Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Síða 10
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997 T>V 24*1 ★ *■ lyndbönd í)emi Moore - hátt launuð kvikmyndastjarna sem hefur orð fyrir að vera erfið í umgengni Eftir að hafa fengið greidd laun sín fyrir Striptease var Demi Moore hæst launaða leikkonan í Hollywood. Fyrir leik sinn í mynd- inni fékk hún tólf miUjónir dollara sem er metupphæð hjá leikkonu. Hún er samt sem áður ekki nema hálfdrættingur á við vinsælustu karlleikarana og þar er meðtalinn eiginmaður hennar, Bruce Willis. Það er samt ekki vist að hún haldist í þessum launaflokki því síð- ustu þrjár kvikmyndirnar sem hún hefur leikið í, The Scarlett Letter, The Juror og Striptease hafa ekki -------------- fengið þá aðsókn sem vonast var eft- ir og hefur Demi Moore orðið ómælt fyrir barð- inu á fjölmiðlafólki vegna þátttöku sinnar í Striptease. En Moore hefur breitt bak og hefur sýnt það hingað til að hún er hörð af sér og er al- veg eins vist að hún standi af sér allar árásir, allavega hefur eftir- spurn eftir kröftum hennar ekki minnk- að. Það er frekar að það fæli kvikmynda- leikstjóra frá henni hversu hún er sögð erf- ið og stjórnsöm og mætir alltaf til leiks með fullt af aðstoðar- fólki. (Við gerð Striptease hafði hún átta aðstoðarmenn og lífverði). Ekki eru samt allir leik- stjórar hræddir við hana. Roland Joffe, sem leikstýrði henni í The Scar- lett Letter, segir: „Ég hef orðið var við það áður með fólk sem á , að baki erfíða æsku eins og Demi Moore, fólk sem þekkir ekki hvað Þegar leikstjórinn kunni Joel Schumacher rakst á Demi Moore í orðsins Jyllstu merkingu jyrirframan skrifstofu sína í Universal-kuik- myndaverinu var hann að leita að leikurum í St. Elmo’s Fire. Eitthvað ífari stúlkunnar heill- aði Schumacher svo hann bað aðstoðarmann sinn um að hafa upp á henni og athuga hvort hún vœri leikkona. er að vera hamingjusamt bam, verður eins og tví- skiptur persónuleiki. Demi getur verið erfíð og þrjósk, en hún er oftar mjög gefandi, skemmtileg og opin manneskja sem dásamlegt er að vinna með.“ Ömurleg æska í dag hefur Demi Moore allt það sem hugurinn gimist. Hún á frægan og myndarlegan eig- inmann, þrjú ung böm og dásamlegt heimili, eins og hún orðar staklega rödd hennar sem fór í taugarnar á mörg- um. Demi Moore vann samt á og þótti mörgum eftirsjá í henni þegar hún hætti í þáttaröðinni Einn mótleikari hennar sagði að litli sjónvarps skermurinn rúmaði ekki svona stóra manneskju Demi Moore tók áhættu þegar hún hætti í ör uggu starfi og var nánast á götunni þegar leik stjórinn kunni, Joel Schumacher, rakst á hana í orðsins fyllstu merkingu fyrir framan skrifstofu sina í Universal kvikmyndaverinu. Hann var þá að leita að leikurum í St. Elmo’s Fire. Eitthvað í fari stúlkumar heillaði Schumacher svo hann bað aðstoðarmann sinn um að hafa uppi á henni og athuga hvort hún væri leikkona. Þá hafði Moore leikið nokkur smáhlutverk í kvikmynd- um. Réð hana og rak aftur Demi Moore greip tækifærið feginshendi en gætti sín ekki sem skyldi. Á þessum tíma lifði Moore vægast sagt vafasömu lífi og þegar kom að prufutökum fyrir myndina mætti hún uppdópuð og gat lítið leikið. Schumacher sagði við hana að hann ætlaði ekkert að fara að gefa einhverjum dópista fullt fangið af peningum til þess eins að hún gæti drepið sig og rak hana á staðnum. Demi Moore sá að tækifærið var að renna úr höndum henni, náði sér niður á jörðina og grátbað Schumacher um að ráða sig aftur og lofaði öllu fogm. Schumacher sagðist skyldu ráða hana færi hún í meðferð og það geröi hann þegar hann hafði athugað á hælinu hvort hún hefði tekið meðferðina alvarlega. Margir ungir og efnilegir leikarar léku í St. Elmo’s Fire og héldu þau hópinn um tíma eftir að kvikmyndatöku lauk og myndin náði miklum vinsældum. Þar sem þama fór hópur sem gekk Scarlett Letter leikur Demi Moore þekkta skáldsagna- persónu, Hester Prynne. hratt um gleðinnar dyr fékk hann nafnið The Brat Pack í Hollywood og var þá verið að vísa til hins fræga djammklíkuhóp Franks Sinatra, The Rat Pack. í dag eru allir þessir leikara fallandi stjömur nema Demi Moore. Að vísu lék Andie MacDowell einnig í myndinni en hún var aldrei talin með hópnum. Demi Moore hefúr stofnað eigið fyrirtæki og var fyrsta kvikmyndin sem hún framleiddi Now and tiien, um fjórar stúlkur á gelgjuskeiðinu. Sú mynd fékk mun betri viðtökur en síðustu mynd- ir hennar. Lék hún sjálf lítið hlutverk í myndn- inni og fékk þekktar leikkonur til að leika með sér stúkumar á fullorðinsárum. Þá talaði hún fyrir sígaunastúlkuna í Hringjaranum í Notre Dame. Hér á eftir fer listi yfir þær kvikmyndir sem Demi Moore hefur leikið í: Parasite, 1982 Blame it on Rio, 1982 No Small Aftair, 1984 St. Elmo’s Fire, 1985 About Last Night.... 1986 One Crazy Summer, 1986 Wisdom, 1986 The Seventh Sign, 1988 We’re No Angels, 1989 Ghost, 1990 Nothing but Trouble, 1991 Mortal Thoughts, 1991 The Butcher’s Wife, 1991 A Few Good Men, 1992 indecent Proposal, 1993 Disclosure, 1994 The Scarlett Letter, 1995 Now and Then,1995 The Juror, 1996 Striptease, 1996 -HK Hlutverk Meredith Johnson í Disclosure kom henni í flokk hæst- launuðu leikara. Guffi bregöur sér f ýmis gervi f Guffagríni. Guffi á sölu- myndbandi Kvikmyndin Guffagrín (The Gooy Movie) er fyrsta teikni- myndin í fuilri lengd þar sem hin ástsæla teiknimyndaper- sóna Walts Disneys, Guffl, er í aðalhlutverki. Mynd þessi náði miklum vinsældum í Bandaríkjunum og var sýnd hér í Sam-bíóunum við ágæta aðsókn. Stutt er síðan Guffagrín kom út á mynd- bandi og er eingöngu um að ræða sölumyndaband en sá siður hefúr verið hafður und- anfarin ár með teiknimyndim- ar frá Disney. í Guffagríni á Guffi viö vandamál að stríða sem flestir foreldrar kynnast. Guffi á nefnilega soninn Max sem er kominn með alvarlega ungl- ingaveiki. Til að bjarga málum stingur Guffi upp á að þeir feðgar fari í ferðalag saman. Hugmynd þessi fellur í grýttan jarðveg hjá Max þar sem hann er að gera hosur sínar grænar fyrir flottustu stelpunni í skól- anum. Guffi hefur samt sitt fram og fara þeir í ferð saman sem verður sannkölluð ævin- týraferð. Prinsessusafnið Sam-myndbönd hafa einnig sent frá sér á sölumyndbandi fyrstu spóluna í Prinsessusafn- inu og þar segir frá hinni fogru Jasmín sem heillaði Aladdín í hinni þekktu ævin- týramynd. Aladdín kemur að sjálfsögðu við sögu í þeim tveimur myndum sem eru á spólunni en það er Jasmín sem er aðalpersópnan og lend- ir hún í miklum ævintýrum. Myndirnar tvær á spólunni heita Hli garðurinn og Elsku Jasmín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.