Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Síða 36
44
MÁNUDAGUR 3. MARS 1997
Kók og
skatturinn
„Næst þegar fólk kjagar út úr
Hagkaupi með tíu lítra helgar-
skammtinn af kóki skyldi það
minnast þess að þar með var það
að styrkja fyrirtæki sem neytir
allra bragða til að víkjast undan
því að greiða sinn skerf til sam-
félagsins."
Guðmundur Andri Thorsson
rithöfundur, í Alþýðublaðinu.
Ætlar á toppinn
„Ég ætla á toppinn, hvar sem
ég geri það.“
Vernharð Þorleifsson júdó-
kappi, sem ætiar að gerast
norskur ríkisborgari, í Degi-
Tímanum.
Ekki bara þreyttur held-
ur einnig öskuillur
„Ég er ekki bara þreyttur á
þessu ástandi, heldur er ég
öskuillur yfir þeirri skítlegu
meðferð islenskra fyrirtækja og
íslensks atvinnuiífs á saklausu
og bjargarlausu íslensku verka-
fólki."
Ólafur B. Baldursson verka-
maður, á almennum fundi
Dagsbrúnar.
Ummæli
Torg þykjustunnar
„Það getur varla verið hag-
kvæmt, ekki einu sinni á torgi
þykjustunnar, að hafa ekkert
frambærilegt annað en eilífa
sameiningu markaða og tilfærsl-
ur á sama fólki.“
Guðbergur Bergsson rithöf-
undur, í DV.
Eiffel-turninn var hæsti turn sem
reistur var fyrir tíma sjón-
varpsmastranna.
Turnar og möstur
Heimsins hæsta mannvirki er
loftnestsstöng útvarpsins í Var-
sjá. Stöngin er 646 metra há. Hún
var fullgerð 1974 og tekin í notk-
un 22. júli sama ár. Þyngdin á
þessu mannvirki er 550 tonn og
hófst vinna við það í júlí 1970.
Með þessu mannvirki náðist aft-
ur til Evrópu met sem haldist
hafði i Bandaríkjunum allt síðan
Chrysler-byggingin í New York
fór upp fyrir Eiffel-tuminn í Par-
ís árið 1929.
Hæsti sjálfberandi timi
Möstrum er haldið uppi með
stögum, en stærsti sjálfberandi
turn í heimi er hinn 555 metra
hái CN-turn i Topronto í Kanada.
Smíði turnsins sem er úr styrktri
þg eftirspenntri steypu lauk 1974.
í 347 metra hæð er veitingastaður
sem tekur 416 manns og snýst
hann um sjálfan sig. í góðu
skyggni má sjá allt að 120 km
vegalengd. Eldingu slær niður í
efsta hluta turnsins um það bil
200 sinnum á ári.
Blessuð veröldin
Eiffel-turninn
Eiffel-turninn er hæsti turn
fyrir tíma sjónvarpsmastranna.
Hann var reistur fyrir heimssýn-
inguna árið 1900 og lauk smíði
hans í mars 1899. Eiffel-tuminn
er 300 metra hár sem þykir ekki
mikið í dag, en hann er og verð-
ur frægasti turn í heimi. þess má
geta að í stormi svignar hann
um allt að 13 sentímetra.
Kaldi og él
Kröpp 945 mb lægð hreyfíst hægt
norðaustur og grynnist og 960 mb
lægð 200 km suður af Reykjanesi
hreyfist norðaustur og grynnist
einnig.
Veðrið í dag
í dag má búast við suðvestan-
kalda og éljum sunnan- og vestan-
lands en norðan- og norðaustangolu
eða kalda með smáéljum við norð-
austurströndina. Það verður bjart
veður norðaustanlands í fyrstu en
vaxandi sunnanátt og hlýnandi veð-
ur síðdegis. Sunnanlands verður
þurrt og bjart veður. Frost verður á
bilinu 1-8 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 18:53
Sólarupprás á morgun: 8:25
Síðdegisflóð í Reykjavík: 12:50
Árdegisflóð á morgun: 1:40
Veðriö kl. 12 á hádegi í gœr:
Akureyri hálfskýjaó -5
Akurnes léttskýjaö -2
Bergstaöir skýjað -15
Bolungarvík skafrenningur -2
Egilsstaöir snjókoma -3
Keflavíkurflugv snjókoma -2
Kirkjubkl. snjóél -3
Raufarhöfn snjóél á síö. kls. -4
Reykjavík snjókoma -3
Stórhöfði snjókoma 0
Helsinki þokumóða 3
Kaupmannah. rigning og súld 10
Ósló skýjaö 8
Stokkhólmur súld 6
Þórshöfn skýjaö 0
Amsterdam rigning á síó. kls. 12
Barcelona þokumóöa 13
Chicago alskýjaö 0
Frankfurt léttskýjaö 16
Glasgow skúr á síö. kls. 6
Hamborg skýjaó 13
London rigning á síö. kls. 11
Lúxemborg skýjaö 15
Malaga léttskýjaö 19
Mallorca Miami skýjaö 16
París skýjað 13
Róm léttskýjað 18
New York þokuruöningur 6
Orlando skýjað 19
Nuuk léttskýjað -23
Vin skýjaö 13
Winnipeg heiðskýrt -24
Reynir Þór Reynisson, formaður Skotdeildar Keflavíkur:
Smáþjóðaleikarnir spennandi verkefni
félagsmönnum að fá alla þessa skot-
menn i heimsókn til okkar og ég er
fuilviss um að margir landsmenn
munu fylgjast með keppninni."
Skotdeild Keflavíkur var stofnað
1984 en hefur starfað sleitulaust frá
1987 og eru 80 félagsmenn skráðir í
félaginu. Þetta er þriðja árið í röð
sem Reynir er formaður en hann er
flinkur skotmaður sem byrjaði að
skjóta úr haglabyssu 1989 en var bú-
inn að skjóta úr riffli og skamm-
byssu nokkur ár þar á undan. Reyn-
ir er búinn að vera landsliðsmaður í
haglabyssuskotfimi síðan 1993.
Hann vann til bronsverðlauna á
Ólympíuleikum smáþjóða í Lúxem-
borg 1995 og er fyrsti og eini íslend-
ingurinn sem hefur unnið til verð-
launa í grein sinni. Þá hefur hann
unnið til margra annarra verðlauna
og verið valinn skotmaður Suður-
nesja flögur síðustu árin. Áhugamál-
in eru fá fyrir utan skotfimi og fjöl-
skyldu. „Sumarið er fullbókað í
skotfimi. Mér frnnst gaman að fara í
fjallaferðir á vetuma en það hefur
verið lítið um það síðustu ár vegna
anna I starfL" Reynir vinnur hjá
véladeild varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli. Eiginkona Reynis er Sig-
urlaug Hanna Jóhannsdóttir og eiga
þau einn dreng, Inga Þór, sem er
tveggja ára. -ÆMK
Myndgátan
DV, Suðurnesjum:
„Þetta er stærsti viðburður sem
hefur átt sér stað í sögu skothreyf-
ingarinnar og mikiil heiður að fá að
taka þátt. Við ætlum okkur að halda
leikana með miklum sóma og hefur
undirbúningur staðið síðan í janúar
i fyrra,“ sagði Reynir Þór Reynis-
son, formaður skotdeildar Keflavík-
ur, sem halda Ólympíuleika smá-
þjóða í skotfimi í aðstöðu sinni í
Heiði í Höfnum, Reykjanesbæ, 3.-7.
júní í sumar. Keppt verður í 5 grein-
um; skotfimi, loftskammbyssu, loft-
rifjfli og þremur haglabyssugreinum.
Skotdeild Keflavíkur hefur staðið i
ströngu í rúmt ár við að fegra skot-
svæði sitt og keypt ný tæki og tól.
„Við erum búnir að fjárfesta í svo-
kallaðri trapgryfju. Hún er 20 metra
Maður dagsins
löng með 15 kastvélum og kostaði í
kringum 5 milljónir. Gryfjan er
steypt og unnin í sjálfboðavinnu. Þá
þurfum við að færa veg og ætlum að
fegra svæðið enn betur með tyrfingu
og setja niður plöntur."
Reynir segir að áætlaður kostnað-
ur við að halda keppnina verði í
kringum 10 milljónir fýrir utan alla
sjálfboðavinnu sem er gífurleg. Til
Reynir Þór Reynisson.
að fjármagna dæmið að hluta til seg-
ir Reynir að deildin hafi gert 3 ára
samning við íþróttaráð Reykjanes-
bæjar. Einnig hafa ýmsir styrktar-
aðúar og félagsmenn deildarinnar
komið þar nálægt með ýmsum fjár-
framlögum. „Við gerum ráð fýrir
60-80 keppendum og fylgdarliði. Þá
verða 50-60 starfsmenn á meðan
keppnin stendur yfir. Það eru frá-
bærir skotmenn sem munu mæta.
Kýpurbúar eru með þeim 15 bestu í
heiminum og eru gríðarlega sterkir.
Það er mikil tilhlökkun hjá okkur
Veldur ekki málinu
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi.
DV
Næstsíöasta umferöin f 1. deild
kvenna í körfunni hefst f kvöld.
Körfubolti og
handbolti
Allt er á rólegu nótunum í inn-
lendum iþróttum í dag enda að
baki mjög svo viðburðarík helgi.
Deildakeppnin í körfuboltanum
er að ljúka og í kvöld hefst 20. um-
ferðin og sú næstsíðasta í 1. deild
kvenna, einn leikur er á dagskrá,
er það viðureign ÍS og ÍR sem
fram fer í Kennaraháskólanum og
hefst leikurinn kl. 20. Þá eru fjór-
ir leikir í unglingaflokki.
íþróttir
Deildakeppnin í handboltanum
er einnig á lokastigi og liður brátt
að úrslitakeppninni. í kvöld er
einn leikur í 2. deild karla, eru
það KR og Ögri sem leika í Laug-
ardalshöllinni og hefst leikurinn
kl. 19.00. í kvöld eru einnig nokkr-
ir leikir í 1. flokki og 2. flokki
karla. Keppni í 2. deild heldur
áfram á morgun, en þá leikur
Víkingur við Breiðablik í Smár-
anum. Víkingur hefur ekki tapað
leik í deildinni í vetur og er þeg-
ar búið að tryggja sér sæti í 1.
deild næsta vetur.
Bridge
Spilin i aðalsveitakeppni Bridge-
félags Reykjavíkur, sem lauk síðast-
liðinn miðvikudag, voru forgefin.
Sömu spil voru spiluð á öllum borð-
um og mikil skiptingarspil voru al-
geng í síðustu umferðinni. í þessu
spili er vandratað í besta samning-
inn fyrir NS en fjögurra hjarta
samningurinn á skástu möguleik-
ana á að standa. Norður á hins veg-
ar allsérstæða skiptingu og margir
spilaramir í norður lentu í erfið-
leikum með að meðhöndla hendina.
Stærsta slysið var þó í þeim sögnum
sem hér fara á eftir, norður gjafari
og allir á hættu:
4 3 4 KG65 * 9 4 — * ÁKG1 N 2 0764 4 Á974
V K5 ♦ ÁD9875 V A * D107 4 K432
* D952 S 4 83
Norður 4 D108 ÁG86432 ♦ G106 4 — Austur Suður Vestur
1 4 pass 4 4 pass
4 * pass 4 •* pass
4 Grönd pass 6 4 pass
7 * Dobl p/h
Það er ekki hægt að segja annað
en að sagnir einkennist af slöku
mati á spilunum. Kerfið var stand-
ard og eðlilega opnunin á hendi
norðurs, er að vekja á einu laufi og
tvísegja svo spaðann til að sýna 5-6+
skiptingu í spaða og laufl. Suður
gefur slemmuáskorun með 4 laufum
sem eiga að lofa 4+ spilum í spaða
og stuttlit í laufi. Hendi suðurs upp-
fyllir ekki þau skilyrði auk þess
sem gengið er framhjá góðum
hjartalit. Fjögur lauf ættu að draga
úr spilum norðurs, en hann getur
ekki stillt sig um að segja frá fyrir-
stöðu í tígli. Suður ofmetur enn spil-
in og segir frá hjartafyrirstöðu. Þeg-
ar kemur að norðri að segja við 6
spöðum, telur hann sig enn eiga
eitthvað vansagt og lyftir í
alslemmu. Þá var austri nóg boðið.
Þrátt fyrir að útspilið hafi verið
hjarta, en ekki tígull, missti sagn-
hafi gjörsamlega vald á tromplitn-
um og fór 6 niður. 1700 til AV var
verðskulduð refsing.
ísak Örn Sigurðsson