Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1997 9 DV Leiðtogarnir dottuðu yfir kvöldverði Clintons: Utlönd Kohl harðneitaði að fara í kúrekastígvél Borís Jeltsín Rússlandsforseti mætti til fundar við Jacques Chirac Frakklandsforseta í gær í Denver í Bandaríkjunum eins og ráðgert hafði verið. Þar með kvað Jeltsín niður orðróm sem komst á kreik á laugardagskvöld um að hann gengi ekki heill til skógar. Jeltsín hafði dregið sig í hlé á undan leiðtogum sjö helstu iðnríkja heims er þeir snæddu allir kvöldverð saman. Þar með missti hann af sérstakri kvöld- skemmtun sem haldin var leiðtog- unum til heiðurs. „Hann var bara þreyttur," sagði talsmaður Hvíta hússins við frétta- menn. Talsmaður Kremlar benti á að hinir leiðtogamir hefðu átt í erf- iðleikum með að halda sér vakandi. „Það var rétt af þér að fara heim á hótel,“ sagði Chirac við Jeltsín í gær. „Allir hinir sátu og dottuðu, sérstaklega Hashimoto (forsætisráð- herra Japans).“ Reyndar ríkti svolítil spenna í loftinu fyrir kvöldverðinn á laugar- daginn. Á síðdegisfundi hafði leið- togunum verið tilkynnt að þeim yrðu gefln kúrekastígvél og kúreka- hattar. Forsætisráðherra Ítalíu, Romano Prodi, greindi frá því að hann hefði átt langar viðræður við Helmut Kohl Þýskalandskanslara um stígvélin. Hefði Kohl lýst því yfír að hann myndi aldrei fara í þau. Prodi leist líka hryllilega á Bill Clinton Bandaríkjaforseti fagnaði Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, er hann mætti í kúrekabúningi til kvöldverðar á leiðtogafundi sjö helstu iðnríkja heims. Sfmamynd Reuter fótabúnaðinn en Hashimoto, forsæt- sætisráðherra Bretlands, og Jean isráðherra Japans, Tony Blair, for- Chrétien, forsætisráðherra Kanada, gerðu Clinton það til geðs að mæta í kúrekastígvélum. Þriggja daga fundi leiðtoga Bandaríkjanna, Frakklands, Bret- lands, Þýskalands, Ítalíu, Kanada, Japans og Rússlands lauk í gær. Á fúndinum notuðu leiðtogar Evrópu tækifærið til að fullvissa félaga sína um að sameiginleg mynt Evrópu væri staðreynd. Helmut Kohl, kansl- ari Þýskalands, sagði að það væri engin spuming um að sameiginleg mynt tæki gildi 1999 eins og ráðgert hefði verið þrátt fyrir þá erfiðleika sem mörg Evrópuríki ættu við að glíma til að fullnægja þeim skilyrð- um sem sett væm. Svo virðist sem Bandaríkjamenn hafi farið í taugarnar á sumum gest- anna frá Evrópu. Heimildarmaður einnar sendinefndarinnar sagði Bandaríkjamenn hafa messað yfir hinum um allt mögulegt, allt frá því hvemig þeir ættu að stýra efnahags- málum sínum heima fyrir til þess hvemig þeir ættu að veita Afríku aðstoð. Ágreiningur ríkti um stækkun- Atlantshafsbandalagsins og hvort friðargæslulið ætti að vera áfram í Bosníu. Áttu sumir sendifulltrúar erfitt með að leyna óánægju sinni. „Bandaríkjamenn sögðu að við ætt- um að taka eftir þvi hvað þeir væm klárir og við slæmir," var haft eftir einum sendifulltrúanna. Reuter Charade eigendur! Kjarabætur fyrír ykkur - Spindilkúlur '88 - kr. 5.600,- Spindilkúlur '87 - kr. 5.100,- Hjóldælur að aftan '88 - kr. 1.750,- GSvarahlutir H AM ARSHÖFD* 1-5676744 RoOtS teg: 2455 ir: hvítt og svart St. 35-40 Verð kr. 4.690,- Miss Mona teg: 1344 Litir: blátt, svart og orange St. 37-42 Verð 4.190,- Ponny Barna- striga- skór Litir: rautt og blátt St. 22-28 Verð 1.590,- Póstsendum frítt samdægurs fiU9M«SlMS6MK6 Kari og Tony Patrone í Wauwatosa í Wisconsin ■ Bandaríkjunum urðu aö yf- irgefa heimili sitt vegna flóöa í kjölfar mikilla rigninga um helgina. Simamynd Reuter Dómsmálaráðherra Rússlands: Víkur tímabundið vegna nektarmynda Dómsmálaráðherra Rússlands, Valentin Kovaljov, hefur verið vikið tímabundið úr starfi á meðan rann- sókn fer fram vegna gufubaðs- hneykslis. Ráðherrann bað sjálfur um lausn frá embætti eftir að mán- aðarrit birti óskýrar nektarmyndir, teknar af myndbandi, af ráðherran- um og konum í gufubaði í nætur- klúbbi. Greinilegt þykir að notuð hafi verið falin myndavél. Kovaljov sagði í yfirlýsingu á laugardaginn að hann þyrfti ekki að skammast sín fyrir neitt. Hann bæði um að fá lausn tímabundið til að geta hreinsað nafn sitt. Gaf ráð- herrann í skyn að hann myndi lög- sækja tímaritið. Kovaljov sagði það vel þekkt að hægt væri að nota tölv- ur til að falsa myndir. Sjaldgæft er að fiölmiðlar í Rússl- andi beini kastljósi sínu að ráðherr- um. Fáir, ef nokkrir, rússneskir ráðherrar hafa þurft að segja af sér vegna hneykslismála. Reuter OFLUGUR PAKKI- Á EINSTÖKUVERDI COB fitaraso i uumi 11« t*mt* AK-K35 6-Diska magasfn / 1-Bit DAC geislaspilari Endurspilun 1 eða öll lög / Handahófsafspilun Sérstök rykvörn utanum geislaspilara. Spilari sérstaklega varinn gegn höggum og titringi Öllu stjórnað frá bíltæki 4 x35 W magnari / RDS radio data system / 24 stöðva minni / Þjófavörn Snertihnappar Karaoke kerfi / Tveggja lita skjár / Sjálfvirk leitun að bestu útvarpsstöð / Auto reverse segulband / Lagaleitun á segulbandi / Stjórnhnappar f. CD magasín RCA tengi f. auka kraftmagnara / Sjálfvirk lækkun við símhringingu / Klukka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.