Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1997, Blaðsíða 28
36
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1997
Ummæli
Salt í
grautinn
„Ef hálf þjóðin lætur sjá sig á
ég fyrir salti í grautinn.“
Óskar Jónasson kvikmynda-
gerðarmaður sem nýlokið hef-
ur við kvikmynd sína Perlur og
svin, í Morgunblaðinu.
Culcuvox frá Panasonic kom á
markaö áriö 1984.
Talandi
vasa-
reiknir
Árið 1984 setti risafyrirtækið
Panasonic á markað vasareikni
sem var þeim eiginleika gæddur
að geta talað frönsku. Hann
greinir frá óþægilegustu niður-
stöðum með þægilegri kven-
mannsrödd.
Blessuð veröldin
Lógaritmar
Skotinn John Napier
(1550-1617) fann upp lógaritmana
árið 1614.
Greindar-
vísitala
Frakkinn Alfred Binet
(1857-1911) mótaði aðferð til að
ákvarða greindarstig manna með
sérstökum prófum í samvinnu
við landa sinn, Simon. Binet-
Simon prófið varð til árið 1905.
kynhvöt
„Stundum horfi ég líka á alveg
kolólöglegar myndir úr vídeóinu.
Það hefur sennilega annaðhvort
með eftirhreytur af kynhvöt að
gera eða þá óeðli. Nema hvort
tveggja sé.“
Jonni á Uppsölum, í Degi-Tím-
anum.
Fólk flæðandi
um sjúkra-
húsgangana
„Að sögn hjúkrunarstarfsfólks
þá flæðir fólk um ganga og inn í
öll skúmaskot. Það er ekki leng-
ur þannig að sjúklingar séu bara
látnir liggja á göngum, heldur
einnig á holum og anddyrum."
Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir þingmaður, í Alþýðublað-
inu.
Galtarviti
Daglega heyrist talað um Galtar-
vita í veðurfréttunum. Þar er þó
ekki eins illviðrasamt og ætla
mætti. Þangað er fært eftir fjörum
úr báðum áttum og einnig eftir há-
fjallgarðinum og niður í Keflavík
þar sem vitinn er. Það er þó býsna
löng leið. Hægt er fá sig ferjaðan frá
Suðureyri til Norðureyrar og ganga
þaðan 6 til 7 km leið eftir fjörunum
með viðkomu á eyðibýlinu Gelti
sunnan undir samnefndum
fjallsnúpi.
Umhverfi
Sömu leið má fara til baka eða
ganga upp úr Keflavíkurdalnum og
út á Gölt. Göltur er tæplega 500
metra hár. Að lokum má svo fara
beint niður fjallshlíðina á Norður-
eyri.
Heimild: Gönguleiðir á íslandi eftir
Einar Þ. Guðjohnsen.
Ragnheiður Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Listasumars á Akureyri:
Ég hef mikinn áhuga á
öllu sem tengist listum
DV, Akureyri:
„Þetta er mjög skemmtilegt
starf en um leið einnig krefj-
andi. Það felst fyrst og fremst í
skipulagningu með tilheyrandi
fundarhöldum og einnig því að
fá fólk til að taka þátt í sam-
starfi. Þá þarf að huga að ýmsu
öðru eins og að koma út prent-
uðu efni, hafa samband við fjöl-
miðla og þess háttar,“ segir
Ragnheiður Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Listasumars 1997
á Akureyri sem stendur yfir til
29. ágúst.
Ragnheiður segir að á Lista-
sumri séu alls um 80 atriði.
„Það má segja að það sé alltaf
eitthvað um að vera á hverjum
degi. Nú stendur t.d. yfir sam-
sýning 43 listamanna frá Akur-
eyri sem sýna verk sín i Deigl-
unni. Sýningin ber heitiö 50x50
en það er vegna forms mynd-
anna sem sýndar eru. Við erum
annars með tónlist af ýmsum
toga, fáum til okkar báðar sin-
fóníuhljómsveitimar íslensku,
Ragnheiöur Ólafsdóttir. DV-mynd gk
Maður dagsins
erlenda gesti og
áfram mætti telja.“
Ragnheiður er Borg-
nesingur en hefur
búið og starfað á Ak-
ureyri sl. fjögur ár.
Hún er tónmennta-
kennari að mennt og
hefur starfað sem
slíkur í 10 ár, m.a. á
Hrafnagili í Eyja-
firði og hún hefur
stjómað kór Mennta-
skólans á Akureyri
undanfarið.
„Það er óhætt að
segja að áhugamálin
tengist listum en ég
hef áhuga á öllu sem
tengist þeim. Ég hef
einnig mikinn áhuga
á að ferðast, hef ferð-
ast mikið innan-
lands en er nú að
byrja að færa út kví-
amar og ferðast er-
lendis," sagði Ragn-
heiður.
-gk
Myndgátan
Dropasteinar
Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði.
DV
íþróttasvæðið í Borgarnesi.
Lands-
mót ung-
menna-
félaganna
í dag hefst landsmót ung-
mennafélaganna en það er að
þessu sinni haldið í Borgamesi.
Mótinu lýkur á sunnudag.
Knattspyrna
Lítið er um að vera hjá körlun-
um í Sjóvár-Almennra deildinni
í kvöld. Þar er aðeins einn leikur
en það er leikur Skallagríms og
Stjörnunnar sem fer fram á
Skallagrímsvelli kl. 20.
íþróttir
í fyrstu deild karla eru tveir
leikir. KA og Þróttur, Reykjavík,
eigast við á Akureyrarvelli kl. 20
og Fylkir og Þór eigast við á
Fylkisvelli kl. 20.
í annarri deild karla eru
einnig tveir leikir. Leiknir og
Sindri keppa á Leiknisvelli kl. 20
og Selfoss og Fjölnir á Selfoss-
velli kl. 20.
Meistara-
mót golf-
klúbbanna
Meistaramót golfklúbbanna
stendur enn yfir en því lýkur á
laugardaginn.
Bridge
Það gerist ekki oft á lífsleiðinni
að bridgespilarar taki upp tvílita
hönd með eyðu i tveimur litum. Það
gerðist þó i sumarbridge sunnudag-
inn 29. júní síðastliðinn. Hönd vest-
urs er hrein ófreskja og ekki eitt
einasta svart spil á hendinni. Ofan á
það bætist að austur er gjafari í spil-
inu (AV á hættu) og opnar á einum
spaða:
* DG874
* 7654
* -
* 952
------ 4 ÁK10632
M 108
■f 8
______ * ÁK103
* 9
44 G
•f ÁD1042
* DG8764
Flestir spilaramir i suður völdu
að segja 2 grönd á suðurhöndina til
að sýna láglitina og tvö pör völdu
meira að segja að hindra á fjórum
gröndum sem einnig bentu á láglit-
ina (á hagstæðum hættum). Tvö pör
í AV náðu að spila hjartaslemmu og
standa hana en tvö pör sem fóm í
slemmu, fóm niður á henni. Að
spila hjartaslemmu og standa hana
á spil AV gaf 15 stig af 18 möguleg-
um en toppskorið í AV var 2000 sem
fengust fyrir doblaða laufslemmu.
Eitt par ákvað að verjast í þremur
laufum dobluðum og uppskar að-
eins 500 i þeim samningi. Þaö gaf 6
stig til AV. Ekki er auðvelt að segja
á spil vesturs eftir tveggja granda
sögn suðurs. Ljóst er að tígullitur-
inn liggur illa og því alls ekki sjálf-
sagt að keyra spUið í slemmu. Að
spila 4 eða 5 hjörtu og fá 11 slagi í
spilinu gaf reyndar meðalskor.
ísak Örn Sigurðsson
4 -
4» ÁKD932
4 KG97653
4 -