Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1997, Page 32
Vinningstölur miðvikudaginn 25. 06.’97
Fjöldi
vinninga
Vinnin$ar
Vinning&upphœð Jk
Heildat^i nnh^upphœð
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ1997
>
Tryggingar á þyrlum og Fokkervél Gæslunnar:
Lægsta tilboði hafnað
- reynt aö hygla Sjóvá-Almennum, segir Alþjóöleg miðlun
„Við getum ekki séð annað en
að verið sé að finna einhverjar
leiðir til þess að ákveðinn aðili
fái þessar tryggingar hjá Land-
helgisgæslunni, þ.e.a.s. Sjóvá-AI-
mennar. Við áttum lægsta tilboð-
ið og það var algjörlega 1 takt við
útboðið en þvi var samt sem áður
ekki tekið,“ sagði Halldór Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri
tryggingafyrirtækisins Alþjóð-
legrar miðlunar, vegna útboðs
trygginga á þremur þyrlum og
einni Fokkervél Landhelgisgæsl-
unnar sem gert var á vegum Rík-
iskaupa. Alþjóðlega miðlun reka
löggiltir vátryggingamiðlarar og
þeir reka m.a. FIB-tryggingu fyrir
Loyds í Bretlandi. Iðgjöld um-
ræddra trygginga hjá Gæslunni
nema um 60 milljónum á trygg-
ingatímabilinu.
„Það vorum bara við og Sjóvá-
Almennar sem buðum í trygging-
amar,“ sagði Halldór. „Útboðið
var opnað 10. júní sl. og vélamar
áttu að vera komnar í tryggingu
þann 20. sama mánaðar. En þann
16. var ekkert farið að gerast í
málinu þannig að við fórum að
ýta á það. Við fengum engin svör
fyrr en þann 19. þess efnis að þeir
ætluðu að fresta málinu og nota
þann fjögurra vikna frest sem
Ríkiskaup áskilja sér til að skoða
tilboð. Síðan var okkur tilkynnt í
bréfi sl. föstudag að þeir hefðu
hafnað báðum tilboðunum en ætl-
uðu að endurtaka útboðiö vegna
skilmála samningsins, að því er
okkur skildist. Við erum búnir að
senda þeim bréf núna, svo og
stjórn Ríkiskaupa og fjármála-
ráðuneytinu, til þess að fá skrif-
legar skýringar."
Ríkiskaup sér um útboð trygg-
inganna á tveggja ára fresti, að
sögn Halldórs. Fyrir tveimur
árum var það harðlega gagnrýnt
að Ríkiskaup efndu til lokaðs
hraðútboös vegna trygginga á
þyrlum Gæslunnar. Málið var
kært til fjármálaráðuneytis og
Eftirlitsstofnunnar EFTA. Þá
voru vélar Gæslunnar tryggðar
hjá Sjóvá- Almennum sem buðu
lægst.
„Þá var stóra þyrlan komin í
tryggingu daginn eftir, þannig að
ekki var það flókið mál þá. Þetta
fór fram á alveg sama hátt núna,
nema að við áttum lægsta tilboð-
ið og því var hafnað.“
Ekki verið að hafna
neinum
„Það er ekki verið að hafha
einu eða neinu tilboði í þessum
tilfellum. Það er verið að sækjast
eftir hagkvæmustu kjörunum,"
sagði Hafsteinn Hafsteinsson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar, er
DV spurði hann hvers vegna
tryggingatilboði Alþjóðlegrar
miðlunar hefði verið hafnað.
Hér á eftir fer bréf það sem Al-
þjóðlegri miðlun barst frá Ríkis-
kaupum, einmitt varðandi þetta
tiltekna tilboð. Þar segir orðrétt:
„Öllum tilboðum í ofangreindu
útboði er hér með hafnað. Ákveð-
ið hefur verið að eftia til sam-
starfsútboðs með þeim tveimur
aðilum sem skiluðu tilboðum og
verða útboðsgögn send í næstu
viku.“
Með samstarfsútboði er átt við
útboð þar sem kaupandi leitar
samstarfs við einn eða fleiri aðila
um skilmála samnings. Hafsteinn
kvaðst ekki vilja ræða þetta mál
nánar við blaðamann DV en vís-
aði á Ríkiskaup.
„Ríkiskaup tekur ákvarðanir
um þessi mál, þótt það sé í sam-
ráði við okkur, og það er eðlileg-
ast að þú hafir samband við þá,“
sagði hann.
Guðmundur í. Guðmundsson
hjá Ríkiskaupum sagði að þar
væri verið að skoða niðurstöður
útboðsins.
„Ég geri ráð fyrir að við förum
í samstarfsútboð og óskum eftir
nýjum tilboðum frá þessum aðil-
um. Við erum ekki búnir að gera
þeim nákvæmlega grein fyrir
þessu þannig að ég tel ekki rétt að
við ræðum það við fjölmiðla að
svo stöddu. Við gerum þeim grein
fyrir málinu í bréfi á allra næstu
dögum en það bréf er ekki tilbúið
enn þá. Þegar það liggur fyrir er
hægt að skýra frá því.“
Guðmundur sagði að vélar
Gæslunnar væru enn tryggðar
hjá Sjóvá-Almennum þar sem sá
samningur hefði verið framlengd-
ur um hálfan mánuð, ef hann
myndi rétt. -JSS
Játuðu fyrir dómi í stóru sakamáli:
Ræningjarnir úr 10-11
ráninu ganga lausir
Mennimir tveir sem börðu peninga-
sendil 10-11 og rændu af honum millj-
ónum króna í apríl síðastliðnum var
sleppt úr gæsluvarðhaldi síðastliðinn
fóstudag. Ríkissaksóknari hefur kært
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
sem hafnaði kröfú hans um ffamleng-
ingu gæsluvarðhalds.
6** Málavextir voru þeir að mennimir
tveir og þriðji aðilinn, sá sem ók til og
ffá ránsstað, vora leiddir fyrir héraðs-
dómara í síðustu viku þar sem ráns-
málið var þingfest. Þeir hafa setið í
gæsluvarðahaldi á Litla-Hrauni ffá
Skjálfti í Henglinum
Jarðskjálfti, sem mældist um 3 á
Richter, varð í Innstadal í Henglin-
um rétt fyrir klukkan 8 í morgun.
Þetta er annar skjálftinn af þessari
stærð sem verður í Henglinum á 5
sólarhringum.
„Við emm að kanna skjálftann og
eftirstöðvar hans. Venjan er að
þessu fylgi nokkrir minni eftir-
skjálftar," sagði Sigurður Rögn-
1 * valdsson jarðskjálftafræðingur við
DV í morgun. -RR
því skömmu eftir ránið. Sakboming-
amir gerðu allir grein fyrir afstöðu
sinni til ákærunnar fyrir dómi. Þeir
viðurkenndu aðild sína í stórum drátt-
um - bílstjórinn kvaðst hins vegar
ekki hafa vitað um tilgang ferðarinn-
ar. I lok þingfestingarinnar var ákveð-
ið að vitnaleiðslur ffam 30. júlí.
Á fostudag kom fúlltrúi ríkissak-
sóknari síðan aftur í héraðsdóm - ann-
an dómara eins og lög gera ráð fyrir -
og lagði ifam kröfú um framlengt
gæsluvarðhald yfir framangreindum
tveimur mönnunum - ekki bílstjóran-
um þar sem hann situr sjálfkrafa inni
í afplánun vegna eldra sakamáls,
fíkniefnainnflutnings.
Svo fór að Héraðsdómur 'hafnaði
gæsluvarðhaldskröfu ákæruvaldsins.
Ríkissaksóknari rökstuddi kröfú sína
þannig að hann teldi nauðsynlegt að
mennimir sætu inni með tilliti til al-
mannahagsmuna þar sem þeir hefðu
framið brot sem varðaði allt að 10 ára
fangelsi. Héraðsdómur hafhaði hins
vegar kröfunni. Við svo búið kærði
ríkissaksóknari niðurstöðuna til
Hæstaréttar. Búast má við niðurstöðu
hans í dag eða á morgun. -Ótt
Norskt loönuskip á siglingu út úr lögsögunni noröaustur af landinu í
gærdag. Mjög góö loönuveiöi er nú á miöunum. Ævintýri líkast, segja
loðnuskipstjórar. Á innfelldu myndinni má sjá ókunnan kafbát sem var
á þessum slóðum í gær. Myndirnar eru teknar úr eftirlitsflugvél
Gæslunnar. DV-myndir JAK
VA, MAÐUR.
GÆSLAN ER KOMIN
KAFSÁT!
Veðrið á morgun:
Gola eða
kaldi um
mestallt
land
Á morgun verður suðvestan-
gola eða kaldi um mestallt land.
Skúrir víða um vestanvert landið
en léttskýjað um landið austan-
vert.
Veðriö í dag er á blaðsíðu 37
Kaupmam
gott vöruúrval og
persónuleg þjjónusta
þínu hverfi.
h
Pantið ítíma?
u 29 ■
dagar til þjóðhátíðar
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Bókanir í síma 570 3030