Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 31. MAI1997 4J ★ ★ ' éttir * * Mikiö tjón í Laugardalslaug: 700 tonn af vatni flæddu úr lauginni - Smáþjóðaleikarnir gætu raskast vegna slyssins Slökkviliösmaöur kannar rúöuna sem brotnaöi í sundlauginni. Kæruleysi í eyðingu efnaglasa: A glámbekk í Gufunesi Mjög mikið tjón varð þegar 700 tonn af vatni fossuðu úr sundlaug- inni í Laugardal í gærmorgun. Gluggi í lauginni gaf sig með þeim afleiðingum að vatnið rann inn í kjallara. Engin slys urðu á fólki. Vatnið streymdi óheft inn á lagnagang í kjallaranum. Allt raf- magn gaf sig svo ekki var hægt að nota dælur í sundlauginni. Slökkvi- lið hóf þegar að dæla vatninu burt. Gæti raskaö Smáþjóðaleikum Ljóst er að þetta slys gæti vald- ið röskun þar sem Smáþjóðaleik- amir hefjast hér á landi á mánu- dag. Keppni í sundlauginni átti að hefjast á miðvikudag samkvæmt dagskrá leikanna og æfingar vegna leikanna strax á sunnudag. Búið er að eyða 22 milljónum í endurbætur á lauginni á síðustu tveimur árum. Hún hefur verið undirbúin sérstaklega fyrir leik- ana. „Við vorum á fundi áðan og eftir hann erum við hóflega bjartsýnir á að þetta muni bjargast. Nú er verið að reyna að þurrka rafkerfið og það skýrist væntanlega ekki fyrr en um helgina hvort þaö hefur skemmst eitthvað varanlega. Þetta hefði getað verið verr og við vonum það besta,“ sagði Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Smáþjóðaleikanna, við DV í gærkvöld. Um 400 starfsmenn á veg- um Reykjavíkurborgar auk slökkvi- liðs og tækniliðs unnu hörðum höndum í gær vegna slyssins. Unniö dag og nótt „Þetta óhapp kom auðvitað á slæmum tíma fýrir okkur. Það verð- Á fimmtudag fundu tveir menn, sem voru að störfúm í Gufunesi, gríðarlegt magn af bólusetning- arsprautum og glösum sem flest hver voru tóm en höfðu innihaldið bóluefni. Meðal umbúðanna sem finna mátti voru glös utan af bólu- efhi við gamaveiki og á umbúðun- um stendur að stungan geti valdið langvarandi bólgu. Einnig voru glös utan af ýmsum öðrum efhum sem geta verið stórhættuleg ef þau kom- ast í snertingu við hönmd. Öll glös- in voru merkt Tilraunastöðinni á Keldum. Eins og sjá má á myndinni var ótrúlega mikið magn losað á frekar áberandi stað hjá Sorpu. Virðist sem sá sem losaði þetta hafi verið að taka nokkuð vel til hjá sér því gríðarlegur fjöldi bólusetningar- sprauta lá í einni hrúgu og innan um mátti svo finna glösin með bólu- efnunum. Flest þessara glasa voru tóm en í nokkrum voru smáleifar af einhverjum vökva. Guðmundur Georgsson, forstöðu- maður Tilraunastöðvarinnar á Keldum, sagði að þetta væri ekki frá þeim komið. Þetta væri líklega frá einhverjum sem hefði einhvem tíma keypt bóluefni. Dýralæknir sem DV talaði við og starfar að Keldum sagðist telja að þetta væri mjög gamalt. Bæði benti dagsetn- ingin á glösunum til þess og einnig væri langt síðan hætt hefði verið að nota bólusetningarsprautur úr gleri á borð við þær sem fundust í Gufu- nesi. Þegar bóluefni væru svo göm- ul væm þau ekki hættuleg en samt sem áður ætti aldrei að losa sig við glös á þennan hátt. Líklegasta tilgátan um hvaðan þetta hafi getað komið er þá sú að einhver óþekktur aðili hafi verið að taka til heima hjá sér og ákveðið að losa sig við þetta á þennan hátt. At- hygli skal þá vakin á því við aðra sem hugsanlega kann að vera eins ástatt fyrir að bóluefnaglös eiga alls ekki að fara í Gufunes. Þó að þessi glös hafi e.t.v. ekki verið hættuleg þá á ekki að farga þeim á þennan hátt. Glösin á að senda í Tilrauna- stöðina í Keldnaholti og þar er séð um aö farga glösunum á réttan hátt. -HI ur unnið dag og nótt til að láta þetta ganga upp. Það er líklegt að kepp- endur verði að æfa í Kópavogslaug- inni sem er eina 50 metra laugin á höfuðborgarsvæðinu," segir Stefán. -RR Vatnið flæddi um allt. Hér sjást menn vaða vatnið fyrir utan sund- laugina. stuttar fréttir 200 milljofiir tll Marels 1 Marel hf. heftu' fengið 200 milljóna króna lán úr Norræna . fjárfestingarbankanum. Láns- fénu verður varið ásamt hluta- fjárútboði félagsins til að fjár- magna kaup Marels á danska fýrirtækinu Camitech A/S. Nýr framkvæmdastjóri Landbúnaðarráðherra hefur skipað Sigurð Guðjónsson fiskifræðing í stöðu fram- kvæmdastjóra Veiðimálastofn- unar. Frá 1. júní nk. verður stofhunin aðskilin frá embætti veiðimálastjóra, sem verður sjálfstætt sljómsýsluembætti. 72 þúsund hrefnur Endurskoðað stofiistæröar- mat Vísindanefndar Norður- Atlantshafssjávarspendýraráðs- ins sýnir að hrefhustofiiinn á Austm--Grænlands-, íslands- og ( Jan Mayen hafsvæðinu er um 72 þúsund dýr. Matið er byggt á nýlegum talnagögnum. | Nefnd um lífeyrismál Fjármálaráöherra hefur ákveðið að skipa nefnd til að yfirfara frumvarpsdrög laga um skyldutryggingu lífeyris- réttinda og starfsemi lífeyris- sjóða. Henni er ætlað aö skila niðurstöðum sinum fýrir miðj- an september nk. Öryggismál sjómanna Samgönguráðuneytið skip- aði í gær nefnd til að gera til- lögur að stefnumarkandi áætl- un í öryggismálum sjómanna. Nefndin skal í starfi sinu hafa að markmiði að fækka sjóslys- um með úrbótum I öryggismál- um sjómanna og ákveðnum forvamaraðgerðum. . Víkartindur fjarlægður Fulltrúar stjómvalda og eig- endur þýska flutningaskipsins Víkartinds hafa undirritað samning um að skipið verði fjarlægt af strandstað og fjaran hreinsuö. Eigendur skipsins skulu sjá til þess að flakið verði hlutað sundur og fjar- lægt að því marki sem það er tæknilega mögulegt. -VÁ Enska á undan dönsku - þegar ný námskrá tekur gildi Stefnumótunamefnd um endur- skoðun aðalnámskráa gmnn- og ffamhaldsskóla hefur skilað ráð- herra tillögum um stefhumörkun vegna endurskoðunarinnar. í skýrslunni koma ffarn tillögur inn þrjú meginmálefni sem kunna að hafa miklar breytingar í fór með sér fýrir íslenska skólakerfiö í heild sinni. í fýrsta lagi leggur nefndin til aö samræmd próf 10. bekkjar verði haldin tvisvar á ári, í endað haust- og vormisseris ár hvert. Þannig gefst duglegum nemendum kostur á að ljúka grunnskóla hálfu ári fyrr en nú er og hefja ffam- haldsskólanám strax á vormisseri. 1 öðra lagi leggur nefndin til að stefht skuli að styttingu fram- haldsskólans í þrjú ár og í þriðja lagi leggur nefndin áherslu á aö enska verði kennd frá og með 5. bekk grunnskólans og danskan komi inn í námsefiii skólanna í 7. bekk. Með þessu á ekki að skerða þátt dönskunnar í grannskólan- um, heildarstundafjöldi verður áfram sá sami og nú er en námiö taki færri ár. -ST Lögreglumaöur og vaktmaður skoöa verksummerki í Gufunesi á fimmtudag. Á innfelldu myndinni má sjá þær glasategundir sem fundust innan um sprauturnar. DV mynd Pjetur j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.