Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 2. JANUAR 1997
Fréttir_____________________________________________________dv
Samkomulag Súðavlkurhrepps, Frosta hf. og Landsbankans vegna vangreidds hlutafjár:
Fimm eigendum Togs tryggð
yfirráð með tugmilljóna láni
- bankinn tekur veð í hlutabréfum og bíður átekta - afgreiðsla hreppsins til félagsmálaráðuneytis
Frá Súðavík þar sem Landsbankinn hefur nú komiö 5 eigendum Togs hf. til bjargar og ætlar að lána þeim rúmar 70
milljónir króna. Þar með ná eigendurnir að halda yfirráðum f Frosta hf., langstærsta fyrirtæki Súövíkinga.
DV-mynd Magnús Ólafsson
„Það er ljóst að ekki eiga allir
kost á slíkum lánum. Þama sannast
hið fomkveðna að mestu skulda-
kóngamir fá stærstu lánin. Það er
greinilegt að bankinn er að skera
þessa menn niður úr snörunni,"
segir Heiöar Guðbrandsson, hrepps-
nefndarmaður í Súðavík, um sam-
komulag sem gert hefur verið milli
Súðavikurhrepps, Frosta hf. og
Landsbanka íslands þar sem bank-
inn tryggir fimm eigendum Togs hf.
áframhaldandi yflrráð yfir Frosta
hf. með því að lána þeim sem nem-
ur um 70 milljónum króna. Sam-
kvæmt heimildum DV greiddu eig-
endur Togs af persónulegum lánum
sinum, sem notuð voru til
kaupanna fyrir áratug, úr sjóðum
Frosta hf. Þannig skulduðu þeir fyr-
irtækinu orðið milljónatugi og voru
í raun orðnir brotlegir við lög.
Skuldin 70 milljónir króna
Þá hafa Togsmenn ekki staðið við
hlutafjárloforð sem þeir gáfu fyrir
10 árum þegar þeir keyptu hluta-
bréfin í Frosta hf. sem tryggðu þeim
yflrráð yfir fyrirtækinu og nam
skuld þeirra, samkvæmt heimildum
DV, um 70 milljónum króna um ára-
mót. Súðavíkurhreppur, sem er
langstærsti einstaki hluthafinn í
fyrirtækinu, réð í haust lögmann til
að innheimta þessa peninga og
tryggja þannig hagsmuni Frosta. Nú
hefur náðst samkomulag milli
Landsbankans, Súðavíkurhrepps og
stjómar Frosta hf. sem felur í sér að
bankinn lánar eigendunum Togs þá
fjármuni sem þarf til að þeir haldi
enn yfirráðum yfir fyrirtækinu.
Viðskiptasamkomulagið hljóðar
upp á það, samkvæmt heimildum
DV, að Landsbankinn lánar Togi hf.
um 70 milljónir króna gegn veði í
hlutabréfum Togs i Frosta. Þar með
hefur bankinn lánað eigendum
Togs, þeim Barða Ingibjartssyni
skipstjóra, Jóhanni R. Símonarsyni,
útgerðarstjóra Frosta, Auðunni
Kcirlssyni, yfirverkstjóra hjá Frosta,
Ingimar Halldórssyni, fram-
kvæmdastjóra Frosta, og Jónatan
Ásgeirssyni skipstjóra á annað
hundrað milljónir króna ef tekið er
tillit til lána bankans til þeirra fé-
laga fyrir áratug síðan. Ekki mun
þó vera um að ræða nýtt fjármagn
þar sem gengið hafði verið í sjóði
Frosta til að greiða af lánum. Held-
ur skuldbreytir bankinn vanskilum
Frosta og færir skuldimar yfir á
Tog með áðumefndu veði. DV er
kunnugt um að bankinn hefur haft
áhyggjur af rekstri Frosta að undan-
fömu en fyrirtækið er mjög skuld-
sett og hefur ekki náð að greiða nið-
ur skuldir nema óverulega þrátt fyr-
ir góðæri í vinnslu rækju á undan-
fomum áram.
Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
samþykkti á fundi sínum þann 29.
desember samkomulag það sem
Landsbankinn bauð upp á. Heiðar
Guðbrandsson og Siguijón Samúels-
son, fulltrúar í minnihluta hrepps-
nefndar, sátu hjá við afgreiðslu
málsins og töldu málið alls ekki
hafa verið kynnt nægilega í hrepps-
nefnd áður en það var lagt fram til
afgreiðslu.
Fjöregginu kastaö á milli
„Þessi vinnubrögð eru að minu
mati forkastanleg. Þetta er mál sem
varðar lífsafkomu allra Súðvíkinga.
Þama er verið að kasta fjöregginu á
milli sín,“ segir Heiðar Guðbrands-
son sem óskað hefur eftir liðsinni
félagsmálaráðuneytis vegna sam-
þykktarinnar.
í samkomulaginu er gert ráð fyr-
ir að eigendur hlutabréfa i fyrirtæk-
inu leitist við að selja bréf sín við
fyrsta tækifæri og að fyrirtækið fari
á almennan hlutabréfamarkað með
hlutaflárútboði. Þá er gerð sú krafa
á hendur stjóm Frosta að gengið
verði til sameiningar við dótturfyr-
irtæki þess. í þvi felst að útgerðarfé-
lagið Álftfirðingur og Frosti verði
sameinuð og útgerðarfélagið Þor-
grímur hf., sem Súðavíkurhreppur
á 15 prósenta hlut í, verði lagt nið-
ur. Þá er gert ráð fyrir aukningu
hlutafiár í Frosta um 150 milljónir
króna. Loks er ákvæði um að takist
ekki að selja hlutabréfin leysi
Landsbankinn þau til sín á genginu
1,15. Takist að selja hluta bréfanna
skuldbindur bankinn sig til að
kaupa afganginn á verði sem nemur
0,25 prósentum undir söluverði.
Talið er af þeim sem til þekkja frem-
ur ólíklegt að eigendum Frosta tak-
ist að uppfylla skilyrðin og því eins
líklegt að Landsbankinn eignist fyr-
irtækið á næstunni.
Engin Vestfjaröaaöstoö
Heiðar segir gagnrýnisvert er að
sameining hafi ekki farið fram þeg-
ar Vestfiarðaaðstoðin var á ferðinni
og það sé túlkun margra að fyrir-
tækið hafi þar með slegið af sér
verulegum fiármunum eða allt að
100 milljónum króna.
„Ég sætti mig ekki við að Þor-
grímur hf. verði lagður niður og
hluthöfum fækkað í fyrirtækjasam-
stæðunni um Frosta á sama tíma og
samkomulagið gerir ráð fyrir að far-
ið verði með fyrirtækið á opinn
markað og þar með smáum hluthöf-
um fiölgað. Þama er verið að halda
niðri hlut Súðavíkurhrepps eða með
öðram orðum þeirra 300 íbúa sem
búa í sveitarfélaginu," segir Heiðar.
Hann segir efnislega meðferð odd-
vita á málinu ámælisverða og það
sé áleitin spuming hvort Sigríður
Hrönn Elíasdóttir oddviti hafi ekki
verið vanhæf við afgreiðsluna
vegna þess að hún á einnig sæti í
stjóm Frosta. Þá hafi málið ekki
verið kynnt fyrir hreppsnefndar-
mönnum og þeim ekki gefist tóm til
að kynna sér gögn þess. Hrepps-
nefndarmönnum hafði veriö gefinn
kostur á að lesa viðskiptasamkomu-
lagið á fúndi fyrr í mánuðinum en
gögnunum safnað saman í fundar-
lok.
Bankinn vill leynd
Sigriður Hrönn Elíasdóttir, odd-
viti Súðavíkurhrepps, sagðist í sam-
tali við DV ekkert geta sagt um sam-
komulag bankans og hreppsins.
„Landsbankinn óskaði eftir því
að farið yrði með þetta sem trúnað-
armál og það vil ég virða. Hrepps-
nefndin hefur afgreitt málið og ég
vil ekkert frekar tjá mig um það,“
segir Sigríður Hrönn.
-rt
AthuguU vegfarandi:
Kom i veg
stórtjón
Athugull vegfarandi kom í veg
fyrir að stórtjón yrði þegar hann
var á gangi á Langholtsvegi á ní-
unda tímanum í fyrrakvöld.
Vegfarandinn varð var við eld
í jólaskreytingu í húsi við Lang-
holtsveginn og hringdi strax í
slökkvilið. Þegar það kom á vett-
vang var skreytingin alveg við
það að brenna niður og mátti
ekki tæpara standa. Húsið var
mannlaust og höfðu húsráðendur
farið frá án þess að slökkva á
skreytingunni.
-RR
Akureyri:
Rúðubrjótur
í miklum ham
DV, Akureyri:
Ölvaður maður tók heldur bet-
ur til hendinni í miðbæ Akureyr-
ar á nýársdagsmorgun. Hann
braut fyrst rúöu í verslunni Aug-
sýn við Strandgötu á Akureyri en
lét ekki þar viö sitja.
Annar maður, sem kom þar aö,
hafði afskipti af málinu og skipti
engum togum að rúðubrjóturinn
tók hann og kastaði honum inn í
verslunina. Maðurinn skarst við
þetta nokkuð vegna glerbrota og
þurfti að flyfia hann á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins. Sam-
kvæmt upplýsingum þaðan var
maðurinn ekki mikið slasaður en
sauma þurfti nokkur spor vegna
skurða sem hann haföi hlotið
-gk
l/^S
%
o=
SMIÐJUVEGUR 1 ■ 200 KÓPAVOGU
SÍMI: 554 3040
Leiðbeinendur:
Einar Vilhjálmsson,
lífeðlisfræðingur,
Ragna Bachmann,
heilpraktíker.
SPáilRT
TEC 2000
Hágceða heilsuvörur
Karlaþrek
að hefjast fyrir þá sem vilja ná árangri
SIMI: SS4 3040
Fullkominn TECHNOGYM æfingatæki
Sport Tec 2000 æfingakerfi, fjölþætt áreiti.
Mastercare, Sænski Heilsubekkurinn
gegn verkjum í baki, hnakka og öxlum.
Næringar- og bætiefnaráðgjöf.
Vildarkjör á bætiefnum frá Sport Tec
2000 innifalin í 8 vikna námskeiði.
Einkaþjálfun
GSM: 896 7080