Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1997, Side 10
★ *
★
24 * .
*■
★ *
tyndbönd
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 J3"V
Andie MacDowellog Hugh Grant í
Four Weddings and a Funeral.
Ástfangin Andie MacDowell í Mich-
ael.
í Multiplicity lék Andie MacDowell
eiginkonu sem þarf aö þola eigin-
manninn í fjórriti.
launa og mikla aðsókn. Fyrir leik
sinn í þeirri mynd fékk hún viður-
kenningu kvikmyndagagnrýnenda i
Los Angeles sem besta leikkona árs-
ins og tilne&iingu til Golden Globe
verðlaunanna.
Hollywood fer illa með leikkonur
Andie MacDowell er ekki hrifín af
því hvernig farið er með leikkonur í
Hollywood: „Það fyrsta sem fram-
leiðendur og leikstjórar segja er að
við verðum að fara í megrun. Það er
Þrátt fyrir mótlætið gafst Andie
MacDowell ekki upp og barðist fyrir
tilveru sinni í Hollywood. Hún fékk
smáhlutverk í St. Elmo’s Fire en sú
kvikmynd sem gerði það að verkum
að hún fékk sjálfstraust á ný sem
leikkona var Sex, Lies and Videota-
pes, lítil mynd sem hlaut fjölda verð-
Mich-
ael: „Ég
var að
vmna
tokur
- gerir ekkert
sem börn
hennar gætu
skammast sín
fyrir ,
Andie
MacDowell
er glæsileg
leikkona
sem vann ^
hug og hjörtu
heimsins í £"J
Sex, Lies and
Videotapes og
Four Wedding and a
Funeral. Hún hefur
haldið skynsamlega
á spöðunum, leikið
i fáum en góðum
kvikmyndum og
verið einstak- Á
lega heppin jÆ
í vali. Má jM
ncfna
vm-
’ hvm
á sér
f nyja
hlið sem
kúreka-
Multiplicity
þegar ég fór í
söngprófið. Ég
stóðst það með ágæt-
um en var ekki fyrr
búin í prófinu en ég fékk
hálfgert hræðslukast þeg-
ar ég fór aö hugsa um það
hvemig söng mínum yrði
tekið. Það var síðan mikill
léttir að vita að ég átti að vera
hrædd við að fara upp á svið að
syngja, fannst það hug-
hreystandi,” segir Andie
MacDowell um fyrstu reynslu sína
af að syngja í kvikmynd.
Niðurlægingin
sælar
kvik-
myndir
eins og
Ground-
hog Day,
Green
Card og
nú síðast
Michael
en i þeirri
mynd sýn-
songvari
og tekst vel
upp.
í viðtali seg-
ir hún að Nora
Ephron, leik-
stjóri
Michaels, hafi
fyrst af öllu
gáð hvort
hún gæti
sungið þegar
hún var að
ráða hana í
hlutverk
blaða-
mannsins
og dýravin-
arins í
Það er engin furða þó Andie Mac-
Dowell sé varfærin og velji hlutverk
sín vel og vandlega. Hún þekkir það
að vera niðurlægð í Hollywood. Áður
en Andie MacDowell lagði fyrir sig
kvikmyndaleik var hún ein hæst
launaða fyrirsæta í heiminum. Hún
fékk tilboð um að leika aðalkven-
hlutverkið í Greystoke: The Legend
of Tarzan, Lord of the Apes. Ekki
voru framleiðendm- og leikstjóri
ánægðir með frammistöðu hennar,
sérstaklega var það þó rödd hennar
sem fór fyrir brjóstið á þeim og var
Glenn Close fengin til að tala fyrir
hana í myndinni. Má segja að með
þessu hafi leikferill MacDowell verið
nánast dauðadæmdur frá byijun og
hún upplifði hvemig það er að falla
af stalii stjömunnar niður í hyldýp-
ið. Hún er því virkilega ánægð með
að hafa fengið hlutverkið í Michael
út á rödd sína: „Stundum þegar eitt-
hvað slæmt hendir mann þá verður
maður betri persóna fyrir vikið. Ég
tel að niðurlægingin í Greystoke hafi
gert mig aö betri leikkonu."
Eg vil líta út eins og
kona en ekki eins og
einhver stelpa.
Ég mundi elska það
að taka þátt í gerð
heimildarmyndar um
fallegar konur sem
mótvœgi við
hlœgilegt útlit
Barbie-dúkkunnar
niðurdrepandi að þurfa alltaf að
hlusta á þetta. Fyrsti leikstjórinn,
sem ekki bað mig að fara í megmn,
var Peter Weir (Green Card) en hann
er undantekning. Ég hef sem betur
fer ekki þurft að hafa miklar áhyggj-
ur af þessu, en það er hræðilegt til
þess að vita hvemig Cher og
Kathleen Turner hafa verið opinber-
lega niðurlægðar og nú síðast þurfti
Alicia Silverstone að fara í gegnum
þann sama hreinsunareld. Þeir vilja
að við séum eins og Barbie-dúkkur
en staðreyndin er að við erum það
ekki og verðum það ekki. Ég vil líta
út eins og kona en ekki eins og ein-
hver stelpa. Ég mundi elska það að
taka þátt í gerð heimildarmyndar
um fallegar konur sem mótvægi við
hlægilegt útlit Barbie-dúkkunnar."
Það má segja að í Michael sé
Andie MacDowell að leika hlutverk
sem hún hefur tileiknað sér, konu
sem er annað hvort ástfangin eða að
leita að ástinni, án þess þó að reyna
um of. Nora Ephron, sem leikstýrði
Michael, segir um Andie MacDowell
að það sem einkenni hana sem
leikkonu sé hvað hún er sérlega góð
þegar hún er að leika á móti tilfinn-
ingaköldum körlum. „Hún hitar þá
upp.“
Þetta gerir Andie MacDowell án
þess að leika i djörfúm atriðum: „Ég
geri ekkert sem böm mín gætu
skammast sín fyrir,“ segir hún en
hún á þijú börn. Andie MacDowell
tekur þó fram að það sé aldrei að
vita nema hún leiki einhvern tím-
ann nakin: „Ég er sérfræðingur í að
standa aldrei við stóm orðin sem ég
segi.“ -HK
Kevin Costner í
hlutverki golfar-
ans Roy „Tin
Cup“ McAvoy.
Kevin Costner
- leikferillinn -
Kevin Costner hefur gengið í
gegnum tímana tvenna og þekk-
ir það að fá lof allra og vera
stuttu síðar skammaður af sömu
aðilum. Tin Cup, sem er í efsta
sæti myndbandalistans, náði
miklum vinsældum í Bandaríkj-
unum og satt best að segja þurfti
Costner á þessum vinsældum að
halda eftir Wyatt Earp og Water-
world, dýmstu kvikmynd sem
gerð hefur verið. Var hún af
flestum dæmd til að mistakast.
Það fór þó á annan veg. Aðgangs-
eyrir að Waterworld í öllum
heiminum er yfir 300 milljónir
dollarar og hrakspárnar urðu
því að engu.
í Tin Cup er leikstjóri Ron
Sheldon en hann og Costner
höfðu áöur gert saman Bull Dur-
ham sem varð geysivinsæl.
Mesta afrek Costners til þessa er
þó Dances with Wolves, sem
hann framleiddi, leikstýrði og
lék aðalhlutverkið í. Sú kvik-
mynd fékk óskarsverðlaun sem
besta kvikmynd og Costner fékk
sömu verðlaun sem besti leik-
stjórinn.
Sá leikstjóri sem Kevin
Costner hefur starfað mest með
er Lawrence Kasdan en hann
leikstýrði Wyatt Earp, Silverado
og The Big Chill, en þar geröist
það að persónan sem Kevin
Costner lék var klippt út úr
myndinni. Þá skrifaði Kasdan
handritið að The Bodyguard.
Eftir að hafa lokið háskóla-
prófi í markaösfræöum við Cali-
fomia State University ákvað
Costner að reyna fyrir sér í kvik-
myndum. í fáein ár lék hann lít-
il hlutverk í myndum á borð við
Night Shift og Table for Five.
Fyrsta stóra hlutverk hans var í
Fandango. Kevin Costner er mik-
ill íþróttaðdáandi og meðfæddir
hæfileikar hans á þessu sviði
gerðu það að verkum að hann
náöi mjög fljótt tökum á golfí-
þróttinni í Tin Cup og hefúr nú
tekiö ástfóstri við íþróttina. Hér
á eftir fer listi yfir þær kvik-
myndir sem Kevin Costner hefur
leikið í:
Shadows Run Black, 1981
Night Shift, 1982
Chasing Dreams, 1982
Francis, 1982
Table for Five, 1983
Testament, 1983
The Gunrunner, 1984
American Flyers, 1985
Fandango, 1985
Silverado, 1985
The Untouchables, 1987
No Way out, 1987
Bull Durham, 1988
Field of Dreams, 1989
Revenge, 1990
Dances with Wolves, 1990
Robin Hood: Prince of Thieves,
1991
JFK, 1991
The Bodyguard, 1992
A Perfect World, 1993
Wyatt Earp, 1994
The War, 1994
Waterworld, 1995
Tln Cup, 1996
HK