Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Page 25
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997
33
Sviðsljós
Franska leikkonan Catherine Deneuve drekkur kaffi í New York:
Ekki áhuga á að rita
endurminningarnar
Franska leikkonan Catherine
Deneuve hefur ekki áhuga á að feta
í fótspor stallsystur sinnar, Brigitte
Bardot, og skrifa endurminningar
sínar. „Ég hef ekki áhuga á því sem
fólk ætlast til að finna í endurminn-
ingum leikkonu: Einkalífi mínu.
Það er það eina sem fólk vill vita
um og mér finnst það eitthvað svo
ómerkilegt,“ segir hin gullfallega
Deneuve og fær sér sopa af ilmandi
cappuccino á kaffistofu hótels á
Manhattan i New York, í svartri og
grárri drakt og með rauð gleraugu á
nefinu.
„Ég veit ekki hvort hægt er að tala
um það sem maður hefur gert og þá
sem maður hefur þekkt sem ekki er
hægt að lesa um í slúðurblöðunum.
Ég hef ekki áhuga á því, ekki einu
sinni sem lesandi," segir hún.
Saga Catherine Deneuve er saga
konu sem hefur farið sínar eigin
leiðir, saga sjálfstæðrar og óháðrar
konu sem hefur eignast börn með
ástmönnum sínum, franska leik-
stjóranum Roger Vadim og ítalska
leikaranum Marcello Mastroianni
sem nú er nýlátinn. Þá gekk hún í
hjónaband með breska ljósmyndar-
anum David Bailey á sjöunda ára-
tugnum þegar svokallað mod-æði
stóð sem hæst.
Deneuve, sem nú er orðin 53 ára
gömul, hefur starfað með mörgum
þekktustu leikstjórum samtíðarinn-
ar og unnið við myndir sem þykja
tímamótaverk. Hún er enn að og
hefur að undanfornu leikið í mynd-
um sem hafa notið töluverðra vin-
sælda á alþjóða vettvangi. Þar má
nefna Indó-Kína, sem hún fékk ósk-
Catherine Deneuve.
arstilnefningu fyrir og hefur verið
sýnd hér á landi, og Uppáhaldsárs-
tíðina mína. í hinni síðamefndu lék
hún á móti leikaranum Daniel
Auteuil, rétt eins og í nýjustu mynd-
inni, Þjófunum, þar sem þau keppa
um ástir sömu ungu stúlkunnar.
Catherine Deneuve býr í París og
hún starfar aðallega í Evrópu og er
bara ánægð með sinn hlut. „í
Bandaríkjunum em menn svo hel-
teknir af æskunni að það hræðir
mig. Það er auðveldara að eldast í
Evrópu. Maður finnur fyrir því, það
sést í tímaritunum: Menn eru enn
hrifnir af konum sem era komnar
yfir 45 ára aldurinn. Þær eru enn
mjög aðlaðandi," segir Catherine
Deneuve sem hefur sjálfsagt sjaldan
verið glæsilegri en einmitt nú, kom-
in á sextugsaldurinn.
Mariah Carey
ofvernduð
Stirt er nú á milli hjónakornanna
Mariah Carey og Tommy Mottola.
Hann er sagður ofvemda eiginkon-
una og hún
þess vegna
orðin slæm á
taugum.
Mariah og
Tommy búa í
húsi sem er
næstum víg-
girt, að því er
gárungamir
segja. Vopn-
aðir menn era
á verði við
húsið allan
sólarhringinn.
Mariah var
glöð og opin
en er nú að sögn kunnugra alveg að
brotna niður. Tveir lífverðir gæta
hennar sérstaklega og kemst hún
varla út úr húsi án gífurlegrar
skipulagningar.
Mariah Carey
ásamt eiginmann-
inum Tommy Mott-
ola.
Cruise má ekki
kjafta frá
Bandaríski leikarinn Tom Cra-
ise og eiginkona hans, Nicole Kid
man, eru í London þessa dagana
að gera kvikmynd með hinum
virta og leyndardómsfulla Stanley
Kubrick. Stanley er meinilla við
að eitthvað kvisist út um myndir
sínar og hann hefur þess vegna
beðið hjónin að segja sem minnst.
Þó er vitað að þau leika sálfræð-
inga og hjón sem eiga í ástarsam-
bandi við önnur hjón, leikin af
Harvey Keitel og Jennifer Jason
Leigh. Þá er orðrómur um aö Cru-
ise klæðist kvenmannsfötum.
Bowie heldur
rosaveislu
Popparinn David Bowie verður
fimmtugur eftir nokkra daga og af
því tilefni verður mikið um dýrð-
ir. Karlinn ætlar að efna til tón-
leika í New York þar sem hann
fær til liðs við sig fjölda þekktra
tónlistarmanna og saman ætla
þeir að flytja lög frá ýmsum skeið-
um ferils meistarans undanfama
áratugi.
Þessi Tyrannosaurus Rex risaeðla er heldur ófrýnileg en hún er bara blaöra sem blásin var upp í tilefni risaeðlusýn-
ingar í Sydney í Ástralíu. Símamynd Reuter
Whitney Houston reynir
að bjarga hjónabandinu
Söngkonan Whitney Houston ger-
ir víst hvað sem er til að halda í eig-
inmann sinn, Bobby Brown, sem
þykir í villtara lagi. Whitney hefur
greint frá því að hún sé bamshaf-
andi aftur og nánir vinir þeirra
hjóna segja að söngkonan vonist til
að nýja barnið bjargi hjónabandinu.
Bobby er þekktur fyrir að
skemmta sér með öðru kvenfólki en
þó að hann sé kvennabósi er hann
mikið fyrir böm, að sögn Whitney.
„Þegar ég sagði honum að við ætt-
um von á öðra bami varð hann al-
veg óður og sagðist vona að það yrði
strákur," er haft eftir söngkonunni.
Fyrir eiga þau hjónin dótturina
Bobby Kristina.
Mörgum þykir þó að Whitney eigi
að láta Bobby róa þar sem hann hafi
svo oft gert henni lífið leitt. Ekkert
bendir heldur til þess að hann ætli
að láta af villtu líferni sínu.
Whitney Houston og Bobby Brown.
Hagstœð kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% afsláttur
af annarri auglýsingunni
oWt miiff himfo'
Smáauglýsingar
550 5000