Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1997, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1997, Qupperneq 18
26 FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997 Iþróttir lan Wright sakleysiö uppmálaö að venju Ian Wright, miðherji Arsenal, ætlar ekki að kæra Peter Sch- meichel, markvörð Man Utd, fyr- ir niðrandi ummæli í sinn garð eftir leik Arsenal og United síð- asta laugardag. Wright og Schmeichel hafa ekki verið bestu vinir síðan í nóvember sl. haust. Þá lenti þeim saman eftir að Wright hafði verið mjög nærri því að stórslasa Schmeichel. Sl. laugar- dag léku liðin síðari leik sinn í úrvaldeildinni og aftur gerði Wright atlögu að danska mark- verðinum og nú tókst honum að meiða Schmeichel. Brot Wrights á Schmeichel er með því ógeðfelldasta sem sést hefur lengi á knattspyrnuvellin- um en dómarinn hafði ekki kjark til að vísa Wright af leik- velli. Hann hafði fengið gult spjald áður í leiknum eftir fólskulegt brot á Dennis Irwin. Wright hefur sakað Sch- meichel um sóðalegt orðbragö í sinn garð vegna litarháttar síns. Engar sönnur hafa verið færðar á slík ummæli en heymarlaus varalesari segist geta fyllyrt að Schmeichel hafi sagt ,,F****** black bastard“ við Wright eftir leik liöanna í nóvember sl. Menn geta svo dæmt um hvort þessi ummæli flokkast undir kyn- þáttafordóma eða ekki. Ian Wright er með eina leiðin- legustu lundina í ensku úrvals- deildinni. Hann getur leikið vel þegar skapsmunir hans ná ekki tökum á honum. Þegar hins veg- ar fúlheitin og ruddaskapurinn ráða ferðinni er hann með leið- inlegri mönnum á leikvelli, sít- uðandi og brjótandi af sér á ruddalegasta liátt. Virtir „pennar" í virtum ensk- um blöðum hafa tekið Wright í gegn vegna framkomunnar á laugardag. Gula pressan hefur hins vegar vikið af vegi sann- leikans að venju og skelt skuld- inni á Schmeichel, hengt bakara fyrir smið og ekki í fyrsta skipti. Wright hefur sagt að hann vilji ekki valda leikmönnum í öðrum liðum óþægindum utan vallar með kærum. Erfitt er að skilja það á meðan hann virðist geta hugsað sér að stórslasa þá á leikvellinum. Það hefur hann sýnt með því að „tækla" menn æ ofan í æ eins og langstökkvari í lendingu í sandgi-yfjunni. -SK Gary Payton í liöi Seattle sækir hér að andstæðingi sínum. Hann skoraði 18 stig í nótt gegn Indiana og var næst stigahæstur í liði Seattle sem tapaði nokkuð óvænt gegn Indiana. Par með var bundinn endir á sjö leikja sigurgöngu liösins í NBA-deildinni. Símamynd Reuter Níu leikir í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt: Loks tap hjá Seattle - steinlá fyrir Indiana í nótt. Knicks vann Portland eftir framlengingu Níu leikir fóru fram í NBA-deild- inni i körfuknattleik í nótt. Úrslitin urðu sem hér segir: Boston-Sacramento.........105-111 Orlando-Miami...............98-86 Detroit-Golden State.....117-117 Milwaukee-Atlanta...........72-79 SA Spurs-Minnesota.........89-108 Indiana-Seattle.............92-78 Phoenix-76ers ............111-104 Portland-NY Knicks..........95-96 Vancouver-LA Clippers ......80-83 Minnesota Timberwolves náði merkum áfanga í nótt er liðið sigr- aði SA Spurs á útivelli. Liðið hefur nú unnið fleiri leiki en það hefur tapað og liðið hefur ekki getað stát- að af slíkum árangri áður þegar meira en mánuður er liðinn af keppnistímabilinu. Tom Gugliotta skoraði 29 stig gegn Spurs en Dom- inique Wilkins skoraði 20 fyrir Spurs. Will Perdue skoraði 19 stig og tók 17 fráköst. Dennis Scott og Rony Seikaly skoruðu 26 stig hvor þegar Orlando vann góðan sigur gegn Miami. Penny Hardaway var með 18. Jamal Mashburn skoraði 21 stig fyrir Mi- ami sem enn leikur án Alonzo Mo- uming sem er frá vegna meiðsla. Sjö leikja sigurganga Seattle var stöðvuð í nótt af Indiana. Reggie Miller skoraði 22 stig fyrir Indiana og þeir Rik Smits og Duane Ferrell voru með 14 stig hvor. Hjá Seattle var Shawn Kemp með 19 stig og 11 fráköst en Gary Payton skoraði 18 stig. Lið Seattle skoraði ekki stig í sjö mínútur í fjórða leikhluta. Enn gengur allt á afturfótunum hjá Boston Celtics og í nótt var liðið niðurlægt enn einn ganginn, nú af Sacramento Kings sem varla telst til sterkari liða deildarinnar. Mitch Richmond var óstöðvandi í leiknum og skoraði 38 stig fyrir Sacramento. Billy Owens skoraði 20 stig og Olden Polynice var með 16. Rick Fox skoraði 25 stig fyrir Boston og Antoine Walkr 24. Patrick Ewing var með 27 stig fyr- ir Knicks gegn Portland, þar af 5 í framlengingunni. Leikmenn Portland gátu komist yfir í blálokin en misstu knöttinn klaufalega þegar 13 sekúndur voru til leiksloka og leikmenn NYKnicks fognuðu enn einum sigrinum í vetur. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.