Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Side 4
4 MÁNUDAGUR 3. MARS 1997 Fréttir Skoðanakönnun DV um fylgi borgarstjórnarflokkanna: Sjálfstæðismenn næðu borginni með naumindum - meö átta fulltrúa kjörna í borgarstjórn á móti sjö frá R-lista Núverandi meirihluti Reykjavík- urlistans, R-listans, í borgarstjóm Reykjavíkur myndi falla naumlega ef gengið yrði til borgarstjómar- kosninga núna, samkvæmt skoð- anakönnun DV sem gerð var í síð- ustu viku af markaðsdeild Frjálsrar fjölmiðlunar hf. Sjálfstæðismenn myndu þá komast í meirihluta á ný eftir kosningamar í maí 1994. Niðurstöður könnunarinnar urðu á þann veg að 41,1 prósent sögðust styðja D-lista Sjáifstæðisflokks og 39,4 prósent R-lista Reykjavíkurlist- ans. Alls 17,2 prósent aðspurðra reyndust óákveðin og 2,3 prósent neituðu að svara spumingunni. R-listinn hefur misst 4 pró- sentustig Úrtakið í skoðanakönnun DV var 470 kjósendur í Reykjavík, þar af 230 karlar og 240 konur. Spurt var: „Hvaða lista mundir þú kjósa ef borgarstjórnarkosningar fæm fram núna?“ Sé einungist tekið mið af þeim sem tóku afstöðu í könnuninni sögðust 51,1 prósent ætla að kjósa D-listann og 48,9 prósent R-listann. Munurinn á fylgi listanna reyndist þvi aðeins 2,2 prósentustig. Miðað við útkomu listanna í kosningunum 1994 hefur fylgi R-listans minnkað um 4,1 pró- sentustig og fylgi D-lista aukist að sama skapi. Þá fékk R-listinn 53 pró- sent atkvæða og D-listi 47 prósent. Miðað við síðustu könnun DV á fylgi borgarstjómarflokkanna sem fram fór í lok júní á síðasta ári hefur R-listinn bætt við sig 5,3 prósentustig- um og D-listinn misst fylgi að sama skapi. Þá fékk R-listinn 43,6 prósent atkvæða þeirra sem afstöðu tóku en D-listinn 56,4 prósent. Hlutfall óá- kveðinna og þeirra sem vildu ekki svara spumingunni er heldur lægra nú en í síðustu könnun eða 19,5 pró- sent á móti 24,3 prósentum í júní sl. Sé borgarfúlltrúum skipt á milli flokkanna í samræmi við niðurstöð- ur könnunarinnar myndi D-listi 60% 50 .... 40 30 ---- 20 ---- 10 .... 0 ...- Fylgi boigarstjómar- flokkanna SJálfstæölsflokkur Reykjarvíkur- llstlnn Óikv./sv. ekkl Skoíanakömiun DV 4 Fylgi borgarstjórnarflokkanna 53,0% 47,0% REYKJAV KUR USTINN Niðurstöður kosninga 28. maí '94 DV afStÖÖU tóku m Skoðanakönnun bæta við sig manni frá síðustu kosn- ingum og fá 8 menn kjöma en R-list- inn missa mann og fá 7 menn i borg- arstjóm. Samkvæmt könnuninni núna er ekki svo mikill munur á afstöðu kynjanna nema að mun fleiri konur en karlar era óákveðnar í afstöðu sinni til flokkanna. í stuðningsliði sjálfstæðismanna em karlamir örlít- ið fleiri og konumar álíka mikið fleiri í hópi Reykjavíkurlistans.-bjb Skipting borgarfulltrúa - eftir Kosningar 28. maí '94 Stuttar fréttir Vaxtalækkunin horfin Vaxtalækkun sem varð á verðbréfamarkaði um miðjan febrúar er öll gengin til baka. Verðbréfasalar segja aö það sé vegna óhefts framboðs á spari- skírteinum ríkissjóðs á fostum kjörum. önnur bréf verði út- undan og til að gera þau áhugaverðari hafl vextir verið hækkaðir á þeim. RÚV sagði frá. Nýtt kortafyrirtæki Olíufélögin þrjú og nokkur fleiri fyrirtæki íhuga að stofna nýtt kreditkortafyrir- tæki, þar sem þau sem fyrir em séu of dýr bæði fyrir neyt- endur og þjónustuaðila. Stöð 2 sagði frá. -SÁ Skipting borgarfulltrúa - samkv. skoöanak. DV % REYKJAVl USTINN Skoðanakönnun DV Dagfari Harðir samningamenn Ekkert verður úr stækkun Jám- blendiverksmiðjunnar í Hvalfirði. Sú niöurstaða hlýtur að vera mikið fagnaðarefni fýrir þá íbúa á Vesturlandi, sem berjast fyrir því að sjáist til sólar í Hvalfirðinum. Auk þess em þeir á móti verk- smiðjum yfirhöfuð og hafa barist gegn nýju álveri í grennd við Grundartanga og öll atvinnustarf- semi sem fram fer í verksmiðjum er til óþurftar að mati þeirra sem vilja sjá til sólar í staðinn fyrir að sjá verksmiðjur. Það er því mikiil sigur fyrir náttúravemdarmenn og þá sem vilja vemda sólina í Hval- firði, að hætt verður við stækkun Jámblendiverksmiðjunnar. Hitt er annað mál að náttúm- vemdarsinnar áttu ekki þátt í þess- um málalokum. Það sáu fulltrúar eigendanna um. Það vora þeir sem kváðu stækkunina í kútinn. Þeir náðu nefnilega ekki samkomulagi um verðmæti verksmiðjunnar. Eig- endur jámblendisins em íslenska ríkið, eigendur norska fyrirtækis- ins Elkem og nokkrir Japanir, sem koma raunar lítið við sögu, því frændur vorir Norðmenn sáu um að drepa'málið. Þeir eru harðir Norðmenn og það voru líka harðir samninga- menn af hálfu íslenska ríkisins og við emm ekki aö gefa Norðmönn- um neitt og Norðmenn vilja greini- lega ekkert gefa íslendingum neitt og því fór sem fór. Sagt er að eitt hundrað til eitt hundrað og fjömtíu milljónum hafi borið í milli. Svoleiðis peninga gefa menn ekki frá sér. Nú var það að vísu svo að ef verksmiðjan hefði stækkað hefði verðmæti hennar aukist og ekki má heldur gleyma því aö með stækkun hefði þurft að reisa eða stækka orkuver við Sult- artanga og allt hefði þetta gefið eig- endunum meiri peninga í aðra hönd og þá ekki síst íslenska rík- inu. En fulltrúar íslenska ríkisins sáu eftir þessum hundrað milljón- um til Norðmannanna og Norð- mennimir sáu ekki ástæðu til að borga meir til íslendinga og þar sem Norðmenn vildu aukinn hlut í stærra fyrirtæki sem gaf meira af sér, vildu þeir kaupa af íslending- um þeirra hlut á verði sem íslend- ingar vildu ekki selja sinn hlut á. Enda fara íslendingar ekki að stækka jámblendið og gefa Norð- mönnum meir heldur en þeir eiga skilið miðað við verðmæti þeirrar eignar, sem nú átti að fara að stækka. Og með stækkuninni jókst að sjálfsögðu verðmæti verksmiðjunn- ar og fúlltrúar íslenska ríkisins vildu selja á því verði sem nam auknum verðmætum vegna stækk- unar, sem Norðmenn gátu ekki fallist á nema þeir keyptu fyrst vegna stækkunarinnar, því þeir vildu ekki stækka nema eignast aukinn hlut í stærri verksmiðju. Hér voru harðir samningamenn að fjalla um stækkun á verksmiðju, sem græöir og hækkar í verði við stækkun, en stækkar ekki nema eigendumir nái samkomulagi um verð á stækkuninni og verksmiðj- unni, fyrir og eftir stækkun. Menn sáu sem sagt gróðann og hagræð- inguna af stækkun, en gátu ekki komið sér saman um stækkun, vegna þess að þeir gátu ekki samið um verð á verðmætunum sem stækkunin hefði í fór með sér. Og nú verður engin stækkun og enginn gróði og enginn veit hvað hann á mikið í verðmætunum í verksmiðjunni vegna þess aö ekki náðist samkomulag um stækkun til að græða meira. Þar veldur mestu hversu harða samningamenn við eigum, sem gefa ekki eftir hundrað milljónir af verðmætum, ef líkur em á auknum verðmætum vegna stækkunar sem ekki getur orðið vegna ágreinings um verðmætin. Það verður áfram sól í Hvalfirði. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.