Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Page 12
26 lyndbönd MYNDBAHDA mmM £1 TIMOTHY IIUTTON SEAN PENN iT -w Njósnað fyrir KGB ★★★★ Myndin byggist á sönnum atburðum og segir frá unga manninum Boyce sem vinnur hjá fyrirtæki sem sér um upplýsingaöflun fyrir CIA í gegnum gervihnetti. Hann fær síðan æskufélaga sinn, eitur- lyfjasalann Lee, til að hjálpa sér að komast í sam- band við KGB og selja þeim upplýsingar. Þetta er ein af bestu myndum leikstjórans Johns Schlesingers sem gerði m.a. Midnight Cowboy (1962) og Marathon Man (1976). Persónumar eru mjög trúverðugar og yfirhöfuð vel leiknar. Undantekningin er kannski kærasta Boyce sem er lítt grunduð og grunn persóna. Söguþráðurinn er byggður vel upp og kemur vel til skila hvernig Boyce og Lee sökkva smám saman dýpra í njósnafenið þangað til þeir eiga ekki afturkvæmt. Timothy Hutton fer vel með aðalhlutverk- ið en stjama myndarinnar er Sean Penn sem túlkar hér guðsvolaðan aumingja af stakri snilld og hefur ekki gert betur síðan, nema þá kannski í Dead Man Walking. Hann nær að skapa verulega ógeðslega og nánast algjörlega siðblinda persónu en tekst jafnframt að túlka hana þannig að áhorfandinn getur ekki annað en haft samúð með henni. John Schlesinger virðist gera meistarastykki á ca. tíu ára fresti svo það ætti að fara að koma tími á eina slíka fljótlega. The Falcon & the Snowman. Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri John Schlesinger. Aðalhlutverk: Timothy Hutton og Sean Penn. Bandarísk, 1985. Lengd 126 mín. Bönnuð innan 16 ára. — -PJ Sjúskaður engill * Slúðurblaðið National Mirror sendir blaðamenn til Iowa til að athuga sannleiksgildi frásagnar konu nokkurrar sem segir að erkiengillinn Mikael búi hjá sér. Sagan virðist vera rétt en engillinn er þó allt öðravísi en blaðamennirnir höfðu gert sér í hugar- lund. Hann reykir, drekkur, stundar kynlíf og er oft ansi sóðalegur til fara. Hann fellst á að koma með þeim til Chicago og þau lenda í hinum og þessum æv- intýrum á leiðinni. Grunnhugmyndin um englasóð- ann er einhvers virði og nokkrir ágætir brandarar koma út úr henni en restin bregst alveg. Rómantíska kraftaverkasagan er leiðinleg, einkum vegna þess að handritið er afar illa skrifað, hugmyndasnautt, klisjukennt og steingelt. Persónurnar eru það ómerkilegar og óáhugaverðar að ekki einu sinni William Hurt get- ur náð neinni útgeislun. Sjálfur er John Travolta óvenjudaufur og m.a.s. dansatriðið er fremur þunnt og stendur Pulp Fiction-atriðinu langt að baki. Hin óþolandi Andie MacDowell er eins og hún á að sér að vera en þrátt fyrir alla gallana bjargar myndin sér um eina stjörnu með nokkrum hlægilegum englagrínsatriðum. Michael. Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Nora Ephron. Aðalhlut- verk: John Travolta, Andie MacDowell, William Hurt og Bob Hoskins. Bandarísk, 1996. Lengd: 100 mín. Öllum leyfð. -PJ *** Víetnam Þessi tiu ára gamla ferfalda óskarsverðlaunamynd eftir leikstjórann umdeilda, Oliver Stone, segir frá dvöl landgönguliðans Chris Taylors (Charlie Sheen) í Vietnam. Átökin í myndinni eiga sér fyrst og fremst stað innan herflokksins þar sem tvö gerólík sjónarmið takast á og persónugerast í liðþjálfunum Barnes og Elias (Tom Berenger og Willem Dafoe). Oliver Stone tekst mjög vel að koma brjálsemi og firringu stríðsrekstursins í Víetnam til skila en skýtur stundum yfir markið í melódramatíkinni, einna helst þegar Elias er drepinn. Aðalleikararnir þrír skapa allir sterkar persónur, sérstaklega Tom Berenger, sem lítið hefur gert af viti síðan, en margir láta einnig ljós sitt skína í aukahlutverkum. Sérstaklega túlkar John C. McGinley sitt hlutverk vel en einnig má nefna Keith David, Kevin Dillon, Francesco Quinn og Mark Moses. Einnig er þarna að finna í pínuhlutverkum menn sem síðar urðu stórstjörnur, Forrest Whitaker og Johnny Depp. Platoon er alls ekki gallalaus en tekur vel á erfiðu viðfangséfni og er áhrifarík og eftirminnileg. Platoon. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri Oliver Stone. Aðalhlutverk: Charlie Sheen, Tom Berenger og Willem Dafoe. Bandarísk, 1986. Lengd: 115 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Ofurljónin elt ** Val Kilmer leikur verkfræðing sem fer til Afríku til að reisa brú. Babb kemur í bátinn þegar tvö ljón taka upp á því að snæða einn og einn vinnumann þegar færi gefst. Eftir nokkrar misheppnaðar til- raunir til að veiða ljónin kemur atvinnuveiðimaður- inn Remington (Michael Douglas) til aðstoðar og í sameiningu reyna verkfræðingurinn og veiðimaður- inn að leika á ljónin. Myndin á víst að vera byggð á sönnum atburðum en heldur þykir mér hún ólík- indaleg og ótrúverðug. Ljónin eiga að vera eins kon- ar ofurljón sem haga sér allt öðravísi en venjuleg ljón („ljón gera ekki svona“ er algengasta setning myndarinnar) og reynt er að gefa i skyn einhverja mystík og dularfullan skilning ljón- anna. Persónusköpun er stöðluð og bjánaleg og þvi varla við miklu að búast af leikurunum. Val Kilmer er þó þolanlegur en Michael Douglas er eins og út úr kú sem einhvers konar Batman-útgáfa af veiðimanni. Myndin hefur þó afþreyingargildi og nær oft upp nokkurri spennu en skemmtilegast er að fylgjast með ljónunum slátra manngreyjunum (verst að þau skuli ekki hafa náð verkfræðingshelvitinu lika). The Ghost and the Darkness. Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Stephen Hopkins. Aðalhlutverk: Michael Douglas og Val Kilmer. Banda- rísk, 1996. Lengd: 106 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 Myndbandalisti vikunnar • © • 29. júlí til 4. ágúst júlí i SÆTI! FYRRI VIKA Ný Ný j VIKUR j jÁ LISTAj i j j j j j TITILL Jerry Maguire Michael UTGEF. ! TEG. Skífan Drama J Sam-myndbönd J Gaman J J 3 j j 1 ! 2 J i L J Mars Attacks j j Warner myndir j Gaman 4 j j j Ný 1 J ; 1 i Ghost and the Darkness j j j J ClC-myndbönd J Spenna 5 J J 2 3 j Extreme Measures j j J Skrfan j Spenna 6 j j j J j 3 4 i J 1 5 J 3 J i J í 5 J i J Z j i j Fled j j j j j j Warner myndir J Sam-myndbönd J Sam-myndbönd j j Spenna 7 Ransom Spenna S j j j 13 5 Thinner j J Spenna 9 J J ! 4 i High School High J J Skrfan j Gaman 10 j j j 7 BK 5 i i J Shes the One j j j J Skrfan J J Gaman 11 j j 10 4 i Two Days in the Valley j j Sam-myndbönd j Spenna 12 j j j . 6 1 J 5 í Daylight j j j J ClC-myndbönd j Spenna 13 J J n ; 2 1 In Love and War J J J Myndform j Drama 14 j j j j j j . j j j 9 11 J i J 3 J á j i J 6 J Shine j i j j j Háskólabíó j j Myndform j Sam-myndbönd j J Drama 15 Set it off j j j j j Spenna 16 mHbH 8 1 Ný ] 18 j j i J x 1 3 j i j Preachers Wife Gaman 17 J J ! i i My Fellow Americans J J Warnermyndir j Gaman 1S j j j 6 J i J That Thing You Do! j j j J Skífan J J Gaman 19 j j 15 j » i Sleepers j j Háskólabíó j Spenna 20 j j j • I ! J 1 í Darklands j j j J Stjömubíó j Spenna Jerry Maguire stekkur beinustu leið inn í fyrsta sæti myndbandalistans. Aðrar nýjar myndir eru Michael, sem kemur ný inn í annað sæti, og Ghost and the Darkness sem er í því fjórða. Mars Attacks, sem var í fyrsta sæti í síðustu viku, er fallin í það þriðja og Extreme Measures, sem var í öðru sæti, fellur í það fimmta. Mikil endurnýjun er á listanum þessa dag- ana. Prjár myndir koma nýjar inn eins og áður sagði. Myndin í þriðja sæti kom ný inn í síðustu viku og sú í fimmta sæti þar áður. Á myndinni er Jerry ásamt skjólstæðingi sínum. - i JÍsíf* íg i|... Éi Jerry Maguire Tom Cruise og Cuba Gooding Jr. Jerry (Cruise) starfar hjá umboðs- fyrirtæki og er sér- fræðingur í að búa til stjörnur úr efni- legum íþróttamönn- um. Einn daginn tek- ur hann upp á því að fara að efast um sið- gæðið innan fyrir- tækisins. Þetta hefur þau áhrif að hann er rekinn. Einn skjól- stæðinga hans vill hafa hann áfram. Það er Ron Tidwell (Gooding). Jerry ein- setur sér að gera hann að stjömu eftir heiðarlegum leiðum og sanna að hann hafi rétt fyrir sér. Michael John Travolta, Andie McDowell, John Hurt, Bob Hoskins og Robert Pastorelli. Sögusagnir þess efnis að erkiengill- inn Michael sé stadd- ur á bóndabæ i Iowa- fylki Bandaríkjanna verða til þess að hinn útbrunni blaða- maður fer á staðinn til að semja uppslátt- arfrétt, sama hvort sönn sé eða login. Önugur ritstjóri blaðsins treystir honum þó ekki betur en svo að hann send- ir englasérfræðing- inn Dorothy Winters (McDoweO) og annan álíka misheppnaðan blaðamann með hon- um. Mars Attacks! Jack Nicholson, Annette Bening og Glenn Close. Myndin segir frá því er geimskip byrja skyndilega að streyma til jarðar frá Mars. Innanborðs eru heldur ófrýnileg- ir Marsbúar sem ómögulegt er að geta sér til um hvað eru að hugsa. Það verður að sjálfsögðu uppi fótur og fit á jörðu niðri þar sem fólk hefur enga hugmynd um hvernig taka skuli á móti hinum óvæntu gestum. Her- inn er þó í viðbragðs- stöðu og í ljós kemur að fuH þörf er fyrir hann. The Ghost and the Darkness Michael Douglas og Val Kilmer. Myndin er byggð á atburðum sem áttu sér stað í Austur-Afr- íku 1896 þegar tvö mannætuljón oUu usla þar. Ljónin ofsækja menn sem vinna að brúarsmíð inni í miðju landinu. Þau vinna saman og hræðast ekkert auk þess sem þau virðast drepa sér til ánægju. Veiðimaðurinn Remington (Douglas) og verkfræðingurinn Patterson (Kilmer) fá það verkefni að stöðva dýrin. Extreme Measures Gene Hackman og Hugh Grant. Þegar heimilis- laus maður sem ber armband merkt nafni þekkts sjúkra- húss deyr á slysa- varðstofu í New York veitir enginn því athygli nema ungur læknir, Guy Luthans að nafni. Hann ákveður að grennslast fyrir um málið og ekki liður á löngu uns athygli hans beinist að virtri og víðfrægri rannsóknarstofnun sem stýrt er af ein- um færasta og fræg- asta lækni og vís- indamanni lands- ins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.