna. Þetta voru auðsjáan- lega allt of mörg mál og stjórnar- andstaðan einfaldlega neitaði þessu. Úr varð deila og tappi kom því í þingstörfin í gær og fyrradag. Þetta leystist svo i nótt með því að samkomulag varð milli stjórnar og stjómarandstöðu um hvaða mál það eru sem afgreidd verða fyrir jól. Þau mál sem afgreidd verða tengjast öll fjárlagadæminu, önnur mál liggja," sagði Svavar Gests- son, formaður þingflokks Alþýðu- bandalagsins, í samtali við DV í morgun. Stærsta málið sem ekki verður afgreitt fyrir jól er frumvarpið um Landsvirkjun, þar sem eigenda- samkomulagið, milli Reykjavíkur, Akureyrar og ríkisins er staðfest. Einnig bíður starfsmannaband- ormurinn svokallaði, sem er frum- varp með á annað hundrað grein- um um yfirmenn allra ríkisstofn- ana. Að sögn Svavars var það svo illa samið og mikið af villum í að ekki er hægt að afgreiða það. Þá bíður frumvarp félagsmálaráð- herra um vinnumiðlun, sem og frumvarp hans um atvinnuleysis- tryggingasjóð. Að auki em svo ýmis smærri mál sem bíða. Fyrir utan sjálft fjárlagafrum- varpið og frumvörp því tengd, eins og fjáraukalög, tryggingagjald, virðisaukaskatt, bandormsfrum- varpið og lánsfjárlög, verða lög um póst- og fjarskiptastofnun, fjar- skipti og póstþjónustu afgreidd fyrir jóL Þessi lög era sett vegna breytinga Pósts og síma í hlutafé- lag um áramótin. Stefnt er að því að ljúka þing- störfum annað kvöld. Svavar Gestsson sagðist vantrúaður á að það tækist en menn hefðu þá laug- ardaginn upp á að hlaupa til að ljúka þingstörfunum. -S.dór Eflaust eru margir sem segja aö jólin geti ekki komiö fyrr en búiö sé aö bragöa á skötunni á Þoriáksmessu. Víst er aö siöurinn er skemmtilegur þótt mörgum líki hreint ekki bragðiö. Hér eru þeir Þorkell Hjaltason og Helgi Helgason hjá Fiskverkun Hafliða aö kanna gæöi skötunnar í ár. Þeir virðast ánægöir, a.m.k. meö lyktina. DV- mynd S Veðriö á morgun: Frostlaust með suðurströnd- inni Á morgun verður hæg breyti- leg eða austlæg átt. Skýjað en úrkomulaust verður á Aust- fjörðum og eins suðaustan- lands. Það verður léttskýjað í öðmm landshlutum. Frostlaust verður með suðurströndinni en annars frost á bilinu 1 til 7 stig og allt að 10 til 12 stig í inn- sveitum norðanlands. Veöriö í dag er á bls.44 Nemendur Gagnfræöaskólans í Ólafsfiröi luku haustannarprófum í gær og hittust af því tilefni í skólan- um í gærkvöld, héldu litlu jólin og fóru síðan í blysför frá skólanum út í félagsmiðstööina Tungliö. Blaöa- maður DV var á staðnum og tók myndir af hluta af hópnum. DV-mynd Helgi Jólabókasalan: Beðið eftir botnverði Bóksala hefur verið í hámarki undanfarna daga og hefm- gengið vel að sögn söluaðila. Hjá Máli og menningu fengust þær upplýsingar að boðið væri upp á 15-30% afslátt af öllum jólabókunum og öðrum bókum sem gefnar hefðu verið út á þessu ári. Jón Ásgeir Jóhannesson hjá Bónusi sagði að Bónusverslan- irnar byðu allt að 70% afslátt á 92 titlum og hjá Hagkaupi fékkst upp- gefið að þar væri að finna 22 titla á 1996 kr. en hátt á annað hundrað titlar væm á 15-50% afslætti. -ggá Tekjuskattur: Hefðbundið skrípó í uppsiglingu - segir Björn Grétar „Mér sýnist að þetta eigi að verða hefðbundið „skrípó“ hjá ríkisstjóm- inni - að búa til nýjar álögur til að geta síðan dregið þær að einhverju leyti til baka af góðsemi sinni,“ sagði Bjöm Grétar Sveinsson, for- maður VMSÍ, í morgun. í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir því að skattleysismörk verði áfram óbreytt, en vegna flutnings grunskólans til sveitarfélaga er talið að þau muni hækka útsvar til að mæta auknum kostnaði sínum og muni skattbyrði aukast af þessum sökum um allt að 850 milljónir, sem síðan verði svigrúm ríkisstjórnar- innar og skiptimynt í komandi kjarascunningaviðræðum. „Stjómarflokkamir verða að eiga þetta við kjósendur í næstu kosning- um. Ríkisstjórnin skuldar líka kjós- endum svör varðandi jaðarskattana. Fjármálaráðherra sagði í haust, ef ég man rétt, að eitthvað ætti að fara að framkvæma í sambandi við þá, en ekkert bólar á neinu. Ég held að það væri rétt að þeir færu að sýna einhvem lit þar.“ -SÁ TRAKTDR með kerru - margar gerðir ( CLAIRBOIS) Heildverslunin Bjarkey Ingvar Helgason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.