Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1997, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1997, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997 Til hamingju með af- mælið! Þennan dag árið 1917 fæddist listmálarinn Louisa Matthías- dóttir í Reykjavík, dóttir Matthí- asar Einarssonar yfirlæknis og Ellenar Johannessen konu hans, og er því áttræð í dag. Þó að hún hafi nú búið í Bandaríkjunum í 55 ár heldur hún áfram að mála myndir sem eiga upptök sín á bernsku- og æskuárunum hér heima, einkum árunum tíu þegar hún bjó með foreldrum sínum í húsinu Höfða sem þá var fyrir utan bæinn. „Henni hefur alla tíð fundist að þessi áratugur hafi verið öll ævin,“ segir Sigurður A. Magnússon í inngangsorðum að hókinni Myndum frá 1987. Var hún stúlkan? Louisa lærði við Listiðnaðar- skólann í Kaupmannahöfn og hjá Marcel Gromaire í Frakklandi. IHeima var hún í tvö ár, 1939-1941, og málaði i litlu lystihúsi við Kirkjustræti sem ekki stendur lengm-. Þær Nina Tryggvadóttir voru mikið saman á þeim árum og fóru oft upp í Unuhús og hittu alla gáfuðu strákana sem þar leystu lífsgátuna - Erlend húsráð- anda, Halldór Laxness, Þórberg Þórðarson og Stein Steinarr. Sú saga hefur raunar verið hvísluð í eyru áhugasamra lengi að Louisa sé stúlkan í Tímanum og vatninu eftir Stein, og hið veglausa haf : sem liggur „milli vitundar minn- ar og vara þinna“ i því kvæði sé sjálft Atlantshafið, því Louisa fór til New York árið 1941. En þegar hún er spurð hvort eitthvað sé til i þessu hvísli þá hlær hún hara lágt og stríðnislega. Frá Bandaríkjunum hefur hún ekki komið siðan nema sem gestur. Hún giftist listmálaranum Leland Bell, eignaðist með honum dóttur- Louisa Matthíasdóttir: Sjálfs- mynd meö kaffikönnu 1980. Úr Myndum (1987). ina Temmu sem einnig er listmál- ari, býr í New York og er þekktur og virtur málari þar. En heim hef- ur hún komið, nærri því árlega, og málað. Og myndir hennar - eru þær ekki eiginlega „ofuríslensk- ar“? Þessir skæru litir, sumarnæt- urstemningarnar með sofandi sauðfé eða bítandi gras, rólyndið uppmálað, hestarnir, íjöllin, göt- umar í Þingholtunum - þessar myndir eru engum öðrum líkar. Megi hún mála sem flestar enn. Myrkir músíkdagar Tvennir tónleikar verða á veg- um Myrkra músíkdaga um helg- ina. Annað kvöld, fostudagskvöld kl. 20, verða tónleikar Vox Fem- inae í Digraneskirkju undir stjóm Sibyl Urbancic og Margrétar Pálmadóttur. Uppistaðan er Missa Minuscula eftir Þorkel Sigur- björnsson, en á milli þátta verður flutt trúarleg tónlist eftir Jón Nor- dal, Atla Heimi Sveinsson, Hjálm- ar H. Ragnarsson og fieiri. Á laugardaginn kl. 17 verða svo lokatónleikar hátíðarinnar, Lif- andi raftónleikar á Gauki á Stöng, þar sem flutt verða verk eftir Kjartan Ólafsson, Ríkharð H. Friðriksson, Hilmar Þórðar- son, Helga Pétursson og fleiri. Gáið að breyttum tíma! Umsjón Silja Aflalsteinsdóttir _________________________________ menning Menningarverðlaun DV 1997: Fimm tilnefningar í listhönnun Listhönnunamefnd DV hefur komið saman reglulega að undan- fömu og skoðað verk listhönnuða frá síðasta ári. Auk þess reyndu nefndarmenn að fylgjast með sýn- ingum í fyrra og afla sér upplýsinga um þær. Nú hefur nefndin lokið störfum og tilnefnir fímm hönnuði til verðlauna. Þessi hafa fengið tilnefningu: Ásdís Birgisdóttir Ásdis Birgisdóttir textílhönn- uður er tilnefnd fyrir frumlega hönnun fatnaðar sem ber sterkt svipmót af fornri, norrænni klæða- hefð. Flíkumar eru úr íslenskri ull sem er lituð með íslenskum jurtum. Hér fer saman fjölbreytni í formum og náttúrulitum. Flíkumar eru ein- faldar og búa yfir vissum léttleika í efni og litum. George Hollanders leikfanga- hönnuður er tilnefndur fyrir ýmis þroskaleikfong sem hann bæði George Hollanders hannar og smíðar í fyrirtæki sínu, Gullasmiðjunni Stubbi í Eyjafirði. Framleiðslan er vönduð og litrík, fuglar, bílar, leikfangaskrín og fleira. Leikfongin uppfylla CE, evr- ópskan staðal um öryggi leikfanga. Ragnar Axelsson Ragnar Axelsson ljósmyndari hefur í auknum mæli látið að sér kveða með blaðaljósmyndum sín- um. Myndir hans hafa að geyma ríka tilfinningu fyrir mannlegu um- hverfi og eru að formi til einstak- lega vel uppbyggðar. Margar blaða- ljósmyndir hans birtast í svart/hvítu og hafa sumar ákveðið þema, til dæmis sjaldgæfa lífshætti á norðurslóðum. Aðrar eru teknar á augnablikinu, oft við erfiðar aö- stæður, og sýna að höfundur hefur næmt auga fyrir hinu óvenjulega. Hönnun Studio Granda Studio Granda sýnir með góðu fordæmi hvernig arkitektar geta sjálfir hannað eigin húsgögn inn í hús sem þeir hafa teiknað og skap- að með því sterka heildarmynd. Þau eru tilnefnd fyrir góðar lausnir á stólum, sófum og ýmsum borðum fyrir Dómhús Hæstaréttar. Þessi húsgögn eru víða í húsinu og vekja athygli fyrir form borðanna og liti á áklæðum stólanna. Húsgögnin eru til dæmis í biðstofu, fundarherbergj- um og í dómsal. Védís Jónsdóttir Védís Jónsdóttir textílhönnuð- m- hefur reynt að finna nýtt munst- ur á hefðbundnum lopapeysum með eftirtektarverðum árangri, þar sem hún hefur nýtt sér ýmis form ís- lenskra fugla og fiska, til dæmis rjúpna, gæsa og laxa, og fléttað inn í munstrið. Þá hafa litir peysanna tekið mið af umhverfi fyrirmynd- anna. Védís hefur verið hönnuður ístex, sem er gamframleiðandi, og leitað þar ýmissa leiða til að örva framleiðsluna. í listhönnunarnefnd DV sitja Torfi Jónsson, Baldur J. Baldursson og Eyjólfur Pálsson. Grillið: Allt fyrir öryggið Grillið á Hótel Sögu verð- ur ekki sakað um ævintýra- mennsku í matargerðarlist. Þar er öryggið fyrir öllu. Matseðillinn er fastur og stuttur, lítur varla við fiski og býður flóknar uppskriftir á dýrum réttum, sem farið er afar næmum höndum um í eldhúsinu. Þetta er vandað- ur staður fyrir kröfuharða íhaldsmenn, en höfðar síður til þeirra útlendu hótelgesta, sem hafa áhuga á fiski. Enginn matseðill dagsins er í boði og á fastaseðlinum eru bara tveir fiskréttir, lax og skötuselur. Lax kemur árið um kring úr eldi og skötuselur árið um kring úr frystikistu, svo að daglegt markaðsframboð á fiski hef- ur lítil áhrif í þessum merk- ustu herbúðum flókinnar matargerðarlistar í landinu. Árgangamerktur vínlisti er annað aðalsmerki staðar- Aíar Þjónusta. ins, langur, fjölbreyttur og góður. Verðlag hans er sanngjarnt, þótt flaskan af heimsins dýrasta víni, Chateau Cheval Blanc, fari upp í 45 þúsund krónur. Hitt aðalsmerkið er svipmót staðarins eins og það kemur fram í afar góðri þjónustu, skemmtilegu útsýni og höfðing- legum innréttingum, sem að mestu eru uppruna- legar. Eini svipgallinn er, að gangurinn að veit- ingasalnum er notaður sem stólageymsla. Andakjöt reyndist vera hátindur matreiðslunn- ar. Hunangsgljáð andabringa með steyttum, grænum pipar, pönnusteiktum kartöfluþráðakök- um, sykurbrúnuðum skalottulauk, fennikku og smásöxuðu grænmeti var prófuð í tvígang og íander-kryddaðri kúskús- köku. Anísilmað grænmetis- seyði var sérkennilegt og gott, með heilum anís og turni af léttelduðu grænmeti í miðju. Enn betri var heitur og sneiddur hörpuskelfiskur á kartöflunæfrum og rjóma- soðnum blaðlauk. Milli rétta var borinn fram milliréttur. í annað skiptið var það Bourbon viskí-ískrap, sem Jim Beam var hellt yfir. í hitt skiptið var það afar gott, bragð- hreint og magnað tómat- seyði. Tæpastur aðalrétta var full mikið elduð villiþrenna, gæs, svartfugl og hreindýr meö gráðostsósu og eplasal- ati. Afar góðar voru grillað- ar lambalundir undir hvít- lauks- og gulstöngulskrydd- aðri brauðskel og kartö- fluturni, bornar fram með DV-mynd Hilmar Þor j sveppasósu. Grillaðar nautalundir voru magrar og bragðdaufar, en meyrar, bomar fram með létt- soðnu grænmeti, lítilfjörlegri svartsveppakæfu- sneið, góðri gæsalifur og enn betri Madeirasósu. Exótískir ávextir reyndust vera margs konar ber og litlir ávextir í kringum ískrap. Passíuá- vaxtakaka var lítil hringlaga kaka með súkkul- aðiískúlu, smásöxuðum ávöxtum og Grand Marnier líkjör. Hvítur búðingskremtigull með sítrónubragði og sterkri sítrónusósu var skemmtilegasti eftirrétturinn. Verðlagið á Grillinu er afar hátt, um 4.440 krónur þríréttað á mann, fyrir utan drykkjar- fóng. Staðurinn er aðeins opinn á kvöldin. Veitingahús Jónas Kristjánsson reyndist jafnan frábær. Einnig var hægt að fá andakjöt í forrétt, soðið í eigin safa, borið fram með valhnetum á gufusteiktu jöklasalati. Afar góðar voru fjórar meyrar úthafsrækjur í sætsúrri sósu chili- kryddaðri, bomar fram á kor-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.