Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Page 2
2
MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 1997
Fréttir
Sveitarstjóm Kjósarhrepps hótar ríkinu og Columbia málsókn vegna byggingar álvers:
Fátækir bændur:
Stórmál fyrir efnahagsupp-
byggingu þjóðarinnar
- segir iðnaðarráðherra - ógnar ferðaþjónustu, segir oddviti Kjósarhrepps
„Þessi gagnrýni kemur ansi seint.
Það hefur þegar farið fram umhverf-
ismat á svæðinu sem er miðað við
180 þúsund tonna álver og sú könn-
un leiddi skýrt í ljós að mengunin
frá því verður innan viö þau mörk
sem miðað er við í lögum og regl-
um,“ segir Finnur Ingólfsson, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, um þá
ályktun sveitarstjórnar Kjósar-
hrepps að brýnt sé að finna fyrir-
huguðu álveri Columbia Ventures
nýjan stáð en það á að rísa á Grund-
artanga. Einnig hótar sveitarstjóm-
in ríkinu og Columbia Ventures
Seaflower:
Stjórnin
samþykkti
skipakaup
- segir forstjórinn
„Það lá stjómarsamþykkt að baki
kaupum Seaflower á togaranum
Hoffelli. Á fundi stjómarinnar, sem
haldinn var 10. október 1995, sam-
þykkti stjóm fyrirtækisins að
kaupa veiðiskip og var mér falið að
finna skip til að fyrirtækið missti
hvorki úr veiöitíma né tapaði niður
kvóta,“ segir Magnús Guðjónsson,
fyrrverandi forstjóri Seaflower í
Namibíu sem sagt var upp störfum í
desember s.l.
í samtali við DV segir Magnús að
eftir að samþykktin var gerð og
hann farinn að leita eftir kaupum á
heppilegu skipi hafi ytri aðstæður
breyst á þann veg að tillögur komu
fram frá fiskifræðingum um að
veiðiheimildir yrðu skornar niður
úr 170 þúsund tonnum í 45 þúsund
tonn. Nokkm síðar, eða í byrjun
nóvember, var svo heildarkvótinn
ákveðinn 110 þús. tonn.
Vegna tillagnanna um kvótanið-
urskurðinn hafi viðskiptabanki fyr-
irtækisins viljað halda að sér hönd-
um með fyrirgreiðslu við kaupin og
það sé ástæða þess að kaupin á Hof-
felli gengu ekki fram.
-SÁ
málsókn verði álverið byggt enda
óttast hún mengun frá því.
Bændur ekki í tísku
Iðnaðarráðherra leggur áherslu á
að álverið verði búið fullkomnasta
mengunarvamarbúnaði sem völ er
á. „Það er því engin ástæða til að
ætla að fyrirhugað álver ógni á
nokkum hátt atvinnulífi svæðisins.
Hættan er engin. Það verður einnig
að hafa það í huga að þetta er stór-
mál fjórir efnahagsuppbyggingu
þjóðarinnar. Það er afar mikilvægt
að fá inn þessa erlendu fjárfestingu
og geta þannig aukið útflutnings-
tekjur okkar og þegar til lengri tíma
litið bætt lífskjörin og rétt af við-
skiptajöfnuðinn." Varaforstjóri
Colombia kemur til íslands í dag til
viðræðna við íslensk sljómvöld.
Guðbrandur Hannesson, oddviti
Kjósarhrepps, segir greinilegt að
áherslur Framsóknarflokksins hafi
breyst. „Það er undarlegt að ráð-
herra flokksins skuli halda fram
þessari stefnu. Það virðist vera
þannig að enginn flokkur heldur
fram málstað bænda enda telja þeir
að það borgi sig ekki á atkyæðaveiö-
um því allir era á leið í þéttbýlið.
Það virðist lika að bændur hafi ekki
lengur neina sterka forystumenn til
þess að leiða hagsmunabaráttu sina.
Þetta mál snýst í raun um hvemig
eigi að nota landið. Það er mikið tal-
að um svokallaðan lífrænan land-
búnað sem Vcixtarbrodd en slíkt
gengur ekki með mengandi stóriðju
nálægt. Það sama gildir um ferða-
þjónustu sem ég held að gefi miklu
meiri vaxtarmöguleika en stóriðja,
það vill enginn heimsækja okkur
nema að hér sé einhver byggð og
ómengað land.“ -JHÞ
Veðrið hefur svo sannarlega leikið við höfuðborgarbúa og aðra landsmenn að undanförnu og eru þeir fiðruðu eng-
in undantekning. Gott veður breytir því ekki að endurnar á tjörninni þurfa að fá í gogginn eins og ungi maðurinn á
myndinni gerir sér grein fyrir. Á sama tíma og íslendingar búa við hlýindi á kaldasta tíma ársins eru Evrópubúar í
kulda og hreti. DV-mynd Hilmar Þór
Umhverfisverndarsinnar vilja banna frystitogara frá aldamótum:
Vissulega áhyggjuefni
- segir Kristján Ragnarsson hjá LÍÚ
„Þetta er vissulega áhyggjuefni,
eins og Magnús réttilega gat um, þó
maður vilji samt ekki trúa því að
þetta sé jafnalvarlegt og hann lýsir
því. Maður veit þó aldrei hverju
maður á að trúa í þessum öfgmn
sem þama eru hafðar uppi. Ég er
ekki eins óttasleginn og Magnús en
það er fyllsta ástæða til að fylgjast
náið með þessu í framtíðinni,“ sagði
Kristján Ragnarsson, formaður LÍU.
Magnús Guðmundsson kvikmynda-
gerðarmaður segir að Grænfriðung-
ar og fleiri samtök hafi nú hafið
baráttuna gegn fiskveiðum í Banda-
rikjunum af alvöru. Hann er ný-
kominn frá Alaska þar sem hann
segir umhverfisvemdcU'sinna hafa
reynt að hafa áhrif á kvótaúthlutun
fyrir nýbyrjað fiskveiðiár en mark-
mið þeirra er að banna frystitogara
frá aldamótum. Magnús segir út-
gerðarmenn í Alaska og Seattle ótta-
slegna.
„Það hefur ekki verið sótt að okk-
ur í þessu efni því við fylgjum vís-
indalegri ráðgjöf í öllum efnum
hvað varðar sókn í okkar fiski-
stofna. Það væri því hreinn útúr-
snúningur í þeim efnum ef þeir
væra að sækja að okkur," sagði
Kristján.
„Þeir virðast þó vera að því ann-
ars staðar þar sem eins háttar og
hjá okkur og því er vissulega
ástæða til að hafa af þessu áhyggjur.
Hér er ekki stuðst við nein vísindi
heldur bara geðþótta og manni
finnst eins og eingöngu sé verið að
finna sér einhver markmið til að
afla fjár til þessarar starfsemi en
ekki til að hafa einhver gagnleg
áhrif,“ sagði Krisfján.
Magnús segir fjölmörg samtök
leggja herferð samtakanna lið og tel-
ur að íslendingar verði varir við
þessa nýjustu stefnu innan hálfs
árs. Hann segir samtökunum verða
ansi ágengt með þær herferðir sem
þau keyri og bendir í því sambandi
á herferð frá 1982 sem bannaði að
versla með selaafurðir og notkun
rekneta. Hann er sannfærður um að
íslenskir fiskimenn verði ekki látn-
ir í friði í þessari herferð.
Einn frystitogari í Seattle í
Bcmdaríkjunum hefur þegar oröið
fyrir skemmdarverkum sem Magn-
ús tengir við samtökin. Kveikt var í
honum og er tjónið metið á tæpar 20
milljónir króna. Magnús sagði áróö-
ur af þessu tagi virðast alveg virka.
Það hafi komið honum á óvart að
það sé hægt að selja fisk sem tilfinn-
ingavera en það er greinilega hægt
í Ameríku og þá væntanlega víðar í
heiminum.
-ingo
Umhverfisverndarsinnar hafa sett
sér það takmark að banna frystitog-
ara frá aldamótum. Líklegt þykir að
íslenskir fiskimenn verði ekki látnir í
friði í þessari herferð.
DV-mynd S
Minnkandi
stuðningur
við landbúnað
- segir Ari Teitsson
„Ef horft er á þessa þróun sem
felst í fleiri bændum undir fátækt-
armörkum og minni tekjum þeirra
þá er þrennt sem hefur verið að ger-
ast imdanfarin ár. í fyrsta lagi hef-
ur stuðningur hins opinbera við
landbúnað minnkað. Verðlag á bú-
vörum hefur lækkað verulega mið-
að við aðrar vörur. Að lokum má
nefna að það er ákveðin tilhneiging
til þess að setja sífellt nýjar reglu-
gerðir sem íþyngja atvinnurekstri.
Þar hefur landbúnaðurinn orðið illa
úti,“ segir Ari Teitsson, formaður
Bændascimtakanna, um nýlega fá-
tæktarkönnun Félagsvísindastofn-
unar íslands en þar kemur fram að
39% bænda eru undir fátæktar-
mörkum.
í könnuninni kemur fram að
þrátt fyrir að margir séu undir fá-
tæktarmörkum á íslandi fækkaði
þeim á síðasta ári.
Ari segir erfitt að gera sér grein
fyrir því hvort þessi útkoma sé sér-
stakur áfellisdómur yfir landbúnað-
arstefnu stjómvalda undanfarið.
„Stefnumörkun hefur samt oft verið
á reiki í þessum málaflokki hér á
landi en fátækt meðal bænda er því
miður algeng á Vesturlöndum," seg-
ir Ari Teitsson. -JHÞ
Fágæt
blíða
„Frá því fyrir jól hefur mjög stillt
veður verið hér í Reykjavík. Það
hefur verið hæðarsvæði í grennd
við landiö á þessu tímabili. Þessi
staða er frekar óalgeng og henni
virðast fylgja miklir kuldar í Evr-
ópu, eins og sagt hefur verið frá í
fréttum að undanfömu. Það er
miklu algengara að lægðarsvæði
gangi fram hjá landinu á þessum
árstíma með tilheyrandi umhleyp-
ingum," segir Haraldur Eiríksson
veðurfræðingur.
Að hans sögn er liklegt að veður
verði gott næstu daga en svo era
horfur á því að það kólni með norð-
an- og norðaustanátt. -JHÞ
Stuttar fréttir
Lífeyrissparnaður
Lífeyrissjóður VR stofnaði sér-
eignarsjóð fyrir félagsmeim sína
um áramótin og fleiri sjóðir
hyggjast gera það sama. Viðræð-
ur sjóðanna við fjármálaráöu-
neytið um nýja reglugerð sem
heimilar sjóðunum þetta hefjast í
vikunni. RÚV segir frá.
Vikublaðið ekki til sölu
Vikublaðið er ekki til sölu og
engar viðræður hafa átt sér stað
við nokkum mann um kaup á
Vikublaðinu, segja tveir stjómar-
menn útgáfufélags blaðsins í yfir-
lýsingu sem þeir hafa sent DV.
Bágstatt Leikfélag
Fjárhagur Leikfélags Reykja-
víkur er bágur og Þórhildur Þor-
leifsdóttir sér helst til bjargar að
borg og ríki hlaupi undir bagga.
Borgarstjórinn í Reykjavik segir
að umgjörð um starfsemi félags-
ins sé stór og kostnaðarsöm. Sjón-
varpið sagði frá.
Biskupsefnis leitað
Prestar eru farnir að líta í
kring um sig eftir nýjum biskupi.
Sr. Karl Sigurbjömsson þykir sig-
urstranglegur en sr. Auður Eir
Vilhjálmsdóttir síður, að sögn
Stöðvar 2. -SÁ