Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Blaðsíða 56
>■ C=1 o FRÉTTASKOTIÐ GC , LU SÍMINN SEM ALDREI SEFUR ^ o s: l_n <c Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. oo *—* F— LO 550 5555 Miðlunartillaga: Utlendingar gætu ráðið niðurstöðu Tvísýnt er talið að miðlunartil- laga sáttasemjara verði samþykkt á Vestfjörðum. Atkvæði voru greidd um hana í gær en talið verð- ur í dag. Mikil andstaða er við til- löguna, bæði meðal atvinnurek- enda og launþega. Það er þó talið að verkalýðshreyfíngin muni hugs- anlega samþykkja hana fyrir til- stilli þeirra fjölmörgu útlendinga sem vinna á Vestfjörðum. Alls eru á bilinu 170 til 200 útlendingar í fiskvinnslu á Vestfjörðum. Þar af eru rúmlega 100 á verkfallssvæð- inu og líklegt að þeir segi já. Út- lendingar hafa undanfamar vikur hópast inn í félögin vestra í því skyni að öðlast rétt til verkfalls- bóta. Það gæti því farið þannig að þeir bæru heimamenn ofurliði við atkvæðagreiðsluna. Óðinn Gestsson, framkvæmda- stjóri Freyju á Suðureyri, sagðist í samtali við DV í gær svartsýnn á að tillagan yröi samþykkt. „Það er talsverð andstaða vegna þess kostnaðarauka sem hún felur í sér fyrir vestflrsk fyrirtæki,“ sagði hann. -rt Dönsk yfirvöld gefa til kynna aö þau muni ákæra í 3ja ára íslensku sakamáli: Nauðgunarmál Grænlend ings tekið upp á ný - vitni kvödd fyrir héraösdóm í gær - framburðir þeirra sendir utan Danska dómsmálaráðuneytið hefúr tilkynnt ríkissaksóknara að möguleiki sé á því að ráðuneytið muni hlutast til um að taka upp nauðgunarmál á hendur Græn- lendingi, sem ekki fékkst framseld- ur til íslands á síðasta ári, þegar taka átti fyrir ákæru gegn honrnn vegna brots sem honum var gefið að sök aö hafa framið gegn ís- lenskri konu í Reykjavík á nýársnótt 1994. Vitnaleiðslur fóru fram í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær þar sem konan og vitni í málinu gáfu skýrslu fyrir dómi. Þau gögn verða síðan send til Danmerkur. Dómsmálaráðu- neytið þar í landi hefur sterklega gefið til kynna að málið kunni að verða tekið upp af dönskum yfir- völdum gegn umræddum manni. Máliö vakti athygli í mars þegar konan taldi að ríkissaksóknari myndi ekkert aðhafast í máli henn- ar þar sem maðurinn var fluttur úr landi til Grænlands. Dönsk yfir- völd hafa neitað að ffamselja hann til íslands til að hægt væri að láta hann svara til saka. í kjölfar þessa hefur framangreind afstaöa danskra stjómvalda komið fram. Ríkissaksóknari ákvað síöan að senda gögn málsins utan en láta vitni koma fyrst fyrir dóm. íslenska konan kæröi manninn fyrir að hafa nauðgað sér á bila- stæði í miðborg Reykjavíkur að- faranótt 1. janúar 1994. Ákæra og handtökuskipun var gefin út á hendur manninum 15. febrúar sama ár. Maðurinn, sem er með danskan ríkisborgararétt, reyndist síðan fluttur til Grænlands þegar til kastanna kom. Þar hefur hann nú lögheimili. Konan sagði í viðtali við DV í vetur að hún væri illa haldin eftir atburðinn. Hún hefði þó fengið góðan stuðning hjá vinum, vanda- mönnum og starfsfólki Stígamóta. Konan gaf skýrslu fyrir héraðs- dómi í gær. Ekki tókst að ná til allra vitna í málinu en vonast er til að það takist áður en langt um líð- ur. Þegar því lýkur verða vitnis- burðirnir þýddir og þeir sendir danska dómsmálaráðuneytinu. Fallist Danir á að taka málið fyrir er líklegast að dönsk ákæra verði gefin út. -Ótt I I i t i „Patton" segir Pólverj- um hótað „Það er mjög slæmt ef útlending- ar eiga að ráða launastefnu á ís- landi. Ég hef fyrir því heimildir að Pólverjum hafi verið hótað ef þeir ekki ljái miðlunartillögunni jáyrði,“ segir Trausti „Patton" Ágústsson, verkfallsvörður á ísafirði, vegna at- kvæðagreiðslunnar um miðlunartil- lögu sáttasemjara. Hann segir atvinnurekendur hafa lagt hart aö Pólverjunum að segja ekki nei við tillögunni eins og marg- ir verkfaUsmanna af innlendu bergi ætla að gera. „Þeim er sagt að þeir verði send- ir heim verði tillagan ekki sam- þykkt,“ segir Trausti. -rt Hundsdrápið: I Hundurinn i fékk þungt t höfuðhögg ! - samkvæmt krufningu „í krufhingarskýrslu stendur orð- g Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur ó morgun. Þessir kappar á Kristrúnu RE 177 æfðu sig á Reykjavíkurhöfn í gær. í tiiefni dagsins verða öll skip í höfn. DV-mynd S Sj ómannadagurinn: rétt að dýrið virðist hafa fengið þungt höfuðhögg, einkum við vinstra auga. Það hefur alls ekki getað veitt sér þessa áverka sjálft. Skýrslan verður ekki skilin öðruvísi en að greindir áverkar og blæðingar til mænukólfs og mænu hafi valdið dauða hunds- ins,“ segir Einar Gautur Steingríms- son, lögmaður Ingu Olsen, vegna hundsdrápsins í Efstaleiti 1. Ólafur Guðmundsson, formaður húsfélagsins, er sem kunnugt er sakaður um að hafa drepið hundinn Lady Queen sem Inga átti. í lög- regluskýrslu segir að blóð og hár úr hundinum hafi verið á veggjum og gólfi í anddyri í íbúð Ólafs. Einar Gautur Steingrímsson seg- ir að farið verði fram á bótakröfu í málinu. -RR ESSSSff- Sumir fara fúlir í land I i i i i i. i Lögreglan á Dalvík kvartaði und- an því við DV í gær að ökumenn væru heldur þungstígir á bensín- pinnann. Vandamálið er nokkuð landlægt og segist lögreglan fylgj- ast vel með hraðakstri þessa dag- ana. -sv „Ég veit ekki betur en allir verði í landi. Ég veit þó að sumir eru fúl- ir út í okkur,“ segir Birgir Björg- vinsson, stjórnarmaður í Sjómcmna- félagi Reykjavíkur, um þau skip sem verða í höfn á morgun. Sjómannafélagið kærði þau 3 skip sem voru á sjó á sjómannadaginn í fyrra og vann það mál. Sjómannadagurinn verður hald- inn hátíðlegur um allt land á morg- un. Búist er við að flestöll fiskiskip verði þá i höfn lögum samkvæmt. „Það eru allir í landi eins og vera ber á sjómannadegi. Ég vona að við þurfum aldrei aftur að berjast fyrir tilveru þessa dags,“ segir Birgir. -rt Eldur í bílskúr Eldur kviknaði í bílskúr á Ný- býlavegi í Kópavogi í gærdag. Eldur- inn kom upp í ísskáp. Skúrinn skemmdist nokkuð. sv t t í MÁ EKKI 30RGA ÞEIM ÚTÍ PÓLSKUM ZLOTYUM? L O K I Veðriö á morgun og mánudag: Víða létt' skýjað A morgun og mánudag verður suðvestangola eða kaldi. Smá- skúrir verða vestanlands en annars víða léttskýjað. Veðrið í dag er á bls. 57 Hiðladagur Opel og fþróttlr fyrlr alla f dag. - OPEL© ÍHÍllH FVBIl RLLfi -lýM etolmerki i i i i i i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.