Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 3. MARS 1997 D V menning Snilld og brjálæði Bjarni H. Þórarinsson efndi til sjónháttaþings í Nýlistasafhinu fyrir rúmri viku í tilefni sýningar sinnar á svokölluðum Benduverkum og til- heyrandi fræðilegum útlistunum. Undirritaður hafði ekki tækifæri til að hlusta á erindi Bjama sjálfs en var hins vegar viðstaddur pallborðsum- ræður þar sem hópur mætra manna og kvenna lét í ljós skoðanir sínar á bendufræðum Bjarna og myndverk- um sem hann hefur unnið út frá þeim. Pallborðsumræðurnar voru bæði forvitnilegar og skemmtilegar og þar kom ýmislegt óvænt fram þó fátt væri sagt sem gerði viðfangsefn- ið skiljanlegra fyrir viðstadda, enda er það galdurinn við bendufræði Bjama að þau em óskiljanleg. Hins Myndlist Ólafur Gíslason óreiðuna. Það þýðir ekki að fræði hans séu raunverulegt tæki til slíkrar uppgötvunar. Orðmyndun- arkerfið sem Bjami hefúr byggt upp og formmynstrið sem hann hef- ur tengt því er eins og hvert annað lokað og óskiljanlegt kerfi sem ger- ir tilkall til að hafa höndlað ákveð- inn frumspekilegan samnleika. En það að vera eins og eitthvað þýðir í þessu samhengi ekki það sama og að vera það í raun og vera. Það skemmtilega og áhrifaríka við myndverk og bendufræði Bjarna er sannfæringin sem hann leggur í verkið. Sannfæringarkraft- urinn er angi af snilligáfunni sem Þorsteinn Gylfason gerir að um- ræðuefni í bráðskemmtilegri rit- gerð sinni, Snilld og brjálæði, í rit- gerðasafninu Að hugsa á íslenzku. Þorsteinn talar þar um það ein- kenni snillinga sem hann kallar flæði: „þá fær maður hugmynd sem er svo góð, að hún gerir mann að kórónu sköpunarverksins, gagntek- inn af öllu sem er, eins og ástfang- inn sem allir þekkja af eigin raun ...“ Og Þorsteinn bendir á að flæði sé „um margt áþekkt geðsjúkdómi sem heiti blátt áfram - eða ætti að heita - æði“. Á erlendu máli sé þessi sjúkdómur kallaður manía, sem Platón hafi talið undirrót skáldgáfunnar. Bendufræði Bjama Þórarinsson- ar em stórbrotið æði eða manía á mörkum snilldar og brjálæðis þar sem sannfæringarkrafturinn blæs sliku lífi í myndlíkinguna að hún getur villt mætustu mönnum sýn þannig að þeir taka líkinguna fyrir raunveruleikann sjálfan, rétt eins og snilligáfa málarans Apelle sem málaði merar af svo mikilli innlifun að þær fengu graðfola Al- exanders mikla til að frýsa og fýla grön, þótt aðr- ar hestamyndir létu þá ósnortna. Því verður það ekki skafið af Bjama að hann er mikill sjón- hverfingameistari og bendufræði hans snilldar- leg líking við ýmsa þá dulspeki sem lofar mönn- um lyklinum að öllum heimsins leyndarmálum. Takk fyrir skemmtunina, Bjami. Vísiakademía Bjarna H. Þórarinssonar stendur til 9. mars í Nýlistasafninu. Bjarni H. Þórarinsson: Vísirósir. vegar hafa þau yfír sér svipmót mik- illa vísinda og virðast jafnvel gera til- kall til þess að vera eins konar dul- málslykill að samhenginu sem liggur hulið á bak við alla óreiðuna í henni versu. Þátttakendur í pallborðsumræðun- um líktu rósamynstri Bjama við got- neska rósaglugga og búddískar mandölur og töntrar sem eiga að gefa okkur sýnilegt samband við ósýni- lega skipan alheimsins - og þá jafn- framt vald yfir henni - og mátti jafn- vel skilja á sumum að raunverulega dulmálslykla væri að finna í þessu flókna og margbrotna kerfi orða, ný- yrða og mynsturs, sem Bjami hefur þróað á síðastliðnum átta árum. Þá var bendu- fræðum hans líkt við gyðingleg kabbalafræði sem einnig eiga að geta opinberað okkur hulin lögmál um kosmos á bak við þá óreiðu sem blas- ir við. Ekki var laust við að manni fyndist farið að slá út í fyrir þátttakendum í pallborðsumræö- unum þegar farið var að líkja Bjama við sviss- neska málfræðinginn Saussure og verki hans við strúktúralisma eða póststrúktúralisma án þess að tilgreina frekar í hverju slík samlíking gæti verið fólgin. Fékk ég það sterklega á tilfinninguna að í þessari umræðu allri væri fólginn einn grund- vallarmisskilningur sem skapast af því að gera ekki greinarmun á einhverju fyrirbæri og mynd þess. Við getum alltaf sagt að portrettmynd standi fyrir ákveðna persónu en um það gildir ekki hið gagnstæða að einstaklingurinn standi fyrir eða sé mynd af portrettmynd. Ef við mglum saman þessu tvennu getur skapast háskalegur misskilningur. í mínum augum eru bendufræði Bjarna Þórar- inssonar eins konar líking við eða mynd af al- tæku kerfi sem á að skýra regluna á bak við Schubertiade Það er ótrúlega stutt síðan við ís- lendingar fórum að eigna okkur þátt í tónlistarmenningu Evrópulanda og rækja hana hér heima, og þó virðist tónlistarlífið öflugra hér en víða ann- ars staðar. Stærsta þáttinn í þessari tónlistarvelmegun eigum við að þakka þeim frábæm útlendu tónlist- armönnum sem komu hingað á sínum tima, settust hér að og kenndu íslend- ingum það sem þeir kunnu. Og enn knýja þeir dyra. Gerrit Schuil hefur ekki búið hér nema örfá ár en hefur sýnt að hann er til stórra hluta vís. Til dæmis stjórnaði hann Sinfóníuhljómsveit íslands á jólatón- leikum í hittifyrra og ætti að standa Tónlist Bergþóra Jónsdóttir oftar þar á palli, og nú stendur hann fyrir tónlistarhátíð í tilefni af 200 ára afmæli Schuberts, níu tónleikum, þar sem hann leikur bæði einleik og með einsöngvurum og hljóðfæraleikurum. Á tónleikunum í Kirkjuhvoli á laugardag var efnisskráin blönduð með söngtón- list og hljóðfæraleik, og komu sex tónlistarmenn fram auk Gerrits Schuils. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Guðni Franzson og Gerrit fluttu rómönsuna Ich schleiche bang und still hemm. Sigrún söng ynd- islega, Guðni undirstrikaði ljóðrænu verksins í afar lýrískum leik á klarínettuna og Gerrit batt þetta saman með fallegum leik á píanóið. Jón Þorsteinsson söng lagið Visin blóm úr ljóðaflokknum Malarastúlkunni fógru mús- íkalskt og áreynslulaust eins og á að vera, og dró fallega fram depurð og vonleysi ljóðmælandans og tregablandna vonma sem kviknar við tilhugs- unina um að blómin vakni á ný að vori og gleðji stúlkuna sem hann elskaði. Kolbeinn Bjamason lék á flautu með Gerrit tilbrigði sem Schubert samdi við lagið um Visnu blómin og kaus að túlka þau með fremur þurrum og hrjúfum tón; kannski til að undirstrika inntak ljóðsins, en ég hefði kosið að heyra rómantískari túlkun; meira víbrató, meiri mýkt og fyllri hljóm. Gunnar Kvaran mætti til þessara tónleika með stuttum fyrirvara i forfollum og lék með Gerrit eitt kunnasta verk Schuberts, Arpeggione sónöt- una. Samleikur þeirra var stílhreinn og fágaður; dýnamík skýrt mótuð og túlkunin djúp og áhrifarík. Einstöku óhreinir tónar breyttu engu þar um. Lokaverkið á tónleikunum var söngverkið Hirðirinn á hamrinum, fyrir sópran, píanó og klarínettu; síðasta sköpunarverk Schuberts. Fyrir söngvarann er þetta mjög erfitt verk; það spannar vitt radd- svið og krefst í þrískiptingu sinni ljóðræns söngs og dramatísks og létts kóloratúrsöngs. Hirðirinn á hamrinum gengur í gegnum tilfinn- ingalegt ferli eins og svo margar söngpersónur Schuberts. I upphafi er hann að hugsa um ástina sina sem er einhvers staöar óralangt í burtu; um miðbik verksins er hann orðinn angistarfullur og vonleysið nær á honum tökum; en í lokin vaknar vonin, því vorið er komið og hann býr sig af stað á nýjan leik. Þetta var stórglæsilegur tónlistar- flutningur. Að vonum mæddi mest á söngkonunni, sem túlkaði tilfmning- ar hirðisins af músíkölsku næmi. Sigrún svipti sér léttilega milli ljóð- rænu, dramatíkur og kóloratúrs og vantaði bara að maður fyndi lang- þráða lyktina af vormoldinni þegar hún söng í lokin „vorið kernur". Leikur Gerrits var sérlega mjúkur og þokkafullur, og leikur Guðna á klarínettuna þýður og hlýr. Guðni er ekki síðri í rómantíkinni en nýju tónlistinni, og lék þetta hreint ekki verr en gamli kennarinn hans George Pieterson í frægri upptöku með Elly Ameling og Irwin Gage. Þetta var góður endir á fínum tónleikum. Von- andi að Gerrit Schuil haldi áfram á sömu braut og að við skiljum þýðingu þess að hafa svona flinka menn á meðal okkar. Miktir listamenn. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Guöni Franzson og Gerrit Schuil á æfingu. DV-mynd GVA Hvernig erum við? Endurmenntunarstofnun Há- skólans er þjóðþrifastofnun undir stjórn Margrétar Björnsdóttur sem er óþreytandi að láta sér detta í hug spennandi kvöldnám- § skeið fyrir almenning - og hlusta * á hugmyndir annarra, sem ekki Íer minna virði. Ekki er heldur lít- ils virði að hún fær færastu sér- fræðinga til að kenna hjá sér, enda kemur fólk um langan veg á námskeiðin. Nú hefur Margrét safnað hörkuliði til að halda fyrirlesh'ar- öð um þjóðemi íslendinga á þriðjudagskvöldiun - til að kom- Íast að því hvers vegna við erum svona einkennileg. Hver eru tengsl þjóðernis og einstaklings- vitundar, er spurt, og er þjóðern- isvitund eins hjá konum og körl- | um? Hvaða áhrif hefur náttúran á : þjóðareinkenni - ef nokkur? Andrew Smith er ekki í vafa um að þau era töluverð, sam- | kvæmt nýlegri grein hans um ís- ■ lenska dægurmúsík í The Sunday I Times. „Það er ekki aðeins æðis- | leg náttúran sem laðar mann að íslandi, listalífið er alveg eins heillandi," segir hann og fullyrðir að nærri því allir Islendingar séu listamenn, meira að segja frum- I legri en annars staðar. „Björk couldn’t happen here,“ segir Andrew og rökstyður það með til- vísun í náttúra og þjóðtrú; kannski verður upplýst á nám- skeiðinu hvers vegna hún gat orð- ið til hér. Gullmolar úr Mannlífi Mannlif er komið út undir nýrri ritstjóm Hrafns Jökulsson- ar, sem fékk um sig ótímabæra minningargrein í þessu blaði þeg- ar hann yfirgaf Alþýðublaðið fyr- ir skemmstu. í nýja heftinu er ? margt skemmtilegt að lesa. Til 3 dæmis gefur Þorvaldur Þorsteins- son lífseigri goðsögn á kjaftinn i spjalli um leikrit sem hann skrif- i aði eftir pöntun frá Loftkastalan- S um: 5„Það eru alltof fáir sem fá að njóta þess að vinna verk sem þeir hafa þegar selt. Samkvæmt róm- antískum hugmyndum um listina í er listamaðurinn með því móti að | selja sig en það er 20. aldar mis- | skilningur því dáðustu verk lista- Ísögunnar vora pöntuð af mönnum sem höfðu engan áhuga á list. Að því gefhu að maður fái að vinna á eigin forsendum virkar það eins og góð vítamínsprauta að pantað sé hjá manni verk.“ Horfðu reiður um öxl Þórhallur Eyþórsson málvís- indamaður heggur á báða bóga í Igrein um nýjar skáldsögur í Mannlífi, og minnir ekki á annan meira en Matthías Viðar Sæ- mundsson í Storð sálugu fyrir rúmum áratug. Vegur hann hin nýju bókmenntaafrek og fmnur þau léttvæg; Guðmundur Andri er í íslandsfórinni að svara spurn- ingunni „How do you like Ice- land?“, Brotahöfuð Þórarins Eld- * járns er „hin hefðbundna sögu- I lega skáldsaga", Böðvar Guð- mundsson datt niður á aðra pott- þétta formúlu í Vesturfarasögum í sínum, fyrsta skáldsaga Gerðar Kristnýjar er ofvaxið tímaritsvið- 3- tal, og gefið er í skyn að Endur- koma Maríu Bjarna Bjarnasonar | sé komin annars staðar að ... Þungavigt Matthíasar hefur ÞórhaOur ekki, þótt skemmtilegm- : sé, en líklega hefur hann rétt fyr- ir sér þegar hann segir að Hall- J grímur Helgason hafi með 101 I Reykjavík gert djörfustu tilraun til að hressa upp á íslenskar nú- 3 tímabókmenntir síðan Guðbergur Bergsson skrifaði Tómas Jónsson. Samkeppnin væri þá helst frá sög- unni Þetta er allt að koma ...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.