Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Blaðsíða 4
is í( um helgina *■* * Evíta að syngja sitt síðasta AUir ættu nú að vera farnir að þekkja söguna um Evítu Perón, konuna sem byrjaöi sem vændis- kona, varð síðan forsetafrú og dýrl- ingur í augum alþýðunnar en á síð- ari dögum illræmd sem verndari landflótta nasista í nautgriparík- inu Argentínu. í sumar hafa 10 þúsund manns lagt leið sina í hús íslensku óperunnar til að kynna sér sögu þessarar einstæðu konu í tónum og nú liggur fyrir að gest- imir verða ekki miklu fleiri þar sem sýningum fer nú óðum fækk- andi og lýkur reyndar um næstu helgi. Það er sem fyrr Andrea Gylfa- dóttir sem fer með hlutverk Evítu, en í öðmm hlutverkum eru Egill Ólafsson, Baldur Trausti Hreins- son og Björgvin Halldórsson. Sýn- ingar verða í kvöld og laugardag og hefjast klukkan 20. Þau Andrea og Egill hafa þótt sér- deilis frábær í hlutverkum Perón- hjónanna. í skólaleik Krakkaklúbbs DU og Pennans í Kringlunni Verðlaunin eru glæsileg: Þrjár Scout-skólatöskur og pennaveski: Kolbrún Eva Bjarkadóttir nr. 5179 Hjördís Inga Hjörleifsdóttir nr. 10605 Þórdís Agla Viðarsdóttir nr. 2214 24 aukaverölaun: Hákon Atli Bjarkason Sigríður Freydís Gunnarsdóttir Úlfur Orri Pétursson Stefán Sölvi Pétursson Guðmunda Gunnarsdóttir Marvin Helgi Magnússon Fanney Ósk Pálsdóttir íris Erla Gísladóttir Þormar E. Jóhannsson Ágúst Helgi Rikka E. Böðvarsdóttir Kristjana Kristjánsdóttir Róbert Oddsson Birna Rún Ragnarsdóttir Kara Ingólfsdóttir Sindri Ó. Sigurðsson Haraldur Bjarni Magnússon Hrólfur Ásmundsson Valgerður Halldórsdóttir Hafdís B. Böövarsdóttir Ásgeir Jónsteinsson Jón Víglundsson Hilmar Snorri Rögnvaldsson Thelma Dögg nr. 11366 nr. 11671 nr. 9163 nr. 9162 nr. 4676 nr. 11751 nr. 6626 nr. 9149 nr. 10917 nr. 9823 nr. 7139 nr. 9874 nr. 6015 nr. 9251 nr. 5124 nr. 5305 nr. 6192 nr. 12118 nr. 12109 nr. 11605 nr. 11022 nr. 7168 nr. 11200 nr. 10478 Krakkaklúbbur DV og Penninn í Kringlunni óska vinnings- höfum til hamingju með vinningana og þakka öllum sem tóku þátt í leiknum kæriega fyrir frábæra þátttöku. Vinningarnir verða sendir vinningshöfum í pósti næstu gœh*- FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 U"V Gallerí Snorra Ásmundssonar: Helvíti gaman í helvíti „Meginþema sýningarinnar er kannski að þaö getur verið helvíti gaman í helvíti,“ segir Snorri Ás- mundsson, listamaður og gallerís- eigandi á Akureyri, en á laugar- daginn kemur opnar í sýningarsal hans sýningin „To hell with all of us“ sem hann hefur skipulagt í fé- lagi við bróður sinn Ámunda og mexíkóska listamanninn Giovanni Garcia Fenech. Eins og nafn sýningarinnar bendir til er meginviðfangsefnið helvíti og hvernig það birtist mönnum með ólíkum hætti. Snorri segir hugmyndina að sýningunni hafa kviknað með þeim bræðrum í Bandaríkjunum: „Öll höfum við velt fyrir okkur hvað helvíti sé. Sum okkar gera aldrei neitt ljótt svo við þurfum ekki að uppgötva þaö. Hins vegar gætum við lent þar fyrir einhvem misskilning. Kannski eigum við vonda nöfnu eða illgjarnan nafna. Það er alltaf hugsanlegt að mistök eigi sér stað. Annað eins gerist iðulega á fæðingardeildum og því þá ekki einnig síðar á ævinni eða eftir ævina?“ Aö sögn Snorra er sýningin að mestu leyti í gamansömum tón þrátt fyrir ógnvænlegt efni: „Menn eru náttúrlega misguð- hræddir og líta þar af leiðandi hel- víti misalvarlegum augum. Ég myndi segja að flest verkanna sýni helvíti í frekar skoplegu ljósi en inn á milli eru verk með graf- alvarlegum undirtón." Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru 21 talsins og koma frá ýmsum löndum. Sýningin opn- ar á laugardaginn klukkan 21.00. -kbb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.