Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Page 32
I
s
Vinningstölur miðvikudaginn 1.1 .’97
lt5@®
r29¥ 33Y34
[13Y17Y37)
Vlnnlngar Fjöldl vlnnlnga Vinningsupphxð
1. 6af6 1 40.250.000
2.5 46' i«'° 0 1.454.586
3.5o/6 2 75.710
4.4 46 ,128 1.880
í. 3 46' koW547 180
Heildarrianing
42.195.106
Vinningstölur
30.12/96
Á íslandi
1.945.106
KIN
FRETTASKOTID
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997
Raufarhöfn:
Alvarleg
líkamsárás
Tvítugur piltur er í haldi lögreglu
á Húsavík eftir að hafa ráðist á 16
ára gamlan unglingspilt með vasa-
hníf fyrir utan félagsheimilið á
Raufarhöfn á nýársnótt.
Fórnarlambið hlaut áverka á 6
stöðum á líkamanum og þann
versta á hálsi. Hann var fluttur á
heilsugæslustöðina en er ekki í lífs-
hættu.
Að sögn lögreglu mátti litlu muna
að slagæð á hálsi færi í sundur. Til-
drög árásarinnar eru óljós.
-RR
Hafnarfjörður:
Kraftmikil
sprengja
olli tjóni
„Ég var á gangi þama þegar ég sá
hvítan Mercedes Benz keyra að
blokkinni. Ég sá pilt stíga út úr bíln-
um og hann kastaði einhverjum hlut
inn í anddyrið á húsinu. Síðan hljóp
hann aftur að bílnum, fór upp í og
bílnum var ekið á brott. Örskömmu
síðar kvað við þessi rosalega spreng-
ing og rúður brotnuðu í ganginum og
glerbrot þeyttust út um allt. Ég var í
raun heppinn að sleppa við glerbrot-
in,“ segir vegfarandi sem varð vitni
að sprengingu í anddyri ijölbýlishúss
við Sléttahraun í Hafnarfirði í nótt.
Sprengjan var heimatilbúin og
mjög öflug. Miklar skemmdir urðu á
anddyrinu og rúður brotnuðu í hús-
inu. Lögreglan hóf þegar leit að
skemmdarvörgunum og náðust þeir
skömmu síðar.
Að sögn lögreglu var mjög mikill
Söldi fólks samankominn í miðbæ
Hafnarfjarðar í nótt en þar fór allt
vel fram. -RR
Ung kona
lokaðist inni
í hraðbanka
Ung kona lokaðist inni í hrað-
banka Islandsbanka við Lækjargötu í
Reykjavík um fjögurleytið á
nýársnótt. Bankinn átti að vera lok-
aður en einhverra hluta vegna komst
konan inn en ekki út aftur. Hrað-
bankinn er ávallt lokaður um helgar.
Konan reyndi að gera vart við sig
með því að banka á dyr en þrátt fyr-
ir að margir vegfarendur ættu leið
um kom enginn þeirra konunni til
hjálpar.
Það var loks viðskiptavinur sem
ætlaði í bankann klukkan rúmlega
eitt á nýársdag sem varð var við kon-
una og lét lögreglu vita. Það voru síð-
an starfsmenn bankans sem opnuðu
fyrir henni en hún hafði þá mátt
dúsa þar í rúmar 9 klukkustundir.
-RR
L O K I
19 ára piltur réöst hrottalega á jafnaldra sinn í Keflavík:
Stóð yfir honum
með blóðugan hníf
- en hinn lá alblóðugur á gólfinu, segir sjónarvottur
„Við heyrðum skyndilega öskur
frammi og þegar við komum að
sáum við hvar annar pilturinn lá á
gólfinu, alblóðugur á höndum og
fótum. Hinn stóð yfir honum með
blóðugan hníf. Það voru nokkrir
sem náðu að afvopna hann og
halda honum þar til lögreglan
kom. Þetta var mjög óhugnanlegt,"
segir sjónarvottur að hrottalegri
líkamsárás sem átti sér staö í húsi
við Faxabraut í Keflavík skömmu
fyrir hádegi á nýársdag.
19 ára gamall piltur réðst hrotta-
lega á jafnaldra sinn með dúka-
hnífi og stakk og skar hann á
handlegg og læri. Samkvæmi hafði
staðið yfir í húsinu um nóttina og
var töluvert af fólki þar þegar at-
burðurinn átti sér stað.
Að sögn Johns Hills, rannsókn-
arlögreglumanns í Keflavik, voru
piltamir búnir að deila harkalega
um nóttina og höfðu slegist fyrr
rnn morguninn. Þeir voru báðir
ölvaðir. Pilturinn, sem var stung-
inn, hafði haft betur í slagsmálun-
um og veitt hinum nokkra áverka.
Hnífstungupilturinn viður-
kenndi við yfírheyrslur í gær að
hafa farið heim til sín um morgun-
inn og náð í hárbeittan dúkahníf.
Hann kom síðan aftur í samkvæm-
ið til að ná sér niðri á hinum pilt-
inum. Réðst hann síðan á hann
með fyrrgreindum afleiðingum.
Fórnarlamb hnífstungunnar
gekkst undir aðgerð á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur í gær og tókst hún
vel, að sögn Jóns Baldurssonar,
yfirlæknis slysadeildar. Jón segir
piltinn hafa verið með alvarlega
áverka á handlegg og læri og misst
töluvert blóð. Hann mun ekki vera
í lífshættu. Jón segir að of snemmt
sé að segja til um hvort áverkarn-
ir muni hafa varanleg mein í fór
með sér.
Árásarpilturinn er i haldi lög-
reglu eftir árásina. Hann mun hafa
komið við sögu lögreglu áður
vegna minni háttar mála en aldrei
fyrir svo alvarlega árás. Fómar-
lambið mun einnig hafa komið við
sögu lögreglu vegna minni háttar
mála.
Lögregla leitaði að fikniefnum í
samkvæminu en engin ólögleg
vímuefni munu hafa fundist þar.
-RR
Stoltir foreldar meö dóttur sinni. Erla Geirsdóttir og Gunnar Gunnarsson með fyrsta barnið sem fæðist á íslandi á
þessu ári.
DV-mynd JAK
1 V'v' ■
fk IW :
Fyrsta barn ársins:
Fæddist undir
stórskotahríð
flugelda
Rétt um miðnætti á síðasta degi
ársins, eða þegar klukkan var fimm
mínútur gengin í eitt 1. janúar, fædd-
ist fyrsta bamið á árinu 1997 á fæð-
ingardeild Landspítalans, Bamið var
stúlka sem reyndist vera 3060 grömm
að þyngd og 51 sentímetra löng. For-
eldrar stúlkunnar em Erla Geirsdótt-
ir og Gunnar Gunnarsson og er hún
þriðja bam þeirra. Fyrir eiga þau tvo
syni, þrettán ára og þriggja ára, svo
það má nærri geta sér til um að gleð-
ina í fjöTskyldunni með tilkomu litlu
telpunnar. Sú litla flýtti sér aðeins í
heiminn en foreldrar hennar sögðu
að hún hefði átt að fæðast 7. janúar. í
staðinn kom hún á fæðingardegi
langafa síns sem hefði orðið 90 ára
hefði hann lifað. -HK
Stykkishólmur:
Hættuástand
myndaðist
Hættuástand skapaðist í Stykkis-
hólmi þegar logandi bréf og glæður úr
áramótabrennu feyktust yflr bensín-
stöð þar skammt frá.
Slökkvilið var kallað út og spraut-
aði það froðu yfir plan og bensínt-
anka. -RR
Veðrið á morgun:
Sums staðar
næturfrost
Á morgun verður hæg vest-
læg átt og skýjað með litils hátt-
ar súld á stöku stað vestan-
lands, einkum norðvestan til,
en þurrt annars staðar og víða
bjart veður um landið austan-
vert. Hiti verður á bilinu 1 til 6
stig að deginum en sums staðar
næturfrost.
Veðrið í dag er á bls. 36
MERKILEGA MERKIVELIN
brother
íslenskir stafir
5 leturstæröir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar i tvær linur
Verð kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Sfmi 554 4443