Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Síða 31
LAUGARDAGUR 31. MAI 1997
Sögur um kynlífshneyksli
fylgja Clinton stöðugt
- á yfir höfði sér málaferli vegna kynferðislegrar áreitni
PUSTKERFI
Kraftur
Oryggi
Paula Corbin Jones, konan sem
höfðaði mál gegn Bill Clinton
Bandaríkjaforseta vegna kynferð-
islegrar áreitni, ólst upp í iðnaðar-
bæ skammt frá Little Rock í
Arkansas. Paula, sem er nú þrítug,
gift og tveggja barna móðir, komst
í sviðsljósið í febrúar 1994 þegar
hún hélt fréttamannafund í Was-
hington. Á fundinum sagði Paula
að árið 1991, þegar Clinton var rík-
isstjóri i Arkansas, hefði hann
beðið hana um vissa þjónustu þeg-
ar þau voru tvö ein á hótelher-
bergi í Arkansas.
Tímaritið Newsweek hafði það
eftir Paulu að Clinton hefði talað
um hversu fallegt hár hún hefði og
hvað hún væri vel vaxin. Síðan
hefði hann dregið hana að sér til að
narta í hálsinn á henni. Paula Jones
greindi einnig blaðamanni
Newsweek frá því að Clinton hefði
tekið niður um sig buxurnar og sagt
henni að kyssa „það“. Hún hefði
hins vegar stokkið upp og sagt að
hún væri „ekki þess háttar stúlka“.
Clinton vísaði öllum ásökunum
Paulu á bug.
Árið 1991 var Paula ritari iðnþró-
unarnefndar Arkansas. Hún var á
fyrrnefndu hóteli þar sem hún hafði
verið beðin um að aðstoða á ráð-
stefnu sem þar var haldin.
Löggan sögð hafa komið
Clinton í samband við
konur
Paula kveðst hafa ákveðið að
höfða mál gegn forsetanum til að
hreinsa mannorð sitt. Það var í kjöl-
far greinar í tímaritinu American
Spectator þar sem fullyrt var að rík-
islögreglan í Arkansas hefði komið
Clinton í kynferðissambönd við
ýpisar konur. Ein af konunum, sem
fjallað var um í greininni, var nefnd
„Paula“. Paula Jones hélt því fram
að þar með tengdist hún málinu.
Erlent fréttaljós
á laugardegi
Mánuði eftir að Paula höfðaði
mál birtist hún í sportfatnaði undir
merkinu „No Excuses" á frétta-
mannafundi í New York. Fyrirtæk-
ið hafði áður vakið athygli á fram-
leiðslu sinni með liðveislu Donnu
Rice en samband hennar við þing-
manninn Gary Hart olli honum
vandræðum í pólítíkinni. Síðar á ár-
inu 1994 birti Penthouse-tímaritið
myndir af Paulu Jones þar sem hún
var aðeins í efnislitlum nærbuxum.
Hún kvaðst hafa leyft vini sínum að
taka myndimir 1987 í þeirri trú að
þær yrðu ekki sýndar opinberlega.
Paula reyndi árangurslaust að
stöðva útgáfu tölublaðsins sem birti
myndirnar.
Það var í mars 1994, mánuði eft-
ir að Paula sagði fyrst opinberlega
frá meintri kynferðislegri áreitni
Clintons, sem lögmenn hennar, Gil-
bert Davis og Joseph Cammarata,
höfðuðu mál. Kröfðust þeir 700 þús-
und dollara, um 49 milljóna ís-
lenskra króna, í skaðabætur. í
október sama ár hélt Paula Jones
fund með fréttamönnum í
Hollywood. Þar greindi hún frá því
að lögmönnum sínum og Clintons
hefði ekki tekist að ná samkomulagi
um orðalag á yfirlýsingu sem Clint-
on’átti að gefa út. Paula kvaðst leið
yfir að Clinton vildi ekki taka sátta-
boði hennar. Hún hefði aðeins vilj-
að hann komst til valda í Hvita hús-
inu. Starfsmenn Hvíta hússins
sögðu þetta vera lygasögu.
í nýlegri grein í tímaritinu New
Yorker er haft eftir Aldrich að frá-
sögnin af meintum, leynilegum
heimsóknum Clintons á hótel í mið-
borg Washington hafi byggst á til-
gátum.
Aldrich ver bók sina en margir
hafa dregið í efa að frásögnin í
henni sé rétt. Meðal þeirra eru
nokkrir gagnrýnenda Clintons.
Verði réttað í máli Paulu Jones
gegn Clinton verður greint frá öll-
um hneykslanlegum smáatriðum.
Þess vegna er litið á málaferli sem
tap fyrir Clinton hver svo sem nið-
urskurður dómstólsins verður. Þess
vegna verði Bandaríkjaforseti að
reyna að ná sáttum við Paulu.
Lögmenn hennar setja það skil-
yrði að gefin verði út yfirlýsing þar
sem mannorð hennar verður
hreinsað. Þeir telja að erfitt verið
fyrir forsetann að gefa út slíka yfir-
lýsingu og búast því við réttarhöld-
um. Byggt á Reuter
Tólf ára ástarsamband
við söngkonu í nætur-
klúbbi
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Clinton Bandaríkjaforseti er sakað-
ur um kynlíf utan hjónabands.
Orðrómur var á kreiki um framhjá-
hald Clintons áðm en hann varð
forseti.
Eftir að Clinton hafði tilkynnt að
hann hygðist bjóða sig fram sem
forsetaefni Demókrataflokksins
lýsti fyrrum söngkona á nætur-
klúbbi, Gennifer Flowers, því yfir
að hún hefði staðið í ástarsambandi
við hann í 12 ár. Clinton og Hillary
eiginkona hans komu fram í þættin-
um „60 minutes" á CBS-sjónvarps-
stöðinni til þess að reyna að lægja
öldurnar. Clinton viðurkenndi að
hafa breytt rangt og valdið sársauka
Forsetahjón Bandaríkjanna, Bill og Hillary Clinton, á leiö úr sunnudags-
messu. Símamynd Reuter
í hjónabandinu. Hann neitaði hins
vegar að svara þegar hann var
spurður hvort hann hefði framið
hjúskaparbrot.
Þrátt fyrir sögur um kynlífs-
hneyksli komst Clinton alla leið í
Hvíta húsið. Hann hafði ekki verið
þar nema i tæpt ár þegar American
Spectator-timaritið birti ásakanirn-
ar um aðstoð lögreglunnar við að
útvega Clinton kvenfólk. Og sex vik-
um seinna kom Paula fram í sviðs-
ljósið. Hvíta húsið vísaði ásökunun-
um á bug og sagði að Clinton þekkti
ekki Paulu. Því er haldið fram enn í
cigum nijooKuia og pusweni i nesiar geroir Diireioa.
Tveggja ára ábyrgð á heilum kerfum. ísetning á staðnum.
Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum okkar
í síma 588 2550
BílavörubúÖin
FJÖDRIN
I fararbroddi
SKEIFUNNI 2,108 REYKJAVÍK SÍMI 588 2550
Paula Jones vill fá mannorð sitt
hreinsaö. Símamynd Reuter
að fá mannorð sitt hreinsað.
í desemberlok 1994 frestaði dóm-
ari í Arkansas málinu. Úrskurður
dómarans var sá að málið skyldi
ekki tekið fyrir fyrr en Clinton léti
af embætti forseta Bandaríkjanna.
Lögmenn Paulu Jones áfrýjuðu.
í janúar 1996 úrskurðaði dómstóll
í St. Louis að hægt væri að rétta í
málinu á meðan Clinton gegndi
embætti forseta. Lögmaður Clint-
ons, Robert Bennett, áfrýjaði úr-
skurðinum.
í þessari viku úrskurðaði svo
hæstiréttur að ekkert væri því til
fyrirstöðu að réttað yrði í máli
Paulu gegn Bill Clinton á meðan
hann gegndi forsetaembættinu. Þar
með er málið komið aftur til dómar-
ans í Arkansas.
dag.
Stefnumót á hóteli
í miðborg Washington
Svo virðist sem Hvíta húsinu
hafi tekist að hnekkja að minnsta
kosti einni sögu um kynlíf forsetans
utan hjónabands. Árið 1996 gaf fyrr-
um starfsmaður bandarísku alríkis-
lögreglunnar, Gary Aldrich, út bók
þar sem hann sagði frá meintum,
leynilegum stefnumótum Clintons
síðla kvölds við ýmsar konur eftir
Þjonustumiöstöö í hjanta borgarinnar
I R
Lágmúla 9 • Sími: .533 2800 • Fax: 533 2820
BOSCH verslunin aðkeyrsla frá Háaleitisbraut