Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 1997 Fréttir DV Áttræður bóndi lagði stóran hluta aleigunnar í vonlítið útgerðarfélag Ahættan bar ávöxt og hagn- aðurinn varð þrjátíu milljónir - engin sérstök tilfinning, segir Sigurður Friðfinnsson Siguröur Friöfinnsson bóndi á Ketilseyri viö Dýrafjörö lagöi stóran hluta aleigu sinnar í vonlítið útgeröarfélag. Hann geröi þetta í þeim tilgangi aö halda frystitogaranum Siéttanesi ÍS í heimabyggöinni. Nú er skipið á förum til ísafjarö- ar en 5 milljónirnar, sem lagðar voru í útgerðina, eru orönar aö 35 milljónum. Hér er Sigurður bóndi ásamt eiginkonu sinni, Björnfríöi Ólafíu Magnúsdóttur, og í baksýn má sjá mynd af hluta barnahópsins en alls eignuöust hjónin 17 börn. DV-mynd Hlynur „Það er engin sérstök tilfinning að hafa eignast peninga. Hvort ég fjárfesti mismuninn í einhverju sem skýtur stoðum undir atvinnulif í byggöarlaginu er algjörlega óráðið og fer eftir ytri aðstæðum og hvort það verða sköpuð einhver skilyrði til þess að halda lífi áfram hér í Dýrafirði eða hvort þessi kolkrabbi á að fá að leggja allt í eyði,“ segir Sigurður Friðfinnsson, bóndi á Ket- ilseyri í Dýrafirði. Ekki dæmigerður fjárfestir Sigurður Friðfinnsson, bóndi i Dýrafirði og 17 bama faðir, er ekki hinn dæmigerði fjárfestir og fjár- magnseigandi sem spilar á verð- bréfamarkaðinn í því skyni að auðg- ast, enda þótt fjárfesting sem hann gerði fyrir fáum árum hafi borið óvenjulega ríkan ávöxt og fimm milljónir sjöfaldast á stuttum tíma. Sigurður fjárfesti ekki af því að hann sæktist eftir mikilli arðsemi, heldur var eina markmið hans það að treysta lífshjörg og atvinnu í sínu sveitarfélagi. Það var því ekki hagn- aðarvon sem rak efnalítinn bónda og 17 bama fóður til að taka stóran hluta af aleigu sinni, fimm milljón- ir króna, út úr bankanum og leggja í nýstofnað hlutafélag sem hafði þann tilgang að kaupa þann togar- ann sem eftir var á Þingeyri svo hann færi ekki úr plássinu og kvót- inn með honum. Hinn togarinn var þegar farinn. Vildu treysta undirstöður at- vinnunnar Forsaga hlutafjárkaupa Sigurðar og fjöldamargra annarra sveitunga hans og áhafnarmeðlima togarans Sléttaness á Þingeyri er sú að út- gerðar- og fiskvinnslufyrirtæki kaupfélagsins á Þingeyri, Fáfnir, var komið að fótum fram og búið að selja frá sér annan togarann sinn, Framnesið, til ísafjarðar og sala hins, frystitogarans Sléttaness, stóð fyrir dyrum. Þá var stofnað hlutafélagið Slétta- nes hf. í því skyni að kaupa togar- ann og gera hann áfram út frá Þing- eyri og íbúar i Dýrafirði lögðu fram hlutafé til félagsins. Þegar Sigurður keypti á sínum tíma hlutabréf í Sléttanesi hf. fyrir fimm milljónir króna þótti mörgum það hið mesta glapræði af öldruðum bónda að leggja stóran hluta aleigunnar í vonlítið fyrirtæki. Fimm milljónir verða 35 milljónir Glapræðið hefur þó sýnt sig að þvi að hafa ekki verið meira en svo að nú eftir að Sléttanesið hefur sam- einast Básafelli, Rit, Togaraútgerð ísfirðinga og Norðurtanga undir merkjum nýja Básafells, snarjókst virði hlutabréfanna. Hið nýja fyrir- tæki varð að almenningshlutafélagi í desember sl. og fór á almennan hlutafjármarkað og þá kom mark- aðsvirði hlutabréfa i félaginu í ljós; fimm milljónimar hans Sigurðar vora orðnar virði 35 milljóna. En togarinn var hins vegar farinn frá Þingeyri til ísafjarðar. „Togarinn Sléttanesið var á þess- um tíma nýlegt skip og búið að end- urbæta það mikið, og svo var þetta síðasta lífsvon okkar Dýrfírðinga að halda kvóta skipsins í byggðarlag- inu og það voru fleiri en ég sem tóku þátt í þessu og margir tóku lán til að geta keypt sér hlutabréf og ég geri ráð fyrir því að allir hafi keypt á sama grundvelli og ég, að reyna að halda þessari undirstöðu undir lif- inu í byggðarlaginu. Ytri aðstæður hins vegar yfirbuguðu okkur enda eru þessi fiármál öll að fara í hend- umar á örfáum mönnum," segir Sigurður og segir ekki von á góðu þegar ríkisstjómir eru ekki öðru- vísi samansettar en af fólki sem hef- ur lítinn vilja til aö bæta hag venju- legs vinnandi fólks. Hygla sjálfum sér og þeim ríku Hann segir að þingmönnunum virðist yfirleitt láta það betur að hygla þeim betur stæðu og sjálfum sér. „Þingmenn tóku sig til og hækkuðu sjálfir kaupið sitt í fyrra- vetur um 60 þúsund krónur á mán- uði og hafa auk þess stóra mánaðar- lega skattfría upphæð. Svo ráðast þessir menn á lítilmagnann, þá sem ekkert eiga, eins og ellilífeyrisþega, öryrkja og sjúklinga og lækka þeirra hlut og eru einmitt núna ný- búnir að eigin sögn að taka af þeim rúman milljarð til að bæta í hjá þeim ríku,“ segir Sigurður. Sigurður telur núverandi fisk- veiðistjórnunarkerfi stórgallað. „Það þurfti að koma á sfiómun á fiskveiðunum og vernda smáfisk- inn, en þau markmið hafa algerlega snúist við. Með fiskveiðistefhunni eru skip að henda allt upp í 200 tonnum af smáfiski fyrir borð og koma með 60 tonn í land, eins og dæmi er um. Er þetta ekki fiskurinn sem ríkisstjórnin og kvótakerfið ætlaði að ala upp. Nú er verið að drepa þann fisk sem átti að vemda og henda honum og þjóðin er búin að tapa milljörðum á þessu í stað þess að koma með hann að landi og hafa kvótann á fiski sem náð hefur ákveðinni stærð. Nýtt veiöistjórnarkerfi eina lífsvonin Á Þingeyri er fullkomið frystihús sem fengið hefur viðurkenningu fyrir að vera eitt hið fúllkomnasta á landinu. Nú er það stopp og fisk- veiðikvóti hér úr Dýrafirði er að- eins nokkur tonn. Þetta er fyrir að- gerðir stjórnvalda og mér sýnist að þau séu vísvitandi að leggja í eyði allar minni byggðir í kringum land- ið. Þorskurinn hefur vaðið hér inn um allan fiörð og þeir verða bara að horfa á hann sjómennimir og mega ekkert veiða. Eina aðgerðin sem gæti bjargað lífinu i þessum fiörð- um er bara aukinn kvóti eða frjáls- ar veiðar skipa upp að ákveðnu marki. Það sýnist mér vera eina vonin upp á framtíðina," segir Sig- urður Friðfinnsson, bóndi á Ketils- eyri í Dýrafirði, að lokum. -SÁ Dagfari Hinir fátæku verða ríkir Viðskiptalífið og hinn frjálsi dá- samlegi markaður, sem ratt hefur sér til rúms í nútímaþjóðfélaginu, er sifellt að bæta hag almennings. Það sannaðist ekki síst nú um ára- mótin. Harðnandi samkeppni á flugeldamarkaðnum hefur gert ís- lendingum kleift að kaupa sér ódýrari flugelda en nokkru sinni fyrr, sem leiðir til þess að fólk fær meira fyrir peningana sína heldur en nokkra sinni fyrr og getur nú skotið upp fleiri flugeldum heldur en nokkru sinni fyrr. Annað gott dæmi eru verðbréfa- markaðamir. Veröbréfafyrirtækin keppast við að bjóða hugsanlegum viðskiptavinum sínum betri kjör og öruggari fiárfestingu og þjóð sem er í hreinustu vandræðum með peningana sína getur ávaxtaö þá betur en nokkra sinni fyrr og keypt fleiri hlutabréf en nokkru sinni fyrr. Allt er þetta þakkarvert, enda hefur þessi þjóð búið við fá- tækt frá því að hún man eftir sér og vill fara sparlega meö fé sitt, þá loksins hún hefur efni á að spara, til að geta keypt sér flugelda og verðbréf. Og það er fleira sem stendur fólki til boða. Á hveijum degi má lesa gimileg kostaboð frá hinum ýmsu verslunum sem bjóða við- skipti með afsláttarkjörum eða á tilboðsverði og fólk verður að kepp- ast við til að fylgjast með öllum þessum tilboðum til að missa ekki af neinu þeirra. Má heita að það sé fullt starf enda má allt eins búast við því að það sé arðvænlegra að leggja niður tiltölulega illa launuð störf til að græða á því að fylgjast með því að spara sér peninga með því að fylgjast með tilboðunum sem gefast á markaðnum. Nýjasta kostaboðið sem fólk hef- ur ekki getað neitað sér um er heO sólarvika á vegum virðulegs félags sem gengur undir nafninu GCI en þar er um að ræða svokaUaðan or- lofsrétt sem fólk getur keypt sér fyrir tUtölulega lítinn pening. Það sem boðið er er hvorki meira né minna en heil íbúðareign á sólar- strönd og þarf viðkomandi eigandi ekki að borga nema fimm hundruð þúsund krónur fyrir eignarhluta sinn. Er nema von að íslendingar faUi fyrir þessu einstaka tUboði, enda fylgir með að íbúðareigand- inn geti líka unnið ferðavinning sem gerir honum fært að ferðast ókeypis tU hins fiarlæga lands, þar sem íbúðin hans stendur og bíður eftir honum. Fimm hundruð þúsund krónur eru skítur á priki fyrir slíkan lúx- us. Nú fylgir að vísu sá bögguU skammrifi að GCI selur öðram ís- lendingum eignaraðild að íbúð- inni, sem hér um ræðir, og þeir geta orðið aUt upp í 50 samtals, eig- endumir, en það er lógískt vegna þess að enginn getur dvalið þar nema eina viku í einu og þess vegna þarf að fyUa upp hinar fimmtíu og eina viku ársins tU að nýta plássið. Okkar maður fær sem sagt ekki að dvelja nema eina viku í senn og það er öryggi i því að láta aðra eigendur gæta íbúðarinnar á miUi þess sem okkar maður mætir. Þannig eignast fimmtíu íslend- ingar hlut í 25 miUj. kr. ibúð fyrir aðeins fimm hundruð þúsund krónur hver, sem eru reyfarakaup, og enda þótt eigandinn hreppi ekki ferðavinning og þurfi að kosta ferð sína sjálfur til sólarlandsins er þetta varanlegur orlofsréttur sem er mikUs virði fyrir fólk sem á nú orðið svo mikla peninga að það verður umfram aUt að spara þá tU að geta ávaxtað þá. Og ávaxtað þá tU að spara þá. Þetta gerir þá fátæka rika og þá ríku fátæka. Alveg eins og við vUj- um hafa það. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.