Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 3. MARS 1997 LEÐURHORNSOFI LEÐUR Á SLITFLÖTUM - ÝMSIR LITIR Smiðjuvegi 6d, Kópavogi, sími 554 4544 Útlönd Vopnaöir mótmælendur hrekja lögreglu á flótta: Stríðsástand ríkir í borgum Albaníu Átta ára gömul telpa beið bana í borginni Vlore í Albaníu í gær er hún varð fyrir byssukúlu. Vopnaðir menn hafa farið um götur borgar- innar og hrakið lögreglu og her- menn á flótta. Niu menn létu lífið, þar af þrír óbreyttir borgarar, í skotbardaga í Vlore á fostudagskvöld milli mót- mælenda og lögreglu. Vegna stríðs- ástandsins í Vlore og öðrum borg- um, þar sem mótmælendur hafa rænt vopnabúr lögreglu og hers, lýsti þingið í Albaníu yfir neyðará- standi í gær. Mótmælendur höfðu að engu yfir- lýsinguna um neyðarástand. í borg- inni Giirokaster í suðurhluta Alba- níu skutu mótmælendur af sjálf- virkum Kalashnikov-rifllum á lög- reglustöðina og kveiktu síðan í henni, að sögn sjónarvotta. Lögregl- an flúði er 30 grímuklæddir menn réðust á bygginguna. í norðvesturhluta landsins skutu fangaverðir til bana einn fanga og særðu þrjá eftir að fangar, sem reyndu að flýja, notuðu gisla sem skildi. Áður hafði um 100 fongum tekist að flýja úr fangelsi í borginni Sarande við Adríahaf. Þar rændu einnig mótmælendur vopnabúr lögreglu. Unglingar sáust ræna banka og verslanir og kveikt var í sex lögreglubifreiðum. Ekki kom til átaka við lögreglu þar sem hún var flúin. Almenningur, sem er reiður yfir Fjöldi manns hefur særst í óeiröunum í Albaníu undanfarna daga. Þessi mynd er tekin í höfuðborginni Tirana. Símamynd Reuter því að yfirvöld létu afskiptalaus fjárglæfrafyrirtæki, krefst þess að þingið verði leyst upp. Forsetinn er einnig hvattur til að bjóða sig ekki fram til endurkjörs en forsetakosn- ingar eru ráðgerðar í dag. Stjóm landsins fór frá á laugardaginn að ósk forsetans. Reuter JVC VIDEO '97 Hönnuður \ / vhs V Gerðu kröfur. Gerðu (jvc) kröfur! ,J$elstu eiginleikar: ^MYNDVAKI (Show View) 0 B:E:S:T: & Pro DIGI myndgæðakerfi. 0 Ótrúleg hæg- og kyrrmynd. 0 DA-4 íjögurra myndhausasett. (EH) 0 NTSC afspilun í Hi-Fi Stereo. 0 Aðgerðir birtast á sjónvarpsskjá. 0 Handhæg fjarstýring. 0 Mjög þægilegt notendaviðmá^v 0 Sjálfvirk stöðvainnsetning. 0 Hægir á sér í upptöku ef spólan er ekki nógu löng. Útsölustaðir: JVC VideoVerð '97 HR-A230E mono 2jahausa kr:29,900- stgr. HR-J238E mono 2ja hausa kr:32,900- stgr HR-A637EH Stereo 4ja hausa kr:53,900- stgr. HR-J638EH Stereo 4ra hausa kr:59,900- stgr- Fylgihlutir: 2 rafhlöður, fjarstýring, loftnetskapall, íslenskar leiðbeiningar og 3 JVC gasða myndbönd. FACQ Tækniverslun Faxafen 12, sími: 588-0444 Arkansas í Bandaríkjunum: 23 létust og hundruð slösuðust í hvirfilvindum 23 létu lífið og hundruö slösuðust, þar af margir alvarlega, á laugar- daginn er hvirfflvindar gengu yfir suðvesturhluta Arkansas í Banda- ríkjunum á iaugardaginn. Talið er að hundruð manna séu heimilis- lausir í kjölfar óveðursins. Á sumum svæðum varð raf- magns- og símabandslaust eftir að tré rifnuðu upp frá rótum og féllu á rafmagns- og símalínur. Ástandið var verst í hænum Apar einrækt- aðir í Banda- ríkjunum Vísindamenn í Oregon í Bandaríkjunum hafa einræktað tvo apa úr frumum sem teknar voru úr fóstrum, að því er greint var frá í Washington Post í gær. Komu apamir í heiminn í ágúst síðastliðnum. Þykir þessi árang- ur auka líkumar á að hægt verði að einrækta fólk. Jórdaníukon- ungur gefur munaöarleys- ingjum höll Hussein Jórdaníukonungur hefur fyrirskipað að höfl, þar sem erlendir konungar og forset- ar hafa gist þegar þeir hafa kom- ið í heimsókn til Jórdaníu, verði gerð að heimili fyrir munaðar- leysingja. Konungurinn til- kynnti þetta tveimur dögum eft- ir að hann heimsótti munaðar- leysingjaheimili með 200 böm- um. Hann kvaöst hafa legið and- vaka eftir að hafa séð við hversu slæm skilyrði bömin bjuggu. Reuter Arkadelphia sem er 80 kílómetrum suðvestur af Little Rock. Þar eyði- lögðust tugir heimila. „Við heyrðum viðvörunarsírenur fara í gang og fóram út og sáum óveðrið koma. Við hlupum inn á baðherbergið, settum púða yfir höf- uðin og báðum bænir okkar,“ sagði Kim Switlik, sem býr í úthverfl Little Rock, er hún lýsti veðrinu. Reuter Stuttar fréttir Orðrómur um valdarán Þjóðaröryggisráð Tyrklands hefur varað stjómvöld við því að fara af þraut lýðræöis. Orðrómur hefur verið á kreiki um mögulegt valdarán hersins. Yfir 500 fórust Yfir 500 manns létu lífið i jarðskjálftum í íran, Pakistan og Kína um helgina. 35 þúsund em heimilislaus í íran eftir jarð- skjálftana. Ösku Dengs dreift Ekkja Dengs Xiaopings dreifði ösku hans í hafið í gær sam- kvæmt ósk hins látna leiðtoga. Geimfarar lentir Þrír geimfarar, tveir Rússar og einn Þjóöverji, lentu í Kasakstan í gær eftir dvöl í geimstöðinni Mir. Heseltine sigurviss Michael Heseltine, aðstoðar- forsætisráðherra Bretlands, spá- ir því að íhaldsmenn fái að minnsta kosti 60 sæta meiri- hluta í komandi kosningum. Tugir þúsunda flýja Tugir þúsunda hútúa í Saír eru nú á flótta undan skærulið- um tútsa. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.