Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Page 10
10
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 DV
Qriðsljós
Albert prins af Mónakó væntanlegur á Smáþjóðaleikana í Reykjavík:
Eftir tvo daga kemur til landsins Al-
bert prins af Mónakó til að vera við-
staddur setningu Smáþjóðaleikanna í
Reykjavík. Hann verður reyndar ekki
sá eini með blátt blóð í æðum á Smá-
þjóðaleikunum því við setninguna er
einnig von á Henrí prins af Lúxem-
borg. Albert er hins vegar með þekkt-
ara kóngafólki sem til landsins hefur
komið nú í seinni tíð. Þetta er þó ekki
í fyrsta sinn sem hann stígur hér á
land. Fimmtán ár eru liðin síðan íjöl-
skylda hans átti hér skamma viðdvöl.
Með í fór voru Rainier fursti, faðir
hans, Grace heitin Kelly fúrstynja og
Karólína, eldri systir Alberts. Sú
yngri, Stefanía, var ekki með í fór. Að-
eins mánuði síðar fórst Grace í
bílslysi.
Keppt á þrennum
Ólympíuleikum
Albert er í forsvari fyrir Ólympíu-
nefnd Mónakó og á einnig sæti í Al-
þjóða ólympíunefndinni. Hann hefúr
verið ötull talsmaður Smáþjóðaleik-
anna, þar sem þjóðir Evrópu með inn-
an við milljón manns taka þátt, og
þess vegna er hann hingað kominn.
Að auki er hann mikill áhugamaður
um íþróttir og hefur stundað fjöldann
allan af greinum þeirra. Hefur m.a.
keppt á þrennum Ólympíu-
leikum fyrir hönd Mónakós
á bobsleða og er að sjálf-
sögðu aðdáandi Formula-1
kappakstursins í Monte
Carlo, mesta viðburðar
ársins hverju sinni í
Mónakó.
Albert verður 39 ára á
þessu ári, enn ógiftur og
líklega einn eftirsóttasti
piparsveinn verald-
ar. Honum hefur
verið lýst sem
glaumgosa
en um
leið göfugmenni. Hann hefur verið
orðaður við fjöldann allan af konum
síðustu tvo áratugina en aldrei verið í
formlegu né varanlegu sambandi. Það
eru engar smákonur sem sagðar hafa
verið í tygjum við hann. Nægir að
nefna ofurfyrirsætuna Claudiu Schiff-
er og leikkonumar Brooke Shields og
Sharon Stone. Reyndar var það bara
núna á þessu ári sem sögur gengu
fjöllunum hærra i fjölmiðlum að Al-
bert og Sharon væru saman. Mönnum
þótti þetta athyglisvert samband og
tengdu Sharon gjaman við Grace
Kelly, þær væra um margt líkar.
Sharon Stone hrífin
Sharon var sögð vera mjög hrifm af
prinsinum. í einu blaðaviðtali sagði
hún að hún myndi segja , já“ ef menn
eins og Albert prins bæra upp bónorð-
ið. Þannig gaf hún pressunni undir fót-
inn og kannski Albert líka því hann er
sagður hafa, nokkrum dögum eftir
þetta viðtal, boðist til að borga undir
hana flugfar frá Hollywood til Monte
Carlo til að vera viðstödd afhendingu
World Music verðlaunanna. Sharon
neitaði boðinu vegna anna í kvik-
myndaupptökum.
íbúar Mónakós, sem ekki era nema
30 þúsund, vora hrifnir af þessu hugs-
anlega sambandi, gátu alveg
hugsað sér að fá
Hollywoodstjömu aftur
fyrir prinsessu likt og
Grace Kelly var.
Þá era fáir dagar
liðnir síðan sænskir
fjölmiðlar vora upp-
fullir af fregnum af
vinskap Alberts við
hina 21 árs gömlu
gengilbeinu ffá smá-
bænúm Haemosand,
Önnu-Karin Hasselborg.
Albert neitaði því að þau
væra saman, þau væru
eingöngu vinir eftir að hafa
hist í Monte Carlo rall-
inu í fyrra.
Eftirsottur
piparsveinn
Systkinin samankomin á þjóö-
hátíöardegi Mónakós ásamt hluta
barna sinna. Stefanía er í svarta
dressinu, Albert í fullum skrúða fyrir
miöju og Karólína í brúnu kápunni.
Símamynd Reuter
Áföllin hafa dunið yfir
Mónakó-ijölskyldan hefur ekki farið
varhluta af opinberri umræðu. Hún
hefur verið stöðugt í sviðsljósinu, oft-
ar en ekki af neikvæðu tilefni. Fyrsta
áfallið sem fjölskyldan varð fyrir, og
hefur varlað jafnað sig á, er banaslys-
ið sem Grace Kelly lenti í í september
1982. Missti hún bíl sinn utan vegar í
háfjöllum Mónakós og beið þegar
bana, aðeins 53 ára að aldri. Hún var
búin að vera gift Rainier ffá árinu
1956 og varpað kastljósinu að þessu
litla furstadæmi svo um munaði.
Rainier hefur ekki kvænst síðan.
Annar harmleikru dundi yfir árið
1990 þegar seinni eiginmaður Karól-
ínu, Stefano Casiraghi, fórst í sjóslysi.
Saman áttu þau þijú böm. í kjölfarið
fylgdu erfiðleikar í einkalífi Karólínu.
Stefanía hefúr einnig lent í hremming-
um. Hennar síðasta hjónabandi lauk í
fyrra eftir að lífvörðurinn fyrrverandi,
Daniel Ducmet, var myndaður með
berbrjósta fyrirsætu í Belgíu. Þau Stef-
anía höfðu verið gift í 15 mánuði. Fyr-
ir átti Stefanía tvö böm.
Við völd í 700 ár
Mónakó-fjölskyldan er af svokall-
aðri Grimaldi-ætt sem á þessu ári
fagnar því að hafa verið 700 ár við
völd í Mónakó. Segja má að ættin
standi nú á tímamótum. Rainier
prins, oftast nefndur fursti, er orðinn
73 ára og farinn að hafa áhyggjur af
framtíð furstdæmisins. Hann hefur
verið við völd frá árinu 1949. Hann
lét, í alvörabundnu gamni, hafa eft-
ir sér við upphaf afmælishalda um
síðustu áramót að nú þyrfti Albert
að fara að ná sér í konu og
vitkast!
feðgar
_ar era hins
vegar samrýmdir og
heyja mikla baráttu fyrir
tilvera Mónakós. Þeir
skipta sér einnig af al-
heimsmálum, era m.a.
miklir umhverfisvemd-
arsinnar og tóku þátt í
ráðstefnunni i Rió á sín-
um tíma. Þá er Albert
fúlltrúi Mónakó hjá Sam-
einuðu þjóðunum.
Monakó er sem kunn-
Karólína og Albert prins á gangi viö
Flosagjá á Þingvöllum í ágúst 1982.
DV-mynd GVA
ugt er tollfijálst og hefur mestar tekj-
ur af rekstri spilavíta. Tekjur af þeim
hafa minnkað, samkvæmt erlendum
iregnum, og nú hóta Frakkar að skera
niður skattaendurgreiðslur upp á 20
milljarða króna. Allt þetta veldur feðg-
unum vissum áhyggjum en þeir hafa
löngum varist áhlaupum á fursta-
dæmið og haft sigur. Einnig hafa þeir
hagsmuni fræga fólksins að veija. Það
hefur sökum skattfríðinda komið sér
vel fyrir í Mónakó. Má þar nefna
stjömur eins og Bítilinn Ringo Starr,
ökuþórinn Michael Schumacher,
Claudiu Schiffer, tenniskappann Boris
Becker og hetjutenórinn Placido Dom-
ingo.
Frá íslandsheimsókninni 1982.
Grace Kelly mundar myndavélina í
Árbæjarsafni og dr. Sturla Friöriks-
son og Sigrún Laxdal (meö hattana)
upplýsa Rainer fursta um þjóölegan
fróöleik. DV-mynd GVA
Tekur Albert við eftir 1999?
Albert er líklegastur til að taka við
furstadæminu þótt Karólína sé eldri
en hann. Sérfræðingum í málefnum
fjölskvldunnar ber saman um að Al-
bert, svo fremi sem Rainier falli ekki
frá, taki ekki við krúnunni fyrr en að
loknum 50 árum fóður síns við völd,
eða eftir 1999.
Svarar 200 bréfum á viku
Albert er önnum kafinn maður.
Hann er sagður ferðast um 320 þúsund
kilómetra á ári og kemur fram í kring-
um 300 sinnum fyrir hönd fjölskyld-
unnar á milli þess sem hann stundar
íþróttir og hið ljúfa líf. Hann svarar
hátt í 200 bréfum aðdáenda á viku og
síminn í höllinni stoppar ekki.
Drengur góður
En hvemig náungi skyldi prinsinn
vera? Við leituðum svara hjá frú Vig-
dísi Finnbogadóttur sem hitti hann
nokkrum sinnum í forsetatíð sinni.
„Albert er drengur góður, skemmti-
legur og viðræöugóður" var það fyrsta
sem Vigdísi kom til hugar. Þau hittust
síðast í París í maí 1995 þegar þess var
minnst að hálf öld var liðin frá
stríðslokum. Þá hittust þau haustið
1994 þegar Vigdís afhenti verðlaun á
sjónvarpsmyndahátíð í Monte Carlo
og einnig á umhverfisráðstefhunni í
RIó.
„Ég á ágæta vináttu við þessa fjöl-
skyldu. Hún er vel að sér um ísland,
ekki síst eftir heimsóknina hingað