Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997
Fréttir
Áramótaávarp forseta Islands:
Ekki sjálfgefið að ungt
fólk hasli sér völl á íslandi
- raungreinakunnátta skólanema áfall og áhyggjuefni, sagöi Ólafur Ragnar Grímsson
„Það er ekki jafn sjálfgefið og
fyrr að nýjar kynslóðir telji eðli-
legt að búa alla sína ævi á íslandi
og gera okkar fagra land að ættjörð
bama sinna. Islenska þjóðin á nú í
fyrsta sinn 1 harðri samkeppni við
heiminn allan um hug og hjörtu
æsku landsins," sagði Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti íslands, í
fyrsta nýársávarpi sínu til þjóðar-
innar í gær.
Forseti íslands gerði menningu
og menntun þjóðarinnar að fomu
og nýju að umtalsefni og sagði að
nýlegar niðurstöður alþjóðlegrar
rannsóknar á kunnáttu skólanem-
enda í raungreinum hlytu að vera
íslendingum áfall og áhyggjuefni
og ættu að vekja okkur til vitund-
ar um breytta heimsmynd og raun-
verulega stöðu okkar í samfélagi
þjóðanna.
Mannauður og menntun væm
þeir þættir sem mestu réðu um
samkeppnishæfni og lífskjör þjóöa
og þess vegna yrðu stjórnvöld og
almenningur að búa í haginn fyrir
æskuna og menntun hennar og
opna nýjum kynslóðum braut til
áhrifa á öllum sviðum þjóðfélags-
ins svo þær fengju aðstöðu til að
hefjast handa við að umskapa ís-
land. Örlög þjóðarinnar mundu
ráðast af því hve fljótt æskan fengi
svigrúm til að ryðja nýjar brautir,
landi og lýð til heilla. Forseti gerði
í lok ávarpsins að umtalsefhi krist-
in siðferðisgildi og náungakær-
leika. Hann sagði að siöaboðskap-
ur kristninnar og íslensk þjóð-
menning fælu í sér þá kröfu að
hver og einn gæti framfleytt sér og
sínum á sómasamlegan hátt. Vel-
ferð sérhvers einstaklings væri í
raun markmiðið með viðleitni
samfélagsins við að bæta lífskjörin
í landinu. Þá yrði þjóðin að fara að
temja sér að hugsa og starfa saman
með langtímahag að leiðarljósi en
hún hefði sannað að það væri hún
fær um, bæði með varðveislu fiski-
stofna og því hvernig hún vann
bug á verðbólgu eftir áratuga á-
þján. „Megi hækkandi sól gefa ætt-
jörð okkar nýjan þrótt og íslend-
ingum áræði og þor á framtíðar-
braut. Megi bjarmi nýs árs færa
ykkur öllum farsæld og frið,“ voru
lokaorð Ólafs Ragnars Grímsson-
ar, forseta íslands. -SÁ
Óspektir og ölvun á Akureyri:
Klifraði upp í topp
jólatrésins
á Ráðhústorgi
DV, Akureyri:
Ungur maður klifraði upp í topp
jólatrésins á Ráðhústorgi á Akur-
eyri á nýársnótt en tréð er um 14
metra hátt. Mjög margt fólk var í
miðbænum, mikil ölvun og ólæti, og
gekk lögreglu illa að ná manninum
niður úr trénu.
Að sögn varðstjóra lögreglunnar
gekk illa að rýma svæðið við tréð og
koma þar fyrir öryggisdýnu en talin
var hætta á að maðurinn félli niður
úr trénu sem sveiflaðist til og frá.
Allt tiltækt lið lögreglu var á staðn-
um og hafði i nógu að snúast við að
halda fólki frá, en það lét ófriðlega.
Komið var með körfubíl slökkviliðs-
ins og fór lögreglumaður upp í körf-
unni og í tréð en maðurinn hraktist
niður úr trénu undan honum og var
handtekinn þegar niður var komið.
Hann var mjög ölvaður og fékk gist-
ingu í fangageymslu fyrir tiltækið.
Jólatréð lét mjög á sjá við þessar að-
farir.
Varðstjóri sagði að strax eftir
miðnætti hefði verið mjög margt
fólk í miðbænum og fylgdi því mik-
il ölvun og óspektir. Oft kom til
handalögmála og ryskinga manna á
milli en alvarleg meiðsli hlutust
ekki af. Þetta ástand varði fram á
morgun, enda veður gott. Fanga-
geymslur voru fullsetnar.
Að sögn lögreglu voru áramótin
róleg ef ölvunin og ólætin í miðbæn-
um eru undanskilin og engin alvar-
leg meiðsl urðu vegna flugelda eða
annars búnaðar sem notaður var til
að kveðja árið 1996. Á slysadeild
fengust þær upplýsingar að um
nóttina heföu 10 manns leitað þang-
að, tveir voru með minni háttar
brunasár en í öðrum tilfellum var
um ýmsa áverka að ræðs, s.s. brot
vegna falls í hálku.
-gk
Landsmenn skutu aö venju miklu af flugeldum á loft á gamlárskvöld til aö kveöja gamla áriö eins og venja og hefö
er fyrir. Taliö er aö landsmenn hafi eytt á annaö hundraö milljónum króna í flugelda og blys aö þessu sinni. Mikil
flugeldadýrö blasti viö á Ægisíöunni, eins og sjá má á myndinni, þegar nýja áriö hófst. DV-mynd S
Dagfari
Birtan yfir íslandi
íslendingar kvöddu gamla árið
og fögnuðu hinu nýja með viðeig-
andi hætti. Að vísu bar skugga á
hátíðahöldin þar sem verkalýðs-
hreyfingin hefur boðað harðar
kröfur á nýju ári vegna bágra lífs-
kjara og sjómenn sjá ekki annað
fram undan en stöðva þurfi flotann
vegna lélegrar afkomu jafnt undir-
manna sem yfirmanna. Aldrei hafa
heldur fleiri leitað aðstoðar hjá
Vetrarhjálpinni og Rauöa krossin-
um vegna fátæktar til að eiga í
matinn á jólum. Biskup íslands lét
sérstaklega biðja fyrir fólki sem
kveið fyrir hátíðinni og það eru
sem sagt ýmsar blikur á lofti.
Það segir hins vegar allt um
þessa þrekmiklu þjóð að hún lét
þennan vanda ekki á sig fá. Kaup-
menn segja að verslun hafi aldrei
verið jafnmikil sem nú. Verbréfa-
markaðir höfðu ekki undan að
selja hlutabréf og á sjálfu gamlárs-
kvöldi skutu íslendingar upp flug-
eldum fyrir fjögur hundruð millj-
ónir króna. í gærkvöld fylltust svo
helstu og fínustu veitingastaðir
höfuðborgarinnar af prúðbúnu
fólki sem borgaði á milli tuttugu og
þrjátíu þúsund fyrir þaö eitt að
komast inn. Ætli vel haldin hjón
nái ekki að koma eins og fimmtíu
þúsund kalli í lóg á þessu eina
kvöldi án tiltakanlegrar fyrirhafn-
ar.
Þetta er vel af sér vikið af þjóð
sem vart á til hnífs og skeiðar enda
upplýsti Davíð forsætisráöherra að
fátækt væri ekki til í hans landi, að
minnsta kosti ekki í því landi sem
hann þekkir. Davíð bætir við og
segir að kaupmáttur fari stöðugt
vaxandi, vergar þjóðartekjur
stefna í heimsmet og fram undan
eru skattalækkanir sem leiða til
vaxtalækkunar og á endanum er
ljóst aö Islendingar vita ekki aura
sinna tal. Enda er nú svo komið að
útlendingar streyma hingað til
landsins um hver áramót til að
virða fyrir sér þessa skrýtnu þjóð
sem vinnur nú að því hörðum
höndum að leggja niður velferðar-
kerfíð og skjóta öllum sínum pen-
ingum upp í loftið af einskærum
fögnuði yfir því að hafa efni á þvi.
Ef þessi velmegun er ekki nóg
eiga Islendingar líka því láni að
fagna aö búa í landi sem nýtur
fleiri birtustunda en nokkur önnur
þjóð í veröldinni, ef Grænlending-
ar eru frátaldir en þeir teljast ekki
með þegar ísland er að bera sig
saman við umheiminn.
Davíð forsætisráðherra hefur
nefnflega lesið um það i almanaki
Þjóðvinafélagsins að birtustundir
hér á landi séu sjö hundruð fleiri
en tfl dæmis þeirra á Ítalíu og ann-
arra sem búa við miðbaug.
Það er mikil gæfa að íslendingar
skuli eiga bókhneigðan forsætis-
ráðherra sem leggur það á sig að
glugga í gömul almanök þegar
hann situr auðum höndum, enda í
sjálfu sér ekki mikið annað að gera
hjá ráðherra sem stjómar slíku bú-
sældarlandi. En Davíð sem sagt las
almanakið og uppgötvaði þessa vís-
indalegu staðreynd með birtuna og
ef Davíð hefði ekki rekist á þessar
upplýsingar hefðu menn haldið
áfram að lifa við þá bábUju að hér
væri jafnlengd birtu og myrkurs.
Menn hafa jafnvel áfram staðið í
þeirri meiningu að birtan væri
meiri í sólrikum löndum suðurs-
ins.
Það er misskUningur og það er
líka misskUningur þegar fólk er að
eyða tíma sínum í að ferðast tU
fjarlægra landa tU að sækja sér
birtu og yl vegna þess að ísland
býður upp á sjö hundruð klukku-
stunda sólskinsstundir umfram
það sem annars staðar þekkist.
Þetta vitum við úr almanakinu,
þökk sé Davíð. Það er svo sannar-
lega bjart yfir íslandi í dag.
Dagfari
... mmdihlwflWllliWMHIHIMÍ" Ml< r 11M ...... ............... :nf ■.,.