Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 1997 DV Fréttir Rauöi krossinn á VestQöröum: Neyðaráætl- anir tilbúnar „Ég hef verið að vinna að neyð- arvamaáætlunum fyrir staðina á Vestfjörðum. Rauði krossinn er aðili að þessu almannavarnaskipu- lagi hér og nú er ég að ljúka þess- ari vinnu,“ segir Sigríður Hrönn Eliasdóttir, svæðisstjóri Rauða krossins á Vestfjöröum sem unnið hefrn- að gerð neyðarvamaáætlana á Vestfjörðum að undanfórnu. Slikar áætlanir þurfa að vera til fyrir hvert byggðarlag fyrir sig og segir Sigríður Hrönn að margir hafi komið að þeirri vinnu og mik- ill áhugi sé á málinu. „Það hefur verið mjög góð þátt- taka á námskeiöum sem við höf- um haldið. Það er gert ráð fyrir að það séu að minnsta kosti fjórir þjálfaðir á hverju svæði. Þetta var sérstaklega vel sótt á Flateyri og mikill áhugi þar,“ segir Sigríður Hrönn. -rt Allt frá árinu 1985 hefur Trésmíöafélag Reykjavíkur veitt viðurkenningu fyrir góðan aðbúnað á vinnustöðum félagsmanna og að þessu sinni var nefndin samdóma um að Trésmíðaverkstæði Skeljungs hf að Hólmaslóð hljóti viður- kenningu félagsins fyrir árið 1996. Þaö er Sigurbjörn Pálsson, verkstjóri hjá Skeljungi hf. (til vinstri) sem tekur við viðurkenningarskjalinu úr hendi Guð- mundar Inga Guömundssonar, formanni aöbúnaöarnefndar Trésmíöafélags Reykjavíkur. Fasteignagjöldin í Borgarbyggð: Sparisjóöurinn innheimtir arsjóðs með fimm jöfhum greiðslum og við þetta sparast vinna á bæjar- skrifstofunni sem nemur hálfu stöðugildi. Samningurinn er merkilegur fyrir þær sakir að það næst að draga úr rekstrarkostnaði og samhliða að tryggja skilvísar greiðslur gjaldanna. Á Akranesi er einnig unnið að þvi að koma upp sama fyrirkomulagi og mun þá Landsbankinn taka við inn- heimtu á fasteignagjöldum Akranes- kaupstaðar. Bæjarráð Stykkishólms hefur ákveðið að útsvarsprósentan 1997 verði 11,99% -DVÓ DV.Vesturlandi: Samningar á milli Sparisjóðs Mýrasýslu annars vegar og Borgar- byggðar hins vegar um að Spari- sjóðurinn sjái um innheimtu á fast- eignagjöldum kaupstaðarins næstu tvö árin voru undirritaðir rétt fyrir jölin. Samningurinn kveður á um að sparisjóðurinn yfirtaki til inn- heimtu álögð fasteignagjöld sam- kvæmt samþykktmn Borgarbyggð- ar. Sparisjóðurinn greiðir síðan álögð fasteignagjöld að fullu til bæj- Fjölmörg börn tóku þátt í jólagetraun lögreglunnar um umferðarreglurnar og voru dregin út nöfn 300 vinningshafa sem fengu jólaglaöning í verðlaun. Guðfinnur Þórir Stefánsson var einn hinna heppnu og fær hér bókagjöf úr hendi Ágústs Svanssonar lögreglumanns. DV-mynd Sveinn Aðalheiður forstjóri Náttúru- verndar ríksins Guðmundur Bjamason um- hverfisráðherra hefur skipað Að- alheiði Jóhannsdóttur lögfræð- ing forstjóra Náttúruvemdar rík- ins en stofnunin tók til starfa um áramót. Fyrr á árinu samþykkti Alþingi ný lög um náttúrvernd og tekur Náttúruvemd rikisins við flestum verkefnum Náttúru- vemdarráðs og daglegum rekstri. Tiu sóttu um forstjórastöðuna. Auk Aðalheiðar voru það Alfreð Ámason, Ágúst H. Bjamason, Ámi Bragason, Björn Guðbrand- ur Jónsson, Gunnar Gunnarsson, Jóhann Amfmnsson, Jón Gauti Jónsson, Jón Ragnar Björnsson og Kristín Einarsdóttir. -HK Eskifjörður: Heilsugæslu- læknirinn hættur DV, Eslrifirði: Bjöm Gunnlaugsson, heilsu- gæslulæknir á Eskifirði og Reyð- arfirði, hefur látið af störfum hér eystra og er fluttur í Mosfellsbæ. Bjöm, sem er sérmenntaður sem heimilislæknir, hefur starfað hér sem farsæll læknir á áttunda ár og er sárt saknað af ungum sém öldnum. Bjöm mun hefja störf hjá heilsugæslunni í Lágmúla í Reykjavik 1. mars næstkomandi. Hann er kvæntur Regínu Wed- holm og eiga þau þijú böm. Það er íbúunum hér áhyggju- efni að nú er aðeins einn læknir, Auðbergur Jónsson, starfandi í læknishéraðinu en ráðningatíma hans hér lýkur um næstu mán- aðamót. Hér er því mjög alvar- legt ástand að skapast í heil- brigðismálunum. -Regína Námsgagnastofnun: íslensk fræðslumynd Námsgagnastofhun frumsýnir um þessar mundir íslensku fræðslumyndina, Undir björtum himni, eftir Andrés Indriðason. Myndin, sem er bæði gerð með íslenskum og enskum texta, er framlag íslands í samstarfsverk- efni á vegum ICEM- samtakanna, alþjóðlegra samtaka sem Náms- gagnastofnun er aðili að. Með að- alhlutverk fara Kristín Halldórs- dóttir, Magnús Scheving, Ragn- heiður Melsteð og Ægir Steinars- son. -RR Svæðameðferðog létt rafmagnsnudd ásamt acupunchturmeðferð með lacer Sérhæfing við bólgu í herðum, baki og höf- uðverk. ELSA HALL Langholtsvegi 160, sími 568-7702. ánttMin Judo GYM — FITUBRENNSLA — ÞREKSTIGAR — FULLKOMIN LÍKAMSRÆKT — RÁÐGJÖF UM MATARÆÐI — EINKAÞJÁLFUN — SJÁLFSVÖRN — JIU-JITSU — TAEKWONDO 1— JUDO FRA 6 ARA ALDRI ... og svo á eftir - Ijós og sauna láttu sjá þig semjyrst VERTU VEL VIRKUR j VETUR OG BJÓDDU ÖLLU BIRGINN. HJÁ OKKUR FÆRÐU FÍNT FORM OG FLOTTAR LÍNUR FYRIR FÁEINAR KRÓNUR. -fyrir unga sem aldna HINN HEIMSFRÆGI SONGKVARTETT Einstakt tækifærí! Tryggið ykkur míða timanlega. Aðeíns þessa einu helgi - föstudaginnlO. og laugardagínn 11. janúar 1997. Hver man ekkl eftir þessum lögum: The Great Pretender - Red Saile In Ihe Sunset Smoke Gots In Your Cyeo - The Moglc Touch Rememher When - TwUlght TTme - Youh Ncvcr Kjiow - Harbor Ughto - “ My Prayor 4My You hafa selst hundruðum milljóaa eintaka um allan ^ tjeðill acwSS' Verft kr. 4.900 i mat og á tónleika. Verft kr. 2.200 á tónleika. Verft kr. 1.000 á danslelk. - Mifta- og borftapantanir á Hótel íslandi alla daga Id. 13-17. -Simi 568-7111. Hljomsvelt Valtýssonar lelkur fyrir kvöldin. HEILSURÆKTARBOMBA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.