Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Qupperneq 10
10 menning MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 1997 DV Svartagull Jón Þ. Þór sagnfræðingur hefur skrifað bókina Svarta- gull, sögu Olíufélagsins hf. í fimmtíu ár, frá , 1946 til 1996. Raunar byrjar, Jón fyrr, ræð- ir olíunotk-, un á fyrri, öldum og, upphaf ol- íualdar, notkun steinolíu á ís- landi frá því fyrsta og fyrstu olíuíélögin á ís- landi, Det danske Petroleums Aktieselskab og Hið íslenska steinolíuhlutaf]elag sem starf- aði frá 1913. í inngangi segir höfundur að saga olíuviðskipta á íslandi hafi verið lítt kannað viðfangs- efni en áhugavert, „og þar við bættist, að ég hafði á unglings- árum starfað lítils háttar á veg- um Olíufélagsins og þóttist því hafa nokkrar taugar til þess.“ Hann styðst einkum við gögn úr skjalasafni félagsins en hef- ur einnig rætt við fjölda starfs- manna þess. Oliufélagið gefur bókina út. Hún er prýdd fjölda ljósmynda í smekklegum brúnum tónum. Hátíð Nemendaleikhúsið frumsýn- ir í Lindarbæ á miðvikudags- kvöldið leikritið Hátíð eftir Ungverjann Georg Tabori og er það í fyrsta skipti sem verk eft- ir hann er sýnt á íslensku sviði. Leikritið gerist meðal hinna dauðu í kirkjugarði við Rínar- fljót. Garðurinn er í órækt og líkin á mismunandi stigi rotn- unar en skarta þó sínum feg- urstu líkklæðum. Og þau rifja upp sögu sína og gamla brand- ara til skemmtunar hinum þögla meirihluta. Bjami Jónsson leikhúsfræö- ingur þýddi leikritið en inni í því er leikið verkið Gyðinga- konan eftir Brecht sem Þor- steinn Þorsteinsson þýddi. Elín Edda Árnadóttir hannar leik- mynd og búninga en Kolbrún Halldórsdóttir er leikstjóri. Fagurfræði sýndar- veruleikans Þegar börnin leika sér og falla í valinn í leikn- um standa þau jafnóðum upp aftur og segja: „allt i plati, allt í þykjustunni!" og meina þá að leikur- inn sé eitt og „veruleikinn" eða „alvaran" sé ann- að. Þar með setja þau afgerandi mörk á milli tveggja heima, sem eitt sinn virtust óhagganleg. En í okkar samtíma hefur leikurinn þrengt sér æ meira inn á svið raunveruleikans, þannig að við getum ekki lengur greint skýrt á milli þykjustu og alvöru. Sýndarveruleikinn er orðinn ráðandi í mannlegum samskiptum og farinn að stýra jafnt lögmálum efnahagslifs og stjórnmála, svo ekki sé minnst á fjölmiölun og alla framsetn- ingu veruleikans, hvort sem er í máli eða mynd. Með til- komu alnetsins hefur heimur sýndarveruleikans margfald- ast svo að öllu umfangi að segja má að ný vídd hafi bæst við reynsluheim okkar um leið og aðrar víddir hans hafa tæmst af innihaldi. Það á ekki síst við um hina sögulegu vídd, sem hefur horfið inn í augna- blik hinnar beinu útsendingar. Franski heimspekigúrúinn Jean Baudrillard hefur haldið því fram að „sýndarveruleik- inn“ hafi nú þegar tekið við af „raunveruleikanum": það eitt sé raunverulegt sem sýnist og hægt er að sýna í endalausri eft- irgerð eða stælingu. Það sem knýr hið síðkapítalíska neyslu- samfélag áfram er að mati Baudrillards endalaus neysla á ímyndum sem hafa hlotið ígildi raun- verulegra verðmæta. Nútímamaðurinn hefur gengið inn í eins konar síbernsku, þar sem þykjustan er allsráðandi. í þessum heimi sí- bemskunnar verður hin fagurfræðilega upplifun ekki lengur til við innhverfa íhugun sem styrkir sjálfsvitundina heldur birtist hún í algleymi neyslunnar þar sem ein ímyndin tekur við af annarri í óendanlegri löngun og þörf eftir nýrri og æsilegri réynslu. Heimurinn verður því flóknari og óskiljanlegri sem upplýsingamagnið vex og hin stafrænu skila- boð verða æsilegri og hraðvirkari. Sagan gerist í beinni útsendingu og er gleymd um leið og klikk- að er yfir í annan sýndarveruleika með tölvumús eða fjarstýringu. Þegar tækni og framleiðsluhætt- ir síðkapítalismans hafa ekki bara afnumið mörkin á milli þjóðríkja og hugmyndakerfa held- ur líka á milli sýndar og veruleika, þá verður æ erfiðara að viðhalda þeim mörkum sem listin hef- ur sett sér sem afmarkaður og verndaður reynsluheimur, þar sem hægt er að skoða heim- Erótík- in veröur aö þykjustuleik þar sem allt er leyfilegt. Myndlist Ólafur Gíslason inn úr hæfilegri fjarlægð út frá sögulegri viðmið- un og rótfastri sjálfsvitund. Heimurinn eins og hann birtist okkur á sjónvarps- og tölvuskjánum er orðinn að endalausu skáldverki í mótun, sem um leið gefur okkur þá tálsýn að við höfum fulla möguleika á að gerast virkir þátttakendur í at- burðarásinni. Við getum tengt okkur inn á netið, búið okkur til heimasíðu og sent undirrituð eða nafnlaus skOaboð út á vefinn og gleymt okkur í óendanlegum sefjunarmætti þessa sýndarveru- leika, þar sem innihaldið verður miðillinn sjálf- ur. Það að klikka á vísbendinguna og horfa á hvemig tæknin tengir okkur við atburðarásina sem er að gerast í núinu verður að megin- inntaki leiksins. Ef eitthvað eitt einkennir hina sjónrænu upplifun sýndarveruleikans, þá er það hverfulleikinn og um leið sefjun- armátturinn og óþreyjan eftir meira algleymi og sífellt æðislegri upplifun. Með gagnvirkri þátttöku neytandans í þessum leik öðlast hann þá tiffinningu að hann hafi vissa stjórn á þessum veruleika, en verður um leið þræll hans, því hugsun okkar og tiffinning mót- ast jafnóðum af því sem við köll- um fram á skjáinn. Það er engin tilviljun að alnet- ið er nú orðið einn helsti vett- vangur hins alþjóðlega klámiðn- aðar þar sem erótíkin verður að þykjustuleik þar sem allt er leyfi- legt, rétt eins og í leik barnanna. Enginn ætti að hafa skaða af þessum leik, því líkaminn er ekki þátttakandi í honum og allt er gert í þykjustunni - eða hvað? Marg- miðlunarheimurinn með hinu endalausa mynd- flæði sínu skapar stöðugt þörf fyrir fleiri myndir og meira algleymi og hættan er sú að í stað þess að styrkja sjálfsvitund okkar með gagnvirkni og beinni þátttöku í leiknum geri hún sjálfsvitund okkar að viðfangi leiksins og móti viðbrögð okk- ar. Margmiðlunarheimurinn verður þá að alls- ráðandi stórabróður sem ekki á sér hliðstæðu í gjörvallri mannkynssögunni. Ef slíkar spár eru réttar verður spurning hvort við sjálf, skólinn eða fjölmiðlarnir hafi búið sig undir þessa fram- tíðarsýn. „...líf, sem enginn getur drepið." Georg Tabori er orðinn 82 ára og viðurnefnið „Gyðingur- inn gangandi" gæti átt við hann því hann hefur búið í 12 þjóð- löndum frá tvítugsaldri. Hann 1 fæddist í Búdapest en fór til Berlínar 1932 og varð barþjónn. Hann upplifði í götubardaga í návígi og sá Hitler taka við hyllingu lýðs- ins. „Mér fannst hann vera ein- mana en ég vorkenndi honum ekki neitt,“ segir Tabori í viðtali ? 1994. Hann sneri aftur til Búda- Ípest og þaðan til London en eft- ir að heimsstyrjöldin braust út fór hann aftur heim og starfaði sem fréttaritari þar og í Búlgar- íu. Nær öll fjölskylda hans dó í j stríðinu, faðir hans í Auschwitz s en móðir hans komst af fyrir ■ tilviljun og heppni. Eftir stríð hefur hans aðal- starf verið við skriftir og leik- hús í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar. Nú býr hann í Vínar- borg og segist vera „útlending- ur í þessum heimi." Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir Félagarnir A1 og Angel velkjast um vegalausir á ótilgreindum vígvelli. Sá siðamefndi hefur sáralítið orðið fyrir áreiti menningar og lista á sinni lífs- göngu. Tíminn hefur farið í að halda sér á floti í botnlögum samfélagsins og skrápurinn er orðinn harla þykk- ur fyrir vikið. A1 er á allan hátt andstæða Angels. Þegar leiðir þeirra liggja saman með sögulegum hætti hefst undarlegt sam- band þar sem „menntamaðurinn" A1 matar hinn „fáfróða" Angel á enda- lausum staðreyndum úr menningar- og listasögu. Þó að timinn sé þeim augljóslega skammtaður telur Á1 að án upplýsingar fái maðurinn ekki þrffist og það sé þó altént léttara aö mæta dauðanum kunni maður skil á helstu fyrirbærum menningarsög- unnar. Angel er svo sem allur af vilja gerður og þakklátur fyrir fræðsluna en einfaldar spurningar hans koma A1 úr jafnvægi og hrista upp í hroka- fullum hugmyndum um eigin yfirburði. Steve Tesich, höfundur leikritsins Undir ber- um himni, sem Leikfélag Akureyrar frumsýndi um jólin, notar þennan ramma til þess að velta upp ýmsum siðferðilegum og trúfræðilegum spumingum. Hann spyr um gildi menningar og lista og teflir saman ólíkum lífsviðhorfum. Ádeil- an á grimmilegan og tilgangslausan stríðsrekstur er undirrót og hreyfiafl verksins, enda á höfund- ur ættir að rekja til Bosníu. Spurningar um trú og trúfræðileg viðhorf verða þó æ áleitnari eftir því sem líður á verkið og taka í lokin alveg yfir. Með þessari athyglisverðu sýningu brýst Leik- félag Akureyrar út úr vinalegu Samkomuhúsinu og setur sig niður í nýju húsnæði, Renniverk- stæðinu, þar sem nöturlegt umhverfið smellpass- ar fyrir verkið. útfærslunni, jafht í leikmynd sem búningum, svo að útkoman verður allt að því ógnvekjandi stundum. Nostrið varð þó fullmikið í sumum senuskiptunum þar sem bjástrið með fleka og sandpoka klippti óþarflega á framvinduna. Eyvindur leggur kröfuharða og skýra línu í leikstjórninni þannig að sýningin verður einstaklega heil- steypt og sterk. Ámar og Þráinn túlka hvor á sinn hátt seiglu mannsandans og „sölu- hæfni“ við hinar hræðilegustu að- stæður og báðir brydda leik sinn kal- hæðnislegri kímni. Arnar vinnur hér efirminnilega persónu, mann sem hefur byggt sín lífsgildi á kolrangri undirstöðu og gengur afar illa að sjá ljósið. Þráinn heldur líka þétt utan um mannlýsinguna í hlutverki hins grófa Angels sem skákar A1 hvað eftir ann- að. Leikur Þráins er fimasterkur og vel unninn, jafnt líkamsbeiting sem svipbrigði. Af öðrum leikurum má nefna Aðalstein Berg- dal í hlutverki munks og Stefán Öm Arnarson í hlutverki Jesú sem lætur sellótónana tala. Leikstjórinn kom vel fyrir í hlutverki herfor- ingja á sýningunni sem ég sá og bæði hann sem og aðrir er að sýningunni komu hafa greinilega lagt metnað sinn í að vanda hana sem best. Leikfélag Akureyrar sýnir á Renniverkstæöinu: Undir berum himni eftir Steve Tesich Þýðandi: Hallgrímur Helgi Helgason Val á Tónlist: Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason Leikmynd og búningar: Magnús Pálsson Leikstjórn: Eyvindur Erlendsson Arnar Jónsson sem Al og Þráinn Karlsson sem Angel í Undir berum himni. Leiklist AuðurEydal Helstu tíðindi við uppfærsluna? Jú, þar skal fyrst telja magnaða leikmynd Magnúsar Pálssonar og einkar vandaða leik- stjóm Eyvindar Erlendssonar. Þeir byggja upp þungavigtarsýningu þar sem hvergi er slegið af og tveir mikilfenglegir leikarar, Arnar Jónsson og Þráinn Karlsson, leiða saman hesta sína í að- alhlutverkunum. Magnús leggur mikla vinnu í hvert smáatriði í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.