Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1997, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1997, Blaðsíða 20
20 ttir LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 I>V Stríðið um stóriðjuna - íslenskur mengunarsérfræðingur í Svíþjóð undrast þátt Hollustuverndar - telur stofnunina ósjálfstæða og lúta vilja iðnaðarráðuneytisins „Því er bara slegið fram af stjómvöldum að i sjálfu sér séu ekkert minni kröfur gerðar til mengunarvama hér heldur en er- lendis. Svo kemur hara annað í ljós. Það er því miður svo að eftir því sem maður aílar sér meiri upp- lýsinga kemur hetur í ljós að hér era ekki gerðar sömu kröfur um mengunarvamir og í Evrópu held- ur minni,“ sagði Guðbrandur Hannesson, oddviti Kjósarhrepps, eftir að hafa fengið í hendur at- hugasemdir Högna Hanssonar, yf- irmanns heilbrigðiseftirlits Lands- kronaumdæmis í Svíþjóð. Það var sveitarstjóm Kjósar- hrepps sem ákvað eftir almennan íhúafund í Kjósarhreppi þann 16. des sl. að leita til óháðs aðila til að gera úttekt á starfsháttum við gerð umhverfismats fyrir álver á Grundartanga, yfhfara gögn máls- ins og benda á atriði í drögum að starfsleyfi sem þarfiiist nánari skoðunar. Guðbrandur Hannesson oddviti segir að sveitarstjómin hafi leitað til Högna Hanssonar í þessum til- gangi en hann er líffræðingur, sér- menntaður á sviði mengunar og mengunarvama. Högni hafi getið sér orð í Svíþjóð fyrir að beita sér fyrir bættri umgengni iðnaðarins við mnhverfið í víðasta skilningi. Þetta hafi sveitarstjórnin talið nauðsynlegt þar sem Hollustu- vemd væri ekki sá óháði aðili sem hún ætti að vera í Grundartanga- málinu og nauðsynlegt sé að fá mat aðila sem sé algerlega óháður öllum sem hags- muna eiga að gæta í því. Gallað umhverfismat Helstu niðurstöður Högna Hanssonar eru í stuttu máli þær að umhverfismat vegna ál- vers Columbia á Grundartanga sé gallað og standist ekki kröfur sem gera verði til um- hverfismats. Sérstaklega vanti mat á fleiri valkostum, bæði hvað varðar staðarval og tækni. Þessi ágalli sé í ósamræmi við kröfur sem gera skal til umhverfismats samkvæmt tilskipun ESB og í ESBO samningum. Þá virðist almenningur ekki hafa tekið þátt í matinu á þann hátt sem gert sé ráð fyrir. Skýrsla Högna Hanssonar er byggð gögn- um sem varða stóriðju á Grundartanga og fyrirhugað álver, hæði frá skipulagsstjóra, þeim ráðuneytum sem tengjast málinu og frá Holiustuvernd. Það er ljóst af skýrslu Högna að hann undrast þátt Hollustuverndar í umhverfismati á Grundartanga vegna ál- vers Columbia og segir það gallað að fleira en einu leyti. Högni rekur nokkuð það verklag sem tíðkast við umhverfismat og segir að upphaf þess sé að rekja til Bandaríkjanna árið 1969 vegna endurtekinna árekstra milli almennra íbúa og valdastofnana, þegar til stóð að hefja miklar framkvæmdir. Að tillögu tveggja öld- ungadeildarþingmanna var þá lögfest að áður en meiriháttar framkvæmdir hæfust skyldi gera nákvæmt mat á afleiðingunum. Þátttaka almennings í umhverfismati sé mjög mikilvægur þáttur en aðalatriði um- hverfismats segir Högni vera eftirfarandi: Almenningur tekur þátt í umhverfismat- mu frá upphafi og tekur þátt í að ákveða hvað eigi að athuga. Umhverfismat er gert áður en raunveruleg ákvörðun um framkvæmdir er tekin og löngu áður en formleg ákvörðun er tekin. Raunverulegt markmið með framkvæmd- inni er skilgreint og besta leiðin að því fund- in. Mögulegir valkostir era metnir, einnig sá kostur að ráðast ekki í framkvæmdina. Umhverfisáhrif era metin og hver einstak- ur þáttur þeirra. Áður en endanleg gerð umhverfismatsins er lögð fram er allt matið rannsakað. Ekki má búta umhverfismatið niður þannig að einstakir hlutar þess séu gerðir óháð öðrum þáttum þess. Stóríðjusvæði á Grundartanga - samanburöur viö þekkt svæöi í Reykjavík - íxea) Stóriðjusvæöiö á Grundartanga samkvæmt núgildandi aðalskipulagj. Svæöiö hefur farið stækkandi í áranna rás. Reitur B er svæöiö eins og þaö var samkvæmt skipulagi áriö 1975. Áriö 1994 bættist reitur C viö og 1995 reitur A. Járnblendiverksmiðjan er sett inn í myndina á þann staö sem hún er á í raun, en ætiunin mun vera aö koma Coiumbia álverinu fyrir á mörkum B og C reitanna Almenningur ekki með í ráðum Mun vægari mengunarmörk leið til þess að auka fjölbreytni at- virmuvegarma og fjölga störfum, sem raunar er yfirlýst markmið Framsóknarflokksins og kosninga- loforð. Ekki er liðinn áratugur síðan viðræður stóðu sem hæst við svo- nefndan Atlantsálshóp um að reisa mjög stórt álver á íslandi og nánast sérhvert hom landsins sótti fast að fá þetta álver til sín. Sérstök stað- arvalsnefnd var sett á stofn til þess að finna álverinu stað og yfirfara óskir Eyfirðinga, Reyðfirðinga, Suðumesjamanna og jafnvel Kjal- nesinga auk margra fleiri, eins og frétt DV á fimmtudaginn vitnar um. Niðurstaðan varð sú að velja þessu fyrirhugaða risaálveri stað á Keilisnesi á Vatnsleysuströnd, en ekkert hefúr orðið af framkvæmd- um við það enn þá. Hins vegar er ekki langt í að helmings stækkun álversins í Straumsvík komist í gagnið. Meðan viðræður við Atlantsáls- hópinn stóðu sem hæst áttu íslend- ingar í erfiðleikum í efnahagsmál- um sem fyrirsjáanlegt var að yrðu viðvarandi og áhugi almennings og stjómvalda á að fá álver til lands- ins til að skjóta fleiri stoðum und- ir atvinnu- og efnahagslífið var verulegur. Sá áhugi hefur dvínað síöan, að hluta vegna uppsveiflu í efnahagsmálum og að hluta til vegna breyttra viðhorfa í umhverf- ismálum í þeim tilgangi lagði iðnaðar- ráðuneytið og Landsvirkjun út í borið þá saman á Helstu galla á umhverfismati vegna ál- versins telur Högni vera marga, en þá helsta að almenningur virðist ekki hafa verið hafð- ur með i ráðum eða fengið að hafa áhrif á það. Þá sé einungis einn staðsetningar- kostur athugaður en aðrir hugsanlegir staðir aðeins nefndir i framhjáhlaupi. Fleiri kostir varðandi tækni og mengunarvamir en einn eru ekki at- hugaðir svo að ákvörðunarvaldið geti raunsæjan hátt. Högni dregur þá ályktun að líklegt sé að raunveruleg ákvörðun um álverið hafi verið tekin áður en umhverfismatið var gert og í það vanti auk ofannefnds mat á umhverfis- áhrifum frá virkjunum, háspennulínum, námum og vegalagningu sem eru forsendur verksmiðjureksturins og heildarafleiðingar stækkunar verksmiðjunnar. Markmiði fram- kvæmdanna sé ekki lýst og þvi óljóst hvort markmiðið sé að framleiða ál eða selja raf- magn og fjármagna fleiri virkjanir. Valkost- imir verði allt aðrir ef markmiðið sé einung- is að selja orku. Frjálsleg umgengni um al- þjóðasamninga Högni Hansson telur að útblástur koltví- oxíðs brjóti í bága við rammasamning SÞ sem gerður var í Ríó á sínum tíma og íslensk stjórnvöld hafa undirritað. í honum er gert ráð fyrir því að þjóðimar hver um sig sjái til þess að magn koltvísýrings sem fer út í and- rúmsloftið verði ekki meira um aldamótin en var árið 1990. Síðan íslendingar undirrituöu samninginn hefur magnið aukist um 10% að sögn Högna og mun vaxa enn frekar þegar bæði stækkun álvers ísals í Straumsvík kemst í gagnið svo og Grundartangaálverið. Þá túlkun umhverf- isráðuneytisins að þessi aukning brjóti ekki í bága við Ríósáttmálann segir Högni óskilj- anlega. Losun íslendinga á þessu efni nemi nú um 9 tonnum á hvern íbúa en í iðnríkinu Svíþjóð nemi hún 7 tonnum og sé slík um- gengni um alþjóðasamninga varhugaverð. Fréttaljós á laugardegi Stefán Ásgrímsson Högni Hansson telur að útblástur koltví- oxíðs verði 20 sinnum meiri en er frá álveri í Sundsvall í Svíþjóð og útblástur flúors tvöfalt meiri. í það minnsta þrjár hreinsiaðferðir séu til sem hefði átt að meta tæknilega og fjárhagslega en allar aðferðirnar væra laus- ar við að valda sjávar- mengun. Enda þótt Columbia- fyrirtækið telji aö betri hreinsi- __ búnaður en það geri ráð fyrir sé óþarfur hefði átt að meta hann engu að síður. Sú staðhæfing að á Grundartanga eigi að beita fullkomnustu tækni samkvæmt mengun- arvamareglugerð, þýði samkvæmt svonefndri PARCOM skilgreiningu að uppfylla eigi lág- markskröfúr. Enginn hafi hins vegar sýnt fram á að óhóflegur kostnaður fylgi fullkomn- ustu tækni eins og hún sé tíðkuð í nágranna- löndunum. Skortur á hlutlægni Högni Hansson gagnrýnir að ríkisvaldið með iðnaðarráðuneytið og Landsvirkjun í far- arbroddi vilji setja niður álver á Grundar- tanga. Þá sé óeðlilegt að umhverfismat og starfsleyfi skulu gerð og gefin út af stofhunum sem heyri beint undir aðra ráðherra og öll kærumál lendi að síðustu hjá umhverfisráð- herra. Við slíka málsmeðferð verði ekki séð að fyllsta hlutleysis sé gætt og að hægt sé að skjóta ágreiningi til algjörlega hlutlauss aðila sem ekki á neinn þátt í þeirri stefnu sem rík- isvaldið hefur markað. „Ef það er rétt skilið að hagsmunaaðili geti ekki fengið allt málið, umhverfismat og starfsleyfi, prófað fyrir dóm- stóli, brýtur það í bága við mannréttinda- samning Evrópuráösins," segir Högni Hans- son í álitsgerð sinni. Vandræðalegt mál Allur aðdragandi hins nýja álvers á Grund- artanga er afar vandræðalegur fyrir iðnaðar- ráðuneytið og þær stofnana ríkisins í heild sem málið snertfr. Fáir þar virðast hafa áttað sig á því að almenn viðhorf til stóriðju eru önnur en voru fyrir tiltölulega fáum áram, þegar flestir töldu að stóriðja væri sjálfsögð nokkra auglýsingaherferð erlendis í þvi skyni að lokka erlend stóriðjufyrirtæki, einkum í ál- iðnaði, til landsins og í auglýsingabæklingum var lögð áhersla á ódýra orku, öraggt stjóm- málaástand og vel menntað vinnuafl, sem jafnframt væri ódýrt. Enn fremur var látið í veðri vaka að kröfur inn mengunarvamir og hreinsibúnað væra ekki jafn strangar og í ná- grannalöndunum. Dómari í eigin sök í október 1995 gerði Hjörleifur Guttorms- son alþingismaður alvarlegar athugasemdir við endurskoðað starfsleyfi Hollustuvemdar fyrir álverksmiðjuna í Straumsvík. Hjörleifur taldi að mengunarákvæöi starfsleyfisins væra óeðlilega rúm og brytu í fjölmörgum liðum í bága við alþjóðasamninga sem íslendingar væru aðilar að. Þannig væri heimilað að nota úrelta tækni við framleiðsluna sem kæmi í veg fyrir að hægt væri að beita bestu mengun- arvörnum, leyfð losun flúors væri langt ofan við leyfileg mörk samkvæmt PARCOM sam- þykkt. Sama væri að segja um brennisteinst- víoxíðmengun og koltvísýringsmengun. Hjör- leifur gagnrýndi harðlega fullyrðingar Holl- ustuverndar um að koltvísýringsmengun væri ekki vandamál hér á landi og sagði hana hvíla á veikiun granni. Umhverfisráðuneytið er úrskurðaraðili i mengunarmálum og starfar Hollustuvemd undir yfirstjóm ráðuneytisins sem sérfræði- stofnun í slíkum málum. Ráðuneytið fól því Hollústuvernd að fjalla um athugasemdir al- þingismannsins og i raun gerast dómari í eig- in sök. Hollustuvemd komst að þeirri niður- stöðu að athugasemdir Hjörleifs væra rétt- mætar í ýmsum atriðum, en ekki þó þess eðl- is að þær hefðu hreytt tillögúm að starfsleyfi fyrir ísal. Kæru Hjörleifs var því vísað frá og var frávísunin byggð á lögfræðiáliti Eiriks Tómassonar prófessors. Þessum úrskurði skaut Hjörleifur Gutt- ormsson til sérstakrar úrskurðamefndar sam- kvæmt 26. grein laga um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit og benti jafnframt á að hon- um hefði ekki verið gefinn kostur á að sjá hina lögffæðilegu álitsgerð þótt slíkt sé skylt samkvæmt stjómsýslulögum. Úrskurður nefndarinnar var sá að fella skyldi frávísunar- úrskurð stjómar Hollustuvemdar úr gildi og henni gert að taka kæru Hjörleifs til efnislegr- ar meðferðar. -SÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.