Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1997 Asta Jónsdóttir Fagrahjatla 11 200 Kópavogur Baldur Björnsson Grettisgata 16 101 Reykjavík Björg Jónasdóttir Flyórugranda 8 107 Reykjavik Björk Agnarsdóttir Grenigrund 14 200 Kópavogur Brynja Steinarsdóttir Feltsmúla 19 108 Reykjavík Drífa B. Guömundsdóttir Strandasel 3 109 Reykjavík Edda M. Jónsdóttir Tómasarhaga 55 107 Reykjavík Eiður Hilmarsson Digranesvegi 14 200 Kópavogur Elín Þorgeirsdóttir Hátröð 5 200 Kópavogur Emil Hreggviðsson Austurbrún 29 104 Reykjavík Erla Grétarsdóttir Hátúni 47 105 Reykjavík Ester Jónsdóttir Marbakkabraut 18 200 Kópavogur Guðjón Guðjónsson Dataland 6 108 Reykjavík Guðrún Norðfjörð Fetlsmúla 19 108 Reykjavik Gunnar Gunnarsson Grettisgötu 11 101 Reykjavík Gunnar V. Engilberts Deptuhólar 8 111 Reykjavík Hafsteinn Svavarsson Grundarhús 13 112 Reykjavik Haraldur Guðmundsson Selvogsgrunn 5 104 Reykjavík Helga Ingvarsdóttir Sörtaskjóli 58 107 Reykjavik Hilda Björk Línberg Vallarás 5 110 Reykjavík Hrefna Erlingsdóttir Flétturima 10 112 Reykjavík Inga D. Steinþórsdóttir Merkjateig 2 270 Mosfettsbæ Inga Heiða Hatldórsdóttir Miklabæ 566 Hofsós Ingibjörg Haltdórsdóttir Hjarðarland 6 270 Mosfetlsbær Jóhanna H. Guðmundsóttir Veghús 21 112 Reykjavík Jónina S. Pátsdóttir Hraunbæ 90 110 Reykjavík Katrín Halldórsdóttir Hávallagötu 12 101 Reykjavik Katrin Oddsdóttir Faxaskjóli 10 107 Reykjavík Kristján Ágústsson Langagerði 3 108 Reykjavík Kristján Gislason Víðihvammur 30 200 Kópavogur María Björk Jónsdóttir Hraunbær 54 110 Reykjavík Maria Ólöf Magnúsdóttir Hábær30 110 Reykjavik Nanna Jakobsdóttir Hringbraut 46 101 Reykjavík Ólafia Linberg Jensdóttir Skólagerði 9 200 Kópavogur Óli Hrafn Ólafsson Eyktarási 21 110 Reykjavik Pálmar Arnarsson Seljavegur 25 101 Reykjavik Sara Axelsdóttir Stóragerði 17 108 Reykjavik Sesselja Björnsdóttir Grenimel 30 107 Reykjavík Sigrún Dögg Kvaran Seitugrandi 8 107 Reykjavik Sigurgrímur U. Ólafsson Lundur 1 v/Vesturl.veg 110 Reykjavík Sigurjón Vatdimarsson Funafotd 54 112 Reykjavík Stefán Ellertsson Kleppsveg 2 105 Reykjavik Svandís E. Magnadóttir Hátún 49 105 Reykjavik Valgeir Jónsson Vogaland 4 108 Reykjavik Þorgerður Hannesdóttir Kjalartand 26 108 Reykjavík Þorgerður Hannesdóttir Kjalartand 26 108 Reykjavík Þorvatdur Hrafn Yngvason Víðimelur 64 107 Reykjavik Þorvarður Jóhannesson Hávatlagata 22 101 Reykjavík Þórhattur Stígsson Brekkutæk 1 105 Reykjavík Ægir Rúnar Sigurbjörnsson Átfheimar 28 104 Reykjavík Vinningshafar vitji tveggja miða hjá Vífitfelli, sölu- og markaðsdeild, Stuðtahátsi 1 dagana 23. - 25. júní 1997. LAUGARDALSHOLL »""‘"»«1“ 25. J Ú N í 1997 NÓATÚN Fréttir__________________ Bylgja skemmdar- verka á Ólafsfirði DY Ólafsfirði: Undanfamar vikur hefur borið mikið á skemmdarverkum hér í bæ og í öllum tilfellum er talið að um börn og unglinga hafi verið að ræða. Á dögunum var brotist inn í vinnustofu myndlistarkonu hér í bæ og allt lagt í rúst. Það mál upp- lýstist fljótlega en nokkrar 10-13 ára stúlkur voru þar á ferð. Ljósastaur við bæjartjömina var eyðilagður og á sama tíma merkingar á ruslagám- um við höfhina. Jeppabifreið var stórskemmd á hliðinni, þegar 4-7 ára gamlir óvitar rispuðu alla hlið- ina með fánastöng. Fyrir nokkru var garðslanga sett inn um svefn- herbergisglugga á jarðhæð þar sem öldruð kona býr ein; var hún að heiman nokkra stund, en þegar heim kom var húsið allt á floti. Mál- ið er i rannsókn. En aumast af öllu var þegar fjórir gæsamngar voru grýttir til dauða í kofa sem þeir halda til í. Menn í andavinafélaginu töldu þá öragga í þessum kofa. Vængjaðir vargar hafa náð að höggva í anda- og gæsastofn- inn hér um slóðir undanfarin ár. En nú var það mannfólkið sem brást. Fimm gæsarungar sluppu þó frá bráðum bana. Fólk á Ólafsfirði er slegið yfir svona grimmdarverkum. -H.J. Dalasýsla: Heimsókn forsetahjónanna í Dalasýslu tókst vel. Meö þeim á myndinni er Friöjón Þóröarson, fyrrverandi ráöherra og sýslumaöur Dalamanna. DV-mynd Melkorka Vel heppnuð forsetaheimsókn DV, Dalasýslu: Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og kona hans, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, voru í opin- berri heimsókn í Dalasýslu dagana 20. og 21. júní. Heimsóknin hófst með móttöku við sýslumörkin í Bröttubrekku. Síðan var ekið til Búðardals en þar fór formleg móttaka fram í Dalabúð. Forsetahjónin snæddu þessu næst hádegisverð í boði Mjólkur- samlagsins í Búðardal. Eftir það skoðuðu þau ýmis fyrirtæki og stofnanir á staðnum. Eiríksstaðir í Haukadal, fæðingarstaður Leifs Ei- ríkssonar, var skoðaður. Kvöldverð- ur var síðan að Laugum í Sælings- dal. Um kvöldið bauð forsetinn íbú- um Dalasýslu til hátíðarsamkomu i Dalabúð. Þar afhenti hann nokkrum ungmennum hvatningarskjöl. Síðari dag heimsóknarinnar var Byggðasafnið að Laugum skoðað. Sömuleiðis Hvammur í Dölum, meðferðarheimilið að Staðarfelli, Skarð á Skarðsströnd, Ólafsdalur og Gilsfjarðarbrú. Þá var um miðjan daginn opið hús í félagsheimilinu Tjamarlundi. Um kvöldið voru for- setahjónin kvödd í Dalabúð. Dala- menn færðu þeim að gjöf, við það tækifæri, tvíbreiða æðardúnsæng með fangamarki þeirra hjóna. Sængin er að öllu leyti framleidd í Dalasýslu. -Melkorka Ben./S.dór Mikil bót er aö hinni nýju heilsugæslustöö í Laugarási í Biskupstungum. Nýja stööin leysir aöra eldri af hólmi þar sem þrengsli voru mikil. Laugarás í Biskupstungum: Ný heilsugæslustöð Ný og glæsileg heilsugæslustöð var vígð í Laugarási í Biskupstung- um á laugardaginn. Að heilsugæslu- stöðinni standa sex hreppar í upp- sveitum Ámessýslu. íbúar hrepp- anna eru um 2300 auk þess sem fjöl- mennasta sumarhúsabyggð landsins er á þjónustusvæði stöðvarinnar. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra tók við stöðinni úr hönd- um Lofts Þorsteinssonar, fulltrúa byggingarnefndar. Ingibjörg tók einmitt fyrstu skóflustungu að heilsugæslustöðinni vorið 1995. Nýja stöðin er rúmlega 500 fer- metrar að stærð. Mikil bót er að henni því eldri heilsugæslustöðin í Laugarási var aðeins rúmlega 100 fermetrar að stærð. í stöðinni eru læknastofur, aðgerðaherbergi, mæðravernd og aðstaða fyrir röntgen- og meinatækni. Að auki er aðstaða fyrir framkvæmdastjóra og lítill fundarsalur. Þá er aðstaða fyr- ir lyfjabúr og sérfræðinga, svo sem tannlækna og augnlækna. Aðalverktaki við byggingu stöðv- arinnar var Nýverk, Þröstur og Gylfí á Flúðum. Kostnaður við bygg- inguna nam rúmum 52 milljónum króna sem er um 80 prósent af kostnaðaiáætlun. Sandkorn dv Alltaf bjartsýnir íslenskir stangveiðimenn eru án efa með bjartsýnustu mönnum ver- aldarinnar. Þeir ganga til hvers ein- asta sumars fullir bjartsýni um að nú muni aldeil- is verða veisla á bökkum ánna og þeir muni setja í þann stóra. Fiski- fræðingar ala sifellt á þessari bjartsýni úr fjarlægð með góðum veiöispám. Fyr- ir sumarið í sumar spáðu þeir mikilli smálaxagengd í árnar en sögðu reyndar að e.t.v. yrði ekki mikið um stóra fiskinn sem jafnan kemur á undan smáfiskinum. Það hefur gengið eftir og er veiði á flestum stöðum slök það sem af er. En það er jafnvíst og 2x2 eru 4, að komi smálaxinn ekki í ámar í miklu magni í sumar, þá halla veiðimenn sér upp að stöngunum sínum í haust og segja að það þýði ekki annað en fiskurinn hafi ákveðið að dvelja eitt ár enn í hafi, og því verði geysilega mikið um stórlaxa næsta sumar. Lækkið aldurinn Nokkur pirringur varö milli for- ráðamanna Menntaskólans á Akur- eyri og fjölmiðla á Akureyri í vetur þegar skólamönnum fannst fjölmiðl- ar ekki gera þvi skil sem skyldi að á árshátlð skólans sást ekki vín á nokkrum maimi. Tryggvi Gislason skóla- meistari gerði áfengiskaupa- aldur að um- ræðuefni í skólaslitaræðu sinni 17. júní. Hann sagði vín löngu komið til að vera, hins vegar væri ekki við hæfi að drekka þaö alls staöar og enginn yngri en 18 ára ætti að neyta vins. En skóla- meistari bætti við að lækka ætti áfengiskaupaaldur í 18 ár, ekki til að auka drykkju, heldur til að minnka drykkju. Er ekki víst að bindindisfrömuðir landsins séu til- búnir að taka undir þessi orð skóla- meistarans. Bindindi best Tryggvi sagði við sama tækifæri að með því að lækka áfengiskaupa- aldur i 18 ár væri vinnandi vegur að koma í veg fyrir að yngra fólk kæmist yfir áfengi, en eins og nú væri í pottinn búið væri ógeming- ur að halda lög- in um 20 ára áfengiskaupa- aldur. Tryggvi bætti við að al- gert vínbind- indi væri best, en næstbest að .drekka vín i hófi. Nemendur skólans hefðu virt vinbann í húsum skólans og á skemmtunum á vegum skólans þótt undanfarið hafi fleiri brotið vínbann heimavistar skólans en áður. Það sagði Tryggvi hins vegar beina afleiðingu þess að ekki væri unnt að fylgja eftir lögum um 20 ára áfengiskaupaaldurinn. Lítill skilningur En Tryggvi skólameistari sagði fleira í ræðu sinni. Hann sagðist m.a. ekki draga dul á að sér þyki skilningur stjórnvalda á þörfum og gildi skóla- menntunar llt- ill. „Ráðherrar undanfarinn áratug hafa heldur ekki lát- ið sitt eftir liggja til þess að gera skóla og kennara tor- tryggilega. Virt- ur ráðherra sagði eitt sinn að kennarar ynnu aðeins hálft árið, annar sem sjálfur hafði verið kennari og skólameistari, sagði að meö góðu skipulagi mætti vel ljúka allri skólakennslu fyrir hádegi, og þriöji ráðherrann fullyrti hvaö eftir annað að starfstími fram- haldsskólanna væri sex mánuðir á ári,“ sagði Tryggvi Gíslason í ræöu sinni. Umsjón Gylfi Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.