Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1997, Page 24
32
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997
Fréttir
Pamela Anderson
komin í fínt form
Þrátt fyrir oröróm um að
streita vegna hjónabandsörðug-
leika hefði valdið því að Pamela
Anderson hefði hríðhorast var
ekki annað að sjá en að hún
væri í finu formi er hún var í
stuttri heimsókn í Varsjá í Pól-
landi á dögunum. Pamela af-
henti einu af sjúkrahúsunum í
Varsjá peningagjöf.
Mónakósystur
í verkfalli
Gwyneth Paltrow er sama um peninga og hafnar góðu hlutverki:
Vill ekki vera í burtu
frá elsku Brad sínum
ar Uma Thurman, önnur vinsæl
ung leikkona i Hollywood, þessa
miklu ást þeirra Gwyneth og Brads
þar sem hún hefur fengið hlutverk-
ið í Avengers. Kvikmyndaspekingar
telja næsta vist að myndin sú muni
gera það ákaflega gott.
Gwyneth og Brad kynntust við
gerð glæpamyndarinnar Seven.
Hann féll samstundis fyrir henni og
gerði allt hvað hann gat til að heilla
þessa fallegu stúlku, söng henni
meira að segja kvöldlokkur, en varð
lítt ágengt. í fyrstu. Það var ekki
fyrr en hún heimsótti hann síðar
við kvikmyndatökur i Argentínu að
örvar Amors hittu stúlkuna í
hjartastað og síðan hefur slefan
ekki slitnað milli þeirra.
Gwyneth Paltrow er svo sjúklega „Brad hef-
ástfangin af honum Brad sínum Pitt ur gert samn-
að hún getur ekki hugsað sér að ing um að
vera frá honum lengur en lífsnauð- leika í kvik-
syn krefur. Þess vegna hafnaði hún mynd í New
kvikmyndahlutverki sem hefði fært York i fjóra
henni um fjögur hundruð milljónir mánuði en
króna í aðra hönd. The Aven-
Gwyneth var nefnilega boðið að gers verður
leika aðalkvenhlutverkið í kvik- tekin upp á
mynd sem er byggð á gömlum og Englandi.
vinsælum sjónvarpsþætti, The Það hefði
Avengers. þýtt hræði-
„Þetta olli mér miklum hausverk. lega langan
Mig langaði alveg rosalega í hlut- aðskilnað
verkið en svo fór að ég varð að segja fyrir okkur
nei,“ segir leikkonan unga, sem er og ég mátti
einhver sú eftirsóttasta vestur í einfaldlega
Hollywood um þesstir mundir. ekki til þess
hugsa,‘ ‘ held-
ur Gwyneth
áfram.
Og stúlkan
bætir við, í
sama dúr:
„Við Brad
Gwyneth Paltrow í hlutverki barpíu í nýj-
ustu myndinni sinni.
höfum strengt
þess heit að
ást okkar
gangi út yfir
allt. Það á
jafnt við um
vinnuna og
annað og við
verðum aö
standa við
það.“
Ekki harm-
Ástkona De Niros
vændiskona og fíkill
Systumar Karólína og Stefan-
ia af Mónakó eru sagðar orðnar
þreyttar á að koma fram við
opinberar athafnir. Þær létu
ekki sjá sig við árlega helgiat-
höfn nýlega sem móðir þeirra
Grace Kelly gætti vandlega að
sleppa aldrei þegar hún var á
lífi. Minna myndi mæða á systr-
unum ef Albert bróðir þeirra
fyndi konuefni en hann er orð-
inn 38 ára.
Nektarfyrirsætan Charmaine
Sinclair, sem var ástkona Roberts
De Niros í tvö ár, hefur viðurkennt
að hafa lifað tvöfoldu lífi, sam-
kvæmt fréttum
breskra slúður-
blaða. Hún er bæði
kókaínneytandi og
vændiskona en
sagði De Niro aldrei
frá því.
De Niro vissi um
að Charmaine sat
nakin fyrir og
hvatti hana til að
hætta. Hún fór að
ráði hans og birtist
nýlega í hlutverki
barstúlku í sjón-
varpsþætti.
Þau hittust í hvert
skipti sem hann
kom til London og
létu fara vel um sig á hótelherbergj-
um. Charmaine, sem er meðal dýr-
ustu vændiskvenna Bretiands, sagði
honum hins vegar aldrei frá því að
undir venjulegum
kringumstæðum
tæki hún 3 þúsund
pund, eða um 300
þúsund islenskar
krónur, fyrir nótt-
ina.
Charmaine, sem
býr hjá ömmu
sinni, segir ættingj-
unum að hún sé að
fara til útlanda í
fyrirsætustörf þeg-
ar hún í raun fer á
fund arabískra olíu-
kónga og auðugra
kaupsýslmnanna á
hótelum víðs vegar
um Evrópu.
Charmaine Sinclair.
Miðvikudaginn 12. mars
fylgir hin sívinsæla
fermingargjafahandbók DV
Þessi handbók hefur þótt nauðsynleg upplýsinga-
og innkaupabók fyrir alla þó sem eru í leit að
fermingargjöfum. Þeir sem hafa óhuga ó að koma
ó framfæri efni í þetta blað eru beðnir að hafa
samband við Gyðu Dröfn í síma 550-5000 sem
allra fyrst. Auglýsendum er bent ó að hafa sam-
band við Selmu Rut Magnúsdóttur, auglýsingadeild
DV, í síma 550-5720, hið fyrsta svo unnt reynist
að veita öllum sem besta þjónustu.
ATH.: Skilafrestur auglýsinga er til 28. febrúar.
Fergie rauðhaus var ekki fyrr komin heim úr skíðaferð til Sviss með dætrum
stnum og fyrrum ektamanni, Andrési prins, en hún brá sér á tískusýningu í
London. Þar var hávaðarok, af manna völdum, en Fergie iét sér fátt um finn-
ast. Símamynd Reuter
Connery í klemmu
vegna golfdellu
Skoski kvikmyndaleikarinn Sean
Connery er með algjöra golfdellu og
svo kann að fara að dellan sú komi
honum i klandur hjá skattmannin-
rnn á Spáni.
Þannig er að spænsku skattalögg-
una grunar að Connery dvelji leng-
ur en sex mánuði á ári hverju í
glæsihúsi sínu í Marbella. Lengur
mega útlendingar ekki dvelja i land-
inu án þess að borga skatta. Leikar-
inn segist hins vegar aðeins vera
fjóra mánuöi á ári á sólarströnd.
Hvað gerir skattmann þá til að
reyna að komast að hinu sanna í
málinu? Jú, hann sendir auðvitað
snuðrara sina á golfvelli vítt og
breitt um landið og heimtar að fá að
sjá hveijir hafi spilað þar og
hvenær, að sjálfsögðu í þeirri von
að finna nafh Connerys meðal gesta
Sean Connery í vanda.
þegar hann átti alls ekki að hafa
verið í landinu.