Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Side 13
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997
13
DV
Fréttir
. Mlkil hækkun veiðileyfa í Eystri-Rangá næsta sumar:
Odýrustu leyfin hækka
um 100 prósent
„Það hefur orðið mikil hækkun á
veiðileyfum í Eystri- Rangá, í sumum
tilfellum meira en 100% hækkun.
Auk þess hefur veiðisvæðinu verið
skipt í tvennt,“ sagði Bjami Kristins-
son sem veitt hefur í Eystri-Rangá
um árabil.
„Ég er búinn að stunda veiði í
Eystri-Rangá í nokkur ár og við höf-
um keypt saman, nokkrir kunningj-
ar, góðan pakka á hverju ári í ein-
hverja daga. Þegar ég pantaði sömu
daga fyrir næsta sumar og í fyrra
kom í ljós að verðið var tvöfalt hærra
og þar að auki búið að deila svæðun-
um út. Hækkunina á veiðilevfunum
rökstyðja þeir með því að sleppt hafi
verið þarna 200.000 seiðum í fyrravor.
Þeir vilja meina að það gangi einhver
skelfmg af laxi í ána í sumar.
Það finnst mér undarlegt þegar
engin reynsla er fengin á það og auk
þess hugsa ekki allir veiðimenn ein-
göngu um magnið. Einnig má geta
þess að seiðin eru öll úr laxeldisstöð-
inni Silfurlaxi sem var komin á haus-
inn þegar kaupin voru gerð og erfitt
að fullyrða að seiðin þaðan séu góð.
Fyrr má nú rota en dauðrota. Þessi
hækkun á veiðileyfunum er ansi
svæsin. Sala á veiðileyfum í ána gekk
treglega í fyrra og ég get ekki ímynd-
að mér að hún gangi betur nú þegar
hækkunin er svona mikil.
Ég er heldur ekki ánægður með að
afsláttarprósenta hefur einnig
minnkað mikið. Fyrir tveimur árum
fengu menn 20% afslátt með því að
panta méð góðum fyrirvara, í fyrra
lækkuðu þeir afsláttinn niður í 15%
og í ár er hann kominn niður í 5% og
nú þarf að staðfesta mun fyrr en
áður. Ég kem ekki til með að stað-
festa það sem ég var búinn að panta
fyrir næsta sumar," sagði Bjarni.
Áttföld seiðaslepping
Guðjón Ólafsson hjá Sælubúinu
á Hvolsvelli er umboðssöluaðili fyr-
ir Veiðifélag Eystri-Rangár. „Það er
rétt að töluverð hækkun hefur orð-
ið á veiðileyfum i Eystri- Rangá.
Hún er yfirleitt á bilinu 40-100%.
Hún er hins vegar engan veginn
yfir 100%,“ sagði Guðjón.
„Fyrsta vikan hækkar úr 3.000
krónum í 6.000, önnur vikan úr
4.000 í 6.000 krónur. Á dýrasta tím-
anum er hækkunin úr 14.000 í
19.500 krónur sem er langt undir
50%. Á þessu bili eru flestar hækk-
animar.
Hækkunin er rökstudd með því
að 200 þúsund laxaseiðum var
sleppt í ána sem er áttfalt slepping-
armagn. Við urðum einnig að
lækka afsláttinn sem menn fengu
fyrir að panta með fyrirvara. Hann
var 20% fyrir tveimur árum en er
nú kominn niður i 10%. Það var
nauðsynlegt vegna hás rekstrar-
kostnaðar og seiðakaupa. Það kost-
ar einfaldlega meira að reka ána.
Veiðileyfasala hefur gengið mjög
vel í ár, en ég kannast ekki við að
treglega hafi gengið að selja veiði-
leyfi í fyrra. Að vísu var veður leið-
inlegt í september og október og þá
gekk illa að selja,“ sagði Guðjón.
Ný ríkisstofnun tekur til starfa:
Nokkrir dagar til að ræsa
nýja Löggildingarstofu
Samkvæmt lögum, sem afgreidd
voru á alþingi rétt áður en þing-
menn fengu jólafrí, verða stofnan-
irnar Rafmagnseftirlitið og Löggild-
ingarstofan lagðar niður og ný
stofnun - Löggildingarstofa - sett á
stofn. Frá því að lögin voru sam-
þykkt og þar til þau eiga að taka
gildi var óvenjuskammur tími eða
rúm vika en lögin skulu taka gildi
nú í ársbyrjun 1997. Frestur til að
undirbúa hina nýju stofnun var því
mjög skammur.
„Menn hafa ekki haft meiri tíma
en svo að þetta var tilkynnt síðasta
vinnudag fyrir jól. Ég hugsa að flest-
ir hafi haft um annað að hugsa um
jólin en þetta þó að sjálfsagt hafi
það verið í undirmeðvitundinni og
varla aukið jólagleöina," segir Berg-
ur Jónsson, forstjóri Rafmagnseftir-
lits ríkisins, i samtali við DV.
Hann segir að starfsmönnum hafi
gefist mjög skammur tími til að átta
sig á breytingunni sem varð um
áramótin en lagasetningin snerti í
raun alla landsmenn en ekki ein-
ungis starfsmennina níu hjá Raf-
magnseftirlitinu. Stofnunin var
áður eftirlitsstofnun með mun fleiri
starfsmenn. Undanfarin misseri hef-
ur hún verið stjórnsýslustofnun og
eftirlitsþátturinn kominn í hendur
einkarekinna skoðunarstofa.
Samkvæmt heimildum DV verð-
ur núverandi starfsmönnum beggja
stofnana boðinn tveggja mánaða
bráðabirgðasamningur um áfram-
haldandi starf. Þegar hann rennur
út verður ákveðið hverjir þeirra fá
starf áfram og hverjir ekki og nýtt
starf forstjóra Löggildingarstofu þá
auglýst. Ámi Magnússon, aðstoðar-
maður iðnaðarráðherra, staðfesti
þetta í samtali við DV og sagði að
þetta væri i raun sá tími sem menn
gæfu sér við að sameina starfsemi
gömlu Löggildingarstofunnar og
Rafmagnseftirlitsins undir hinum
nýja hatti. -SÁ
Á hverju ári er farin blysför á vegum Feröafélags íslands síöasta sunnudag fyrir áramót. Gengiö er frá Mörkinni um
Elliðaárdalinn og endað á Geirsnefinu. Algjör metþátttaka var í göngunni í blíðviörinu á sunnudaginn. Um 830 manns
áttu þarna ógleymanlega stund saman og fylgdust meö flugeldasýningu Hjálparsveitar skáta í lok göngunnar.
DV-mynd ÞÖK
Banaslys
- frá 1994 til 1996 -
Sjóslys og drukknanir Umferdarsiys
Flugslys Ýmis slys
'94
'95
í ■ '96
DVl
32 einstaklingar hafa farist af slysförum á árinu:
Ekki jafnfa dauðaslys
í langan tíma
„Það hafa aldrei verið jafhfá
dauðaslys á ári frá því Slysavamafé-
lagið hóf að skrá banaslys á þann
hátt sem gert er í dag eða frá árinu
1952. Engu að síður em þessi bana-
slys alltof mörg,“ segir Eshter Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
Slysavamafélags íslands, en félagið
hefur sent frá sér bráðabirgðaniður-
stöður á samantekt banaslysa á árinu
1996.
Miðað við fóstudaginn 27. desemb-
er hafa 32 einstaklingar farist af slys-
förum á árinu og er um að ræða 25
karla og konur.
Slysavamafélagið skiptir banaslys-
um í fjóra flokka. í fyrsta lagi sjóslys
og drukknanir og era 12 banaslys
skráð þar. Á árinu fórast 10 sjómenn,
fimm sem fórast með skipum, fjórir
sem féllu útbyrðis og einn í vinnu-
slysi um borð í skipi.
1 öðra lagi era umferðarslys og fór-
ust 11 í þeim á árinu. Umferðarslys-
um fækkaði verulega á árinu og verð-
ur að fara aftur til ársins 1968 til að
sjá jafnlága tölu samkvæmt niður-
stöðum Slysavamafélagsins. Af þeim
11 sem létust í umferðarslysum vora
sjö ungmenni undir tvitugu.
í þriðja lagi era ílugslys en engin
banaslys hafa orðið þar á þessu ári. í
fjórða lagi era ýmis slys en alls vora
niu slík banaslys á árinu. í þennan
flokk era skráð vinnuslys, hrap, fall,
af völdum brana o.fl. -RR
VERTU VEL VIRKUR í
VETUR OG BJÓDDU
ÖLLU BIRGINN.
HJÁ 0KKUR FÆROU
FÍNT FORM OG
FLOTTAR LÍNUR FYRIR
FÁEINAR KRÓNUR.
HEILSURÆKTARBOMBA
-fyrir unga sem aldna
FITUBRENNSLA
ÞREKSTIGAR
FULLKOMIN LÍKAMSRÆKT
RÁÐGJÖF UM MATARÆÐI
einkaþjAlfun
SJÁLFSVÖRN
JIU-JITSU
TAEKWONDO
JUDO FRÁ 6 ÁRA ALDRI
og svo á eftir - Ijós og sauna
láttu sjá þig semjyrst
■ iMAAÍiyæMA
AFHmtl
Judo GYM
EINHOITI 6
S : 562 7295