Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Qupperneq 12
F
12
fn
LAUGARDAGUR 31. MAI 1997
Sumarhátíð vegna fjörutíu ára afmælis Árbæjarsafns:
Safnhúsin fuíibyggð
eykur möguleika okkar til muna, segir borgarminjavörður
„Tímamótin marka að því leyti
sérstöðu að nú er byggingu allra
safnhúsanna lokið og við getum því
á næstu árum einbeitt okkur að því
að efla safnfræðslu til mikilla muna.
Borgarminjavöröur Helsinki, Leena Arkio, sótti Árbæjar-
safniö heim í vikunni. Hér er hún ásamt Margréti Hall-
grimsdóttur borgarminjaveröi, Nikulási Úlfari Mássyni,
arkitekt Árbæjarsafns, og einum úr sendinefnd Finna.
DV-myndir Hilmar Þór.
segir Margrét Hallgrímsdóttir borg-
arminjavörður við DV.
í tilefni af 40 ára afmæli Árbæjar-
safnsins nú i ár verður boðið upp á
mjög veglega og fjölbreytta dagskrá
í safninu í allt
sumar. Herleg-
heitin hefjast á
morgun, 1. júní,
með formlegri
opnun Lækjar-
götuhússins kl
14. Þar verður
Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir
borgarstjóri
meðal annarra.
Opnunarhátíð-
in er öllum
opin.
Margrét segir
30 til 40 þúsund
gesti koma í Ár-
bæjarsafn á
hverju ári og
hún gerir sér
vonir um að
með breyttum
áherslum í sum-
ina Reykjavík, ljósmyndir og ljóð.
Þar verða sýndar Ijósmyndir frá
Reykjavík frá lokum siðustu aldar
og til okkar daga, ásamt ljóðum
skálda sem yrkja um borgina við
sundin blá. Dagskrá verður á staðn-
um í tilefni sjómannadagsins og
veitingasalan í Dillonshúsi verður
opnuð.
Dillonshúsið var byggt árið 1835
og dregur nafn sitt af írskum lá-
varði sem lét byggja það. Hann gaf
það síðan ástkonu og barnsmóður
sinni, Sire Ottesen, sem rak veit-
ingastað í húsinu og hélt þar dans-
leiki.
Hryllingssögur
Að sögn Margrétar verður margt
annað skemmtilegt á dagskránni í
sumar. Hún segir að í ágúst verði
fjallað um þvottalaugarnar í Reykja-
vík og þá verði líka dagskrá sem
nefnd er Margt býr í myrkrinu. Þar
verði gengið um safnið og Elliðaár-
dal. Þessi dagskrá ætti að höfða til
allra áhugamanna um íslenskar
reimleika- og hryllingssögur.
„Við erum farin að hugsa til
næstu ára og í farvatninu er vegleg
sýning um sögu Reykjavíkur og
Árbæjarsafn:
Kirkjan frá 1842
Kirkja Árbæjarsafns var
byggð árið 1842 að Silfrastöðum
í Skagafirði. Hún er gott dæmi
um torfkirkjur frá síðustu öld.
Árið 1959 var kirkjan flutt á
safnið. Hægt er að fá hana
leigða undir athafnir.
Árbæjai’safn er minjasafn
Reykjavíkur og er borgarminja-
vörður forstöðumaður þess.
Hlutverk þess er minjavarsla í
t
Ull verður gull
Nú höfum við alla möguleika á þvi
að auka fræðslu til skólabama og
munum í æ ríkari mæli einbeita
okkur að nýjum og spennandi sýn-
ingum í safninu, auk þess að gera
átak í varðveislumálum. Á þessum
tímamótum finnst mér opnun Lækj-
argötu 4 hússins standa upp úr,“
ar muni þeim fjölga.
Byrjar á morgun
Á morgun, sjómannadag, verður
mikið um að vera á Árbæjarsafni. í
Lækjargötu 4-húsinu verður opnuð
ljósmyndasýning sem ber yfirskrift-
Margrét segir margt mjög spenn-
andi verða á boðstólnum í sumar.
Þar megi t.d. nefna dagskrá annan
sunnudag sem nefnd er Ull verður
gull. Hún segir alls kyns vinnu úr
ull verða sýnda í safninu, búnir
verði til sauðskinnsskór og hand-
verksfólk verði að störfum í ýmsum
húsum.
„Ég hlakka líka mikið til að bjóða
upp á dagskrá sem við köllum Leiki
og leikföng fyrrum og verður í safn-
inu 6. júlí. Þar verður teymt undir
böm og farið í leiki við Klepp. Síðar
í mánuðinum verður Nærfatnaður í
sögu þjóðar, lítil sýning á nærfatn-
aði þjóðarinnar í gegnum tíðina,"
segir Margrét.
Lækjargótu 4 húsiö verður opnaö
formlega á morgun.
sýning sem sérstaklega verður ætl-
uð börnum. Ég vona að fólk komi og
líti inn til okkar í sumar. Það er af
nógu að taka,“ segir Margrét. Af-
mælisdagur safnsins er í september
og þá verður borgarbúum boðið til
hátíðar, auk þess sem gefin verður
út bók um þvottalaugamar. -sv
lend bóksjá
Reykjavík, rannsóknir og miðl-
un. Saga Reykjavíkur er við-
fangsefni safnsins og starfa þar
sérfræðingar á því sviði. Meg-
ináhersla er lögð á vemdun
borgarminja, þ.e. sögulegra
húsa, safngripa, mynda og forn-
leifa. Lykilþáttur í því starfi er
skráning, merking og varð-
veisla.
Flutt úr
miðbænum
Flest húsin á Árbæjarsafni
hafa verið flutt úr miðbæ
Reykjavíkur. Elsta húsið er
Smiðshús, byggt um 1820. Af
öðrum 19. aldar húsum má
nefna Suðurgötu 7, Nýlendu,
Þingholtsstræti, Efstabæ og
Líkn. -sv
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Meave Binchy:
Evening Class.
2. Terry Pratchett:
Feet of Clay.
3. Danlelle Steel:
Mallce.
4. Roddy Doyle:
The Woman who Walked Into
Doors.
5. Jeffrey Archer:
The Fourth Estate.
6. Mlchael Ondaatje:
The Engllsh Patlent.
7. Ben Elton:
Popcorn.
8. John Grisham:
Runaway Jury.
9. Tom Sharpe:
The Mldden.
10. Jllly Cooper:
Apasslonata.
Rit afmenns eölis:
1. Blll Bryson:
Notes from a Small Island.
2. The Art Book.
3. Nlck Hornby:
Fever Pltch.
4. Frank McCourt:
Angela's Ashes.
5. Paul Wllson:
A Little Book of Calm.
6. John Gray:
Men Are From Mars, Women Are
From Venus.
7. Wlll Huttonn:
The State to Come.
8. Rlchard E. Grant.
Wlth Nalls
9. Grlff Rhys Jones ritstjóri:
The Nation’s Favourlte Poems.
10. Herodotus:
Tales From Herodotus.
Innbundnar skáldsögur:
1. John Grlsham:
The Partner.
2. Danlelle Steel:
The Ranch.
3. Edward Rutherfurd:
London: The Novel.
4. Wilbur Smith:
Blrds of Prey.
5. Patricia D. Cornwell:
Hornet’s Nest.
Innbundin rit almenns eðlls:
1. Jean-Domlnique Bauby:
The Diving-Bell and the Butterfly.
2. Roy Strong:
Dlaries 1967-1987.
3. Tlm Smlt:
The Lost Gardens of Hellgan.
4. Dava Sobel:
Longitude.
5. Scott Adams:
The Dllbert Prlnclple.
(Byggt á The Sunday Tlmes)
Solzhenítsyn reiður
Rússneska nóbelskáldið
Alexander Solzhenitsyn hef-
ur haldið sig til hlés síðustu
mámuði, eða frá þvi að
sjónvarpsþáttur hans var
fýrirvaralítið tekinn af dag-
skrá rússneska sjónvarps-
ins. Nú er hann aftur kom-
inn í fréttirnar af tveimur
ástæðum, og hvorug að
hans skapi.
Annars vegar er það
heilsa skáldsins sem er far-
in að gefa sig, enda er hann
orðinn 79 ára og hefur átt
langa, viðburðaríka og erf-
iða ævi - sat m.a. í sovésk-
um fangabúðum um langt
árabil á fimmta og sjötta
áratugnum.
Hann var lagður inn á
sjúkrahús vegna óskil-
greindra hjartavandræða
og var þar til meðferðar í
hálfan mánuð. Nú er hann
aftur kominn heim til sín,
en hann býr í íbúð í
Moskvu með seinni konu
sinni, Alyu, sem segir að hann sé
óðum að jafna sig og vilji ólmur fara
að skrifa á ný.
Æstur út af ævisögu
Þrátt fyrir heilsubrestinn hefur
Solzhenítsyn séð ástæðu til að
bregðast reiður mjög við nýrri ævi-
sögu sem á að sjá dagsins ljós í byrj-
un næsta árs. Höfundurinn er
þekktur enskur skáldsaganahöfund-
ur, D.M. Thomas (kunnasta skáld-
saga hans heitir „The White Hot-
el“). Hann hefur nú refsað St. Mart-
in’s Press, sem mun gefa ævisöguna
út, með því að stöðva útgáfu á nýrri
bók með nokkrum ritgerðum eftir
sig sem forlagið hafði þó samið um
að kæmi út í Bretlandi um svipað
leyti. Sumir líta á þetta sem tilraun
til að hindra útgáfu ævisögunnar.
Það breytir engu um afstöðu hans
Alexander Solzhenítsyn.
Símamynd Reuter
þótt Thomas hafi sagt opinberlega
að bókin gefi jákvæða mynd af
nóbelsskáldinu, sem hafi hins vegar
aldrei svarað ítrekuðum beiðnum
um viðtal á meðan ævisagan var í
vinnslu.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
Það sem veldur reiði goðsins í
Moskvu er fyrst og fremst að Thom-
as hefur leitað upplýsinga hjá fyrri
eiginkonu Solzhenítsyns og fengið i
leiðinni hjá henni ljósmyndir sem
birtar eru í bókinni.
Langt hjónaband
Margir halda því fram að gífurleg
afköst nóbelsskáldsins á rit-
vellinum megi að hluta til
þakka konunum í lífi hans -
en þær hafi þjónað honum á
alla lund og gert honum
kleift að einbeita sér að rit-
störfum eftir að hann slapp
úr fangabúðunum á sjötta
áratugnum.
Það á ekki síst við um fyrri
konuna, Natalíu Res-
hetovskayu. Þau gengu í
hjónaband árið 1940, en áttu
engin böm; Solzhenítsyn
sagði að óskir hennar rnn
slíkt væra sjálfselska; hlut-
verk hans í lifinu væri ann-
að og meira en að lifa venju-
legu fjölskyldulifi.
Fyrstu sextán ár hjóna-
bandsins var Solzhenítsyn í
fangelsi eða útlegð í um
fimmtán ár. En þegar hon-
um var sleppt árið 1956 hófu
þau sambúð á ný. Árið 1962
fékkst skáldsagan „Dagur í
lífi ívans Denisovits" gefin
út og hún sló í gegn.
Solzhenítsyn varð frægur rithöfund-
ur. Hann gerðist kvensamur í meira
lagi, að sögn eiginkonunnar. Seinni
konu sinni kynntist hann árið 1968,
er hann stóð á fimmtugu. Alya var
þá 28 ára. Þegar hún varð barnshaf-
andi skildi skáldið við fyrri konuna
og kvæntist barnsmóður sinni. Alya
mun þó hafa hvatt hann mjög til að
halda tryggð við Reshetovskayu
sem tók skilnaðinn mjög nærri sér
og reyndi m.a. að fremja sjálfsmorð.
Reiði skáldsins í hennar garð er
m.a. sögð stafa af því að hann gruni
hana um að hafa aðstoðað KGB-
menn við að reyna að koma í veg
fyrir útgáfu ritverksins um Gulag-
eyjaklasann. Thomas segist færa
sönnur á samvinnu hennar við KGB
í nýju ævisögunni. Þar sé einnig í
fyrsta sinn skýrt frá tilraun KGB til
að ráða Solzhenitsyn af dögum árið
1971.
Metsölukiljur
>«(•»•••«•••••• •;•„• • « '
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Mary Hlgglns Clark:
Moonllght Becomes You.
2. Sherl Reynolds:
The Rapture of Canaan.
3. John Darnton:
Neanderthal
4. Nora Roberts:
Montana Sky.
5. John Grlsham:
The Runaway Jury.
6. John Sandford:
Sudden Prey.
7. Belva Plaln:
Promlses.
8. Ursula Hegl:
Stones From the Rlver.
9. Wally Lamb:
She’s Come Undone.
10. Ellzabeth Lowell:
Where the Heart Is.
11. James Patterson:
See How They Run.
12. Mlchael Ondaatje:
The Engllsh Patlent.
13. Robln Cook:
Invaslon.
14. Dale Brown:
Shadows of Steel.
15. Dean Kootz:
Tlcktock.
Rit almenns eðlis:
1. Andrew Well:
Spontaneous Healing.
2. James McBride:
The Color of Water.
3. Mary Plpher:
Revlving Ophella.
4. Jonathan Harr:
A Clvll Actlon.
5. Laura Schiesslnger:
How Could You Do Thatíl
6. Carmen R. Berry & T. Traeder:
Glrlfrlends.
7. Jon Krakauer:
Into the Wlld.
8. Kathleen Norrls:
The Clolster Walk
9. Thomas Cahlll:
How the Irlsh Saved Clvlllzatlon.
10. Jeff Foxworthy:
No Shlrt, No Shoes ... No Problem!
11. Carl Sagan:
The Demon-Haunted World.
12. Danalel Jonah Goldhagen:
Hltler's Wllllng Executloners.
13. Vlncent Bugllosi:
Outrage.
14. Mary Karr:
The Llar's Club.
15. Mary Pipher:
The Shelter of Each Other
(Byggt á New York Tlmes Book Review)