Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1997, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1997, Blaðsíða 6
6 ýtlönd LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 UV Istuttar fréttir Vill lögreglurannsókn Benjamin Netanyahu, forsætis- ráöherra ísraels, vill lögreglu- | rannsókn vegna ásakana um 1 spillingu við útnefningu ríkissak- 1 sóknara. Skrifleg trygging Yasser Arafat, forseti Palest- ínu, kvaöst í gær hafa tryggingu frá Bandaríkjun- um og Evrópu um að hann geti samið um brotthvarf ísraela frá her- teknu svæðunum. Netanyahu, forsæt- isráðherra israels, hefur lýst því yfir að hann hafl skriflega trygg- ingu frá Bandaríkjunum um að ísraelar einir taki ákvörðun um frekari brottflutning. Tígrisdýr drepur börn íbúar vesturhluta Nepals eru skelfmgu lostnir eftir að tígrisdýr hefúr orðið 35 börnum að bana. Innflytjendum bjargaö Um 100 ólöglegum innflytjend- um var bjargað af sökkvandi skipi undan strönd S-Ítalíu í gær. Eldur í kjarnaofni Kjarnaofni í Ayrshire í Skotlandi var lokað í gær eftir að eldur kom upp í túrbínusal. Full- yrt var að engin hætta hefði ver- j ið á ferðum. 400 drepnir 1 Sjónarvottar segja hermenn í Búrúndi hafa drepið 400 óbreytta borgara fyrr í þessum mánuði. Herinn vísar fregninni á bug. Flagari í pólítík Breski svallarinn og flagarinn Alan Clark, sem tældi dómarafrú og tvær dætur hennar, ætlar aftur í pólitíkina eftir nokkurra ára hlé. Barnaníðingar teknir Lögreglan i Þýskalandi hefur handtekið par sem bauð barna- niðingum böm til þjónustu með þeim afleiðingum að þau dóu í sumum tilfellum. Faðir Graf dæmdur Peter Graf, faðir tennisstjörn- unnar Steffi Graf, var í gær dæmdur í tæplega 4 ára fangelsi fyrir að hafa skotiö und- an skatti tekjum dóttur sinnar. Pet- er Graf hefur setiö 15 mánuði í gæslu- varðhaldi svo óvíst er hversu lengi hann þarf að dúsa inni til viðbótar. Brennandi af áhuga Borís Jeltsín Rússlandsforseti brennur af áhuga á að koma aft- | ur til starfa, að því er blaðafull- trúi hans hélt fram í gær. Lækn- í ar segja hann þurfa að hvíla sig í tvær til þrjár vikur. Reuter Nígeríumenn þversum Nígería hefur verið einangruð frá alþjóðlegu viðskiptalífi síðan her- foringjastjórnin, sem þá sat, ógilti kosningar og kom í veg fyrir að lýð- ræði yrði komið á á ný í landinu. Ekki er útlit fyrir að það breytist á næstunni því að Nígeríustjórn hefur frestað efnahagsumbótum sem vestræn ríki hafa þrýst á með að yrðu gerðar og vænst hafði verið á þessu ári. Allt útlit er því fyrir að Nígería verði áfram einangruð í al- þjóðaviðskiptum. Það sérkennilega er að herfor- ingjastjómin virðist hafa tekið það nærri sér að þurfa að koma á efna- hagsumbótum og halda almenn mannréttindi í heiðri vegna þrýst- ings frá erlendum ríkjum. „Hvað við gerum er undir því komið hvort okkur sjálfa langar til þess eða ekki, en ekki af því einhverjir aðrir vilja að við gerum það,“ sagði Anthony Ani, viðskiptaráðherra landsins, á blaðamannafundi í höfuðborginni Abuja sl. mánudag. -SÁ Sósíalistar og stjórnarandstæðingar í Serbíu: Samkomulag um sjónvarpsstöðvar Serbneskir sósíalistar og leiðtog- ar stjórnarandstöðunnar í bænum Kragujevac suður af Belgrad náðu í gær bráðabirgðasamkomulagi um yfirráð yfir útvarps- og sjónvarps- stöðvum í bænum í þeim tUgangi að forðast meira blóðbað. Samkvæmt samkomulaginu, sem náðist í gær, mun einungis verða sent út skemmtiefni og auglýsingar þar til dómstólar hafa komist að lokaniðurstöðu. Stjórnarandstæðingar sigruðu í sveitarstjórnarkosningunum í Kragujevac í nóvember síðastliðn- um og tóku þá við völdum þar. Sós- íalistar vildu hins vegar ekki láta útvarps- og sjónvarpsstöðvarnar af hendi. Til þess að missa ekki yfirráð yfir stöðvunum höfðu sósíalistar sett þær undir ríkisstöðvarnar. Dóm- stóll i Belgrad úrskurðaði aðgerðina ólöglega en ríkissjónvarpið áfrýjaði til hærra dómstigs og sendi 200 lög- reglumenn inn i byggingamar til að koma í veg fyrir yfirtöku stjórnar- andstæðinga. í kjölfarið umkringdu þúsundir stjómarandstæðinga stöðvarnar og settust á þjóðveginn til Kragujevac. Lögregla réðst til atlögu gegn mót- mælendum og lét kylfuhögggin dynja á þeim. Eftir að bráðabirgðasamkomulag- iö náðist í gær yfirgaf lögreglan út- varps- og sjónvarpsstöðvamar. Mótmæli stjórnarandstæðinga hafa nú staðið yfir í 68 daga en þeir sýna engin merki um uppgjöf. Sós- íalistaflokkurinn sakaði í gær stjórnarandstæðinga um hryðju- verkastarfsemi undir verndarvæng erlendra afla. Reuter Hundruö heittrúaöra hindúa á Indlandi reyna á hverju ári aö þóknast guðinum Murugan og fá óskir sínar uppfylltar meö því aö pína sjálfa sig á einhvern hátt. Þessi hindúi í bænum Madras hangir meö króka í holdinu. Símamynd Reuter Morðalda í Alsír: Frakkar hafna hugmynd um málamiðlun Clintons Frönsk yflrvöld höfnuðu í gær hugmyndinni um að Bandaríkin gerðust sáttasemjarar i Alsír þar sem íslamskir skæruliðar hafa myrt um 200 óbreytta borgara und- anfarnar vikur. „Alsírbúar verða sjálfir að leysa sín mál,“ sagði tals- maður franska utanríkisráðuneyt- isins. Einn helsti leiðtogi stjórnarand- stöðunnar í Alsír, Hocine Ait Ah- med, hafði lagt til að Bill Clinton Bandaríkjaforseti útnefndi sérstak- an sendimann til þess að reyna að binda enda á voðaverkin. Ekkert lát er á ofbeldinu. í gær var greint frá því að skæruliðar múslíma hefðu myrt 15 manns, þar af 10 konur, á bóndabýli að nætur- lagi. Róttækir múslímar hafa átt í stríði við stjórnvöld síðan 1992 en þá var aflýst kosningum sem talið var víst að múslímar myndu sigra í. Um 60 þúsund manns hafa fallið í stríði múslíma og yfirvalda undan- farin fjögur ár. Reuter '' WmSsMi Kauphallir og vöruverð erlendis 1 Betri sjúkra- húsmatur sparar tíu milljarða ÍÞúsundir danskra sjúklinga yrðu fyrr frískir og fengju færri aukaverkanir tryggðu læknar að vannærðir sjúklingar fengju prótinríkari fæðu. Samtimis gætu sjúkrahúsin sparað um tiu milljarða íslenskra króna á ári. Þetta eru niðurstöður útreikn- inga dönsku ríkisspítalanna og danska manneldisráðsins. Þessir útreikningar náðu ein- ungis til sjúkrahúsa en gert er ráð fyrir að einnig megi spara fé P með þessum hætti á öldrunar- heimilum. Þriðji hver sjúklingur á I sjúkrahúsum í Danmörku er Ívannærður. Er þá átt við að sjúklingarnir fái ekki nógu mik- ið af prótíni. Annað hvort eru sjúklingarnir vannærðir þegar þeir eru lagðir inn eða þeir létt- ; ast á meðan þeir liggja inni. Fleiri ung börn eiga erfiðara með að tala Danskir talþjálfar segja að sí- fellt fleiri börn undir sex ára aldri þurfi á talþjálfun að halda. Fullyrt er að börnin fái ekki j nægilega þjálfun í tali á heimil- um sínum og hafi þess vegna lít- inn orðaforða og þekki fá hug- tök. Á fyrri hluta þessa áratugar fjölgaði ungum börnum sem í þurftu sérkennslu í tali um 15 i prósent. Skólasálfræðingar segja börnin fá of lítið næði og að foreldramir ræði ekki nógu mikið við börn sín. Bömin nái ekki að einbeita sér vegna yfirfullra dagheimila, truflana frá fjölmiðlum 0g vegna I önnum kafinna foreldra. Svíar með áhyggjur af nasistagulli : Mögulegt er að 7 tonn af stolnu gulli frá nasistum sé að | finna i hvelfingum sænska S seðlabankans. Svía grunaði ? sjálfa að um stolið gull væri að ræða en neituðu samt sem áður að afhenda réttmætum eigend- um gullið eftir seinni heims- styrjöldina. Það kemur fram í % skjölmn sem sænskur stjómar- í erindreki og sænskur útvarps- maður hafa fundið í skjalasöfn- um í Svíþjóð, Sviss og Banda- ríkjunum. Sænski seðlabankinn hefur nú ; boðað rannsókn vegna málsins. Sænska blaðið Dagens Nyheter greindi frá því að verið gæti að sænska ríkið hefði notað sjö tonn ís af gulli, sem keypt hafi veriö af Þjóðveijum í seinni heimsstyrj- öldinni, þrátt fyrir að grunur I léki á að tveir þriðju hlutar þess hefðu verið stolnir. Gullið fengu Svíamir fyrir sölu á járnmálmi í og sænskum gjaldeyri. Keyptu spólu með biblíusög- um en fengu klámmynd Frönsk fiölskylda, sem taldi ; sig vera að kaupa myndband | með biblíusögum, fékk í staðinn 1 spólu með klámmyndum. Útgefandinn, Larousse bóka- útgáfan, sem þekkt er fyrir orða- ; bækur sínar, kveðst hafa falið I öörum aðila fiölföldun mynd- í bandanna. Sá hafi vegna mis- I taka sent klámmyndbönd, sem { ekki var búið að merkja, en þau | voru ætluð spænskum við- I skiptavini. Laroussefyrirtækið ‘ afturkallaði öll myndbönd á um- g ræddu svæði vegna málsins. f; Börnunum, sem óvart fengu s klámmynd, var boðiij frí áskrift að biblíusögunum. Reuter 1........ ■ _ ^
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.