Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1997, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1997, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997 Afmæli Eggert Magnússon Eggert Á. Magnússon, formaðm- KSÍ og framkvæmdastjóri kexverk- smiðjunnar Frón hf., Kringlunni 59, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Eggert fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1965, stundaði nám i skipa- verkfræði við Norges Tekniske Hogskole í Þrándheimi 1969 og síðar nám í viðskiptafræði við HÍ. Eggert var kennari við Vélskóla íslands 1971-76, framkvæmdastjóri kexverksmiðjunnar Frón hf. 1977-81, Eignavals sf. 1981-85, gler- verksmiðjunnar Esju hf. 1985-90 og kexverksmiðjunnar Frón frá 1991. Eggert sat í framkvæmdastjóm SÁÁ 1980-85, var formaður knatt- spymudeildar Vals 1985-89, er for- maður KSÍ frá 1989, situr í ráðgjaf- arráði Samtaka iðnaðarins og er formaður nefndar um sameiningu ÍSÍ og Ólympíunefndarinnar. Fjölskylda Eiginkona Eggerts er Guðlaug Nanna Ólafsdóttir, f. 18.9.1948, hús- móðir. Hún er dóttir Ólafs Jónsson- ar, f. 28.4. 1907, d. 25.3. 1975, útgerð- armanns í Sandgerði, og k.h., Láru Guðmundsdóttur, f. 12.9. 1909, d. 21.7. 1962, húsmóður. Börn Eggerts og Guð- laugar Nönnu eru Lára Nanna, f. 22.1. 1966, hag- fræðingur í Reykjavík, maðm- hennar er Guð- mundur Árni Jónsson viðskiptafræðingur og eiga þau tvö böm; Magn- ús Ingi, f. 20.8. 1970, íþróttakennari á Húsa- vík, kona hans er Anný Björg Pálmadóttir, nemi í sjúkraþjálfun; Eyrún Sif, f. 9.11. 1972, nemi í rekstrarfræði við Tækniskóla fs- lands, maður hennar er Guðmund- ur Páll Gíslason markaðsstjóri; Ólafur Jóns, f. 5.8.1980, nemi. Systkini Eggerts eru dr. Guðrún, f. 16.8. 1955, veðurfræðingur og pró- fessor við Kaliforníuháskóla i Bandaríkjunum; Inga Steinunn, f. 23.10. 1960, háskólanemi í Reykja- vík; Kristjana Vigdís, f. 15.6. 1966, skrifstofumaður í Reykjavík. Foreldrar Eggerts: Magnús Ingi- mundarson, f. 8.2. 1923, forstjóri í Reykjavík, og k.h., Guðný Eggerts- dóttir, f. 25.11. 1923, húsmóðir. Ætt Magnús er bróðir Árna, skrif- stofumanns á Akureyri; Steinunn- ar, fyrrv. skólastýru á Varmalandi, og Þórgunn- ar, píanóleikara á Akur- eyri. Magnús var sonur Ingimundar, söngstjóra karlakórsins Geysis á Akureyri, Árnasonar, prests á Grenivík, bróður Arnbjargar, langömmu Björns Teitssonar, skóla- meistara á ísafirði, og Steingríms Sigfússonar alþm. Árni var sonur Jó- hannesar, trésmiðs og b. á Ytra-Álandi í Þistil- firði, Árnasonar, á Víðirhóli á Hólsfjöllum, Árnasonar. Móðir Áma, prests á Grenivík, var Ingiríður Ásmundsdóttir, b. á Hall- bjarnarstöðum á Tjörnesi, Jónsson- ar, og Kristínar Ingveldar Ás- mundsdóttur á Fjöllum í Keldu- hverfi, Pálssonar. Móðir Ingimund- ar var Valgerður Karólína Guð- mundsdóttir, b. á Brettingsstöðum, Jónatanssonar. Móðir Magnúsar forstjóra var Guðrún, dóttir Áma, b. á Reykjum í Tungusveit og síðar gjaldkera á Akureyri, Eiríkssonar, b. á Skata- stöðum í Austurdal. Móðir Áma var Hólmfríður Guðmundsdóttir, hreppstjóra í Bjamastaðahlíð, síð- ar í Sölvanesi, Jónssonar, og Guð- ríðar Jónsdóttur, b. á Ánastöðum, Einarssonar. Móðir Guðrúnar var Steinunn Jónsdóttir, prests á Mæli- felli, Sveinssonar, landlæknis í Nesi, Pálssonar, og Þórunnar Bjamadóttur landlæknis, Pálsson- ar. Móðir Þórunnar var Hólmfríð- ur Jónsdóttir, ættföður Reykja- hlíðarættarinnar, Þorsteinssonar. Kristjana Guðný er systir Aðal- steins, forstjóra Eggerts Kristjáns- sonar hf„ föður Snorra, félagsmála- stjóra Seltjamarness. Annar bróðir Kristjönu Guðnýjar var Gunnar, faðir Kristjáns, forstjóra Gunnars Eggertssonar hf. Systir Kristjönu Guðnýjar er Edda, kona Gísla Ein- arssonar, forstjóra Mata hf. Krist- jana Guðný er dóttir Eggerts, stór- kaupmanns í Reykjavík, Kristjáns- sonar, b. í Mýrdal í Kolbeinsstaða- hreppi, Eggertssonar. Móðir Egg- erts stórkaupmanns var Guðný Guðnadóttir. Móðir Kristjönu Guðnýjar var Guðrún, systir Sæmundar, stór- kaupmanns í Hafnarfirði, föður Þórðar, flugvélakaupmanns í Lúx- emborg. Guðrún var dóttir Þórðar, b. í Vogsósum í Selvogi, Eyjólfsson- ar, og Guðrúnar Sæmundsdóttur. Eggert og Guðlaug Nanna taka á móti gestum í Gullmhömrum í Iðn- aðarmannahúsinu, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, í dag, milli kl. 17 og 20. Eggert Magnússon. Guðlaug Berglind Bjömsdóttir ' Guðlaug Berglind Bjömsdóttir kaupmað- ur, Merkurgötu 5, Hafn- arfirði, verður sextug á morgun. Starfsferill Guðlaug fæddist að Sjónarhóli í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hún lærði kjólasaum og vefnað í Kaupmanna- höfn 1952, stundaði vefn- aðamámskeið við Hand- íða- og myndlistaskól- ann í Reykjavík, stundaði nám við Húsmæðraskólann á Blönduósi vet- urinn 1954-55 og lærði myndvefnað og jurtalitun hjá Vigdísi Kristjáns- dóttur. Guðlaug starfaði við vefnað en var auk þess um árabil netakona víða um land hjá Torberg Einars- Guölaug BJörnsdóttir. syni. Hún stofnaði Hann- yrðabúðina 1969 og starf- rækir hana enn að Strandgötu 11 í Hafnar- firði. Fjölskylda Fyrri eiginmaður Guð- laugar var Sigurður Jón Ólafsson, f. 7.2. 1919, d. 5.10. 1960, fyrsti bæjar- Berglind verkfræðingur í Hafnar- firði. Hann var sonur Ólafs Þorsteinssonar, f. 1.5. 1884, d. 2.9. 1923, borg- arverkfræðings í Reykjavík, og Guðlaugar Jónu Sigurðardóttur, f. 18.1. 1887, d. 2.1. 1935, kennara frá Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd. Seinni eiginmaður Guðlaugar er Hallur Ólafsson, f. 3.10. 1931, múr- arameistari. Hann er sonur Ólafs Ólafssonar, f. 24.5. 1905, bónda í Kambakoti og víðar, og Guðbjargar Guðjónsdóttur, f. 23.9. 1891, d. 3.6. 1981, húsfreyju. Dætur Guðlaugar era Alda Sig- urðardóttir, f. 3.1. 1960, hjúkmnar- fræðingur og myndlistarkona í Reykholti, gift Jóni Özuri Snorra- syni framhaldsskólakennara, og er sonur hans og fóstursonur Öldu Völimdur Jónsson, f. 6.4. 1984; Anna Halla Hallsdóttir, f. 15.8.1964, ritari í Hafnarfirði, börn hennar era Freyja Reynisdóttir, f. 7.11. 1989, og Hallur Reynisson, f. 2.7. 1991. Systkini GuðlaugEir era Bjarni Vestmar, f. 14.11.1925, d. 27.12.1986, leigubílstjóra að Sjónarhóli í Hafn- arfirði; Bára, f. 16.5. 1927, verslun- armaður í Hafiiarfirði; Bragi Vest- mar, f. 18.6. 1929, skipstjóri í Hafn- arfirði; Jón Boði, f. 4.12. 1931, mat- reiðslumaður, búsettur í Garðabæ; Ágúst Einar Birgir, f. 22.2. 1935, umsjónarmaður íþróttamannvirkja hjá FH í Kaplakrika í Hafnarfirði. Foreldrar Guðlaugar vora Bjöm Eiríksson, f. 9.9. 1894, d. 7.5. 1983, skipsfjóri og bifreiðarstjóri í Hafn- arfirði, og Guðbjörg Jónsdóttir, f. 20.10. 1894, d. 21.11. 1993, húsfreyja á Sjónarhóli. Ætt Yngstur og sá eini eftirlifandi af systkinum Bjöms er Benjamín hag- fræðingur. Bjöm var sonur Eiríks Jónssonar í Hábæ í Vogum og Sól- veigar Guðfinnu Benjamínsdóttur frá Hróbjargarstöðum á Mýrum. Guðbjörg var dóttir Jóns Magn- ússonar frá Hólmi í Landbroti og Guðlaugar Jónsdóttur frá Kald- rananesi í Mýrdal. Guðlaug verður að heiman á af- mælisdaginn. Fréttir Vestur-Húnavatnssýsla: Engin brunaút köll 1996! Skúli slökkviliðsstjóri afhendir Ólafi Pálma verölaunin. DV-mynd Sesselja DV, Hvammstanga: Engin brunaútköll vora á 1996 hjá slökkviliði í Vestur-Húnavatns- sýslu, hvorki hús-né sinubruni, að sögn Skúla Guðbjartssonar slökkvi- liðsstjóra á Hvammstanga. Þaðr í fyrsta sinn síðan Skúli tók við emb- ætti slökkviliðsstjóra fyrir 5 árum að enginn bruni er í sýslunni svo lengi. Slökkviliðið á Hvammstanga þjónar allri vestursýslunni. Fyrir 18 mánuðum eignaðist það slökkviliðsbíl innfluttan frá Þýska- landi. Það á einnig tækjabíl með klippum og Rauða kross deildin á hér á tvo sjúkrabíla sem eru í um- sjón slökkviliðsins. Bíllinn með klippunum er talsvert notaður. I sýslunni verða allt of mörg bílslys við einbreiðar brýr á Þjóðvegi 1. Þrátt fyrir ábendingar og beiðni um úrræði hefur vegagerðin ekki tekið vel við sér og merkt brýmar svo óyggjandi sé. Á mikilli ferð fara skilti oft fram hjá ökumönnum og á meðan ekki er búið að breikka allar þær brýr sem um ræðir þyrfti að koma til áþreif- anlegri merkinga en nú er. Ódýrar lausnir eins og feitmáluð strik á veginum, þvert á akrein, gætu stuðl- að að varkárari akstri við slysa- gildrumar sem brýmar hafa reynst. Landssamband slökkviliðs- manna, efndi til brunavarnarátaks í desember og afhending vinninga í eldvamargetraun fór nýlega fram. Nokkrum bömum er tóku þátt í get- rauninni voru veitt verðlaim og við- urkenningar fyrir þátttöku sína. Á Hvammstanga hlaut Ólafur Pálmi Tryggvason, 10 ára, vinning en alls voru 20 börn af öllu landinu dregin úr pottinum. Þau fengu hvert um sig útvarpstæki með segulbandi, reykskynjara, stuttermabol merkt- an LSS og sérstakt viðurkenningar- skjal félagsins. Jafnhliða getrauninni var efnt til keppni um nafn á teiknimyndaper- sónu í líki hvals sem ætlað er það hlutverk að styðja eldvamarfræð- ara slökkviliðs í framtíð. Nefnd ákvað nafhið Trausti og vora þrjú böm með þá tillögu, Tinna Ósk, 9 ára, Vala Rut, 6 ára og Sara, 6 ára. 115 stofnanir og fyrirtæki styrkja átak LSS. Það hefur verið árlegur viðburður sl. 3 ár og stefnt er að ár- legri eldvamarviku í desember um alla framtíð. ST DV Til hamingju með afmælið 20. febrúar 95 ára Bjöm Þórðarson, Oddagötu 5, Akureyri. 75 ára Sumarliði Lárusson, Túngötu 11, Sandgerði. Garðar Sigurðsson, Barðavogi 32, Reykjavík. Jón Guðjónsson, Ofanleiti 7, Reykjavík. Bára Sigurjónsdóttir, Drápuhlíð 36, Reykjavík. Halldór Bjamason, Heiöarbrún 29, Hveragerði. 70 ára Hinrik Thorarensen, Álfheimum 20, Reykjavík. Kjartan Ingibergsson, Dalalandi 10, Reykjavík. Þorbjörg Jónasdóttir, Smárabraut 3, Höfn í Homa- firði. 60 ára Herdís Gissurardóttir, Álfheimum 11, Reykjavík. Jóna Þórunn Jónasdóttir, Flyðrugranda 2, Reykjavík. Eileen E.S. Karlsson, Heiðarlundi 1, Garðabæ. Hólmfrfður Gestsdóttir, Hraunbraut 32, Kópavogi. 50 ára Viðar Guðmundur Elísson, Bogahlíð 4, Reykjavík. Dóróthea Bergs, Vanabyggð 5, Akureyri. Ragna Kemp Guðmimds- dóttir, Kleifarseli 39, Reykjavík. Guðmunda Eyjólfsdóttir, Fomhaga 23, Reykjavík. 40 ára Martina Bemódusson, Vestmannabraut 35, Vest- mannaeyjum. Brynjólfur Jónsson, Hlíðarvegi 50, Kópavogi. Ingimundur Magnússon, Heiðarvegi 10 A, Keflavík. Gestur Úlfarsson, Kaldárbakka, Kolbeinsstaða- hreppi. Sævar Guðjón Magnússon, Hraunbæ 194, Reykjavík. Jóhanna Olga Hjaltalln, Flétturima 21, Reykjavik. Jóhann Giurnar Jónsson, Háteigi 13, Keflavik. Fróðný Guðfinna Pálma- dóttir, Stapasíðu 11 D, Akureyri. Haukur Hauksson, Árholti 20, Húsavík. Sæmundur Bjamason, Háholti 11, Hafnarfirði. Jytte Fogtmann, Bollagötu 10, Reykjavík. Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA í ÁSKRIFT ÍSÍMA 550 5752

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.