Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1997, Page 28
★
<
★
36
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997
dags
onn
Skattalækkun er
kosningaloforð
„Skattalækkun er kosningalof-
orð ríkisstjómarinnar sem kem-
ur yfirstandandi kjarasamning-
um ekki við.“
Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB, í DV.
íslendingar
hræðast dans
„Það er fátt sem íslendingar
hræðast jafn mikið og dans, sér-
staklega þá sem kallast listdans
eða ballett."
Hlín Agnarsdóttir leikstjóri, í
Degi-Tímanum.
Ekki á leið í flatsængina
„Ég veit ekki til þess að ég sé
á leiðinni úr Alþýðubandalaginu
og alls ekki í flatsæng jafnaðar-
manna.“
Hjörleifur Guttormsson alþing-
ismaður, í Vikublaðinu.
Ummæli
Verkalýðshreyfingin
í pólitíkina
„Ég er mikið að velta því fyrir
mér þessa dagana hvort ekki sé
kominn tími til þess að verka-
lýðshreyfmgin fari út í bein póli-
tísk afskipti með framboð í
huga.“
Sigurður T. Sigurðsson, for-
maður Hlífar, í Alþýðublaðinu.
Allt lak í gegn
„Það bara lak allt í gegn. Mað-
ur var óvenju lítill í þessum
leik.“
Guðmundur Arnar Jónsson,
markvörður KA, í Degi-Tíman-
um.
Að nær öllu leyti eru þær stjörn-
ur sem sjást á himinhvolfinu
fastastjörnur.
Fastastjörnur
Fastastjömur á himinhvolfinu
eru mjög misstórar og fer stærð
þeirra oft eftir aldri. Sólin okkar
er eins og smádepill í saman-
hurði við þær stærstu og birtu-
lítil miðað við þær björtustu.
Breytistjarnan Eta Carinae, sem
er 9100 ljósár í burtu, í Carina-
stjörnuþokunni í vetrarbraut
okkar hefur að minnsta kosti 200
sinnum meiri massa en sólin.
Betelgás (stjarnan efst til vinstri
í Óríoni) er 700 milljón km að
þvermáli eða um 500 sinnum
meira að þvermáli en sólin.
Blessuð veröldin
Skærust sjáanlegra
stjama
Sírus A, sem einnig er nefnd
Hundastjarnan, virðist vera
skærasta fastastjaman þeirra
5776 sem sjáanlegar eru beram
augum á himninum. Hún er vel
sjáanleg yfir vetrarmánuðina á
norðurhveli jarðar og er í
hásuðri á miðnætti síðasta dag
ársins. Síríus A er í 8,6 ljósára
fjarlægð og er 26 sinnum bjartari
en sólin. Hún er 2,3 milljón kíló-
metrar að þvermáli. Birtustig
Síríusar er talið munu aukast
allt fram til ársins 61000.
Á vestanverðu Grænlandshafi er
nærri kyrrstæð 960 mb lægð sem
grynnist en um 200 km norður af
Færeyjum er 940 mb kröpp lægð
sem þokast í norðvesturátt.
Veðrið í dag
Um landið austanvert er gert ráð
fyrir norðaustan- og síðar norðan-
hvassviðri og jafnvel stormi, víða
snjókomu og skafrenningi. Um land-
ið vestanvert verður vindur mun
hægari í dag og snjómugga hér og
þar en í kvöld og nótt verður allvíða
norðvestanstinningskaldi. Ekki er
útlit fyrir að veður skáni norðan-
lands og austan í kvöld og nótt. Hiti
verður um frostmark austan til en
vægt frost um landið vestanvert.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
austangola en norðvestan stinnings-
kaldi í kvöld og nótt. Frost verður 2
til 4 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 18.18
Sólarupprás á morgun: 09.02
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.55
Árdegisflóð á morgirn: 06.08
Veðriö kl. 6 í morgun:
Akureyri snjókoma
Akurnes alskýjaö
Bergstaöir alskýjaó
Bolungarvík alskýjaö
Egilsstaöir snjókoma
Keflavikurflugv. iskorn
Kirkjubkl. skafrenningur
Raufarhöfn slydda
Reykjavík úrkoma í grenrtd
Stórhöföi alskýjaö
Helsinki snjókoma
Kaupmannah. rign. á síð. kls.
Ósló snjókoma
Stokkhólmur alskýjaö
Þórshöfn haglél á síö. kls.
Amsterdam léttskýjaö
Barcelona heióskírt
Chicago heiöskírt
Frankfurt léttskýjaö
Glasgow skúr
Hamborg skýjað
London heiöskírt
Lúxemborg léttskýjaö
Malaga heiöskírt
Mallorca þokumóóa
Miami
París skýjaö
Róm léttskýjaö
New York hálfskýjaó
Orlando heióskírt
Nuuk
Vín slydduél
Winnipeg alskýjaö
-2
1
-2
-2
0
-2
-2
0
-4
-1
-4
4
0
1
4
6
8
-3
7
4
6
6
5
8
3
7
4
11
19
2
-5
Arngeir Friðriksson, bóndi og glímukappi:
Þeir eru flestir um tuttugu
kílóum þyngri en ég
„Ég byrjaði að æfa glimu í
kringum 1985 og keppti strax í
unglingaflokki og hef verið að
keppa meira og minna síðan, fyrst
eingöngu í unglingaflokki en síðan
i flokki þeirra eldri," segir Arn-
geir Friðriksson, Héraðssamhandi
Þingeyinga, sem sigraði í Bik-
arglímu íslands sem fram fór á
Laugarvatni um síðustu helgi.
Arngeir lagði Orra Bjömsson, KR,
í úrslitaglímu eftir mikil átök og
spennu.
Amgeir sagði að í HSÞ væri
lögð nokkur áhersla á glímuna:
„Það er þó mest fastur kjarni sem
æfir reglulega, ekki mikill fjöldi
en áhugasamur hópur. Á lands-
Maður dagsins
vísu eru það ekki margir sem æfa
og keppa í glímu og áhorfenda-
fjöldi er ekki mikill en hér í minni
heimabyggð er áhugi og fólk kem-
ur til að horfa á glímu.“
Aðalkeppinautur Amgeirs í bik-
arglímunni var Orri Bjömsson:
„Við Orri eram búnir að glíma
lengi saman. Við fylgdumst aö í
unglingaflokki, hann er ári yngri
Arngeir Friðriksson.
en ég, svo við þekkjum hvor ann-
an vel.“
Það hefur vakið athygli að Arn-
geir er mun léttari en þeir glímu-
kappar sem hann er að etja kappi
við: „Ég er svona um tuttugu kíló-
um léttari en þeir flestir og verð
oft að beita annarri tækni, treysta
á snerpu, en ef ég kemréttu bragði
á þá eru engin vandræði að lyfta
þeim, enda er það styrkurinn í
löppunum sem skiptir miklu
máli.“
Amgeir sagði að fram undan
væri lokamótið í Landsglímunni,
sveitaglíman og Grettisbeltið:
„Keppnin um Grettisbeltið er
stærsta mót ársins og ég hef keppt
í því móti frá árinu 1990 en aldrei
unnið, hef lent tvisvar í öðru sæti
og einu sinni í þvi þriðja, en ég
stefni að sjálfsögðu á að sigra ein-
hvern timann í þessu móti.“
Amgeir er bóndi á Helgastöð-
um, sem eru þrjátíu kílómetra frá
Húsavík, og rekur þar kúabúskap
ásamt foreldrum sínum. Hann
þarf að fara um langan veg á æf-
ingar: „Við æfum mest á Laugum
og aðeins í Mývatnssveit og það er
enginn annar tími til æfinga fyrir
okkur hér en kvöldin. Við erum
með glímuæfingar tvisvar í viku
en það reynist stundum erfitt fyr-
ir alla að mæta út af færð en við
reynum þó alltaf að hafa æfingar.
Við höfum átt mjög sterka sveit og
það var í fyrsta skipti í mörg ár í
fyrra sem við töpuðum sveita-
glímunni. Það kemur ekki fyrir
aftur.“ -HK
Myndgátan
Hringsög
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Fimm leikir í
úrvalsdeildirmi
Það styttist óðum í úrslita-
keppnina í úrvalsdeildinni í
körfubolta. í kvöld hefst nítjánda
umferðin af tuttugu og tveimur
og verða leiknir fimm leikir. í
Borgarnesi leika Skallagrimur
og Haukar. íslandsmeistarar
Grindavíkur taka á móti Breiða-
bliki í Grindavík, á Akureyri
leika Þór og Keflavík, á Sauðár-
króki Tindastóll og Njarðvík og í
Seljaskóla í Reykjavík leika ÍR
og ÍA. Allir leikimir hefjast kl.
íþróttir
20.00. Tveir leikir eru einnig í 1.
deildinni, í Kennaraháskólanum
leika ÍS og Reynir, hefst sá leik-
ur kl. 20.00. Khikkutíma fyrr
leika Valur og Stjaman í Vals-
heimilinu.
Söngtónleikar á
Hvolsvelli
í kvöld munu þau Jón Smári
Lárasson baríton og Agnes Löve
píanóleikari halda tónleika í sal
Tónlistarskóla Rangæinga á
Hvolsvelli og hefjast þeir kl.
21.00. Flutt verður fjölbreytt dag-
skrá með lögum og arium eftir
ýmsa höfunda, innlenda og er-
lenda. Jón Smári er, ásamt því
að vera verkstjóri hjá Vegagerð-
inni, hrossatemjari og kórsöngv-
Tónleikar
ari mikill, nemandi við söng-
deild Tónlistarskólans og stefnir
að því að taka 7. stig í vor. Kenn-
ari hans undanfarin fimm ár er
hinn kunni óperusöngvari og
hestamaður, Jón Sigurbjörns-
son. Tónleikamir eru liður í 40
ára afmælishaldi Tónlistarskóla
Rangæinga og er aðgangur að
tónleikunum ókeypis.
Bridge
Bresku landsliðskonumar Liz Mc-
Gowan og Heather Dhondy, sem voru
keppendur á nýlokinni bridgehátíð
Flugleiða, vora einnig meðal boðspara
á Macallan-boðstvímenningnum í jan-
úar síðastliðnum. Þeim gekk ekkert
sérstaklega vel í þeirri keppni, enduðu
þar í 15. sæti af 16 pörum, en gæta
verður þess að öll pörin voru í
heimsklassa. Hér er eitt spil stúlkn-
anna Heather og Dhondy gegn sigur-
vegurum síðasta árs, Bandarikja-
mönnunum Rodwell og Meckstroth.
Spiluð voru 5 spil á milli para og fjög-
ur fyrstu spilin voru átakalítil á milli
þeirra. Þetta var fimmta spilið, norður
gjafari og NS á hættu:
* KG5
* Á9
* D93
* ÁKG107
* Á1086
* D8763
* G84
* 9
* D2
V KG1052
* 62
* 5432
Norður Austur Suður Vestur
Meckstr. Dhondy Rodwell Heather
2 grönd pass 3 ♦ dobl
pass pass 3 grönd p/h
Tveggja granda opnun Meckstroths
lofaði jafnskiptum 19-21 punktum og
þriggja tígla sögnin var yfirfærsla í
hjarta. Doblið var ábending um
tígulútspil. Meckstroth gerði vel í því
að sitja í þremur gröndum, í stað þess
að segja 4 hjörtu, enda er sá samning-
ur andvana fæddur vegna legunnar í
litnum. Þrjú grönd standa hins vegar
vegna hagstæðrar legu í laufinu - eða
hvað? Dhondy spilaði út tígulfjarka í
upphafi, 3.-5. hæsta spili, og Heather
var fljót að setja ásinn (sem alla jafna
neitar tilvist kóngsins) en Meckstroth
setti níuna til þess að reyna að villa
um fyrir vöminni. Heather spilaði
hins vegar strax tígulsjöunni í öðrum
slag og Meckstroth lagðist undir feld.
Hann ákvað loks að setja lítið spil og
vömin tók 6 fyrstu slagina.
ísak Örn Sigurðsson
♦ 9743
W 4
♦ ÁK1075
♦ D86