Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1997 29 Fréttir Eyþing sannar tilveru sína segir Einar Njálsson, fráfarandi formaður samtakanna DV, Akureyri: „Það var lagt upp með það að samtökin yrðu almennur vettvang- ur skoðanaskipta sveitastjórnar- manna hér í kjördæminu, og að vinna að þeim málum sem sveitarfé- lögin ættu sameiginleg," segir Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, sem lét af störfum sem formaður Eyþings, samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, í siðustu viku. Eyþing var stofnað árið 1992 í kjöl- far þess að Fjórðungssamband Norölendinga var lagt niður og tvö samtök sveitarstjómarmanna vora stofnuð á Norðurlandi, Eyþing, og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. „Við höfum reynt að láta ýmis mál til okkur taka, við höfum hald- ið árlega fundi með þingmönnum kjördæmisins og reynt að beita áhrifum okkar í ýmsum málum. Þannig höfum við látið vegamál til okkar taka, við höfum haft afskipti af málefnum sjúkrahúsanna á svæð- inu, við höfum beitt okkur til stuðn- ings Háskólanum á Akureyri og uppbyggingu hans og við höfum reynt að beita okkur í atvinnumál- unum svo eitthvað sé nefnt,“ segir Einar. Hann segir að samtökin hafi tví- mælalaust sannað tilverurétt sinn. „í því sambandi liggur beinast við að benda á afskipti Eyþings af mál- efnum sem varða yfirfærslu grunn- skólans til sveitarfélaganna og þá ákvörðun að stofna Skólaþjónustu Eyþings til að sjá um sérfræðiþjón- ustu fyrir skólana. Sú þjónusta er að vísu ekki nema ársgömul og þar er talsvert óunnið." Þessa dagana er verið að kjósa um sameiningu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og sú umræða talsvert í sviðsljósinu. Kemur Ey- þing á einhvem hátt að þeim mál- um? „Ég sé það tæpast fyrir mér að samtökin geti komið með beinum hætti inn í slík mál vegna þess að aðstæður eru svo mismunandi frá einum stað til annars. Samtökin geta hins vegar komið að því máli á óbeinan hátt með því að veita upp- lýsingar og hugsanlega ráðgjöf í því sambandi, t.d. við að meta kosti og galla sameiningar hverju sinni. Ey- þing getur hins vegar ekki komið að þeim málum með pólitískum hætti,“ segir Einar. -gk Erik Bach, sölustjóri hjá Hedensted Gruppen (t.v.) og Guðmann Tobíasson, sölustjóri KS, kynntu vöruúrvaliö. DV mynd Örn Sauðárkrókur: Ráðstefna um loðdýr DV, Fljótum: Fjöldi loðdýrabænda víðs vegar að af landinu sótti 2ja daga sýn- ingu og ráðstefnu um loðdýrabú- skap á íslandi sem haldin var á Sauðárkróki nýverið. Kaupfélag Skagfirðinga gekkst fyrir ráðstefn- unni í samvinnu við Byggðastofn- un, landbúnaðarráðuneytið, Sauð- árkróksbæ og Samtök loðdýra- bænda. Meðal frummælenda voru Guð- mundur Malmquist forstjóri, Magn- ús B. Jónsson skólastjóri, Sigurður Hansen, formaður SÍL og Arvid Kro, framkvæmdastjóri SÍL. Þá ávarpaði Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráðherra ráðstefnu- gesti. í máli forstjóra Byggðastofnunar kom fram að stofnunin hefði metið það svo þegar rofa tók til í greininni fyrir 1-2 árum að mestir möguleik- ar til eflingar loðdýrabúskapar væru á svæði fóðurstöðvarinnar á Sauðárkróki. Hann gat einnig um stórrekstur á þessu sviði og bolla- leggingar um staðsetningu slíks fyr- irtækis. Magnús Jónsson fjallaði um stöðu loðdýraræktar í landinu, þekkingu, menntun og menntunarmöguleika. Gat hann þess að bændur í grein- inni hefðu verið öðrum kollegum sínum duglegri við að sækja nám- skeið og nýta þau. Það hefði vakið athygli að þar sem hjón væru í bú- rekstri væri þátttaka kvenna mjög góð og meiri en sjá mætti víða ann- ars staðar. Að loknum umræðum á ráðstefn- unni skoðuðu gestir sýningu á bún- aði til loðdýrabúskapar. Að sýning- unni stóðu Hedensted Gruppen A/S í Danmörku og Kaupfélag Skagfirð- inga sem er umboðsaðili þess hér á landi. þá skoðuðu gestir fóðurstöð- ina á Sauðárkróki. -Ö.Þ. Verkalýðsfélagið Eining: Tæplega 5000 félagar var jákvæð um 25,6 milljónir króna, sem er vegna hagstæðrar sölu félagsins á hlutabréfum í Út- gerðarfélagi Akureyringa. 1,4 milljóna króna rekstrartap varð á félaginu þótt tekjur hafi aukist á milli ára. Bjöm Snæbjömsson var endur- kjörinn formaðiu' félagsins á aðalfundi þess en einn listi var í kjöri. -gk DV, Akureyri: Aðalfélagar í Verkalýðsfélag- inu Einingu í Eyjafirði eru 3763 talsins og aukafélagar 1079, og er félagið fjölmennasta verkalýðsfé- lagið utan höfuðborgarsvæðisins. Flestir eru félagarnir á Akureyri, eða 3696. Heildarniðurstaða af rekstri allra sjóða félagsins á síðasta ári Hitakútar Verð kr. 39.900.- Umboðsmenn um land allt Hitakútarnir frá EDESA ern vel einangraðir, eyðslugrannir, með yfirhitavörn og hrtastilli auk þess að vera auðveldir í uppsetningu. Við bjóðum nú EDESA hitakútana á frábæru verði. Einnig fáanlegir 50 L. 22.000.- 75 L. 29.000.- 150 L. 35.900.- \________________/ VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR RflFTfEKDflUERZLUN ÍSLflNDS If - ANNO 1 923 - Skútuvogur 1 • Slmi 568 8660 • Fax 568 0776 Opel Astra STW, árg. ’95, 1400, beinsk., 5 d., vinrauöur, ek. 68 þús. km.Verö 1.120.000. Grand Cherokee, árg. ssk., 5 d., svarlur ek. 25 þús. km. Verö 3.790.000. Einn meö öllu. Ford Aerostar XLT, árg. '92, 4,0, ssk., 4 d., blár, 4x4. Verö 1.550.000. Ford Aerostar Eddybauer, árg. '90, 4,0, ssk., 4 d., rauöur, 4x4, Verö 1.370.000. Hyundai Elentra ET, árg. '96, 1,8, ssk., 4 d., græns., ek. 30 þús. km. Verö 1.440.000. Toyota Corolla, árg. '92,1,3, ssk., 5 d., rauöur, ek. 65 þús. km. Verö 760.000. Honda Prelude, árg. '88, 2,0, beinsk., 2 d., svartur, ek. 142 þús. km., álf. o.fl. Verö 730.000. 2,3E, beinsk., 4 d„ svartur, ek. 80 þús. km. Verö 1.950.000. Benz 310 D, árg '91, 5 cyl., ssk., 5 d„ hvítur, ek. 213 þús. km. Verö 1.580.000. Dodge Grand Caravan, árg. '93, 3300, ssk„ 4 d„ brúns., ek. 100 þús. km. Verö 2.250.000. BÍLASALAN BÍLFANG BORGARTÚNI 1b Toyota HiAce, árg. '91, 2,0, beinsk., 4 d„ hvítur, ek. 130 þús. km. Verö 1.130.000 m/vsk. SÍMI 552-9000 rn»c lOCbiilu liiniauMi wlm staögreiöslu og greiöslukortaafslöttur og stighœkkandi birtingarafsláttur Smáauglýsingar DV SSOSOQO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.