Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Page 6
20 um helgina FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 VEITINGASTAÐIR . 551 A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., s. 565 1693. Opið 11.30-22.30 alla daga. Amigos Tryggvagötu 8, s. 551 1333. Op. 17.30-22.30 v.d. og sd., 17.30- 23.30 fd. og ld. Argentína Barónsstíg Ua, s. 551 9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. Asía Laugavegi 10, s. 562 6210. Opið 11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd., 11.30- 23.30 fd. og ld. Askur Suðurlandsbr. 4, s. 553 8550. Op. 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd. og ld. Austur Indía fjelagið Hverfisgötu 56, s. 552 1630. Opið a.d. frá kl. 18. A næstu grösum Laugavegi 20, s. 552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22 v.d., 18-22 sd. og lokað ld. Banthai Laugavegi 130, s. 552 2444. Op. 18-22 md.-fid. og 18-23 föd.-sd. Carpe Diem Rauðarárstíg 18, s. 562 3350. Opið 11-23 alla daga. Caruso Þingholtsstræti 1, s. 562 7335. Opið sd.-fid. 11.30-23.30. Fd. og ld. 12.-2. Grænn kostur Skólavörðustíg 8b, s. 552 2028. Opið md.-ld. frá 11.30-21 og sd. frá 16-21. Hard Rock Café Kringlunni, s. 568 9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld., 12-23.30 sd. Hornið Hafnarstræti 15, s. 551 3340. Opið 11-23.30 alla daga. Hótel Borg Pósthusstrætí 11, s. 1440. Opið 8-23.30 alla daga. Hótel Esja Suðurlandsbraut 2, s. 568 9509. Opið 11-22 alla daga. Hótel Holt Bergstaðastræti 37, s. 552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30 v.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og Id. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflug- velli, s. 552 2322. Opið í Lóninu 5-23, í Blómasal 18.30-22. Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, s. 552 5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d„ 12-15 og 18-23.30 fd. og !d. Hótel Saga Grillið, s. 552 5033, Súlnasalur, s. 552 0221. Skrúður, s. 552 9900. Grillið opið 19-22.30 a.d., Súlnasalur 19-3 ld„ Skrúður 12-14 og 18-22 a.d.. Humarhúsið Amtmannsstíg 1, s. 561 3303. Opið 10-23.30 v.d„ 10-1 ld. og sd. Indókína Laugavegi 19, s. 552 2399. Opið 11.30-22.30 alla daga, Id. frá 11.30- 23.30. Ítalía Laugavegi 11, s. 552 4630. Opið 11.30- 23.30 alla daga. Jónatan Livingston Mávur Tryggvagötu 4-6, s. 551 5520. Opið 17.30- 23 v.d„ 17.30-23.30 fd. og ld. Kínaliofið Nýbýlavegi 20, s. 554 5022. Opið 17-21.45 v.d„ 17-22.45 fd„ ld. og sd. Kína-húsið Lækjargötu 8, s. 551 1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d„ 17.30- 23 fd„ 15-23 ld„ 17-22 sd. Kínamúrinn Laugavegi 126, s. 562 2258. Opið fd„ ld„ 11.30-23.30, sd.-fid._11.30-22.30. Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2, s. 551 1855. Opið 10-01 sd.-fid. og 11- 03 fd. ogld. Kringlukráin Kringlunni 4, s. 568 0878. Opið 12-1 v.d„ 12-3 fd. ogld. Lauga-ás Laugarásvegi 1, s. 553 1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar. Lækjarbrekka Bankastræti 2, s. 551 4430. Opið md.-mid. 11-23.30, fid.-sd. 11-0.30. Madonna Rauðarárstíg 27-29, s. 562 1988. Opið 11.30-23.30 a.d. Marhaba Rauðrárstíg 37, s. 562 6766. Opið a.d. nema md. 17.30- 23.30. Naustið Vesturgötu 6-8, s. 551 7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d„ 12- 14 og 18-03 fd. og ld. Ópera Lækjargötu 2, s. 552 9499. Op. 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld. Pasta Basta Klapparstíg 38, s. 561 3131. Opið virka daga frá 11.30 til I. 00 og um helgar til 3.00. Perlan Öskjuhlíð, s. 562 0200. Opið 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld. Potturinn og pannan Brautarholti 22, s. 551 1690. Opið a.d. 11.30-22. Primavera Austurstræti, s. 588 8555. Op. 12-14.30, 18-22 v.d„ 18-23 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd. Salatbarinn hjá Eika Fákafeni 9, s. 588 0222. Opið alla daga frá kl. II. 30.-20.30. nema ld. frá 11.30.-16. Lokað á sd. Samurai Ingólfsstræti la, s. 551 7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23. Singapore Reykjavlkurvegi 68, s. 555 4999. Opið 18-22 þd.-fid„ 18-23 fd.-sd. Sjanghæ Laugavegi 28, s. 551 6513. Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd. Sjö rósir Sigtúni 38, s. 588 3550. Opið 7-23.30 alla daga. Skólabrú Skólabrú 1, s. 562 4455. Opið frá kl. 18 alla daga og í hd. Steikhús Harðar Laugavegi 34, s. 551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„ i 11.30- 23.30 fd. og ld. Tilveran Linnetsstíg 1, s. 565 5250. Opið 11-23 alla daga. Við Tjörnina Templarasundi 3, s. 551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30 md.-fd„ 18-23 ld. og sd. Viðeyjarstofa Viðey, s. 568 1045 og 562 1934. Opið fid,- sud„ kaffist. kl. 14-17. Veitingasalur kl. 18-23.30. Vitabar Bergþórugötu 21, s. 551 7200. Opið 15-23.30,v.d„ 12-02 a.d. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldurs- götu 14, s. 552 3939. Opið 11-14.30 og 18-23.30 ld. og sd. Frumsýning á Hótel íslandi: Gleðisöngleikurinn | „Þetta er söngleikur í léttum dúr sem fjallar á gamansaman hátt um dag einn í lífi konungsfjölskyldu í litlu óþekktu konungsríki," segir Gunnar Sigurðsson, leikstjóri gleði- söngleiksins prinsessunnar, sem frumsýndur var á Hótel íslandi í gær- kvöldi og mun væntan- lega ganga fram eftir vetri. Dagurinn sem um ræðir er reyndar 21 árs afmælisdagur prinsessunnar og í tilefni hans hef- ur konungurinn látið þau boð út ganga að öllum sé frjálst að berjast um prinsessuna og kon- ungsríkið í leiðinni. Fjórir riddarar mæta til leiks og er hver þeirra fulltrúi fyrir alþekktar kvik- myndahetjur, þ.e. spæjari, kúreki, vera ber í sönnum ævintýrum. Sneri við blaðinu „Hugmyndin að verkinu kviknaði úti í Englandi þegar ég var í námi við Emerson College og setti upp leikrit eftir Stef- án bróður minn sem við nefnd- um The Ugly Princess. Sú upp- færsla var mun styttri hrárri þessi sem nú fer á svið á Hótel Islandi," segir Gunnar. Tildrög þess að Gunnar hóf nám við Emerson College voru ann- ars nokkuð óvenjuleg. Hann hafði rekið sölutum og myndbandaleigu til margra ára en ákvað síðan að snúa við blaðinu og reyna fyrir sér í leik- listinni. Hann sótti námskeið hjá Hlín Agnarsdóttur áður en hann hélt til Emerson og að loknu námi við Emerson stundaði hann nám við einn virtasta leiklistarskóla Bretlands, Bristol Old Vic. © Þess má geta að þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gunnar leik- stýrir verki á íslandi en fyrir nokkrum árum kom hann með leikhóp úr skól- anum sínum og setti upp verkið Isai ar gellur í Þjóðleikhúskjallaranui við mjög góðar undirtektir. Tónlistin leikur stórt hlutverk geimfari hermaður. Vonbrigði biðlanna verða hins vegar mik- il þá loks- ins þeir berja konuefn- ið augum því að prinsess- an er ekk- ert augna- yndi og um sinn finnst þeim allt sitt starf unnið fyrir gýg. En þó að allt stefni í óefni þá fá málin farsælan endi eins og Prinsessan er samstarfs- verkefni leikfélagsins Regínu og Snigla- bandsins. Tónlistin er að sjálfsögðu viðamikill þáttur í sýningunni og er sá þáttur að mestu leyti í höndum Pálma Sigur- hjartarson- ar. í verkinu eru nokkur frumsamin lög eftir Pálma og Jóhannsson en einnig má finna þar tónlist eftir Mozart, Orff, Deep Purple og Frank Zappa. Ellefu leikarar og dansarar taka þátt i sýning- unni ásamt Sniglabandinu. Þeir Pálmi Sigurhjartarson, sem margir þekkja úr Snigla- bandinu, og Gunnar Sig- urðsson leikstjóri hafa veg og vanda af upp- setningu prinsessunn- ar á Hótel (slandi. DV-mynd E.ÓI. Kammermúsíkklúbburinn heiðrar minningu Schuberts Um þessar mundir minnast tónlistarunnendur austurríska tónskáldsins Franz Schubert sem fæddist árið 1797 í Vín og andaðist á sama stað rúmum 30 árum síðar. Schubert dó langt fyrir aldur fram, og ber mönnum ekki saman um hvort það hafi verið úr lungnabólgu eða sárasótt. í ann- an stað eru þó flestir nokkuð vissir um það að enginn hefði orðið eins undrandi á umstanginu í kringum 200 ára afmælið og sjálfur Schubert. Er það mál manna að aldrei hafi jafhmerkur lista- maður verið metinn jafnlítils í lifanda lífl og Schubert - nema þá ef vera skyldi Van Gogh. Kammermúsíkklúbburinn hefur ekki látið sitt eftir liggja við að heiðra minningu Schuberts. Fyrr á þessu ári flutti klúbburinn tvö af þekkt- ustu kammerverkum meistarans, Píanótrió i B- dúr og Strengjakvartett í C-dúr og um helgina stendur til að flytja tvo strengjakvartetta til við- bótar auk þess sem söngkonan góðkunna, Sigrún Hjálmtýsdóttir, mun syngja nokkur lög eftir Schubert. Annars hefur klúbburinn á að skipa miklu einvalaliði hljóðfæraleikara, þar á meðal Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara og Helgu Þórarins- dóttur lágfiðluleikara, svo að einhverjir séu nefndir. Tónleikarnir á sunnudags- kvöld verða í Bústaða- kirkju og hefjast klukkan 20.30. -kbb Stórsýning Kristjáns Davíðssonar Einn þekktasti málari þjóðarinnar til margra ára, Kristján Dav- iðsson, opnar sýningu í austursal Kjarvalsstaða á morgun, laugar- dag. Að sögn Kristjáns spanna verkin á sýningunni síðastliðin 10 ár og sem fyrr er meginviðfangsefniö náttúran. „Við lifum nú og hrærumst í náttúrunni þannig að það er ekki annaö en sjálfsagt að hún verði listamanninum að yrkisefni," segir Kristján þegar hann er spurður hvers vegna náttúran sé svo áberandi í verkum hans. Kristján varð nýlega áttræður en er sífrjór sem fyrr og sýna verk- in á sýningunni glöggt að listamaðurinn er enn í mikilli þróun. Auk sýningar Kristjáns verða tvær aðrar sýningar opnaðar á Kjarvalsstöðum um helgina. Byggingarlistadeild Listasafns Reykja- víkur stendur fyrir sýningu á verkum Sigurðar Guðmundssonar arkitekts og einnig verður opnuð sýning á litháískri samtímalist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.