Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Page 6
6
MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 1997
Fréttir
Póstur og sími hf. gengur í Vinnuveitendasamband íslands:
Hropandi osamræmi
við fyrri yfirlýsingar
- vita ekki hvað þeir eru að gera - segir formaður Félags íslenskra símamanna
„Þetta er í hrópandi ósamræmi
við fyrri yfirlýsingar frá forráða-
mönnum Pósts og síma en þeir hafa
marglýst því yfir að fyrirtækið sé
ekki á leið inn í VSÍ. Ég veit ekki af
hverju Póstur og sími er að ganga í
VSÍ núna en auðvitað er það þeirra
mál hvar þeir vilja vera. Fyrirtækið
verður samt að gera sér grein fyrir
því að við hjá Félagi íslenskra síma-
manna erum ekki á neinum upp-
boðsmarkaði,“ segir Einar Gústafs-
son, formaður Félags íslenskra
símamanna, um þá ákvörðun Pósts
og síma að ganga í Vinnuveitenda-
sambands íslands. Samkvæmt
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
tekur aðildin að VSÍ til þess hluta
rekstrarins sem snýr ekki að starfs-
mönnum innan Félags íslenskra
símamanna og Póstmannasam-
bands íslands. Þeir sem eru ekki
þar inni eru um fimmtungur starfs-
manna fyrirtækisins.
Aöeins hálfgengiö í VSÍ
Eftir því sem mér sýnist er fyrir-
tækið hálfgengið í VSÍ og í raun nokkurri vanþekkingu á því hvem-
finnst mér þessi ákvörðun lýsa ig hlútimir líta út, þeir virðast ekki
Óvissa ríkir um það hverjir munu semja við starfsfólk Pósts og síma hf. á
næstu árum. Hér má sjá starfsmenn póststöðvar við vinnu sínu.
vita hvað þeir em að gera. Menn
verða að átta sig á því að það er
ekki verið að semja um fólk heldur
störfin sem fólk gengur í,“ segir
Einar.
Samkvæmt fréttatilkynningu
Pósts og síma er markmiöið með að-
ildinni að VSl að einfalda samnings-
gerð í komandi kjarasamningum og
„stuðla að því að Póstur og sími hf.
búi við það samningsumhverfi sem
er á almennum vinnumarkaði.“
Einar segir að honum sé ekki
ljóst hvað Póstur og simi vilji ná
fram með þessum breytingum.
„Hugsanlega telja þeir sig geta náð
betri samningum með þessari breyt-
ingu, hugsanlega vilja þeir losna við
samningaþras með því að láta VSÍ
sjá um þetta.“
Enn hefur fyrirtækið ekki tekið
afstöðu til forgangsréttar stéttarfé-
laga í komandi kjarasamningum.
„Við höfum verið í viðræðmn við
fyrirtækið um þetta atriði i margar
vikur en það er ekki enn ljóst
hvemig það lítur út.“ -JHÞ
Leiö til betra lífs: ÓlafsQöröur:
Popparar fitumældir og
fréttamenn í bekkpressu
Það veitir ekki af að byrja að
hreyfa sig eftir hóglífi hátíðanna og
því hafa DV, World Class, Bylgjan,
Nike á íslandi, Útilíf og Vífilfell haf-
ið samstarf um að koma landanum í
form á ný. Átakið hefst í dag og
mun það standa yfir í sex vikur.
Hópar, fyrirtæki og einstaklingar
geta skráð sig í léttan leik hjá Gulla
Helga dagskrárgerðarmanni á
Bylgjunni og verða glæsileg verð-
laun veitt fyrir besta árangurinn.
Fræga fólkið sleppur ekki við að
taka sig á, popparar verða fitumæld-
ir og settir í bekkpressu. Frétta-
menn Stöðvar 2 og Bylgjunnar
verða settir í megrun og munu
þurfa að stunda lyftingar. Starfsfólk
World Class mun einnig koma fram
og krydda dagskrána, með góðum
ráðum. -JHÞ
Gunnlaugur Helgason, dagskrár-
gerðarmaður hjá Bylgjunni, hjálpar
hlustendum til að komast í gott form
í næstu viku enda verður átakið
Betra líf í fullum gangi næstu sex
vikur.
Líkamsárás í
Einn maður var handtekinn fyr-
ir minni háttar líkamsárás í Lækj-
argötu aðfaranótt sunnudags.
Sá sem fyrir árásinni varð
meiddist lítils háttar. Árásin kom
miðborginni
í kjölfar deilna milli mannanna.
Árásarmaðurinn gisti fanga-
geymslur lögreglunnar um nótt-
ina en var látinn laus í gær.
-RR
‘MíJíJ
Virmingar sem dregnir voru út í HAPPI í HENDI síðastliðið
föstudagskvöld komu i hlut eftirtalinna aðila.
Birt med fyrirvara um prentvillur.
Agúst Einarsson,
Fagrabæ 6,
Garðabæ
Benedikt
Sigurbergsson,
Austurbraut 19, Höfn
Gísli Kr. Jónsson,
Hlíöarási 1a,
Mosfellsbæ
Helða Tryggvadóttir,
Laxakvísl 4,
Reykjavík
Leifur Jón Elíasson,
Nesbala 15,
Seltjarnarnesi
Olga Hallgrlmsdóttir,
Vesturgötu 52,
Reykjavík
Sesselía Antonsdótir,
Lokastíg 1, Dalvík
Steinunn
Inglmarsdóttir,
Goðatúni 1,
Garðabæ
Skíðakrakkar
til Noregs
DV Ólafsfirði:
Ellefu skíðakrakkar frá Ólafsffrði
fóru síðasta föstudag í tíu daga æf-
inga- og keppnisferð til Lille-
hammer í Noregi. Krakkarnir æfa
bæði göngu og svig en með þefrn í
förinni er sænskt þjálfarapar, Matt-
hias Berglund og Laila Nilson, sem
hafa unnið í Ólafsfirði frá því í
haust. Krakkamir unnu algerlega
sjálfir fyrir þessari ferð. Þeir héldu
diskó og kaffisölu og þeir sáu um
rusl bæjarbúa i samstarfi við Gáma-
þjónustuna. Ólafur Björnsson,
skíðakappi frá Ólafsfirði, sá um
undirbúning ferðarinnar en hann
býr í Noregi. -HJ
A myndinni eru eftirtaldir krakkar: Fremri röð: Páll J. Kristinsson, Guöjón B.
Hálfdánarson, Sigurfinnur Finnsson, Gunnlaugur Haraldsson. Aftari röð:
Laila Nilson, Hanna Dögg Maronsdóttir, Jóna Björg Árnadóttir, Tinna Rún-
arsdóttir, Matthías Berglund, Bragi Óskarsson, Steinþór Þorsteinsson og
Símon Darri Steinarsson. Á myndina vantar einn skíðakappann, Árna Gunn-
ar Gunnarsson. DV-mynd HJ
Rólegt við Grímsvötn
„Það hefur allt verið rólegt að
undanfornu á svæðinu síðan skjálft-
arnir urðu aðfaranótt laugardags,"
segir Ragnar Stefánsson jarð-
skjáiftafræðingur hjá Veðurstofu ís-
lands en nokkrir smáskjálftar urðu
við Grímsvötn um síðustu helgi. Að
hans sögn bendir ekkert til þess að
einhverjar stórar hræringar verði á
svæðinu. „Við fylgjumst auðvitað
náið með ástandinu á svæðinu en
það er ekkert óvenjulegt við þessa
skjálfta," sagði Ragnar.
-JHÞ
Sandkorn dv
Hæ, Gaui
litli hér!
Fjölmiðlastjarna ársins 1996 hér
á landi er að öllum líkindum þétt-
vaxinn karlmaður sem gegnir nafn-
inu „Gaui litli", en hann hóf opin-
bera megrun i
sjónvarpi allra
landsmanna á
haustdögum.
Gaui var hátt i
200 kg þegar
megrunin hófst
og setti sér
ákveðið tak-
mark, að léttast
um 50-60 kg -
tyrir vorið.
Semsagt, hann
var eingöngu
þekktur tyrir það í byrjun að vera
„feitur". Gaui hetur náö góðum ár-
angri í megruninni, er hress og kát-
ur og kemur ótrúlega víða við.
Reyndar kemur hann orðið svo víða
við að það hvarflar að manni hvort
þeytingurinn á honum einn og sér
ætti ekki að nægja til að kílóin
fjúki. Gaui er í sjónvarps-, útvarps-
og blaðaauglýsingum, hefúr tekið að
sér þáttastjóm í sjónvarpi og áifam
mætti telja. Kynningin: „Hæ, Gaui
litli hér“ hljómar orðið á öldum
ljósvakans frá morgni til kvölds.
í þorramatinn?
Nú fyrir áramótin var Gaui dug-
legm- að auglýsa flugelda fyrir
Landsbjörg og fórst það vel úr
hendi. Menn velta því hins vegar
fyrir sér nú
þegar þorrinn
er skammt
undan hvort
„Gaui litli“
taki ekki að sér
að auglýsa
þorramatinn
fyrir einhver
veitingahús-
anna. Sand-
komsritari sér
hann fyrir sér
hálfan ofan í
tunnum af súrmat og svo ris hann
upp með munninn fullan, andlitið
kámugt, og segir: „Hæ, Gaui litli
hér. Súrmaturinn er svakalega góð-
ur, viltu ekki reyna sjálfur. Sjá-
umst.“ - Þetta myndi án efa vera
sterk auglýsing og við hinar fltu-
bollumar teldum okkur óhætt að
rífa í okkur þorramatinn fyrst
„Gaui litli" í megruninni mætti
það.
Kalt í sveitinni
I jólablaði Vikurblaðsins á Húsa-
vik vom rifjuð upp nokkur
skemmtileg ummæli sem höfð voru
eftir nafhgreindum einstaklingum á
nýliðnu ári. Og
eins og vænta
mátti var af
ýmsu að taka
þegar Þingey-
ingar áttu í
hlut. Ein
skemmtilegustu
ummælin vom
höfð eftir Þor-
grími Stama
Björgvinssyni
eöa „Starra i
Garði“ í Mývatnssveit og féllu þau
sennilega í kuldakastinu i haust.
„Jú, það var dálitið kalt. Ég átti
flösku með 45% vodka úti í Löd-
unni minni og þegar innihaldið var
botnffosið, þá var augljóst að það
var orðið nokkuð svalt í sveitinni,“
sagði Starri, en vonandi hefur hlýn-
að um síðir.
Ekkert rifist
Aldrei þessu vant virðist sem
landsmenn séu sammála um útkom-
una í áramótaskaupi Sjónvarpsins,
og er þá fokið í flest skjól ef ekki er
hægt að stytta
sér stundir í
skammdeginu
við að rifast um
hvort skaupið
hafi verið gott
eða slæmt,
fyndið eða ræt-
ið. Þetta hefur
verið sígilt
þrasmál fram
eftir janúar-
mánuði en nú
ber svo við að
óánægjuraddir varðandi skaupið
heyrast varla og hin hamingjusama
þjóð brosir hagvaxtarbrosi út í
bæði. Atriði eins og t.d. það er
„gervimennið" gekk á fund forsæt-
isráðherra og spurði hvort hann
„ætlaði fram“ var líka óborganlegt.
Ætli sandkomsritari verði bara
ekki að vera eins og hinir, að láta
vera að setja nokkuð út á skaupið
að þessu sinni.
Umsjón: Gylfi Kristjánsson