Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1997, Page 24
32
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1997
Sviðsljós
Spáir að
hjónaband
sonarins endist
ekki lengi
Hinn nýgifti David Duchovny
er óforbetranlegur kvennabósi.
Það er faöir leikarans sem
fullyrðir þetta. Amran
Duchovny, sem býr í París, var
reyndar ekki viðstaddur
brúðkaup sonar síns i maí. Hann
spáir því hins vegar að
hjónaband Davids og Téu Leoni
muni ekki endast lengi. „Þegar
somn- minn sagði að hann væri
ekki trúr þá var hann ekki að
ljúga. Hann hefur þekkt fleiri
konur en ég get talið,“ segir
faðirinn.
Clint Eastwood ber aldurinn vel:
Kostar æ meiri svita að
halda sér í góðu formi
Hann þykir kynþokkafullur í
meira lagi og þær eru ófáar konum-
ar sem kikna enn í hnjáliðunum
þegar þær berja hann augum, þrátt
fyrir að aldurinn hafi færst yfir og
árin orðin hvorki meira né minna
en 67 talsins.
Hér er um að ræða kvikmynda-
leikarann Clint Eastwood sem þrátt
fyrir nokkuð háan aldur er í ótrú-
lega góðu líkamlegu formi. Að eigin
sögn leggur hann mikið upp úr því
að halda sér í formi og æfir á hveij-
um degi. Hann viðurkennir þó að
það verði sífellt erfiðara að halda
sér í góðu formi og að það kosti æ
meiri svita og erfiði.
„Það kemur fyrir að ég missi úr
æfingar en það er ekki oft. Ef það
nær heilli viku sem ég stunda ekki
æfingar er eins og ég sé að byrja al-
veg upp á nýtt og það finnst mér
óþolandi," segir hann.
Þegar hann er við upptökur á
kvikmyndum byrjar hann yfirleitt
daginn á því að hlaupa u.þ.b. fimm
kílómetra. Hann passar sig líka á
því að borða hollan mat og hefur
aldrei misnotað áfengi.
Clint segir hafa verulega reynt á
Clint Eastwood er í ótrúlega góðu líkamlegu formi þó kominn sé á efri ár.
líkamlegt atgervi við tökur á mynd-
inni In the Line of Fire sem gerð
var fyrir fimm árum. Þar lék hann
leyniþjónustumann sem vann við
öryggisgæslu hjá sjálfum forsetan-
um. í einu atriðanna þurfti hann að
hlaupa með fram bUalest nokkuð
langa vegalengd.
„Kvikmyndáverið heimtaði til að
byrja með að ég fengi staðgengil.
Ætli þeir hafi ekki viljað passa upp
á fjárfestingu sína. Ég vildi fá að
gera þetta sjálfúr og það gekk eftir.
Ég tók hins vegar ekki með í reikn-
inginn að það þyrfti að taka atriðið
oft upp. Ég verð að viöurkenna að
ég var ansi lúinn 37 tökum síðar.“
Clint segist hafa verið mjög hepp-
inn því hann hafi aldrei orðið alvar-
lega veikur en hann segist heldur
ekki taka því sem gefnu að halda
heilsunni.
„Það er nú einu sinni svo að ef
maður misnotar líkama sinn þá
svarar hann í sömu mynt,“ segir
þessi spengilegi síungi leikari sem
segist þakka fyrir hvem dag sem
hann rís úr rekkju án þess að
verkja í líkamann.
í Fjörkáifinum í OV á íöstudögum
Á Byigjunni á fimmtudögum kl. 20
og endurfluttur á
laugardögum kl. 16
> f wBHKKÍÍ % ‘' f 1 i i a®k.
i ’ \ \ ®v: ■ ; i\ fefT'i
Díana prinsessa af Wales var viöstödd hátíðarsýningu í Tate Gallery
London í vikunni. Prinsessan fagnaöi samtímis 36 ára afmæli sínu.
Madonna reis upp til
vamar fyrir Mike Tyson
Söngkonan Madonna var ekki
ánægð með að þotuliðið í Las Ve-
gas skyldi gera grín að Mike
Tyson þegar hann hafði bitið
atykki úr eyranum á Evander
Holyfield. Madonna var ásamt
Sylvester Stallone, Tiger Woods,
Roseanne, Val Kilmer, Courtney
Love, Michael Douglas og Michael
Keaton í partýi eftir hnefaleika-
keppnina á MGM Grand Grand
Hotel í Las Vegas á laugardaginn.
Stallone er vinur Holyfield og fór
ekki fögrum orðum um Tyson.
Madonna lýsti þá yfir stuðningi
við Tyson.