Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ1997
KUPPIfl ÉI
MlflflNN!
Gegn framvísun
miðans færðu
5JDÐHEITT
5PENNUTILB0Ð
á kr. 990,-
KLIPPIfl ít
miuhnn!
Gegn framvísun
miðans færðu
Sjúðheitt
LYGHTILBOfl
á kr. 890,-
Ritstjóri HP varaði við ítökum vegna eignarhalds á Qölmiðlum:
Engin áhrif frá
Al þýðu bandalagi nu
- segir Páll Vilhjálmsson. Skrifa fyrst og fremst sem fagmaður
„Fjölmiðlar þurfa að geta staðið á
eigin fótum og haft í fullu tré við
ríkisvaldiö og sterk hagsmunasam-
tök. Utanaðkomandi aðilar reyna
iðulega að hafa áhrif á efni og efnis-
tök þeirra fjölmiðla sem standa fyr-
ir opinberri umræðu og miklu
skiptir að íjölmiðlar standist þann
þrýsting," sagði í leiðara Helgar-
póstsins fimmtudaginn 24. október
sl. Þetta var fyrsti leiðari blaðsins
eftir að nýr ritstjóri tók við og skrif-
aður þegar fyrir lá að Alþýðubanda-
lagið ætti 40 prósenta hlut í blaðinu.
Áhrif keypt
Kristinn H. Gimnarsson, alþingis-
maður Alþýðubandalagsins, er ekki í
nokkrum vafa um tilgang þess að
leggja blaðstyrk flokksins í Lesmál,
útgáfufyrirtæki HP. Hann sagði í
samtali við DV að tilgangurinn sé sá
að kaupa flokknum áhrif í fjölmiðli
og það sé gert í skjóli leyndar.
Fréttaljós
Reynir Traustason
Margrét Frímannsdóttir, formað-
ur Alþýðubandalagsins, sagði í sam-
tali við DV fyrr í vikunni að ætlun-
in væri að selja hlutinn í HP. Hún
lagði áherslu á það að engin tengsl
væru milli flokksins og Helgarpósts-
ins hvað varðar efni og efhistök.
Páll Vilhjálmsson, ritstjóri HP,
sagði aðspurður að tengsl Helgar-
póstsins og Alþýðubandalagsins
hefðu ekki haft nein áhrif á rit-
stjómarstefnu blaðs hans.
„Það hefur ekki veriö. Ég hef
meira að segja skammað Alþýðu-
bandalagiö í leiðara. Ég tók þar A-
flokkana fyrir þar sem ég skammaði
þá fyrir tildur," segir Páll.
Fagmaöur
„Það hefur aldrei verið inni í
myndinni að eiga ritstjórnarlegt
samstarf. Þeir vissu að þegar ég
kom til þeirra kom ég sem fagmað-
ur og ég hef unnið mitt verk sem
slíkur. Ég er ekki í stjómmálaflokki
og er fyrst og fremst blaðamaöur,"
segir hann.
Aðspurður um það hvort hann
hafi ekki haft þá skoðun að eignar-
hald sé áhrifavaldur á fréttaflutning
segist hann hafa staðfest dæmi um
að það hafi gerst.
„Ég hef sagt að valdasamþjöppun-
in sé mjög óheppileg og fjölbreytt
eignaraðild sé æskileg. í öðm lagi
hef ég gert í því að benda á þegar
upp hafa komið tilvik þar sem rök-
studdur granur er um að afskipti
eigenda af ritstjómarstefhu hafi átt
sér stað. Ég fjallaði til aö mynda
töluvert um mál Elínar Hirst á Stöð
2. Þar staðfesti Jón Ólafsson að
hann hefði skipt sér af fréttaflutn-
ingi af máli Péturs Hafstein. Það
era svona atvik sem hefðu getaö
komið upp hjá mér og þá hefði maö-
ur þurft aö glíma viö það. Slíkt hef-
ur bara aldrei gerst einfaldlega
vegna þess að ég hef umgengist Al-
þýðubandalagið eins og hvem ann-
an stjómmálaflokk," segir Páll.
Persónulegar ábyrgölr
„Það eru engar skuldbindingar af
háífu flokksins í þessu máli. Þama
er um að ræða persónulegar ábyrgð-
ir stjómarmanna Tilsjár. Það er
rangt að gefa sér það fyrir fram að
þetta fari á versta veg og ástæða til
að árétta að það era persónulegar
eignir okkar ábyrgðarmannanna
sem era að veöi. Við trúum því að
þetta fari allt á besta veg,“ segir Val-
þór Hlöðversson, stjómarformaður
Tilsjár, sem skráð er fyrir 40 pró-
senta hlut í Helgarpóstinum.
í DV í gær sagði Kristinn H.
Gurmarsson alþingismaður að ætl-
unin hefði verið að nota blaðstyrk
Alþýðubandalagsins til að fjár-
magna kaupin. Valþór segir að það
hafi sér vitanlega aldrei staðið til.
Hann segir að ekki sé við stjómar-
menn í Tilsjá að sakast þótt vit-
neskja um kaupin hafi ekki borist
til allra þingmanna flokksins.
„Eins og fram kom í DV í gær var
formanni þingfokks AB fuflkunnugt eskja hafi ekki borist tfl annarra
um öU þessi mál. Það er því ekki við þingmanna, hafi Kristinn talið það
okkur í TUsjá að sakast þótt sú vitn- nauðsynlegt," segir Valþór.
Páll Vilhjálmsson, ritstjóri Helgarpóstsins, segir eignaraöild Alþýöubandalags-
ins aö HP ekki hafa haft nein áhrif á ritstjórnarstefnu sína. DV-mynd BG
Fyrrverandi sveitarstjóri á Suðureyri:
Eg var ekki á staðnum
- eigum innbúið og húsið enn þá, segir Halldór Karl Hermannsson
„Lögreglan á ísafirði stöðvaði
mig aldrei við að bera innbú og
fleira út úr húsi mínu á Suðureyri
enda hefði hún átt óhægt um vik
þar sem ég var í Reykjavík. Þá er
rangt að ég hafi átt húsið þar sem
það hafi verið boöið upp. Hið rétta
er að ég á húsið enn þá. Uppboði á
því, sem átti að fara fram 10. júní,
var frestað og hefur ekki farið
fram,“ segir Halldór Karl Her-
mannsson, fyrrverandi sveitarstjóri
á Suðureyri.
í frétt DV sl. fimmtudag segir að
hús HaUdórs Karls og gámur með
búslóð HaUdórs og fjölskyldu hans,
sem stendur utan við húsið, hafi
hvort tveggja verið innsiglað. For-
saga þess er sú, aö sögn HaUdórs
Karls, að þótt um ár sé liðið frá því
að fjölskyldan flutti út úr húsinu
átti hún enn nokkuð af innan-
stokksmunum í því. Nokkru áður
en hið fyrirhugaða uppboð skyldi
fara fram fór eiginkona hans vestur
tU þess að tæma húsið.
Sýslumannsembættinu og/eða
lögreglunni hafi í framhaldi af því
borist kæra eða ábending frá íbúa á
Suðureyri um að verið væri að fjar-
lægja innréttingar úr húsinu og inn-
siglaði fuUtrúi sýslumanns húsið og
gáminn í framhaldinu. Halldór
kveðst hafa orðið mjög undrandi á
þessu þar sem fjölskyldan hafi verið
í fuUum rétti tU að fjarlægja innbú
sitt úr húsinu og umrædd kæra
ekki verið á nokkrum rökum reist.
Þar sem uppboð hafi enn ekki far-
ið fram á eigninni sé hann enn þá
lögformlegur eigandi þess og auk
þess hafi ekkert löghald verið lagt á
það innbú og lausamuni sem fjöl-
skyldan átti enn þá í húsinu. -SÁ
Húsavík:
A-flokkarnir með sameiginlegt framboð?
DV, Akureyri:
Samkvæmt heimfldum DV era
þreifingar í gangi á miUi Alþýðu-
bandalagsins og Alþýðuflokksins á
Húsavík um sameiginlegt framboð
flokkanna i kosningunum til bæjar-
stjómar í vor.
Einhveijar þreifingar munu hafa
farið fram og er rætt um að Frið-
finnur Hermannsson, framkvæmda-
stjóri sjúkrahússins á Húsavík,
muni leiða listann í kosningabarátt-
unni verði af sameiginlegu fram-
boði en Friðfinnur er alþýðuflokks-
maður.
FuUyrt er að Kristján Ásgeirs-
son, sem verið hefur oddviti Al-
þýðubandalagsins á Húsavík, sé
lítt hrifinn af þessum þreifingum
og hyggist ekki taka sæti á sameig-
inlegum lista komi hann fram.
Kunnugir telja jafnvíst að Kristján
sé ekki á leiöinni út úr bæjar-
málapólitíkinni á Húsavík. Fari
svo sem margir telja, að A-flokk-
amir bjóði fram saman, má því
telja líklegt að Kristján horfi ekki
aðgeröalaus á heldur fari fram
undir öðrum merkjum.
-gk