Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Qupperneq 11
Bresk-bandaríska hljómsveitin Fleetwood Mac er ekki dauð úr öll- um æðum. Það sanna viðtökur nýj- ustu plötunnar hennar, The Dance, sem fór rakleitt i efsta sæti banda- ríska Billboard-listans og hratt þar með Puff Daddy & the Family nið- ur í annað sætið. Þrjátíu ár voru liðin í síðasta mánuði síðan Fleetwood Mac lék í fyrsta skipti opinberlega. Síðan þá eru einungis Mick Fleetwood, trommuleikari, og John McVie, bassaleikari, eftir í hljómsveitinni. Christine McVie kom tiltölulega fljótt til leiks en á áratugunum þremur hefur heilmikill fjöldi hljóðfæraleikara og söngvara kom- ið við sögu. Hæst reis hins vegar stjama Fleetwood Mac um miðjan áttunda áratuginn. Og hápunktur þess tíma var útgáfa plötunnar Rumours. The Dance er einmitt gefin út til að minnast þess að á þessu ári eru tuttugu ár frá því að hún kom út. Á nýju plötunni eru sautján lög. Þrettán þeirra voru hljóðrituð fyrir sérstakan þátt sem MTV-sjónvarps- stöðin er að gera um hljómsveitina. Þetta eru gamalkunnir smellir á borð við Dreams, Rhiannon, The Chain, Don’t Stop og Tusk. Á plöt- unni eru einnig fjögur ný lög sem voru unnin í hljóðveri. Þau eru Temporary One eftir Christine McVie, Sweet Girl, sem Stevie Nicks samdi, og Bleed to Love Her og My Little Demon eftir Lindsey Buckingham. Nicks og Bucking- ham yfirgáfu hljómsveitina einmitt fyrir löngu en eru nú komin aftur til samstarfs við gamla fjandvini. Eins og smurð vál Um það leyti sem platan Rumo- urs var tekin upp var ákaflega stirt milli fimmmenninganna í Fleetwood Mac. Hjónin John og Christine McVie voru að skilja. Sömuleiðis sambýlisfólkið Stevie Nicks og Lindsey Buckingham. Mick Fleetwood var að skilja við konu sína og um skeið voru þau Stevie par. Málin gátu vart orðið flóknari og samstarfsandinn var í stíl við ástandið. Þrátt fyrir þetta starfaði Fleetwood Mac í mörg ár eftir að Buckingham og Nicks fóru sína leið en þótt andlát hljómsveit- arinnar hafi aldrei verið tilkynnt má segja að hún hafi verið hætt að starfa þegar ákveðið var að taka þráðinn upp að nýju. Hópurinn safnaðist saman smátt og smátt. í upphafi hittust Mick Fleetwood og Lindsey Buck- ingham. Þeir tóku tal saman og uppgötvuðu von bráðar að þeim leið bara hreint ekkert svo illa í návist hvor annars. Buckingham var að vinna að nýjum lögum og hann bað gamla samstarfsmann- inn að tromma með sér. Dag einn var að því komið að það þurfti að bæta bassaleik við upptökurnar sem þeir höfðu lokið og Bucking- ham spurði hvaða bassaleikara hann ætti að fá. „Ég gat svo sem sagt mér það fyrirfram hvern hann myndi nefna," segir hann. Nokkru eftir að John McVie var byrjaður að vinna með hinum var Christine McVie beðin að koma og syngja nokkrar raddir. Henni kom jafnmikið á óvart og hinum aö^ henni gekk bara vel að lynda við karlana þrjá. Og þá var ekki ann- að eftir en að bjóða Stevie Nicks í hópinn. „Ég hafði það alltaf á tilfinning- unni að einn daginn kæmi að því að við tækjum upp þráðinn að nýju,“ segir hún. Hljómsveitin æfði nokkrum sinnum og komst að því að hún hljómaði betur en nokkru sinni fyrr. Allir áttu nóg af nýju efni og það small einnig saman. Á endan- um var ákveðið að halda upp á af- - mæli Rumours-plötunnar með út- gáfu og hljómleikaferð sem er að hefjast. „Auðvitað skipta viðskiptamál- in heilmiklu í þessu sambandi," segir Mick Fleetwood. „Staðreynd- in er hins vegar sú að enginn neyddi okkur til að koma saman að nýju. Við vildum þetta öll sjálf. Ef einhver hefði ekki verið með hefði náttúrlega ekkert orðið úr tiltækinu. En við vitum að þegar við fimm unnum saman var Fleetwood Mac best. Við höfum þroskast síðan leiðir skildu og gömul ágreiningsmál heyra fortíð- inni til.“ Samantekt: ÁT Rosmhvalanesfestival '97 Á morgun verður haldið Rosmhvala- nesfestival í Samkomuhúsinu í Sand- gerði. Húsiö verður opnað kl. 18.00. Þeir sem fæddir eru árin 1985-1987 fá að vera með til kl. 21.00. Fyrir þá sem eldri eru er dagskrá til kl. 01.00. Á staðnum verða ýmsar uppákomur, m.a. söngvarakeppni. Hljómsveitin Konukvöl mætir á svæðið og mun ásamt ísmanninum sjá um að halda uppi fjörinu. Aðgangseyrir er kr. 100 og er skemmtunin vímuefna- og tó- bakslaus. Kaffi I kvöld sjá Sigga Beinteins og Grétar Sigga ojg Gretar a Akureyri Örvarsson um fjörið á Kaffi Akureyri. Annað kvöld sér hins vegar Pétur Guð- jóns um dans- og diskótónlistina frá ár- unum 1975- 1985, í bland við íslenska stuðsmelli. Greifarnir Hljómsveitin Greifarnir er búin að eiga mjög gott sumar og því er ekki lok- ið enn. í kvöld spila þeir á Dalvík og annað kvöld verða þeir á Hótel Vala- skjálf á Egilsstöðum. Kaffi Reykjavík í kvöld mun hljómsveitin Áttavillt leika Sóldögg verður á fyrir dansi. Ann- Kaffi Reykjavík á að kvöld mun laugardagskvöld. síðan Sóldögg leika fyrir gesti. Land og synir á Gauknum Nýja hljómsveitin á toppi íslenska list- ans, Land og synir, mun spila á Gauki á Stöng í kvöld og annað kvöld. Hljóm- sveitin hefur verið að hita upp fyrir Sál- ina hans Jóns míns í sumar. Últra á fullri ferð Hljómsveitin Últra mun troða upp á A. Hansen í Hafnarfirði í kvöld. Annað kvöld færir hún sig hins vegar um set og spilar í Festi í Grindavík. Þessa geð- þekku hljómsveit skipa Anton Kröyer á hljómborð, Sigurjón Alexandersson (Dúddi stuð) á gítar og þær söngsystur Elín Helena Klemensdóttir og Guðbjörg Bjamadóttir. Leikið verður siðsumar- rokk. iM Vestanhafs á Fógetanum Nú um helgina mun skemmti- og gleði- sveitin Vestanhafs skemmta gestum Fó- getans. Sveit þessa skipa Jón Ingólfs á bassa, Bjöggi Gísla á gítar og Jón Björg- vins á trommur. í hvítum sokkum í Kringlu- kránni Hljómsveitin í hvítum sokkum, sem skipuð er þeim Guðmundi Rúnari Lúð- víkssyni og Hlöðveri Gunnarssyni, mun spila i aðalsal Kringlukrárinnar næstu þrjú kvöld. Þeir sjá um fjöruga og lifandi tónlist eins og hún gerist best í Kringlu- kránni. í leikstofunni mun Viðar Jóns- son trúbador skemmta í kvöld og annað kvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.