Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Qupperneq 26
34
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997
Afmæli
Magnús Einarsson
Magnús Einarsson yfirlögreglu-
þjónn, Borgargerði 9, Reykjavík,
verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Magnús fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp við Kárastíginn. Hann
lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða-
skóla Austurbæjar - Ingimarsskól-
anum, lauk síðar prófi frá Lögreglu-
skóla ríkisins 1958, lauk prófum í
lögreglufræðum frá Lögregluskólan-
um í Ósló og North Westeren í Illin-
ois i Bandarikjunum, auk þess sem
hann er löggiltur ökukennari.
Að loknu gagnfræðaprófi var
Magnús við landbúnaðarstörf hjá
Bimi Konráðssyni, bústjóra á Vif-
ilsstaðabúinu, stundaði tækjavinnu
og akstur hjá Steypustöðinni við El-
liðavog 1955-57 en hóf síðan störf
sem löggæslumaður í ársbyrjun
1958.
Magnús hóf löggæslustörf sem
ríkislögregluþjónn í Reykjavík, var
skipaður bæjarlögregluþjónn 1960,
síðan skipaður varðstjóri og aðal-
varðstjóri 1972, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn 1977 og
er yfirlögregluþjónn frá
1995.
Magnús var kennari
við Lögregluskóla ríkis-
ins 1977-87 og yfirlög-
regluþjónn á ísafirði um
skeið 1986.
Magnús hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum
á vegum dómsmálaráðu-
neytisins, setið í stjórn og
varastjóm Lögreglufélags
Reykjavíkur og Félags yf-
irlögregluþjóna, verið fulltrúi Lög-
reglufélags Reykjavíkur á þingum
Landssambands lögreglumanna og
situr nú í nefndum á vegum Lands-
sambands lögreglumanna.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 18.9. 1956, Ólöfu
Erlu Hjaltadóttur, f. 18.9. 1933, hús-
móður. Hún er dóttir Hjalta Bjöms-
sonar, strætisvagnstjóra í Reykja-
vík, og Svanborgar Þórmundsdóttur
húsmóður.
Börn Magnúsar og
Ólafar Erlu eru Svan-
borg Anna, f. 29.10. 1956,
bóndi í Miðdal í Kjós, gift
Guðmundi Davíðssyni
bónda og eiga þau þrjú
börn; Hjalti, f. 19.10.1959,
bifvélavirki í Reykjavík;
Anna Sigríður, f. 21.10.
1962, húsmóðir í Reykja-
vík en maður hennar er
Atli Kárason jámsmiður
og eiga þau tvö böm.
Systkini Magnúsar era
Gylfi, f. 13.1. 1941, bókari í Kópa-
vogi; Guðmundur, f. 13.3.1944, pípu-
lagningameistari í Reykjavík; Sig-
rún, f. 17.4. 1947, kennari í Reykja-
vík.
Hálfsystir Magnúsar, samfeðra,
er Erla, f. 15.11. 1934, fyrrv. bóndi,
nú búsett á Höfn.
Foreldrar Magnúsar vora Einar
Sigurjón Magnússon, f. 14.10. 1906,
d. 20.6. 1989, bifreiðastjóri í Reykja-
vík, og Anna Guðmundsdóttir, f. 3.6.
1916, d. 14.9. 1990, húsmóðir.
Ætt
Einar var sonur Magnúsar, b. í
Flóa, Einarssonar, Sigurðssonar.
Móðir Einars var Margrét Geirs-
dóttir, systir Þórðar næturvarðar
sem var einn af fyrstu lögregluþjón-
unum í Reykjavík. Annar bróðir
Margrétar var ívar, faðir Vilhjálms,
föður söngvaranna Ellýjar og Vil-
hjálms.
Anna var dóttir Guðmundar,
bónda og hómópata, Gíslasonar og
Sigríðar, systur Þorsteins, prófasts í
Steinnesi, föður Guðmundar, sókn-
arprests í Árbæjarsókn. Meðal ann-
arra bræðra Sigríðar eru Gunnar,
fyrrv. skólastjóri í Laugarnesskóla
og Þorsteinn kennari. Sigríður var
dóttir Gisla, b. í Forsæludal og síð-
ar í Koti í Vatnsdal, Guðlaugssonar,
b. á Marðamúpi, Guðlaugssonar.
Móðir Sigríðar var Guðrún Sigur-
rós Magnúsdóttir, b. á Bergsstöðum,
Guðmundssonar.
Magnús og Erla era í London um
þessar mundir.
Magnús Einarsson.
Svanbjörn Sigurðsson
Svanbjörn Sigurðsson rafveitu-
stjóri, Kotárgerði 7, Akureyri, varð
sextugur á nýársdag.
Starfsferill
Svanbjörn fæddist á Akureyri og
ólst þar upp. Hann lauk gagnfræða-
prófi 1953, iðnskólaprófi á Akureyri
og sveinsprófi í rafvirkjun 1957,
stundaði nám í rafmagnstæknifræði
i Kaupmannahöfn í tvo vetur frá
1959 en lauk námi í rafmagnstækni-
fræði í Gautaborg 1962, var við nám
í Svíþjóð 1976 og 1977, stundaði nám
við Háskólann í Gautaborg og loks
nám i rafmagnsverkfræði við há-
skólann í Middlesbrough
í Englandi 1993-94. Þá
hefur hann sótt styttri
námskeið við ýmsa skóla,
s.s. Texasháskólann i Arl-
ington.
Svanbjörn starfaði á
verkfræðistofu í Gauta-
borg 1962-63, var tækni-
fræðingur hjá Rafmagns-
veitu Akureyrar frá 1963,
fulltrúi rafveitustjóra þar
frá 1973 og rafveitustjóri
á Akureyri frá 1983. Þá
starfaði hann stutta hríð
hjá Whestinghouse í kjarnorkuveri
við Ringhals og hjá Yngeredsfors-
raforkufyrirtæki, sunnan
Gautaborgar.
Svanbjörn sat í stjóm
Sambands íslenskra raf-
veitna í nokkur ár og sit-
ur nú í fagstjóm Sam-
orku, samtaka raforku,
hita og vatnsveitna.
Fjölskylda
Svanbjöm kvæntist 17.11.
1962 Reine Margareta Sig-
urðsson, f. 23.8. 1941, hár-
'greiðslukonu. Hún er
dóttir Herberts Brattberg, kaup-
manns í Gautaborg, sem nú er lát-
Svanbjörn
Sigurðsson.
inn, og k.h., Mariu Brattberg hús-
móður, búsett í Gautaborg.
Börn Svanbjörns og Reine Marg-
areta era Birna María Svanbjörns-
dóttir, f. 14.4. 1964, kennari; Geir
Kristján Svanbjömsson, f. 11.4.1966,
rafmagnstæknifræðingur; Guðrún
Björg Svanbjörnsdóttir, f. 17.6. 1971,
háskólanemi.
Systir Svanbjöms er Gréta Sig-
urðardóttir, f. 2.11. 1933.
Foreldrar Svanbjöms vora Sig-
urður Helgason, f. 13.2. 1902, d. 21.8.
1990, rafvirkjameistari hjá Raf-
magnseftirlitinu á Akureyri, og
Guðrún Sigurbjömsdóttir, f. 1.8.
1905, d. 20.2. 1978, húsmóðir.
Andlát
Þórður V. Oddsson
Þórður Vilberg Oddsson læknir,
Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, lést á
aðfangadag. Útför hans verður gerð
frá Dómkirkjunni í Reykjavík í
dag, fimmtudaginn 2.1., kl. 13.30.
Starfsferill
Þórður fæddist í Ráðagerði á Sel-
tjamamesi 23.9. 1910 og ólst þar
upp til níu ára aldurs er hann flutti
með föður sínum á Stýrimannastíg-
inn í Reykjavík. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1932, prófi í lækn-
isfræði frá HÍ 1940 og stundaði
framhaldsnám við St. James Hospi-
tal í London 1949.
Þórður var settur staðgengill
læknis á Hólmavík 1935, var settur
héraðslæknir í Ögurhéraði 1938, í
Þistilfjarðarhérði 1942-50, í Klepp-
jámsreykjahéraði 1950-64, í Borg-
ameshéraði 1964-69, á Akranesi
1969-75 og var starfandi læknir í
Reykjavík 1975-89.
Þórður sat í stjóm Kf. Langnes-
inga, Sparisjóðs Þórshafnar, var
formaður hafname&idar Þórshafn-
ar, sat í skólanefnd Þórshafnar-
skólahverfis og í skóla-
nefnd Reykholtsdals-
skólahverfis 1952-58 og
hafði á hendi póstaf-
greiðslu og símavörslu á
Kleppjámsreykjum
nokkur ár.
Árið 1943 fékk Þórður,
annar tveggja íslenskra
héraðslækna, jeppabif-
reið til afhota i læknis-
ferðum en það vora þá
fyrstu jepparnir sem ís-
lendingar eignuðust.
Lýsti Þórður jeppanum
sem sérstöku þarfaþingi við erfiðar
aðstæður norður á Langanesi.
Fjölskylda
Dóttir Þórðar og Guðnýjar Jón-
ínu Sigurbjömsdóttur er Erla Jó-
hanna, f. 19.2. 1938, félagsmálafull-
trúi í Reykjavík, gift Vali Páli Þórð-
arsyni og eiga þau fjögur böm.
Sonur Þórðar og Olgu Bergmann
Bjamadóttur er Þórður Bjami, f.
23.2. 1941, branavörður á Keflavík-
urflugvelli, kvæntur Helgu Magn-
úsdóttur og eiga þau
þau þrjú böm.
Þórður kvæntist 7.2.
1942 Sigrúnu Aðalheiði
Kæmested, f. 2.11. 1910,
d. 1.9. 1991, húsmóður.
Foreldrar hennar vora
Óli Ólason Kæmested,
járnsmiður í Reykjavík,
og k.h., Gróa Jónsdóttir
húsmóðir.
Synir Þórðar og Sigrún-
ar eru Óli Hörður, f. 5.2.
1943, framkvæmdastjóri
Umferðarráðs, kvæntur
Þuríði Steingrímsdóttur og eiga
þau fjögur böm; Oddur, f. 27.10.
1944, rannsóknarmaður hjá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins,
kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur og á
hann fimm börn; Jón, f. 2.12. 1946,
húsasmíðameistari í Akarp í Sví-
þjóð, kvæntur Guðríði Theodórs-
dóttur og á hann fjögur böm. Sfjúp-
sonur Þórðar var Ámundi
Ámundason, f. 9.6. 1937, d. 27.2.
1996, blikksmiðjueigandi í Reykja-
vík, kvæntur Herdísi Jónsdóttur og
eiga þau fimm böm.
Systkini Þórðar: Ásta, f. 14.11.
1905, ekkja á Jótlandi; Jón, f. 23.12.
1908, d. 21.5. 1988, vélsmiður hjá
Héðni.
Systur Þórðar, samfeðra: Fann-
ey, f. 7.12.1917, d. 2.8.1989, húsmóð-
ir í Reykjavík; Gyða, f. 20.12. 1917,
húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Þórðar voru Oddur
Jónsson, f. 12.10. 1878, d. 26.2. 1934,
hafnsögumaður í Reykjavík, og
k.h., Guðríður Þórðardóttir, f. 23.5.
1876, d. 30.1. 1916, húsmóðir.
Ætt
Oddur var sonur Jóns, b. í Dúks-
koti í Reykjavík, bróður Jónasar
prests á Grýtubakka, fóður Þórðar
dómstjóra. Jón var sonur Jóns, b. á
Höfða á Höfðaströnd, Jónssonar.
Guðríður var dóttir Þórðar, útvb.
og hafnsögumanns í Reykjavík,
Jónssonar, útvb. í Hlíðarhúsum,
Þórðarsonar, hafnsögmnanns í
Borgarabæ i Reykjavík, Guð-
mundssonar, borgara í Borgarabæ,
Bjamasonar, b. á Langárfossi í
Mýrasýslu, Eiríkssonar. Móðir
Þórðar Jónssonar var Jódís Sigurð-
ardóttir, b. á Efra-Skarði í Leirár-
sveit, Péturssonar. Móðir Péturs
var Sigríður Vigfúsdóttir, lögréttu-
manns á Leirá, Ámasonar.
Móðir Guðríðar var Þórunn
Jónsdóttir, b. í Mýrarhúsum, Sig-
urðssonar, b. á Seli í Grímsnesi,
Jónssonar. Móðir Sigurðar var
Elín Sigurðardóttir, b. í Vestra-
Geldingaholti, Jónssonar, lögréttu-
manns í Bræðratungu, Magnússon-
ar, b. í Bræðratungu, Sigurðssonar.
Móðir Jóns var Þórdís (Snæfríður
íslandssól) Jónsdóttir, biskups á
Hólum, Vigfússonár.
Áskrifendur fá 10%
aukaafslátf af
smáauglýsingum DV
a\\t mil/i ö/z/j
Smáauglýsingar
DV
5505000
Þórfiur V. Oddsson.
Til hamingju með afmælið 2. janúar
90 ára
Þrúður Guðmundsdóttir, Þinghólsbraut 65, Kópavogi.
85 ára
Guðbjörg Þórðardóttir, Goðheimum 24, Reykjavík.
80 ára
Jórunn Ármannsdóttir, Heiðargerði 110, Reykjavík. Kristjana Mooney, Borgarholtsbraut 20, Kópa- vogi. Sigríður Ólöf Þórðardóttir, Óttuhæð 2, Garðabæ.
75 ára
Guðrún Aspar, Ránargötu 9, Akureyri.
70 ára
Jóhanna Jóhannsdóttir, Jaðarsbraut 15, Akranesi.
60 ára
Hlín Kristinsdóttir, Eyjabakka 11, Reykjavík. Erna Jóhannesdóttir, Kirkjubæjarbraut 2, Vest- mannaeyjum. Bergsveinn Gestsson, Austurgötu 6, Stykkishólmi.
50 ára
Guðleif Sigbjörnsdóttir, Hvassaleiti 32, Reykjavík. Sigríður Matthiasdóttir, Lindarholti 6, Ólafsvík. Gunnar S. Bjamason, Faxabraut 37B, Keflavík. Guðmundur Diðriksson, Lækjarbergi 60, Hafnarfirði. Rósa Halldórsdóttir, Melgerði 25, Reykjavík. Ólafur Sigurðsson, Klausturhvammi 26, Hafnar- firði. Ágústa Waage, Holtagerði 33, Kópavogi. Valgerður Magnúsdóttir, Langholtsvegi 21, Reykjavík. Reynir Bragason, Laugabrekku, Ólafsvík. Sigurður Ævar Harðarson, Kirkjuvegi 4, Vík í Mýrdal
40 ára
Óli Ragnar Gunnarsson, Álagranda 12, Reykjavík. Jón Ingi Guðmundsson, Bólstaðarhlíð 39, Reykjavík. Vilhjálmur Kjartansson, Heiðargerði 88, Reykjavík. Ingveldur Kr. Friðriksdótt- ir, Hrísmóum 10, Garðabæ. Sigurbjartur Ágúst Þor- valdsson, Brattholti 5, Hafnarfirði. Elsa Björk Pétursdóttir, Grundarhúsum 12, Reykjavík.