Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1997, Qupperneq 5
-U V FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997
fpnlist,
Flóttamenn á leiðinni
Dansunnendur ættu að
vera komnir 1 rétta gírinn
og famir að hita upp því
þremenningamir í Fugees
stiga á stokk á sviði Laug-
ardalshallarinnar til að
skemmta landanum nk.
þriðjudag, þann 20. maí.
Það ætti að vera óþarfi að
kynna sveitina enda var
önnur plata hennar, The
Score, söluhæsta erlenda
platan á íslandi á síðasta
ári.
Það má segja að hin ein-
stæða blanda sveitarinnar
af fönki, hip- hoppi og
rappi hafi átt stærsta þátt-
inn í vinsældum Fugees.
„Ég fylgdist með grinara
skemmta sem sagði að
rapparar væru ekki færir
um neitt annað en að halda
um hljóðnemann með
annarri og kloiið á sér með
hinni,“ segir Wyclef „Clef'
Jean, hinn Haitíættaði
prestssonur og rytmagítar-
leikari sveitarinnar, „og
við erum staðráðin í að
sýna fram á að það býr
miklu meira í hip-hop-tón-
listinni er fólk heldur.“ Og
það er óhætt að segja að
sveitinni hafi tekist að
sanna mál sitt um leið og
hún hefur gjörbreytt stefhu
hip-hop- bylgjunnar.
Aðrir meðlimir tríósins
eru söngkonan Lauryn „L“
Hill, sem fer jafn auðveld-
lega með blíðustu ballöður, tilfinn-
ingaþrungna soultónlist og rapp, og
Prakazrel „Pras“ Michel djáknason-
ur, sem getur leikið lygilegustu list-
ir með röddina eina að vopni.
I upphafi voru...
Lauryn og Pras i sama mennta-
skóla. Þau stofnuðu hljómsveitina
Tranzlator Crew ásamt Clef, frænda
Pras, og börðust þau af mikilli
hörku í sex ár við að koma tónlist
sinni á framfæri. Þá höfðu þau
breytt nafni sínu í Fugees og debút-
eruðu með diskinum Blunted on
Reality. Þegar þar var komið hafði
sveitin skrapað saman fyrir þokka-
legasta stúdíói í kjallaranum en
enn þann dag í dag er það í þessum
sama kjallara sem Fugees-tónninn
er skapaður.
Nafnið Fugees er komið úr orð-
inu refugees eða flóttamennimir
eins og kalla mætti það í íslenskri
þýðingu. Það á að tákna flótta-
manninn sem býr í hugum okkar
allra en auk þess er nafnið nátengt
uppruna Clef og Pras sem eru báðir
einlæg og fersk.
Og við hverju er
að búast á tón-
leikum Fugees?
„Þú getur búist
við að vera færð-
ur upp á æðra
plan,“ segir Clef.
„Ég gæti gripið í
hljómborð eða
harmoniku,
Lauryn gæti
fiktað á gítarinn
eða Pras farið á
kostum með bass-
ann. Allavega eru
okkar tónleikar
raunverulegir.“
-ggá
The Fugees hafa risið hátt
og ekki að ástæðulausu enda
höfðar tónlist þeirra til mun
breiðari áheyrendahóps en
höröustu hip-hoppara.
ættaðir frá Haítí. í Bandaríkjunum
er að finna fjölda Haítíbúa sem hafa
farið þangað í leit að pólitísku frelsi
og bættum lífskjörum. Reyndar er
fiöldinn svo mikill að orðið flótta-
maður er oft notað fyrir Haítibúa
yfirleitt.
Segja sögur
Á Blunted on Reality var að finna
smellinn Nappy heads en endur-
hljóðblöndunin af honum rauk upp
vinsældalistana og fékk gríðarlega
góða útvarpsspilim. Sveitin lagðist
í tónleikaferðir á sama tíma, dá-
leiddi áheyrendur með blöndu af
ragga-rokki, gospel og hip-hoppi og
undirbjó jarðveginn fyrir nýjasta
afrekið, breiðskífuna The Score.
„Score er eins og útvarpið á fimmta
áratugnum. Hann segir sögu,“ segir
Lauryn „það má segja að hann sé
hip-hop-útgáfa af Tommy, geri það
sama fyrir hip-hoppið og The Who
gerðu fyrir rokkið." Það er óhætt
að segja að Lauryn hafi rétt fyrir
sér. The Score flæðir áfram og hríf-
ur hlustendur með sér, jafht ein-
arða hip-hoppara og hverja aðra þá
sem kunna að meta taktfasta gæða-
tónlist.
Clef segist telja að sveitin hafi
umbreytt hip-hoppinu, þó svo
henni séu ekki endilega þakkaðar
þessar breytingar. „Ég hef séð
hvernig tónleikar ýmissa lista-
manna hafa batnað
eftir að þeir hafa
komið fram með okk-
ur, þeir hafa lært af
okkur rétta „sándið",
þ.e. það sem gefur af
sér lögin sem finna
má efst á vinsælda-
listunum. - Ekki hóg-
værust allra, þau í
Fugees, en hvers
vegna þurfa þau þess
þegar þau hafa allt
sem þarf?
Veriö því á varð-
bergi, Fugees eru á
leiðinni og þau eru
stolt, hávær, frumleg,
Áheyrendur koma til með að heyra hina engilblíðu
rödd Lauryn fara upp í hæstu hæðir í Laugardals-
höll nk. þriöjudag.
StjéfRHgjSf
Kvijnyndtí
swraw**
1 Sjónvarpsniym&'
Dasaður söngvari stöðvar tónleikaferð
Breska hljómsveitin James varð að fresta tón-
leikaferð sinni um Bandaríkin eftir einungis
tvenna tónleika þar sem söngvari sveitarinnar,
Tim Booth, gat sig hvergi hrært vegna verkja í
hálsi og öxlum. Booth er þekktur fyrir að fara
hamforum á sviði en það er athyglisvert að
nýjasta plata sveitarinnar, sem kom út í lok febr-
úar, heitir því kostulega nafni „Hálshnykkur"
eða Whiplash á ensku.
Taylor með nýja plötu
Hjartaknúsarinn sæti, James Taylor, gefur út
plötuna Hourglass á mánudag. Hann hefur ekki
gefið út sólóplötu síðan platan New Moon Shine
kom út árið 1991. Hægt er aö hlusta á brot af plöt-
unni á slóðinni www.music.sony.com/Music/Art-
istlnfo/JamesTaylor/.
Loggins snýr aftur
Bandaríkjamenn kalla Kenny Loggins konung
tónlistar níunda áratugarins (við íslendingar vit-
um betur, Wham og Duran Duran voru kóngam-
ir þá). Flestir töldu að Loggins væri hættur öllu
tónlistasrtandi en enn telur kappinn sig hafa eitt-
hvað til málanna að leggja. Hann á lagið For the
First Time í myndinni One Fine Day og er að
vinna að gerð bókar og plötu sem fialla um sam-
líf Loggins og konu hans. Bókin og platan munu
heita The Unimaginable Life: Lessons Leamed on
the Path of Love.
Fleiri sjaldgæf lög á netinu
Á slóðinni www.trippingdaisy.com geta aðdá-
endur The Tripping Daisys náð sér í tónlist sem
sveitin flutti á tónleikaferð sinni um Bretland
sem kallaðist Time Capsule.
Rótari Marilyn Manson deyr
Ljósamaður hljómsveitarinnar umdeildu,
Marilyn Manson, lést eftir að hann féll um 30
metra úr ijósakerfi sveitarinnar.
Suðrænt karnival á leiðinni
Jean Wyclef úr Fugees er aðalmaðurinn á plöt-
unni The Carnival sem gefin verður út þann 24.
júní næstkomandi. Með Wyclef verða tónlistar-
menn úr öllum áttum, þar á meðal Neville
Brothers, Lauryn og Praz (úr Fugees) og Bee
Gees svo einhverjir séu nefndir.
Sony vill stöðva óopinberar Oasis-síður Út-
gáfurisinn Sony hefur skorið upp herör gegn
óopinberum Oasis- vefsíðum á Intemetinu. Að-
gerðir fyrirtækisins njóta fyllsta stuðnings með-
lima Oasis en þær felast meðal annars í því að
reyna að taka af netinu siður sem innihalda
ljósmyndir af Oasis, lög og texta. Aðdáendur
Oasis sem hafa sett upp síöur era síður en svo
ánægðir með þetta tiltæki Sony og Oasis. Þeir
hafa stofnað sérstök samtök til höfuðs þessum
aðgerðum. Þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveit
styrkir aðgerðir af þessu tagi en þær koma til
þar sem mikið af röngum upplýsingum um nýtt
lag Oasis, Do You Know What I Mean, var dreift
á Internetinu.